Morgunblaðið - 29.12.1960, Page 18
18
MORGVNBLAÐU)
Fimmtudagur 29. des. 1960
Kynning
Maður í góðum efnum óskar
að kynnast stúlku á aldrinum
39—45 ára, sem vill stofna
heimili. Tilb. merkt: „500 —
1494“, sendist Mbl. fyrir 1.
janúar.
SIGURGEIR SIGURJONSSON
hæstaréttarlögmaður.
Málflutn ingsskrifstof a.
Aðalstiæti 8. — Sími 11043.
Árni Guðjónsson
. v ■ , ' ■ ' '. • '
hæstdréttarlögmaður
Garðastræti 17
Félagslíi
Skíðaferðir um hátíðina eru sem
hér segir.
Miðvikudaginn 28. des. kl. 10
f.h. og kl. 7,30 e.h.
Fimmtudaginn 29. des kl. 10
f.h. og kl. 7,30 e.h.
Föstudaginn 30. des. kl. 10
f.h. og kl. 7,30 e.h.
Laugardaginn 31. des. kl. 2 e.h.
og kl. 4 e.h.
Sunnudaginn 1. jan kl. 10 f.h.
Afgreiðsla og uppl. um skíða
ferðirnar eru hjá B.S.R. — Sími
11720. Skíðafélögin í Rvík.
Skógarmenn K.F.U.M.
Árshátiðir skógarmanna verða
að þessu sinni 6. og 7. jan. 1961.
Aðgöngumiðar fást í húsi KFUM
og K, Amtmannsstíg 2B á milli
kl. 5 og 7 alla daga, nema laug-
ardag og sunnudag. Vitjið mið-
anna í tíma. Gleðillegt ár.
— Stjórnin.
Frá Taflfélagi Reykjavíkur
Æfing í kvöld kl. 8 í Grófinni 1
ÖRN CLAUSEN
héraðsdómslögmaður
Málf'utningsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sími 18499
! SlMl:
3V333
AvallT T/LLeiGU
K’RANA'BÍLvVR
VÉlSKÓrLUR
DrAttarbílar
TLUTNIN6AVA6NA-R.
pVHGAVMUVflAwl
'3V333
I. O. G. T.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 20.30. Há-
tíðafundur. — Fe.agar, mætum
stundvíslega og fjöLmennum.
— Æ.T.
St. Freyja nr. 218
Fundur í kvöld kl. 8,30 að Frí-
kirkjuveg 11. Kvikmyndasýning
frá Noregi o. fl. Kaffi eftir fund.
Félagar fjölmennið. — Æ.T.
Somkomur
Hjálpræðisherinn
Fimmtudaginn kl. 20,30, al-
menn jólatréshátíð fyrir börn og
fullorðna. Öll fjölskyldan vel-
komin. Föstudaginn kl. 20,30:
Jólafagnaður fyrir æskuiýð.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 10.
★ — OG LÝÐURINN
ÆSTIST ....
Kristnin vann á í Rómaríki —
og loks fór svo, að sjálfur keisar-
inn játaði kristna trú. Ofsókn-
irnar gegn kristnum mönnum
hættu, og villidýrin fengu ekki
framar kristna píslarvotta að
bráð. Hinir kristnu keisarar
reyndu að koma í veg fyrir, að
haldnir væru leikar, þar sem
dauði og grimmd væru aðalað-
dráttaraflið — og enginn sann-
kristinn maður gat þolað að
horfa á slíkt. En venjan, alda-
löng venja, mátti sín lengi meira
en vilji keisarans. — Þó varð
nokkurt hlé á hinum fornu og
grimmilegu leikum, þar til árið
403, að ástæða þótti til að gera sér
verulegan dagamun vegna kær-
komins sigur yfir Gotum, sem
þá höfðu lengi ógnað Rómverj-
um og um skeið setið um sjálfa
höfuðborgina, Róm.
