Morgunblaðið - 10.12.1960, Blaðsíða 23
Laugardagur 10. des. 1960
MORGUNBLABIÐ
23
„Byssurnor í
Navarone“
Saga úr síðustu
heimsstyrjöld
„BYSSURNAK í NAVARONE",
nefnist bók eftir skozka rithöf-
undinn Alistair MacLean, sem
komin er út á vegum IÐUNNAR.
í>ýðandi er Andrés Kristjánsson,
ritstjóri.
Efni bókarinnar er í skemmstu
máli sem hér segir: Tólf hundruð
hermenn úr liði Bandamanna í
síðustu heimsstyrjöld voru ein-
angraðir á eyjunni Kheros und-
an Tyrklandsströnd. Eina und-
ankomuleið þeirra lá um þröngt
eyjasund fram hjá eyunni Nav-
arone, þar sem Þjóðverjar sátu
og höfðu gert sér óvinnandi fall
byssuvígi í sjávarhömrunum við
sundið. Undankomuleið hinna
tólf hundruð hermanna var því
algerlega lokuð. £>á var það, að
fimm mönnum undir forystu
fjallgöngugarpsins og skemmdar
verkamannsins, Keith Mallory,
Framh. af bls. 13.
Við gáfum okkur á tal við þær
og spurðum:
— Hvaðan eruð þið?
— Frá Hafnarfirði, sagði
Ingibjörg Sæmundsdóttir, en
það var hún, sem virtist fær-
ust í flökunarlistinni.
— Við vinnum allar hjá
Frosta h.f.
— Hafið þið unnið þar
lengi?
— Alltaf af og til, síðan við
vorum 15 ára, sögðu Sigrún
Jónsdóttir og Rannveig
Kjærnested, sem litu út fyrir
að vera um tvítugt, en Ingi-
björg hefur unnið þar í IVz
ár.
— Já, í Hafnarfirði, ég flutt-
ist þangað fyrir tæpum tveim
ur árum, en áður hef ég unnið
við fisk fyrir norðan, skaut
Ingibjörg inn í.
— Hvað eruð þið margar
hér úr Hafnarfirði?
— Við erum 6.
— Komið þið hérna ég skal
sýna ykkur, segir Valdemar
Þórðarson, einn af leiðbein-
endunum við tvær stúlkur,
við fylgjum þeim eftir og ætl-
um að sjá, hvort við getum
ekki haft gott af fræðslunni.
— Jæja, taktu nú við hnífn-
um, segir Valdemar við aðra
stúlkuna. — Já, þetta er
ágætt, en ekki lengra, þú
ert komin alveg upp að beini.
Nú skiljum við ekki meira,
en spyrjum hina stúlkuna!
— í hvaða frystihúsi vinn-
ið þið?
— Frystihúsj Stokkseyrar,
segir hún og kveðst heita Jó-
hanna Þorsteinsdóttir. Ég hef
unnið þar við og við í 19 ár
við flökun, snyrtingu og pökk-
un, en hún Jóna (hún er Guð-
jónsdóttir) hefur unnið þar í
Alistair MacLean
höfuðsmanns, var falið það ofur
mannlega verkefni að laumast á
land x Navarone, læðast inn í
sjálft fallbyssuvígið og sprengja
byssurnar í loft upp.
í bókinni er síðan rakin frá-
sögnin af þessari einstæðu háska
för. Á kápu bókarinnar segir, að
það þurfi „sterkar taugar til að
lesa þessa bók og óvenjulegt vilja
þrek til að leggja hana frá sér
hálflesna".
4 ár. Við erum báðar fæddar
og uppaldar á Stokkseyri.
— ★ —
Nú snýr Jóhanna sér að
flökuninni, við viljum ekki
trufla hana lengur, en sjáum
hvar tvær stúlkur standa verk
lausar í hinum enda salarins
og hröðum okkur til þeirra.
— Eruð þið orðnar útlærð-
ar
— Nei, við erum bara að
hvila okkur.
— Er þetta erfitt?
— Nei, við erum bara að
læra pökkun og snyrtingu, en
það er erfiðara að flaka.
— Hvað heitið þið?
— Jóhanna Sigurþórsdóttir
og Palla Guðnadóttir, við er-
um úr Keflavík og vinnum
þar í frystihúsi.
— Hvernig líkar ykkur?
— Ágætlega, einnig er oft
mikið upp úr þessu að hafa.
— Haldið þið að þið hafið
gagn af námskeiðinu?
— Já, áreiðanlega, það er
að segja, ef við hvílum okk-
ur ekki of lengi, segir Jó-
hanna og kímir.
— Við skulum ekki trufla
ykkur lengur, segjum við, og
stúlkurnar snúa sér að verk-
inu með endurnýjuðum
áhuga.
&
SKIPAUTGCRB RIKISIN5
Hekla
austur um land t.il Akureyrar
15. þ.m. Tekið á móti flutningi
árdegis í dag og á mánudag til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Þórshafn
ar, Raufarhafnar, Kópaskers og
Húsavíkur. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
BALDUR
fer frá Reykjavík á þriðjudag
til Hellissands, Gilsfjarðar og
Hvammsfjarðarhafna. Vörumót-
taka á mánudag.____________
Félagslíf
Judo
Munið fundinn á mánud. 12.
des. kl. 8,30 e.h. í Aðalstræti 12.
Sýndar verða skuggamyndir af
Judo. Mætið stundvíslega.
