Morgunblaðið - 29.12.1960, Page 20

Morgunblaðið - 29.12.1960, Page 20
í Colosseum Sjá bls. 10. A Sauðárkróki Sjá bls. 3. 298. tbl. — Fimmtudagur 29. desember 1960 Miklar rafmagnstruflanir í Eyjafirði Flugvöllurinn ónothæf- ur og sveitir Ijósiausar Veðrið að ganga niður Akureyr'%, 28. desember. — VEÐRIÐ er nú heldur að ganga niður á Akureyri. — Nokkuð var hvasst á tíma- bili í dag, en úrkomulaust. Aðeins er farið að frysta, en ísing hefur verið geysimikil og valdið tjóni. • S í m i n n Segja má, að gjörsamJega sé símasambandslaust austur um og er bilunin aðallega í Ljósavatns- skarði, nánar sagt nærri Birn- ingsstöðum. í>ar eru brotnir á einum stað 10 símastaurar og víða einn og einn staur og allar linur slitnar. Þá eru miklar bil- anir út með Eyjafirði austanverð um í kringum Svalbarðseyri og er þar allt sambandslaust. — í Svarfaðardal er einnig talsvert um staurabrot og línuslit, en skemmdir hafa orðið ótrúlega litlar á leiðinni milli Hjalteyrar og Akureyrar. Ný norsk flotvarpa Bergen, 28. des. (NTB). UNDANFARJGÐ hafa verið gerðar tilraunir í Noregi með nýja gerð flotvörpu, og þær borið góðan árangur. Tilraunirnar eru gerðar á vegum fiskimálastjórnarinn ar og stjórnar þeim Georg Rokstad ráðunautur. Hinn Z. eða 3. janúar n.k. verður skip sent með vörp- una til að reyna hana á stór- síld, en seinna er ætlunin að gera einnig tilraunir með vörpuna á þorskveiðum. Hellisheiði fær stórum bílum Leiðin norður fœr að Oxnadalsheiði SAMKVÆMT upplýsingum frá Snæbirni Jónassyni, verkfræð- ingi hjá Vegamálaskrifstofunni var unnið að því að ryðja He'lis. heiðina í gær og var hún síð- degis orðin fær stórum bifreið- um. Hinsvegar taldi Snæbjöm, að heiðin mundi lokast fljótt aftur, ef brygði til kins verra. Krísuvíkurleiðin var ágætlega fær í gær. Holtavörðuheiðin og vegurinn til Skagafjarðar allt að Öxna- dalsheiði var fær stórum bíium í gær, en Öxnadalsheiðin alls ófær á nokkrum stöðum. Einnig var vegurinn til Ólafsfjarðar lokaður. Hinsvegar var fært á stórum bílum yfir Bröttubrekku í Dalina en búast má við, að sú leið lokist fljótt, ef veður breyt ist nokkuð til hins verra. 4---------------------4 • Rafmagnið Rafmagnslínan frá Akureyri inn Eyjafjörðinn er ónothæf eins og stendur. Allur Eyjafjörður innan við Akureyri er því raf- magnslaus. Á því svæði munu vera brotnir 15—20 staurar auk þess sem heimtaugar að bæjum eru víða slitnar. Mun eflaust taka þó nokkurn tíma að kom.a öllum bæjunum í rafmagnssamband á ný. Allmargir staurar eru brotn- ir í Svarfaðardal og á nokkrum fleiri stöðum á orkuveitusvæð- inu. öll hverfi Akureyrar hafa raf- magn eins og er, en víða eru slitn ar loftlínur i götuljós. Sveitabýl- in upp af Akureyri eru flest eða öll rafmagnslaus, meðal annars brotnuðu þar í dag þrír staurar. • Flngvöllurinn Rafmagnslínan að Akureyr- arflugvelli er slitin og brotnir 7—8 staurar á þeirri leið. Flug völlurinn er því alls ekki starf hæfur eins og er. Hingað til hefur veðrið hamlað flugferð- um og eru sjötíu manns á bið- lista hjá Flugfélaginu. Ekki er sýnt hvenær það fólk kemst leiðar sinnar fljúgandi, þó flugfært verði. Unnið er að viðgerð á öllum bilunum, en búast má við að þær taki nokk urn tíma. Þess má geta, að háspennulín- urnar eru víða mikið teigðar milli stauranna, þótt exki séu þær alveg slitnar Til dæmis á einum stað, þar sem línan ligg- ur yfir veginn milli Akureyrar og Dalvíkur, er hún svo lág yfir Sjómanna- félagið KOSNINGU heldur áfram i Sjómannafélagi Reykjavíkur og kosið í skrifstofu félagsins frá kl. 10—12 og 3—10. Sjómenn! Listi lýðræðis- sinna er A-listi. honum, að bifreiðar komast ekki undir hana. Urðu mjólkurbílarn- ir frá Dalvík að fara út af veg- inum til að komast leiðar sinnar. Hins vegar hefur háspennulín- an milli Akureyrar og Laxar- orkuversins staðið sig ágætlega núna og ekkert bilaö. Loks má geta þess, að nýi Brúarfoss kom hingað á aðfangadag — en fyrst síðdegis í dag var unnt að byrja að losa hann. — St. E. Sig. ,Ve!tan4 á förum N Ú eru dagar „Veltunnar“ taldir, sagði gamall Vestur- bæingur er hann nam stað- ar á gangstéttinni andspænis þessa gamla húsi, sem um langt árabil var þess heiðurs aðnjótandi að vera næsti ná- granni Hótel íslands. ★ Rifin á skömmum tima Búið var að rífa burtu vestasta gluggann á efri hæð hússins. Fyrir innan var