— ★ —
Þessir leikar áttu svo sem ekki
í upphafi að vera í hinum gamla
stíl. En það var stígandi í leikn
um — múgurinn æstist upp meir
og meir, og heimtaði harðari og
harðari keppni. Blóðþorsti hans
vaknaði fyrst fyrir alvöru, þegar
fjölda villidýra var sleppt laus-
um á leikvanginum og veiði-
menn hófu þar veiðar. Þar næst
var sýndur villtur sverðadans,
sem æsti lýðinn enn frekar — og
loks þrömmuðu menn með al-
væpni inn á leikvanginn. Þarvoru
komnir þrautþjálfaðir skylm-
ingamenn, „gladiatorar", og upp
hófust nú einvígi þeirra á milli
— að hinum gamla sið. Upp á
líf og dauða.
★ EINSETUMAÐURINN
En skyndilega var leikurinn
truflaður, óvænt. Roskinn, fá-
tæklega klæddur maður, ber-
höfðaður og berfættur, birtist
skyndilega á leikvanginum, hratt
skylmingamönnunum til hliðar
og tók að hrópa til fólksins —
áskoranir um að binda endi á
úthellingu saklauss blóðs og
endurgjalda ekki miskunn guðs,
sem bægt hefði sverði óvinarins
frá Rómverjum, með því að æsa
til morða og vígaferla. En ræða
hans kafnaði í æsíngarópum lýðs-
ins. Hér var hvorki staður né
stund til prédikana — og vist
skyldi virða hina fornu siði Róm-
verja! „Frá, gamli maður! — Á-
fram, skylmingamenn!" hljóm-
aði frá áhorfendapöllunum.
Og skylmingamennirnir hlýddu
kalli lýðsins, reyndu að hrinda
hinum framandi manni til hlið-
ar og halda áfram bardaganum.
En hann stóð sem fastast, varn-
aði þeim að ná saman — og
reyndi, árangurslaust að fá hljóð.
— „Frá — burt með hann, burt
með hann“ heyrðist einum rómi
frá áhorfendabekkjunum, og leik
stjórinn sjálfur tók þátt í hróp-
unum. — Og skylmingamennirn-
ir — æstir upp af hrópum lýðs-
ins — réðust á hann og brytjuðu
hann í spað, og í sama Dili rigndi
yfir hann grjóti, og hverju öðru,
sem kastað varð, frá áhorfenda-
svæðinu.
Hann lá nár á miðjurn leik-
vanginum — og fólkið tók skyndi
lega að hugleiða, hvílíkt níðings-
verk hér hafði verið unnið.
— ★ —
Klæðnaður hans sýndi, að
hann var einn einsetumanna
þeirra, sem helgað höfðu líf sitt
bænalífi og sjálfsafneitun — en
þeir menn voru á þessum tíma
mjög virtir, jafnvel meðal hinna
trúlausustu. Þeir fáu, sem áð-
ur höfðu séð hann, gátu sagt frá
því, að hann hefði komið frá
óbyggðum Asíu til þess að halda
jól sín í Rómaborg. Þeir vissu
það eitt, að hann var helgur mað
ur — ekkert meira. Jafnvel ekki,
hvert nafn hans var. En kristileg
staðið aðgerðalaus hjá, er þús-
undir fólks flykktust saman til
þess að njóta þess að horfa á
menn deyða hvor annan. Og
hann hafði ákveðið að binda
endi á grimjndaræðið — eða
deyja ella. S
★ ALDREI SÍÐAN . . .
Hann féll — en ekki til einskis.
Takmarki hans var náð. Með
dauða sínum, á þennan hátt,
taldi hann hinum villta lýð hug-
hvarf. I einni svipan sá fólkið í
skýru ljósi, í hvílíka vonzku og
grimmd það hafði sótt skemmtan
sína — í blindni. i
Allt frá þessum degi, þegar ein
setumaðurinn lét lífið á miðjum
leikvangi Colosseum, hafa skylm
ingamenn aldrei áttst við í blóð-
ugum bardaga upp á líf og dauða,
hvorki í þessu fræga hringleika
húsi Rómaborgar né nokkru öðru
í Rómaríki — Þessi blóðgi siður
var útlægur ger að fullu. — Að
minnsta kosti einn glæpur van-
ans var þurrkaður út af jörð
okkar — sakir fórnar óbifanlegs
trúartrausts auðmjúks, óþekkts
og nafnlauss manns ....
Til Grænlands
AÐ undanförnu hafa staðið yfir
samningaumleitanir milli Loft-
leiða og Flugfélags íslands um
leigu á Skymasterflugvélinni
Heklu.
