Morgunblaðið - 10.12.1960, Page 2
2
MORGVHPT 4 01 B
Laugardagur 10. des. 1960
Tekur F. I. við ískönnun
við Grænland um áramót?
Frétt Berlimjatíðinda um það ekki staðfest hér
Kaupmannahöfn, 9. des.
(Einkaskeyti frá
fréttaritara Mbl.)
DÖNSKU blöðin ræða í dag
í fyrsta skipti samningana
við Flugfélag íslands um ís-
könnunarflug við Grænland
— og segja Berlíngatíðindi
m. a., að Flugfélagið muni
taka við þessari mikilvægu
þjónustu frá og með næstu
áramótum.
* Til mikilla b*U
Öll blöðin leggja áherzlu á
það, að miklu hagkvæmara
verði að nota íslenzka Skymast-
er-flugvél til ískönnunarflugsins
heldur en Katalína-vélar þær,
sem hingað til hafa verið not-
aðar. Skymaster-vélin hafi öfl-
ugri ratsjá, sé hraðfleygari og
geti því kannað stærri svæði,
auk þess sem hún muni ein-
göngu sinna ískönnuninni, þar
sem Kataiínavélarnar hafi hins
vegar haft öðrum verkefnum að
sinna jafnframt. ískönnunin við
Grænland ætti þannig að geta
— Laos
Framh. af bls. 1
ursta hefði haldið til Chinaimo-
herbúðanna, rúma 60 km fyrir
austan Vientiane. — Þá sagði
útvarpið, að erlend ríki, sem
„hefðu sendiráð í Vientiane",
hefðu hlutazt til um innanríkis-
mál Laos að undanfömu. Var
þannig frá þessu sagt, að ekki
var um að villast, að átt var við
Bandarikin og Thailand með
bessum orðum.
Hætta yfirvofandi
Kong Lae er vinstrisinn-
aður og talinn styðja Pathet
Lao-kommúnistana, en þeir eru
nú einnig sagðir vera að draga
saman lið eigi langt frá Vienti-
ane. Virðist ástandið á þessu
svæði því uggvænlegt og geta
dregið til harðra átaka, hvenær
sem er — enda lýsti Souvanna
Phouma því yfir í dag eftir
skyndifund, sem hann hélt með
ráðuneyti sínu, að hann óttaðist
mjög ný átök. Skoraði hann á
alla þá, sem ráða fyrir herliði
í borginni eða í grennd við hana
að forðast átök — og bað þá
semja um vopnahlé sín á milli.
Annars væri stórhætta á blóð-
ugri borgarastyrjöld.
Souvanna flúinn?
AFP-fréttastofan franska
skýrði frá því seint í kvöld,
að Souvanna Phouma for-
sætisráðherra Laos hefði
skyndilega og óvænt komið
til höfuðborgar nágrannarík-
isins Kambódíu.
orðið mun víðtækari og nákvæm taka við og teikna upp ískort,
ari í framtíðinni en yerið hafi.
á Meiri nákvæmni
Dagens Nyheder segir, að
Skymaster-flugvélin eigi ekki
aðeins að kanna svæðið við
Hvarf, heldur muni hún öðru
hverju fljúga allt norður undir
Angmagsalik til þess að fylgj-
ast með „ferðum" issins að norð
an, suður á bóginn til Hvarfs.
— Þá skulu Grænlandsförin sem
fyrst búin tækjum til þess að
sem send verða símleiðis — og
verður þá unnt að fylgjast með
hreyfingum íssins með miklu
meiri nákvæmni en áður.
— ★ —
Mbl. sneri sér til Sveins Sæ-
mundssonar, blaðafulltrúa Flug-
félagsins, og spurði hann hvort
samningur um ískönnunarflugið
hefði verið undirritaður. Kvaðst
Sveinn ekki geta gefið neinar
upplýsingar á þessu stigi máls-
ins. —.
