Morgunblaðið - 29.12.1960, Síða 16

Morgunblaðið - 29.12.1960, Síða 16
16 Mortnn\nr4ÐiÐ Fimmtudagur 29. des. 1960 Sjálfsævisaga DíónuBarrymorc jærMUtur af (jerold Trank 46 ¥ samkvæmi í skrautlega húsinu með útsýni yfir Central Park, og að skrafa við Robin og mömmu. Einu sinni gekk ég út á garðþrepið um kvöld og horfði á blikandi Ijósin í garðinum og frá Fimmtutröð. — Gott og vel, sagði ég við sjálfa mig, — þeir geta sjálfir átt sína Californíu og allt hitt — ég kýs New York. Þar á ég heima, og ég skal aldrei fara í þessa verksmiðju aftur! Robin svaraði. — Það er alveg hárrétt, kisa mín. Hér átt þú heima og í leikhúsinu. Robin var nú fluttur frá París og hafði keypt hús í Milford, Conecticut og lifði þar lífi, sem helzt hefði getaf. minnt á Hinrik VIII. Hann var þarna herramaðurinn, tekið var á móti gestum dag og nótt, á rúmhelgum og" um helgar. Peggy Fears, Gipsy Lee, John Colton, sem skrifaði leikhúsút gáfuna af Regni. Billy Rambo, sem var nánasti vinur Robins, Jackie Colt, sonur Ethel frænku, Marjorie, kona hans, og margir aðrir. Þarna var Robin í sínu rétta umhverfi. Hann var stöð- ugt að hugsa upp fáránlegar veizlur fyrir gesti sína, hann bleytti villibráð í viskí, steikti hana síðan í súrum rjóma, hann strokkaði smérið sitt sjálfur, bar styrjuhrogn og kampavín á morg unverðarborðið, hafði heljarmik inn kæliskáp, þar sem geymdar voru hinar undarlegustu fæðu- tegundir, sem höfðu verið flutt ar flugleiðis frá fjarlægustu löndum. Mamma var áhyggjufull út af honum — og mér. Hún vissi gjörla um feril fninn í Holly- wooa og nú var hana farið að gruna, að ekki væri allt með, felldu um hjónabandið mitt. En það var samt ekki mikið móti áhyggjunum sem hún hafði af Robin. Hinn glæsilegi listamanns ferill hans hafði aldrei orðið að veruleika. Vinur hans, Tyrone Power, var orðinn mikill maður á sínu sviði, en Robin var orðinn duttlungafullur herragarðseig- andi, sem var aí reyna að endur reisa aldarhátt fimmtándu aldar innar á þeirri tuttugustu. Mamma hafði breytt til um lifnaðarhætti eftir skilnað sinn frá Harry. Hún hafði keypt hús í Easton, Connecticut, og bjó þar nú ásamt. lagskonu sinni, Mar- garet Wise Brown, sem var þekktur barnarbókarithöfundur. Mamma kom enn fram sem upp- lesari, en nú ferðaðist hún um landið og las upp úr biblíunni, með hörpu-undirleik. En þótt hún hefði þannig starfi að gegna var Robin kjarninn í tilveru henn ar. Hún bókstaflega lifði fyrir hann, en samt hafði honum tek izt að rífa sig frá henni — fyrst fór hann til Vin og síðan til Parísar, og nú vildi hann eiga sitt eigið hús, enda þótt yfrið rúm væri fyrir hann hjá henni. Robin tiibað mömmu, en við mig sagði hann: — Eg get ekki búið hjá henni, og aldrei skil ég, hvernig þú fórst að því, eins lengi og raun var á. Við Bram urðum fyrir óvæntu happi snemma ársins 1944. Við fengum aðalhlutverkin í Re- bekku, sem Victor Payne Jenn- ings setti upp fyrir Theatre Guild.. Og mér til mikillar gleði hafði Florence Reed þarna hlut verk. Eg lagðist í inflúenzu meðan á æfingunum stóð í New York. Robin sendi mér þá hverja smá- gjöfina eftir aðra; ailskonar sér stakar matartegundir í snotrum öskjum og venjulega var þar á botninum einhver skartgripur frá Cartier. Svo var það einu sinni síðdegis, að hann kom að- vífandi, álsamt vini sínum, Billy Rambo, og þeir höfðu meðferðis styrjuhrogn og kampavín. Eg sat uppi í rúminu og þeir félag- arnir horfðu á mig með eftir- væntingu meðan ég var að taka gjöfina úr umbúðunum. Þeir ætl uðu í leikhúsið um kvöldið. Billy virtist ekki vera eins kát ur og hann var vanur, en venju lega var hann upprifinn og skemmtilegur, eins og Robin. Robin varð að fara. — Vertu hjá henni Diönnu, Billy, ég skal hitta þig við leikhúsið, sagði hann. Hann laut niður til að kyssa mig. Eg hörfaði undan. — Gerðu þetta ekki, Robin, þá færðu flensuna. En hann svaraði. — Mér er fjandans sama. Þú getur hvort sem er hvorki gefið mér hana né annað og ég elska þig. Svo kyssti hann mig og fór. — Hvað gengur að þér, elsk- an? spurði ég Billy. — Þú ert eitthvað svo niðurdreginn. Er eitthvað