dimmt, en þaðan bárust brak og brest- ir. Þetta eru stunur hinna gömlu innviða hússins, sem hraustir menn ganga nú á með kúbein sín, því nú á að rífa Veltuna á sem allra skemmst- um tíma. ár Flúið undan kúbeinunum Hluti af grenivafning lufs- aðist utan í húshliðinni. Raf- virkjar voru búnir að taka nið- ur hin rauðu neonljós bóka- verzlunarinnar. Sýningargluggar Verzl. Ásg. Gunnlaugssonar voru uppljómaðir eins og fyrir jólin, en í verzluninni sjálfri var engin sala. Gluggatjöld voru dregin fyrir sýningar- glugga bókaverzlunarinnar og var verið að undirbúa flóttann undan kúbeinunum. í þriðju verzluninni virtist lífið ganga nokkurn veginn sinn vana gang, þar var í Sápuhús- mu, en það getur ekki verið nema um fáa daga að ræða úr .þessu. Það tekur vart meira en hálfan mánuð að rífa Veltuna, sagði annar vegfarandi, og þá verður litla húsið, sem verzl- unin Sport er í, eins og eyja, bví það hús er eign Steindórs Einarssonar bílakóngs og það fylgdi ekki kaupunum er bær- inn keypti Veltuna til niðurrifs. Og svo ættirðu að benda þeim á, sem hafa gaman af Reykja- víkurmyndum, að úr þessu fara að vera síðustu forvöð fyrir þá að ná í mynd af Veltunni. TVEIR atburðir hafa orðið þar sem hús þetta stendur, er nú skal rifið. Annan þeirra má telja til sóma og framfara þeim er að stóðu — en það var stofnun fyrsta kaupfélags- ins í Reykjavík. Hinn atburð- urinn — er lærisveinar hins lærða skóla hrópuðu „Pereat Sveinbjörn Egilsson“ — hlýt- ur að teljast til hins gagn- stæða, enda þótt þar muni hafa verið að verki lítt reynd- ir og ofsafegnir unglingar, er vart vissu hvað þeir voru að gera. Frá athyglisverðri sögu þessa staðar sagði Árni Óla í Lesbók Morgunblaðsins 20. nóvember síðastliðinn. 250 börn skírð í Rvík um jólin S V O sem frá hefur verið skýrt í blaðinu var kirkju- sókn í Reykjavík með ein- dæmum góð um hátíðina og reyndar víðast hvar annars staðar á landinu, þar sem veður ekki hamlaði sam- göngum. Messur Dómkirkjunnar einnar sóttu hátt á fimmta þúsund manns og mikill f jöldi fólks varð frá að hverfa hinum smærri kirkjum og messustöðum bæjarins. Lét einn prestanna í Reykjavík svo um mælt í símtali við blaðið í gær, að sér hefði 2 millj. kr. embersala minni des- hjá Á.V.R. Þrátt fyrir hœkkað áfengisverð á árinu ÞESS má vænta, að áfeng'inu 1 fær að salan fyrstu 24 daga . ... . . i manaðanns hefði verio um það íssala i desembermanuoi j bil 1800 þúsundum króna minni í ár verði allt að tveim en sömu daga sl. árs. Jafnframt hefði salan í fyrradag, fyrsta milljónum króna minni hjá Áfengisverzlun ríkis- ins en í desember sl. Jón Kjartansson, forstjóri Afengisverzlunarinnar tjáðj blað dag eftir hátíðir, verið 100 þús- undum kr. minni en þann dag í fyrra. Samdrátturinn kemur fyrst og fremst frain í sölu dyrustu veig- anna, svo sem whiskýs, konjaks og gins. Sala íslenzku framleiðsl- unnar og léttra vína hefur minnk að hlutfallslega minna. Sökum þeirrar hækkunar, sem varð á áfengi á þessu ári er salan raunverulega minni en ofan- skráðar tölur gefa til kynna. Ekki kvaðst Jón Kjartansson, forstjóri, geta gefið neina ein- hliða skýringu á samdrætti þess- um, til hans kynnu að liggja ýms ar orsakir. Þess má þó geta, að samdráttur varð meiri í sölunni hjá útsölunni á Snorrabraut en í Nýborg. blætt í augum hversu marg- ir urðu frá að hverfa hinu yfirfulla guðshúsi. Svo sem oft áður gripu margir hið hátíðlega tækifæri til þess að láta skíra börn sín og enn aðrir létu gefa sig sam- an í hjónaband. Samkvæmt upplýsingum frá prestum þjóð kirkjunnar og fríkirkjusafnað- anna í Reykjavík voru skírð um það bil 250 börn, þar af í kirkju, ýmist við messugjörð — á undan eða eftir, nærri hundrað börn. Hjónavígslur voru f jönutíu, þar af 15 í kirkj um. Ummæli Reykjavíkurprestanna benda til þess að unglingar sæki messur sizt minni mæli en full- orðnir. Reyndin mun sú, að fólk á miðjum aldri eru sjaldséðustu kirkj ugestirnir. Fundur útvegsmanna og sjómanna f GÆR héldu fulltrúar út- vegsmanna og sjómanna fund um kjör bátasjómanna. Ekki voru allir fulltrúar mættir, því ekki hefur ver- ið flogið til Akureyrar og ísafjarðar síðustu dagana. Ræddar voru tillögur sjó- manna og útvegsmanna, on engar ákvarðanir teknar. Ekki var ákveðið hvenær næsti fundur yrði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.