10 bifreiðu-
órekstrar í
hulkunni
!í GÆRMORGUN kólnaði
nokkuð skyndilega í Reykja-
vík og gerði hálku á götunum.
Afleiðingin varð sú að margir
árekstrar urðu á götum bæj-
arins, en engin slys á mönnum
hlutust af því. Síðdegis í gær
hafði lögreglan haft afskipti
af 10 bifreiðaárekstrum. —
Höfðu bílarnir ýmist rekist á
aðra bíla eða eitthvað annað.
Vill lögreglan beina því til
bifreiðastjóra að þeir fari sér
staklega gætilega þegar svo
skyndilega frýs.
Þeir leyna á sér þessir taumar
Veiðarfæti og vélar á uppboði
— Alsír
HAFNARFIRÐI. — Enn eitt
uppboðið var haldið hér í
gærdag, og eins og fyrr, á hlut
um úr eignahúi Jóns Kr.
Gunnarssonar. Fór þaS fram í
fiskverkunarstöðinni við Hval
eyrarbraut og var margt
manna þar eða milli 50 og 60.
Var það mál manna ,sem vit
hafa á, að flest eða allt, er
upp var boðið, hafi farið á
gjafverði.
Mikið af veiðarfærum o. fl.
Fyrst var boðin upp 2 ára
gömul flatnings- og hausunar
vél, og buðu tveir aðilar í
hana. Jón Gíslason byrjaði
með 200 þús. kr., síðan Loftur
Bjarnason fyrir Venus hf. 300
þús. kr., en siðan hækkuðu
þeir sig á vízl, og að lokum
var vélin slegin Venusi á 480
þúsund krónur. — Þessu næst
voru boðin upp ýmis veiðar-
færi, og má þar til nefna lóða
belgi, sem Guðm. Guðmunds-
soo forstjóri Lýsi og Mjöl
keypti á 6000 kr., 75 þús. næl-
ontaumar, sem slegið var
sama aðila á 9.200 kr., en er
virt á 15—20 þús. 57 stk. af
ýsunetum var slegið Ásum hf.,
Keflavík
4RSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélaganna
í Keflavík verður í Ungmenna-
félagshúsinu kl. 8:30 í kvöld.
Ræður flytja alþingismennirnir
Alfreð Gíslason og Matthías A.
Mathiesen. Erlingur Vigfússon
syngur einsöng. Einnig verða
leikþættir fluttir og fleira er til
skemmtunar.
Allt Sjálfstæðisfólk í Kefla-
vík og nágrenni er hvatt til að
mæta.
en fyrir þá bauð Karl Auðuns
son. Fékk hann þau á 800 kr.
>á fóru 7500 stk. af netakúl-
um ,sem eru virtar á a.m.k.
50 þús. kr., á einar 16.500, og
keypti Guðmundur Guðmunds
son þær. Stór bólfærahrúga
fór á 2000 kr. og voru það
mjög hagkvæm kaup, sem Ás-
ar hf. gerði þar. Einnig keyptu
þeir 223 stk. af nýjum lóðum
á 23 þús kr.
Ýmislegt fleira, sem við
kemur útgerð, var boðið
þarna upp, svo sem trillu-
þorskanet, baujukúlur, reknet
og margt fleira.
„Þeir leyna á sér þessir
taumar".
Eins og fyrri daginn var
Jón Finnsson, hilltrúi, upp-
boðshaldari og honum til að-
stoðar Jóhann Þórðarson full-
trúi og Gunnlaugur Guð-
mundsson tollgæzlumaður. —
Var Jón að vanda hinn hressi
legasti við uppboðið og lét
brandarana óspart fjúka. Til
dæmis varð honum að orði
þegar hann var að bjóða upp
nælontauma og honum þótti
menn nokkuð lengi að ákveða
sig: „Þeir leyna á sér þessir
taumar“. Varð þá almennur
hlátur og höfðtu menn gaman
af. — G. E.
