Morgunblaðið - 04.01.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagar 4. janúar 1961
Vertíðarundirbúmngur i fullum gangi
Róðrar víða hafnir
1 ÖLLUM verstöðvum er nú
verið aö búa báta ttl veiða af
miklu kappi. Mbl. bafði í gær
samband við fréttaritara sina í
helztu verstöðvunum, víða voru
bátar byrjaðir róðra, en þó
hvergi allir. í Sandgerði réru
t. d. fjórir bátar, fleiri voru
ekki tilbúnir. Þeir komu að
landi í gærkvöldi og höfðu afl-
að dável, 7—14 lestir hver. Er
þetta góður afli í upphafi ver-
tíðar og gefur vonir um að
framhaldið verði í sama dúr.
Stykkishólmi:
Bátamir eru enn ekki full-
búnir til veiða. Þeir verða senni
lega sex talsins og hefja að lík-
indum róðra jafnskjótt og lokið
verður við að útbúa þá.
Bolungarvik:
Róðrar ekki hafnir, en sjó-
menn munu halda fund á morg-
un og ræða málin. Fimm bátar
gerðir út í vetur.
Vestmannaeyjum:
Undirbúningur í fulium gangi
og sumir bátar brátt fullbúnir,
en útvegsbændur fallast efcki á
fisikverðið, sem samkomulag var
gert um í verðlagsráði LÍÚ og
fiskkaupenda.
Homafrrði:
Sjómenn samþykktu að hefja
róðra, en útgerðarmenn tóku
sömu afstöðu og útgerðarmenn í
Eyjum. Annars hefur ekki gefið
á sjó á Hornafirði.
Húsavík:
1 vetur róa héðan fimm þilfars
bátar og allmargar trillur.
— Samningar
Frh. af bls. 1
þeirra var Tryggvi Helgason
frá Akureyri, svo og Snorri
Jónsson, jámsmiður.
Fékk Hannibal orðið og hóf
hann þegar æsingafulla baráttu
gegn því að sjómenn samþykktu
samningana, sem fulltrúar þeirra
höfðu undirritað, sagði, að með
því væru þeir að skerast úr leik
og eyðileggja baráttu sjómanna-
samtafca ASI.
Fulltrúar sjómanna í öllum ver
stöðvunum mæltu eindregið gegn
Hannibal, sögðu, að þeir hefðu
komizt að hagstæðum samning-
um — og aðaláherzluna bæri að
leggja á að stöðva ekki fiski-
skipaflotann.
Æstist Hannibal þá til muna
og sagði að sjómenn mundu geta
náð hagstæðari samningum.
Laust eftir miðnætti átti að
bera samkomulagið undir at-
kvæði fundarmanna, en var þó
erfitt um vik vegna málþófs
Hannibals. Þá voru um 200
manns í fundarsalnum og margir
þeirra utan samtaka sjómanna.
Bar Hannibal þá fram tillögu
tun að fresta endanlegu sam-
þykki samninganna og var hún
samþykkt.
Samningar þeir, er fulltrúar
sjómanna höfðu undirritað með
fulltrúum útgerðarmanna, voru
í meginatriðum á þá ltmd að
28% af brúttóaflaverðmæti kæmi
til skipta milli háseta (6) og
landmanna (5). Ef aflaverðmæt-
ið færi hins vegar fram úr 1,3
millj. kr. á vertíðinni kæmu
30% skipta. Hluti skipstjóra,
stýrimanna og vélstjóra skyldi
útgerðin greiða. — Var hið nýja
samningsverð Landssambands
ísl. útvegsmanna og fiskkaup-
enda lagt til grundvallar við
samningagerðina.
Allir eru að búa sig til veiða
og einn báturinn, Njörður, er
þegar byrjaður.
Akranesi:
Verið er að búa báta til veiða,
en sjómenn ákveða að róa ekki
fyrr en gengið hefur verið frá
samningum.
ísafirði:
Róðrar eru hafnir, en bátarnir
eru ekki allir fullbúnir til veiða.
Tveir réru í dag, en afli var treg-
ur. Alls munu um 10 bátar róa í
vetur.
Siglufirði:
Fimm bátar róa þaðan í vetur
og byrja þá og þegar. Sjómenn
hafa enn ekki rætt kjarasamn-
ingana, en einn af fulltrúum í
trúnaðarmannaráði Sjómannafél
agsins sagði við fréttamann Mbl.