að þér? — Nei, svaraði hann, dauflega. — Þú fréttir það þegar þar að kemur. — Vertu nú ekki svona dular- fullur, stríddi ég honum. — Hvað er það? Hann sló yfir í aðra sálma og skömmu seinna stóð hann upp og bjóst til ferðar. Hann kyssti mig að skiinaði. En það var einkennilegur koss, fannst mér. Varir hans snertu kinn mína lengur en vant var, og hann lagði arminn um axlir mér áður en hann fór út. Klukkan þrjú kortér í níu hringdi Robin. — Er Billy þarna? — Neie, Robin. Er hann ekki í leikhúsinu? Nei, Billy hafði ekki sýnt sig. — Gott og vel, sagði Robin, — ég fer bara inn. Ef hann hring- ir, þá segðu honum, að ég hafi skilið aðgöngumiðann hans í miðasölunni. Eg vaknaði við ákafa hring- ingu í símanum. Klukkan var eitt eftir miðnætti. Það var mamma, sem var í símanum. — Veiztu það, Diana, að Biily kast aði sér út úr Empire State-bygg ingunni. Eg verð að fara til að þekkja líkið, því að hann Robin er alveg frá sér og niðurbrotinn. Eg lagði frá mér símann og var eins og lömuð. Um morguninn fékk ég bréf fri. Billy, sem hafði sýnilega verið sett í póst rétt eftir að hann fór frá mér. — Mér þykir leitt að gera Robin þetta, skrif aði hann, — en ég treysti mér bara ekki til að lifa. Seinna frétti ég, að hann hefði áður reynt að fremja sjálfsmorð, þegar hann var í flotanum. Þann dag síðdegis var hringt dyrabjöllunni hjá mér. Það var Robin. Hann var náfölur og ut an við sig. Hann var eins og mar maraengill, rakur og hvítur. — Eg get hvergi höfði mínu hallað, sagði hann, hásum rómi. — Góði Robin, komdu inn. Þú ert hérna, er það ekki? Þú ert hjá mér. Svo fór ég með hann inn í það, sem við Bram köll- uðum franska herbergið; það var stofa með fallegum timburþilj- um, með ófurlitlum rauðum legubekk, sem hægt var að sofa á. — Jæja, seztu nú niður, góði minn. Eg kom honum í rúmið og hann sofnaði. Mamma hringdi og spurði hvort Robin væri hjá mér. Hún vildi fá hann heim til sín. Eg svaraði: — Eins og á stendur ætti hann að fá að vera þar sem hann vildi sjálfur, og hann vill vera hér. Hún varð móðguð og reið og skellti símanum á. Þegar Bram kom heim, sagði ég: — Guði sé lof, að hann kom til mín, af því að ég skil hann. Við fórum svo að hátta. Um miðja nótt vaknaði ég og heyrði, að Robin var að gráta; með ekka, eins og barn, sem hefur meitt sig svo að því finnst ekk- ert mega til bjargar verða. Eg gat ekki þolað þetta. Eg fór á fætur og til hans. Hann var rétt eins og lamaður; Ijósið var log andi, en hann sá ekki, að þetta var ég, aðeins vissi hann, að einhvar kom úm, og hann lagði armana um mig. Eg lagðist á hnén af því að svefnsófinn var svo lágur. — Sussu-sussu- ró ró, sagði ég og vaggaði honum í örm um mínum þangað til hann hætti að gráta. Hann sagði: — Yfir- gefðu mig ekki, Diana. Gerðu það ekki! Get ég ekki alveg ver ið hérna? Eg get beinlínis ekki hitt mömmu. Eg svaraði: — Þú ert hérna, elskan, og verður eins lengi og þú vilt, þó að það yrði til ei- lífðar. Þú veizt, að við erum kisubörn, og höfum alltaf verið. Þú ert hérna og ég elska þig. — Yfirgefðu mig ekki, taut- aði hann. — Það skal ég ekki gera, sagði ég — aldrei. — Eg á við núna. Þú mátt ekki fara frá mér núna. Eg yfirgaf hann ekki. Eg svaf á gólfinu við legubekkinn, alla nóttina. Um morguninn, þegar ég vaknaði, var hann í svefni. Hann lá allur í hnipri, eins og litill björn, augun lokuð, öll þrútin og rauð og Ijósa hárið um allt andlitið. Eg settist framan á hjá hon- um og lagði armana um hann. — Vaknaðu, kisi, sagði ég lágt. — Vaknaðu! Hann opnaði augun og settist upp. — Eg er svangur, sagði hann. — Ágætt! sagði ég. — Gott, gott. Eg náði í egg, en nú vissi ég, að Robin vildi þau hvorki soðin eða steikt, svo að ég bjó til sérstakan eggjarétt, sem hann hafði kennt mér. Robin var hjá okkur í þrjá daga, þangað til hann var búinn að jafna sig, og fór síðan til New Milford. Aldrei spurði ég hann, hversvegna Billy hefði tekið upp á þessu. Bramwell dró sig held ur í hlé frá þessu öllu, enda hafði hann aldrei verið sérlega hrifinn af Robin. — Það er úr- kynjunarmerki á karlmanni að haga sér svona í