Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 3
Sunnudagur 18. des. 1960 MORCHJSBLAÐIÐ 3 V ....ÞETTA er einstætt lista verk á Islandi. . . . Það mætti kaupa fyrir það alla Reykja- vík.... Það verður ekki met- ið til fjár.... íslendingar geta verið stoltir af að hafa varðveitt það í fimm aldir .... Þetta er dýrgripur. .. . Blaðamaðurinn vissi ekki, hvaðan á sig stóð veðrið, en Frank Ponzi, listfræðingur og litsmálari, hélt áfram: ....Ég vona að allir ís- lendingar eigi eftir að sjá það í Þjóðminjasafninu, ekki af því það eru að koma jól, heldur vegna þess að það er merkilegt og fagurt lista- vérk.... Kristján Eldjárn, þjóðminja vörður, sagði ekkert meðan Ponzi lýsti hrifningu sinni, nema með augunum, glettn- um og alvartegum í senn. .... Það verður ekki sann- að, að hún sé eftir sjálfan meistarann Dirk Bouts, en það eru miklar líkur til þess.... Þetta er sami stíll.. Listaverkið stóð fyrir fram- an þá með fimm aldir að baki. Aðeins menn eins og Kristján Eldjárn og Frank Altaristaflan í Þjóðminjasafninu. (Ljósm. Sveinn Þoi’móðsson). „Það mætti kaupa fyrir það alla R.vík“ Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: „Hann á að vaxa - en ég að minka"t Boðun Maríu Ponzi geta séð sðguna að baki þess, en ekki nema í fá- um dráttum. Hitt verður sag- an í brjósti þeirra að skapa. ★ Þetta er altaristafla, e öilu heldúr altarisbrík, kirkjunni í Ögri við ísafjar ardjúp, en var keypt til Þjc minjasafnsins árið 1890. miðri töflunni er heil þrenning, guð faðir og Kri: ur, en heilagan anda, s« verið hefur í dúfulíki up yfir, vantar nú. Til begg handa eru postularnir tólf. vængjunum eru fjögur g< nesk málverk af heilaj þrenningu, boðun Marí krýningu Maríu og Mar með Jesúbarnið. Málverk sýna að taflan er flæms verk frá þvf selnt á 15. öld. Þau kunna að vera eftir meistarann Dirk Bouts (d. 1475) eða eftir náinn sam- verkamann hans eða ______í- • anda. Líklegt er að Björn ríki Guðnason (d. 1518) í. Ögri hafi gefið kirkjunni þennan dýrgrip. Einn postulanna (í miðri efri röð til vinstri) er sýndur með hatt og skó að hætti 15. aldar manna, þótt skikkjan sé eins og á hinum postulunum. Þessi mynd á öðrum þræði að tákna gef- anda töflunnar (donator), en slíkt var algengt á þeim tíma og stuðlaði að sálarheill gef- andans. .. . .Málverkin innan á vængj unum eru greinilega gerð af meistarahöndum. .. . Þau eru í stíl og anda Dirks Bouts.... Hátindur málaralistarinnar. . Hin málverkin eru einfaldari í byggingu og ekki með jafn fínlegum blæ.... Það gæti verið að synir hans hefðu gert'þau.... Þeir voru báð.ir málarar. ... Myndirnar af englunum gætu verið af þeim.... Þessir englar eru með lík andlit. . . . Einhver hefur málað þetta grænt seinna, en það hefur verið blátt. .. . Bakgrunnurinn var alltaf blár á þeim tíma.... Það er stígandi í þessu.... Fyrst myndirnar framan á vængjunum. ... Ekkert sést nema þær þegar taflan er lokuð.... Síðan myndirnar TVO síðustu sunnudaga að- ventunnar minnir kirkjan á Jó- hannes, fyrirrennarann. Á sunnu daginn var og aftur í dag. Lærisveinar Jóhannesar koma á fund hans og segja honum, að fólkið streymi frá honum og til Jesú. Þeir eru þungir í skapi yfir því, að hóparnir þynnast, sem leggja leið sína til Skírar- ans. Jóhannes var mikilmenni, en af fáu sjáum vér hann, eða engu, meiri mann en af því, hvernig hann bregzt við þessu. Hann var geðríkur maður, eins og öll mik- iimenni eru. Það verður enginn stór, sem er ekki borinn upp af stórri lund. Og hann var stór- orður. Hann kann sér ekki hóf í orðum, — sögðu hinir gætnu menn í landinu, mennirnir, sem voru svo gætnir, að þeir sögðu aldrei neitt. gerðar af meistaranum sjálf- um.... Þá blasir öll dýrðin við.... Frank Ponzi hefur flogið þetta allt í hug og margt fleira, meðan haim var að vinna að því að hreinsa töfl- una. Það tók han» marga mánuði. Málverkin höfðu losnað frá, orpizt og