„Ég geri ráð fyrir að útgerðin
stöðvist hér ef um allsherjar-
verkfall á öllu landinu verður að
ræða, annars ekki.
Patreksfirði:
Bátarnir komu úr fyrsta rcðr-
inum í dag. Þeir eru fjórir og
fengu um 30 tonn samanlagt.
Tálknfirðingar fóru í fyrsta róð-
ur í gærkvöldi.
Uppselt á spilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna!
FYRIR áramótin var hér í Mbl.
tilkynning frá Sjálfstæðisfélög-
unum hér í Reykjavík, nm það
að fyrsta spilakvöldið á nýja ár-
inn yrði í kvöld, miðvikudaginn
4. janúar. Svo mikil aðsókn er
að spilakvöldinu, að á gamlárs-
dag voru nær allir aðgöngumið-
amir uppseldir á hádegi.
Ársrit Söguiéiags
ísfirÖintfa komiÖ út
FIMMTI árgangur af Arsriti
Sögufélags Isfirðinga er nýlega
kominn út. Er það árgangur árs-
ins 1960. Ritið er að vanda fjöl-
breytt að efni. Kristján Jónsson
frá Gcirðsstöðum ritar um hina
stórbrotnu feðga, Asgeir Asgeirs-
son og Asgeir G. Asgeirsson,
skipherra og verzlunarstjóra
á Isafirði, Jóhannes Davíðsson
ritar um sambýlismenn á Sæbóli
og Gunnar Olafsson, bæjarfógeti
á Isafirði, ritar grein um Olaf
á Eyri og Mála-Snæbjörn, Agúst
Guðmundsson um erfiðustu ferð
Yfirheyrzlur
AKRANESI, 3. jan. — Lögregl-
an hefur nú haft upp á ein-
hverjum þeirra, er stóðu að
sprengingunum miklu á gaml-
árskvöld. Yfirheyrslur eru hafn
ar. — Oddur.
♦-----------------
ævi sinnar og birtur er kafli úr
minningarorðum um Hafliða Hall
dórsson. Þá er grein um Byggða-
safn Vestfjarða eftir Jóhann
Gunnar ölafsson og birtur er
kafli úr gömlum brag af Tangan-
um. Þá er birt bréf Bergþórs
Jónssonar, bæjavísa í Mýrar-
hreppi, bréf frá Sighvati Borg-
firðingi til Jóns Sigurðssonar,
sagnir um Þórð í Hattardal eftir
Kristján Jónsson frá Garðsstöð-
um, tvö kvæði eftir Olínu Þor-
steinsdóttur, ævisaga Hallbjörns
E. Oddssonar eftir hann sjálfan,
og loks er félagatal og formanna-
vísa.
Félögum í Sögufélagi Isfirð-
inga fjölgar með ári hverju. Er
rit þess nú orðið all útbreitt víða
um Vestfirði. Hér í Reykjavík
er einnig fjöldi manna meðlimir
í félaginu. Ættu Vestfirðingar um
land allt að gerast félagar þess
og styðja þannig útgúfu- og
menningarstarfsemi þess.
Hæðin yfir Grænlandi fór
vaxandi í gær. Lægðin yfir
Norðursjó þokaðist ASA, en
lægðin S af Grænlandi dýpk-
aði og hreyfðist ANA. —
Norðaustanáttin var orðin
heldur kaldari í gær, enda
komið fr<»t á Jan Mayen.
Veðurspáin kl. 18 í
kvöldi:
SV-mið: Austan stinnings-
kaldi, dálítil rigning.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxafflóamið og Breiðafjarð-
armið: NA kaldi, skýjað.
Vestfirðir til NA-land* og
miðin: NA kaldi eða stinnings
kaldi, sums staðar dálítil snjó
koma.
Austfirðir, SA-land og mið-
in: Austan káldi, dálitil rign-
ing eða slydda.
Spilakvöldið verður í tveim
stærstu samkomuhúsum bæjar-
ins, Lídó og Sjálfstæðishúsinu.
Verða húsin opnuð klukkan 8
í kvöld, en byrjað verður að
spila stundvíslega klukkan 8,30.