Körfuknattleiksdeild Ármanns
gengst fyrir námskeiði í körfu
knattleik fyrir pilta á aldrinum
15 ára og yngri og hefst nám-
skeiðið þriðjudag 13. des. kl. 7,15
í fimleikasal Gagnfræðaskóla
Austurbæjar (stærri sal). Þjálf
arar verða nokkrir fremstu körfu
knattleiksmenn Ármanns. —
Þatttökugjald verður kr. 100. —
Allir velkomnir.
Aðalfundur H. K. D. R.
sem halda átti sl. föstudag, en
féll niður, verður haldinn n.k.
mánudag 12. des. kl. 8,30 að
Grundarstíg 2
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Afhending dómaraskírteina
3. Almennar uniræður.
Mætum allir. —Stjórnin
Skíðaferðir um helgina
Laugardaginn kl. 2 og kl. 6.
Sunnudaginn kl. 9 f.h.
Afgreiðsla hjá B. S. R.
í. B. R.
Samæfing meistara og 1. fl. í
Valshúsinu í dag kl. 16,20 til 18,50
Sýnd badmintonkvikmynd.
Sumkomur
K. F. U. M.
Á morgun kl. 10,30 f.h. sunnu
dagaskólinn. kl. 1,30 e.h. dreng
ir, Amtmannsstíg 2B, Kirkjuteig
33 og Langagerði 1. Kl. 8,30 —
Fórnarsamkoma. Jóhannes Sig-
urðsson prentari talar. Allir vel
komnir.
Zion, Austurgötu 22, Hafnarfirði
Á morgun. Sunnudagaskóli kl.
10,30. Almenn samkoma kl. 16.
Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið Betanía,
Laufásvegi 13.
Á morgun: Sunnudagaskólinn
kl. 2 e.h. Öll börn velkomin.
Zion, Óðinsgötu 6A
Á morgun sunnudagaskóli kl.
10.30. Almenn samkoma kl. 20,30
Allir velkomnir.
Keflvikingar
Munið hina kristilegu sam-
komu mánudagskvöld kl. 8,30 í
sal Vörubílastöðvarinnar. „Guð
ætlar að veita ykkur vonríka
framtíð“. — Komið, allir eru vel
komnir.
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 10,30 f.h.
Á sama tíma að Herjólfsgötu 8,
Hafnarfirði. — Brotning brauðs
ins kl. 4. Almenn samkoma kl.
8.30. Þórarinn Magnússon og
Kristján Reykdal tala. Allir vel
komnir.
bbbbbbbbbbbbbw'jbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
b
ASSA — útihurðaskrár
I
ASSA — útihurðalamir
ASSA — innihurðaskrár
ASSA — innihurðalamir
ASSA — er úrvals sænsk vara
ggingavörur h f.
Siml 35697
Laugaveg 176
Valdemar leiðbeinir stúlkunum frá Stokkseyri. Jóhanna
lengst til vinstri og Jóna í miðjunni.
— Fisksnyrting
Blómaskreytingar
og allskonar gjafavórur
BLÓMABÚÐIN RUNNI
Hrísateig 1 (gegnt Laugarnesskirkju). — Lími 34174.
Afgreiðslumaður
Vanan afgreiðslumann vantar í bílavörubúð sem
fyrst. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Afgreiðsla —•
1353".
íbúð til sölu
Ný 4ra herb. íbúð fullgerð á góðum stað í austur-
bænum er til sölu og sýnis í dag og á morgun. —
Uppl. í síma 17336 frá kl. 1—5. —
Stór stofa
óskast, helst i Laugarnesi.
Tilboð merkt: „Stofa — 1422“ sendist Morgunblaðinu.
HALLÓ! HALLÓ!
Jólapilsin eru komin
Teipupils allar stærðir og litir. Peysur. „Baby-Doll“
náttföt. Náttkjólar. Undirkjólar. Kvenbuxur. Sokka-
buxur. Jólasokkar á börnin. Alls konar vörur til jóla-
gjata. — Verzlið þar sem þér fáið mest fyrir pen-
ingana. —
Nærfataverksmiðjan LILLA h.f.
Smásalan. — Víðimel 64.
SKRIFBORÐ
með áfastri bókahillu er tilvalin jólagjöf.
Sófaborð, Innskotsborð, Reykborð.
Bólsfurgerðin h.f.
Skipholti 19. (Nóatúnsmegin)
Sími 10388.
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐKÚN JÓNSDÓTTIR,
frá Sómastaðagerði, Reyðarfirði,
andaðist að heimili sínu, Dunhaga 11, 8. desember. _____
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 13. des.
kl. 13,30. — Blóm vinsamlega afþökkuð. —
Oddur Bjarnason,
Sigríður Oddsdóttir, Pálina Oddsdóttlr.
Bróðir minn,
BJARNI ÁRNASON,
bókbindari
sem andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 6. des. verður kvadd-
ur ) Akranesskirkju laugardaginn 10. þ. m. kl. 13.30. —
Jarðað verður að Reykholti fimmtud. 15. des. kl. 14.
Þóra Árnadóttir.
Hjartanlega þakka eg öllum þeim er sýndu mér vináttu
og samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns míns,
LUDVIGS PETERSEN
Matthildur Petersen.
Innilegt þakklæti sendum við vinum og vandamönnum
fyr;r auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
HALLFRÍÐAR SIGTRYGGSDÓTTUR,
frá Húsavík.
Konráð Axelsson og fjölskylda,
Jón Viðar Þórmarsson og fjölskylda,
Þórmar Albertsson.