Morgunblaðið - 29.12.1960, Síða 9

Morgunblaðið - 29.12.1960, Síða 9
Fimmtudagur 29. des. 1960 MORGVNBLAÐIh 9 Kristján Sveinsson frá Bjarneyjum I>ANN 29. í. m. var jarðsettur á Fatreksfirði Kristján Sveinsson frá Bjarneyjum í Breiðafirði, sem andaðist á sjúkrahúsmu þar eftir stutta legu. Foreldrar Kristjáns vcru Sveinn Pétursson, annálaður fjörmaður og skytta mikii, og Hebekka Tómasdóttir frá Leiru í Grunnavíkurhreppi. Hann var því af breiðfirzkum og ísfirzk- um stofni runninn. Kristján verður flestum ó- gleymanlegur, sem kynntust hon um. Hann var hertur í óteljandi svaðilförum í Breiðafirði, en hlekktist aldrei á. Útlitið minnti é víkinginn. Sterkur, ódrepandi seigla, djarfráður og skjótráður, til hvers er taka þurfti, og jafn- framt hlýr og broshýr sem barn. Hjálpsamur og höfðing lyndur, og vildi hvers manns vanda leysa. Var hvorttveggja í senn víkingur og barn, etsku- legur og leikandi af fjöri og kátínu við þá sem að garði bar. Það var engin venjuleg heini- sókn að hitta Kristján Sveinssor. I>ú varst svo hjartanlega vel- kominn, og sjálfsagt að láta allt í té, sem þér kom bezt og þú varst þurfandi fyrir, og viðmót- ið var eins og þú værir bróðir eða systir, þótt þú kæmir al- ókunnur í fyrsta sinni. tíöfð- ingsskapur eyjamanna í Breiða- firði var mikill og alkunnur, en enginn er lýttur þótt sagt sé, að Kristján Sveinsson var þar í fremstu röð, og þó tíðast at litl- um efnum að miðla. Kristján var eyjamaður af lífi og sál. Þar var bjargræði alla tima árs ef menn nenntu að bera sig eftir því. Ekki skorti Krist- ján áhuga né djarfleik, enda flutti hann margan góðan feng að landi þegar aðrir voru heima. Var stundum kominn með nokkra seli í vör um það leyti. sem aðrir voru að vakna, og miðlaði öðrum broshýr og hlæj- andi af feng sínum. Kristján Sveinsson sat ekki á skólabekkjum í æsku. Hans skóli var lífið sjálft. Þar iærði hann vel og vandlega. Fyrst og fremst sjómennsku og allan verkshátt. Eyjabúar urðu að geta bjargað sér sjálfir, því oft var langt og óhægt annaira að leita. Kristján var líka vel fróð- ur, las mikið og mundi vel. Gáf- ur hans voru skarpar og fjöl- hæfar. Svör hans tíðum leiftr- andi fyndin og málfarið meulað og hart. Hagur á hendur. Smíð- aði sjálfur báta sína og allt er til bústands heyrði. Dugnaður og fjör einkenndi því Kristján mest. Allt þurfti að ganga með flýti og kraíti. Þeim karli var ekki um dokið gefið, enda hafði hann oftast nóg verkefni fyrir hendi. Fjörið og dugnaðurinn fylgdi honum fram á síðustu ár, og enn gneist- aði af honum gömlum. Kristján Sveinsson var ham- ingjusamur maður. Hann eign- aðist góða konu og ágæta mðja, KINHLEYPUR KARLMAÐUR óslíar eftir 2ja herb. ibuð Tilboð merkt: „Fyrirframgreiðsla — 1489“ sendist Mbl. fyrir 31. þ.m. Lokað Vegna vörutalningar verða verzlanir og vöruaf- greiðslur okkar í Bankastræti 11 og Skúlagötu 30, lokaðar 2. og 3. janúar n.k. Skrifstofan verður opin eins og venjulega. J. Þorlóksson & Norðmonn hf. ÚTBOO tbúðarhúsin á tóðinni nr. 2 við Túngötu og geymslu- hús á lóð nr. 5B við Vesturgötu eru til sölu tii niðurrifs og brottflutnings nú þegar. Tilboð óskast send skrifstofu minni fyrir kl. 10, fimmtudaginn 5. jan. 1961. Nánari upplýsinpw á skrifstofrmni Skúlatúni 2. Bæjarverkfraðingurinn I Reykjavik. Ú tgerðarmenn Höfum til sölu marga góða vertíðarbáta tilbúna á vetrarvertíð. ICinnig marga báta frá 10—30 lesta. Höfum kaupendur að nýlegum vélbátum 60—80 lesta. Höfum kaupanda að góðu 100—150 lesta vélskipi. Austurstræti 10 5. hæð Sími 13428 og 24850 eftir kl. 7 sími 33983. og kom þeim vel til þorska. A efri árum naut hann ástai og umhyggju dætra sinna á Pat- reksfirði. Lengst var hann bjá Magdalenu dóttur sinni og Pétri Guðmundssyni, manni hennar, og Sesselja dóttir Kristjáns, kona Páls Christiansen, bjó í næsta húsi á Patreksfirði svo Kristján gekk milli góðbúanna, vafinn ástríki dætra sinna og venzlafólks. Lífsstarf Kristjáns var langt og mikið. Þótt stundum væri erfitt og andstætt voru sólskins- stundirnar yfirgnæfandi. Því olli létta Ijúfa lundin, sem gladdist svo innilega þegar birti til, að alit vermdist er í návist hans var. Með Kristjáni Sveinssyni er genginn göfugur maður og hjarta hreinn af þessum heimi. Lífs- glaður og lyndisrikur; víkir.gur og barn, hvorttveggja í senn inni lega sameinað. Fjestum sam- ferðamönnum kær og ógleyman- legur. Minning hans mun lengi geymast. Arngr. Fr. Bjarnason. VIL TAKA A LEIGU mafsöBu eða veitiugahús Lysthafendur leggi tilboð inn á afgreiðslu blaðsins fyrir nk. laugardag merkt: „Þagmælska — 1485“. Höfum fil leigu iðnaðarhúsnæði. — Sala kemur til greina. VIKURFÉLAGIÐ h. f. Hringbraut 121. VIALFLUTNIN GSSTOFA Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Aðalstræti 6, H1 hæð. Símar 12002 — 13202 — 13602 ÞVOTTAEFNI JOHNSON’S barnaþvottaefnið innheldur sérstakt bakteríudrepandi efni sem helzt í bleyjunni og vemdar húð barnsins gegn óþægindum enda þótt bleyjan vökni. JOHNSONS’S barnaþvottaefnið hvítþvær bama- þvottinn og gerir hann mjúkan. JOHNSON’S barnaþvottaefnið fjarlægir gersam- lega öll óhreinindi úr barnaþvottinum svo ekkert er eftir er getur valdið barninu særindum. Reynið JOHNSON’S barnaþvottaefnið og þér munið sannfærast um að betra þvottaefni hafið þér eigi notað á barnaþvottinn. Fæst víða. Heildsölubirgðir: Friðrik Bertelsen & Co., H.f. Laugavegi 178 — Sími 16620.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.