Stór og feit síld
I FYRRINÓTT veiddist síld í
Miðnessjó og er það í fyrsta sinn
á þessu hausti. Fréttaritarar
blaðsíns i verstöðvunum símuðu
eftirfarandi fregnir af þessu í
gær og sögðu að sildin væri yf-
irleitt stór og feit og mest af
henni yrði eflaust saltað.
KEFLAVÍK, 9. des. — Hingað
komu 8 bátar með samtals 2800
tunnur síldar og var mest af
henni veitt í Miðnessjó. Afla-
hæst var- Kristbjörg með 350
tunnur, Síldin mun nær öll verða
söltuð. — Helgi S.
AKRANESI, 9. des. — Um 2000
tunnur síldar bárust hingað í
dag. Aflahæstu bátarnir eru Sig-
urvon og Sigurður með 600 tunn
ur hvor,
HAFNARFIRÐI. .
Hmgað komu meðal annars
þessir bátar: Auðunn 250 tunnur,
Faxaborg 180, Eldborg um 150,
Fjarðarklettur 110 og Stefnir
fékk 45 tunnur í reknet.
Frh. af bls. 1
var hleypt af, og enginn mun
hafa særzt alvarlega, en hins
vegar urðu meiri og minni
skemmdir á farartækjum og
húsum og öðrum mannvirkj-
um I grjóthríðinni. — Svipað
þessu var ástandið í Oran.
• „ÉG FER TIL ÞEIRRA"
Mikill fjöldi var á götum
úfi, þegar de Gaulle kom til
Ain Temouchent, og bar þar
mest á andstæðingum forsetans,
sem æptu: „Alsír er franskt“ -—
og ýmis ókvæðisorð og hótanir.
Borðar með áritunum eins og:
„Lengi lifi de Gaulle", „Lengi
lifi Alsír“, „Lengi lifi Frakk-
land“ höfðu verið rifnir í tætl-
ur af fjandmönnum forsetans.
— Ég fer til þeirra — þessara
öskurapa, muldraði hinn sjötugi
forseti — og lífvörðum hans til
mikillar angistar, gekk hann inn
í mannfjöldann. Með þessu tókst
forsetanum hins vegar að snúa
mannfjöldanum að allmiklu
leyti til fylgis við sig, og brátt
hljómaði „lengi lifi de Gaulle“
úr öllum áttum.
• EKKI ÖSKUR,
HELDUR AÐGERÐIR
í veizlu, sem haldin var í
ráðhúsi borgarinnar, sagði de
Gaulle, að hann væri sannfærð-
ur um, að við þjóðaratkvæða-
greiðsluna í næsta mánuði yrði
yfirgnæfandi meirihluti fylgj-
andi stefnu stjórnarinnar í
Alsír — þá að veita Alsírbúum
sjálfsákvörðunarrétt um framtíð
sína. — Við verðum að hlýða
rödd skynseminnar, en ekki út-
slitnum slagorðum. Bæði Serkir
og Evrópumenn í Alsír eru
Alsírbúar, sagði forsetinn.
— Þeir, sem eru a ð æpa
þarna úti, sagði hann, — æsa
sig upp tii einskis. Það eru ekki
öskur hcldur aðgerðir, sem þarf
til þess að stofna Alsír bræðra-
lagsins. Gekk de Gaulle síðan
að Evrópumanni og Serkja, tók
í hendur þeirra, dró þá hvorn
að öðrum og sagði: — Slíkt skal
Alsír framtíðarinnar vera.
— Kongó
Framh. af bls. 1
tækar allar eignir Belgiumanna
í héraðinu, ef Lumuba og fé-
lagar hans væru ekki látnir
lausir án tafar.
Frá New York berast þær
fréttir, að ráðgjafanefnd Hamm-
arskjölds í Kongómálunum hafi
komið saman til fundar í skyndi
í dag, vegna fyrrgreindra hót-
ana Salamus, og samþykkt að
senda þriggja manna undirnefnd
til Kongó nk. þriðjudag, en í
nefndinni verða fulltrúar frá
Malaya, Eþíópíu og Nígeríu.