rifnað. Kertaljós hafði ósað á þau og hleypt upp bólum. Gvllingin á miðhluta töflunnar var á kaf' i skít, o. s. frv. Það hefur verið <*rfirt veik að ráða bót á þessu öllu. Á sumu verður aldrei ráðin bót, en kannski er þetta fimm Kristjan Eldjarn, þjoðnnnjavorður og Frank Ponzi, listfrfoð- ingur, með dýrgripinn á milli sín í forsal Þjóðminjasafnsins. Kristur og guð faðir. Heilag- ur andi var upprunalega í dúfulíki fyrir ofan höfuð þeirra, en er nú horfinn. — Geislabaugur, sem var yfir höfði Krists, er einnig glat- aður. — alda gamla listaverk aðeins fegurra fyrir bragðið í augum ckkar, sem munum ekki sjá það eftir aðrar fimm aldir: eða eftir skamm.i stund. Kannski er forgengileikinn aðeins misskilin eitífð. Frank Ponzi er ástfanginn af altaristöflunni, Kristján Eldjárn er ekki lengur glett- inn í augunum, og blaðamað- urinn veit varla enn, hvaðan á sig stendur veðrið. í dag og fram yfir jól geta menn lagt leið sína í Þjóð- minjasafnið og séð listaverk- ið með eigin augum. i.e.s. Það hóf, sem neitar sannieik- anum um fulla fylgd, pekkti Jó- hannes ekki. Það „hófleysi“ kostaði hann að lokum höfuðið. En nú er hann auðmjúkur. Þegar honum er borin sú fregn, ýmsir fyrri fylgjendur hans hafi snúið við honum baki og fylgi nú Jesú, frænda hans frá Nasaret, svarar hann og segir: „Hann á að vaxa, en ég aS minnka.“ Er ekki svo sjálfselskulauS þjónusta við sannleikann rauna- lega fágæt? Eiga ekki langsamlega flestir menn næsta erfitt með að halda eigin persónu sinni fyrir utan málefnið, sem þeir berjast fyr- ir? Verður ekki eigin persónu þeirra misbpðið, þegar einhverj- um öðrum gengur betur að vinna sér álit og hylli? Einmitt þetta veldur tíðum miklu tjóni í félagslífinu að menn, sem fyrir sömu málefni berjast, setja persónulegu sjónarmiðin svo hátt, að þeir þola ekki fé- lagsbræðrum og samherjum, að þeim takist betur að vinna fvr'r málefni, sem báðir eru þó að berjast fyrir Yfir þetta lágvaxna kiarr gnæfir Jóhannes eins og eik. Þegar h:nn stórlyndi, stórbrotni maður fæi þá fregn, að von sé þess að íátt sé orðið um áhang- endur hiá honum, þar sem allir flykkist til nýja spámannsins, bendir hann þeim sem fregnina bera honum, á það, að hlutverk sitt hafi aldrei verið annað en að greiða veginn fyrir nýja spá- manninum, og hann bætir þess- um konunglegu orðum við: „Hann á að vaxa, en ég að minnka-“ Jóhannes er ennþá ungur mað ur. Hér er ekki um eðlilega unp- gjöf ellinnar að ræða. Það hvarflar ekki að honum, að dap urlegt sé, að vera nú dæmdur úr leik og eiga f.yirir sér að gleymast. Eftir glæsilegt starf og aðdáun þúsundanna, hneigir hinn ungi og geðríki maður hljóðlega höfði og gengur auð- mjúkur inn í þögnina, gleymsk- una, með þessi orð á vörum um manninn, sem var að erfa áhrif hans og vald: „Hann á að vaxa, en ég að minnka." Vér skiljum það andsnænis þessari mynd, að einmitt þenn- an mann gat Guð notað, til þess að greiða Kristi veg, manninn, sem sjálfum sér gat fullkomlega glevmt í þjónustunni við sann- leikann. Athafnir manna og afstaða til umhverfisins stjórnast tíðum af allt öðrum hvötum en menn gera sér ljóst, lítt meðvituðum eða ómeðvituðum með öllu. Oss býr svo margt í barmi, sem vér þekkjum ekki. Áhrif frá „gleymdum" atvikum, sem þó eru geymd. Sjálfselskan er oft meginrót þeirra athafna vorra, sem vér hyggjum stjórnast af öðrum og göfugri hvötum. Þessvegna er sagan er sagan af Jóhannesi skírara, sú er eitt rf guðspjöllum þessa helgidags geymir, lærdómsrík. Hér er hin algei'a óeigingirni auðsæ. Hér er það guðlega hug- arfar að vei’ki, sem enginn hefir kennt mönnunum eins og hann, sem vér búumst nú til að fagna á jólum. Þessvegna völdu vitrir menn á löngu liðnum öldum þetta guðspjall til hugleiðingar kristn um mönnum í síðustu guðsþjón- ustunni fyrir jól, síðasta sunnu- deginum fyrir hina heilögu há- tíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.