Samningar voru undirritaðir í
gær og leigja Loftleiðir Flugfé-
lagi Íslands flugvélina til tveggja
mánaða.
Skymasterflugvélin Hekla er
nú í Stavanger, en er væntanleg
til islands 3. jan. næstkomandi.
Hún mun fyrst um sinn verða
staðsett í Syðra-Straumfirði og
annast innanlandsflug á Græn-
landi samkvæmt samningi þar að
lútandi milli Flugfélags Islands
samvizka hans hafði ekki getað 1 °g Grönlandsfly A/S.
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
Ráðningar
á þrautum og heilabrotum
úr jólablaði
1. Þversumman úr öllum
útkomunum er 9. Tölurn-
ar snúast einnig við eftir
fastri reglu 45:54 — 36:63
os.frv. r t
2. Auðvitað 2 metrar.
Veiðistöngin var fest á
bátinn! ,
3. Tölur nr. 2 og 3 eru
fluttar í sætin nr. 9 og 10.
Tölur nr. 5 og 6 í sætin
2 og 3.
Tölur nr. 8 og 9 í sætin
5 og 6.
Tölur nr. 1 og 2 í sætin
* og 9.
5. Hæð kollsins er 31
mm, en breidd barðanna
34 mm. Því miður hefur
línan, sem sýnir breidd
barðanna, ekki prentazt
öll í sumum blöðunum,
en börðin eru jöfn, 8mm
hvoru megin. Þið getið
teiknað línuna með blý-
anti. Sýnist ykkur ekki.
að strikin, sem sýna hæð
kollsins, séu hærri?
8
7. Klukkan er 5,55, sbr.
klukkurnar nr. 2 og 9.
9.
10. Pípurnar eru 11.
11.
B > <
12. Það er auðvelt, ef þú
velur þér flösku með í-
hvolfum botni. Þú snýrð
flöskunni við, hellir svo-
litlu vatni í holrúmið,
sem gengur upp í flösk-
una, og drekkur það.
13. ör nr. 7
14. Reyndu bara og þér
mun takast það!
ÆSIR og ÁSATRÚ
39. Þrymur ætlaði nú
•ð kyssa brúði sína og
lyfta upp brúðarslæð-
unni. En þegar hann sá í
•ugu Freyju, varð hann ^
»vo hræddur, að hann
hentist alla leið yfir í
hinn enda skálans. „Hvers
▼egna er sem eldur
brenni úr augum Freyju,
þegar hún lítur á mig“,
spurði hann.
En „brúðarmeyjan“
hafði svar á reiðum hönd-
um: „Það er af því, að
henni hefur ekki komið
blundur á brá í átta næt-
ur, svo mjög hefur hún
þráð þig“, sagði Loki.
40. Nú gekk systir
Þryms í skálann. Að göml
um sið krafðist hún gjaf-
•r af brúðurinni, til þess
að staðfesta vináttu
þeirra. En bróðir hennar
skipaði henni að bera
hamarinn fyrst inn og
leggja hann í kjöltu brúð-
arinnar og vígja þau
hvort öðru.
Þá var hamarin'n bor-
inn inn og lagður í
kjöltu Þórs. Þá hló hon-
um hugur í brjósti, hann
greip hamarinn, reis upp
og lét Mjölni ganga á
þursunum, svo að þeir
lágu flestir dauðir.
Þannig náði Þór hamri
sínum aftur.
ENDIR.
15^1
Viltu
skrifa
mér
Hannes Stefánsson, Ara-
bæ, Gaulverjabæjarhr.,
Árnessýslu (11—13 ára),
Rósalind Ragnarsdóttir,
Langholtsvegi 110A, Rvík
(9 ára).
Skrítlur
Móðirin: „Tófan át
lambið, Siggi minn, af
því að það var óþægt“.
Siggi: „Og ef það hefði
verið þægt, þá hefðum
við borðað það, — er það
ekki mamma?"
★
Gesturinn við veitinga
konuna: „Eruð þér frá
yður, þér þurrkið af disk
inum á svuntunni yðar“,
„Það gerir ekkert til,
hún er óhrein, hvort sem
er“.