Veðurspáin kl. 19 í gærkv.:
SV-land til Vestfjarða og
miðin: Vaxandi SA átt, víða
hvasst og rigning í nótt, geng
ur í sunnan eða SV stinnings
kalda með skúrum á morgun.
Norðurland til Austfjarða
og miðin: SA gola og bjart
veður fyrst, stinningskaldi og
þíðviðri á morgun.
SA-land og miðin: SA kaldi
í kvöld, allhvasst á morgun,
skúrir.
Djúpa lægðin við Suður-
Grænland ásamt hæðinni yf
ir Norðurlöndum mun valda
suðlægri átt á meiri hluta
Atlantshafsins. Eru því iíkur
á að þíðviðri haldist hér a
landi fram yfir helgina.
Á Austur-Svíþjóð er nú
frost, og snjóktma á Eystra-
saltsströndinni. í Danmörku
og Noregi var einnig frost,
en úrkomulaust.
Guðrún Jóhannsdótiir
frá Ásláksstöðum
Mmnina urjóni Sumarliðasyni, fyrrum
~ landpósti og bjuggu þau á Ás-
láksstöðum í Kræklingahlíð, þar
til þau fluttust til Akureyrar
árið 1930. Þeim varð ekki barna
auðið en einn fósturson ólu þau
upp, Vigni Guðmundsson, blaða-
mann. Sigurjón póstur lézt fyrir
sex árum, og eftir það átti Guð
rún heima hjá fóstursyni sinum
og tengdadóttur.
Guðrún Jóhannsdóttir var
merkileg kona og hlaut að verða
minnisstæð hverjum sem kynnt-
ist henni. Hún var glæsileg og
höfðingleg í fasi og bar með sér
að hún hafði alizt upp á stórbýii
á fyrri aldar visu. En sterkustu
þættimir í persónugerð hennar
voru samt mildi og umburðar-
lyndi. Guðrún var mikil trú-
kona, en hleypidómalaus í trú-
málum sem öðru.
Ég heimsótti Guðrúnu í sum-
ar. Hún hafði þá lengi verið
rúmföst. Þegar ég kom inn til
hennar sat hún uppi í rúmi sínu
og las. Á hillu við rúmið voru
staflar af bókum, á ensku,
dönsku og íslenzku, sem flestar
voru um andleg efni. Líkamlegri
heilsu Guðrúnar var mjög farið
aftur, en andleg heilbrigði henn-
ar var fullkomlega óskert. Hún
ræddi við mig nokkra stund,
m. a. um það sem hún hafði ver-
ið að lesa. Talið barst einnig að
trúmálum og Guðrún sagðist
ekki kvíða væntanlegum vista-
skiptum. — Enda mun hún hafa
átt góða heimvon.
Jón Hnefill Aðalstcinsson.
Guðrún Jóhannsdóttir frá
Ásláksstöðum er lézt að heimili
sínu, Munkaþverárstræti 3 á Ak-
ureyri, sl. mánudag, verður
jarðsett í dag í Lögmannshlíð.
Guðrún var fædd 9. september
1878 að Grjótárgerði í Fnjóska-
dal. Foreldrar hennar voru Jó-
hann Einarsson, bóndi og kenn-
ari, er lengst bjó á Víðivöllum í
Fnjóskadal, og fyrri kona hans
Salome Kristin Jónsdóttir, Mýr-
dals skálds.
Guðrún naut nokkurrar mennt
unar í æsku. Var hún í hús-
mæðraskólanum á Laugalandi,
en dvaldist eftir það á Borg á
Mýrum og í Reykjavík. Á Borg
var hún hjá séra Einari Frið-
geirssyni og var m. a. um skeið
heimiliskennari þar.
Árið 1909 giftist Guðrún Sig-