Morgunblaðið - 04.01.1961, Blaðsíða 1
20 síður
MtiMtóritSí
48. árgangur
2. tbl. — Miðvikudagur 4. janúar 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Alvarlegf ástand í stórborgum Belgíu
Verkfallsmenn
berjast
Itlótmæli jaf itað-
armanna felld
Brússel, 3. jan. (NTB-Reuter)
BELGÍUÞING kom saman í
dag og felldi tillögu jafnað-
armanna um að vísa sparn-
aðarfrumvarpi ríkisstjórnar-
innar frá. — Mikið var um
óeirðir víða í Belgíu í dag
og tóku 15000 verkfalis-
menn þátt í mótmælagöngu
í Briissel. Særðust nokkrir
þeirra í átökum við vopnað
lögreglulið, sem beitti kylf-
um og byssuskeftum gegn
grjótkasti verkfallsmanna.
| SKEIÐDREK AK
Þinglmenn kaþólskra og frjáls-
lyndra, sem standa að sam-
•teypustjórn Gastons Eyskens
etóðu eindregið gegn frávísunar-
tillögu jafnaðarmanna, og var
hún felld með 121 atkvæði gegn
83. Einn þinigmaður frjálslyndra
sat hjá.
Fjöldi skriðdreka gætti þing-
hússins meðan umræður fóru
þar fram um sparnaðarfrum-
varp ríkisstjórnarinnar. En
frumvarpið er fraim komið í
þeim tilgangi að vinna upp
tekjutap Belgíu er Kongó fékk
sjálfstæði.
* HRÓP AÐ RÁÐHERRA
Jafnaðarmenn sögðu að frum-
varpið, sem fei>ur m. a. í sér
skattahækkanir, væri orsök ó-
eirðanna í landinu og gerðu
hróp að forsætisráðherranum er
hann neitaði að fallast á kröfur
þeirra um að vísa frumvarpinu
frá. Gaston Eyskens bar hins
vegar lof á verkalýðssamtök
kaþólskra, sern hafa neitað að
taka þátt í verkfallsaðgerðum
jafnaðarmanna.
Framh. á bls. 19.
Samkomulag hafði tek-
izt á Suðurnesjum
Hannibal ruddist inn á fund sjó-
manna og fóksf að fá samþykkfa
fresfun um endanlega ákvördun j
I GÆR náðist samkomulag
milli samninganefnda sjó-
manna og útvegsmanna í
Keflavík, Grindavík og Sand
gerði um kjör bátasjómanna.
Var samkomulagið undirrit-
að með fyrirvara um sam-
þykki sjómannafélaganna —
og skrifuðu allir samninga-
nefndamenn undir. í gær-
kvöldi var síðan boðaður
sameiginlegur fundur allra
sjómannafélaganna á Suður-
nesjum. Var fundurinn hald-
inn í Keflavík.
Er fundurinn var að hefj-
ægrisinnar sækja á í Laos
Boun Oum samþykkir eftirlifsnefnd
með skilyrðum
Vientiane, 3. janúar.
— (NTB-Reuter) —
SAVANG Vathana, konung-
ur í Laos, hefur kvatt þing-
ið saman til aukafundar til
að votta ríkisstjórn þeirri,
er Boun Oum prins veitir
forystu, hollustu, en sú ríkis
stjórn hefur farið með völd
frá því 16. des. sl. — Boun
Oum hefur falið fulltrúa La-
os hjá Sameinuðu þjóðunum
að kæra Bússa fyrir Öryggis
ráðinu fyrir afskipti af bylt-
ingunni í Laos, flytja komm-
únistum vopn og að svívirða
landhelgi Laos.
Stjórn Bandaríkjanna sak-
aði í dag stjórnir Sovétríkj-
anna «s Norður-Vietnam um
afskipti af innanríkismálum í
Laos. Segir í ásökuninni að
rússneskar flugvélar hafi flog-
ið 180 srrniiim með vopn og
vistir til konunúnista i Laos
frá því 15. desember þar til
sveitir hægrimanna tóku höf-
nðborgina Vientiane. Einnig
segir Bandaríkjastjórn að
hersveitir frá Norður-Vient-
nam hafi barizt með liði
vinstri manna í Laos.
Hægrisinnar sækja á
Herstjórn hægrisinna skýrir
frá því að tekizt hafi að ná aft-
ur úr höndum kommúnista borg
inni Xieng Khuang, höfuðborg
samnefnds héraðs, en þá borg
tóku sveitir kommúnista sl.
laugardag. Verið er nú að flytja
liðsauka þangað til að hefja
sókn gegn her vinstrisinna,
sem hertók flugvöll á Krukku-
sléttunni þar í héraðinu. *S^^
ríkisstjórnin að rússneskar flug-
vélar noti flugvöllinn til að
flytja kommúnistunum vopn.
Krukkuslétta
Frakkar gerðu flugvöll þenn-
an, sem vinstrimönnum tókst að
hertaka sl. laugardag eftir átta
stunda stórskotaliðsorustu.
Borgin Xieng Khouang er
við Krukkusléttuna, sem dreg-
ur nafn sitt af fornum krukku-
laga legsteinum. Frá sléttunni
er auðvelt að hafa hemil á allri
umferð milli Vientiane og kon-
ungsborgarinnar Luang Pra-
bang.
Ríkisstjórnin ásakar Rússa
Framhald á bls. 3.
Frá verkföllwnum í Belgíu.
Vopnuð lögregla hindrar
póstmenn í að velta póstbif-
reið, sem ekur út úr aðal-
pósthúsinu í Briissel. —
ast birtist Hannibal Valdi-
marsson í dyrunum. Hafði
hann komið í skyndi frá
Reykjavík og í fylgd með
honum voru nokkrir menn
úr nefnd sjómannasamtak-
anna innan A.S.Í., sem skor-
að hafði á sjómannafélög um
allt land að boða til verk-
falls 15. þ. m. — Meðal
Frh. á bls. 2
25
fórust
Vaasa, Finnlandi,
3. jan. (Reuter).
FINNSK farþegaflugvél hrap
aði i dag logandi til jarðar
skammt frá Vaasa á vestur
strönd Finnlands. 25 manns
voru með vélinni og fórust
allir.
Vélin, sem var af gerðinni
DC-3, var eign flugfélagsins
Finnair. Með henni voru 22
farþegar og þriggja manna á-
höfn. Rannsóknarnefnd er
farin til slysstaðarins á veg-
um samgöngumálaráðuneytis
ins.
Flugvélin var á leið frá
Kronby, sem er um 90 km.
fyrir norðan Vaasa, til Hels-
ingfors, þegar slysið vildi til.
Finnair félagið var stofnað
árið 1923 og er þetta fyrsta
dauðaslysið í sögu þess.