sambandi við annan karlmann, sagði hann. Eg svaraði: — Hann er bróðir minn og ekki úrkyjaður. Get- urðu ekki skilið einstöku hluti? Þetta leiddi til langvinns rifr- ildis, sem stóð enn, þegar við lögðum upp í fefðina með Re- bekku. Við lékum í Cleveland, Detro it, Pittsburgh og St. Louis. Við rifumst og við rökræddum hreinskilningslega. Eg gerði Florence Reed að trúnaðarmanni mínum. Kannske var barn það sem mig vantaði. Það hefði ef til vill getað fært okkur nær hvort öðru. Florence sagði: — Það væri dásamlegt fyrir þig. Þegar við komum til Chicago, sagði hún við mig. — Ef þú eign aðist barn, yrðirðu að gefa því einhvern bakgrunn. Þú ert fædd kaþólsk — þú ættir að gifta þig í heilagri kirkju. Eg skal tala við Stritch erkibiskup. Florence fór og pantaði viðtals tíma fyrir mig, og svo fór ég og talaði við einhvern háttsettan — Þetta er apynja. Þeir segja, að karldýrið nni sér engrar hvíldar fyrr en það hefur komið fram hefndum. klerk, en Florence beið úti I leiguvagninum á meðan, í húðar rigningu. Þegar ég kom út aftur, andvarpaði ég: — Guð minn góð ur, Flo, ef þú vissir allt, sem ég verð að rifja upp og grafa upp! Alla fortíð mína, alla sem þekktu mig, fjölskylduna — allt þetta verður að rannsaka og svo verða upplýsingarnar sendar til Róm ar! Það sem við Bram höfðum ekki haft tíma til í Hollywood, yrðum við að fá tíma til að gera nú. Heil nefnd af klerkum verð ur að rannsaka allan lífsferil minn, og eins hans — allt fyrra hjónabandið hans . . . allt Kann ske þetta batnaði ef ég eignaðist barn. Þá myndi ég draga mig í SRÍItvarpiö Fimmtudagur 29. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. 12 00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynnmgar). 13.00 „A frívaktinni**. sjómannaþáttur (Kristín Anna Þórarinsdóttir). 13.30 verður felldur inn þátturinn „Um fiskinn". Stefán Jónsson gefur sig meira að gamni en alvöru. 14.40 „Við sem heima sitjum'* (Svava Jakobsdóttir B.A.). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. — 16.00 Fréttir og veður- fregnir). 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Gyða Ragnarsdóttir og Erna Aradóttir sjá um tímann). 18.25 Veðurfregnir. 19.00 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Bach-tónleikar. Haukur Guð- laugsson leikur á orgel verk eft- ir Bach. a) Tokkata og fúga í d-moll. b) Prelúdía og þreföld fúga í Es-dúr. 20.30 Kvöldvaka gamla fólksins. Frásöguþættir og lög eftir Bjarna Þorsteinsson og Sigfús Einars- son. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Gömul danslög erlend og innlend 23.05 Dagskrárlok. Föstudagur 30. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tönieikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.15 Lesin dagsTtrá næstu viku. 13.30 „Við vinnuna“ Tónleikar. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. 16.00 Fréttir og veðurfr.) 18.00 Börnin heimsækja framandi þjóð ir. Guðmundur M. Þorláksson tal- ar um Lappa og hreindýr. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Harmonikulög. 18.40 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Daglegt mál. Óskar Halldórsson, cand mag sér um þáttinn. 20.05 Efst á baugi: Umsjónarmenn: Haraldur J. Hamar og Heimir Hannesson. 20.35 Jólatónleikar hljómsveitar Ríkis- útvarpsins í Dómkirkjunni. — Stjómandi: Bohdan Wodiczko. Einleikur á orgel Dr. Páll ísólfs- son. Einsöngvari Sigurður Björns son. a) Concerto grosso eftir Vivaldi. b) (^rgelkonsert í D-moll eftir Handel. c) Einsöngur með orgel undirleik d) Svíta í D-dúr fyrir hljómsveit eftir Joh. Seb. Bach. 21.35 „Guðsmóðir gef mér þinn frið'*. Eintalsþáttur eftir Steingerði Guð mundsdóttur fluttur af höfundi. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Getið 75 ára afmælis þriggja stúlkna. Ávörp flytja Þorsteinn J. Sig- urðsson, Freymóður Jóhannsson og Gísli Sigurgeirsson. 22.30 í léttum tón: Grete Klitgaard, Peter Sörensen og kór syngja gömul og vinsæl dægurlög. Hljómsveit Willy Sör- ensen leikur með. 23.00 Dagskrárlok. 30 KR0NUR MIÐINN — Þarna er hann Sonur minn!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.