Sérstaklega hefur verið vand-
að til þessa spilakvölds. Glæsi-
leg verðlaun verða veitt að
vanda. Ræður verða fluttar og
tala þeir Bjami Benediktsson,
ráðherra, í Sjálfstæðishúsinu, og
Jóhann Hafstein, alþingismaður,
í Lidó. Guðmundur Jónsson,
óperusöngvari kemur í heim-
sókn á báða staðina og syngur
/ NA /5 hnútor / SV 50 hnútar - * '•'1; i \7 Stúrír K Þrumur 'WZS, KuUaaki/ HifttÁ/1 H Hml L LagS
Vistmenn 344
Samkvæmt tilkynningu frá Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund
voru þar 320 vistmenn í árslok-
in. Þar af var 241 kona. Að Elli-
og hjúkrunarheimilinu Ás í
Hveragerði voru um áramótin 24
vistmenn, þar af 14 konur. Á
báðum heimilunum voru því
vistmenn samtals 344, 255 kon-
ur og 89 karlar.
með undirleik Fritz Weisshapp-
els. —
Landamærum
lokað
Leopoldville, 3. jan. (Reuter)
TALSMAÐUR SÞ skýrði frá því
í dag að landamærum Ruanda-
Urundi og Livu héraðs í Kongó
hefði verið lokað.
Fyrir tveim dögum notaði
Mobutu herstjóri Ruanda-Urundi
sem er verndarsvæði SÞ undir
stjóm Belgíu, til innrásar í Kivu
hérað.
Sagði talsmaðurinn að SÞ
væru nú að flytja herlið loftleið-
is til flugvallarins í Goma í Kivu
héraði. Væru þetta aðallega her-
meim frá Nigeríu og Indónesíu.
Sagði hann að spenna ríkti nú
í héraðinu og að fjöldi Evrópu-
manna, þeirra á meðal embættis-
maður Rauða Krossins, hefði ver
ið handtekinn.
Allii* á vertíð
SEYBISFIRÐI, 3. jan. — Allt
bendir til þess að enginn bátur
verði gerður héðan út í vetur.
Allir, sem vettlingi geta valdið,
fara á vertíð á Hornafirði og í
Vestmannaeyjum, sjómennirnir
til Hornafjarðar, en verkafólk til
Eyja. — Sv. Guðm.
Castro harðorður í
garð Bandaríkjanna
— (Reuter) —■
FIDEIj Castro, forsætisráð-
herra, krafðist þess í gær-
kvöldi að Bandaríkin fækk-
uðu starfsliði við sendiráð
þeirra í Havana, þannig að
það yrði ekki fjölmcnnara
en sendiráð Kúbu í Washing
ton. Ásakaði Castro Banda-
ríkin fyrir að nota sendiráð-
ið til að koma samsæris- og
ofbeldismönnum inn í land-
ið. —
Ásakanir þessar kornu fram í
þriggja tíma ræðu, sem Castro
hélt eftir að 80.000 manns hafði
í átta klukkustundir horft á her
sýningu í höfuðborginni.
80% njósnarar
Talsmaður bandariska sendi-
ráðsins sagði að þar væru starf-
andi 42 embættismenn auk 87
bandarískra starfsmanna. Taldi
hann að við sendiráð Kúbu í
Washington störfuðu 11 embætt-
ismenn. Um starfslið bandariska
sendiráðsins sagði Castro: „Við
vitum að 80% þeirra eru njósn-
arar ....“
Á öllum hæðum
Castro ásakaði Bandaríkin fyr-
ir að veita uppreisnarmönnum á
Kúbu lið og árásarbækistöð í
Bandaríkjunum. Sagði hann að
stjómin á Kúbu mundi ráða nið-
urlögum gagnbyltingarmanna á
þessu ári. Ef innrás yrði gerð
mundi sérhver bygging verða var
in frá kjallara til efstu hæðar og
þegar ekkert annað væri eftir
yrði barizt í rústunum.
„Við vitum hverjir standa fyr-
ir ofbeldisaðgerðum. Þeir leyn-
ast í húsum hinna ríku. Við vit-
um hvernig á að útrýma ofbeld-
ismönnum. Við munum hertaka
hús þeirra er forréttinda njóta“,
sagði Castro.
Rússnesk vopn
Skriðdrekar og þungar fall-
byssur voru á hersýningunni og
virtist hvorutveggja vera af
rússneskri gerð. Síðast í fylking.
unni yar flutningabifreið með
hluta af bandarískri geimflaug,
samansettri úr brotum er féllu
30. nóv. nálægt Holguin og urðu
einni kú að bana. Á bifreiðinni
var áletrunin: „Kú-dráps eld-
flaug frá Pentagon".