Morgunblaðið - 06.01.1961, Page 1
24 síður rrieð Barnalesbók
Lánamálum útvegsins komið á
heilbrigöan grundvöll
Brá&abirgðalög um nýjan lánaflokk,
sem veiti löng lán i stað óreiðu-
skuldanna frá uppbótatimabilinu
BRÁÐABIRGÐALÖGIN,
sem gefin voru út 1 gær,
veita Stofnlánadeild sjáv-
arútvegsins heimild til að
opna nýjan lánaflokk í
þágu útvegsins. Er til-
gangurinn sá að
létta rekstrarfjárörðug-
leika þessa atvinnuvegs
með því að breyta bráða-
birgðalánum og óreiðu-
skuldum uppbótatíma-
bilsins í 10—20 ára lán og
treysta þannig fjárhags-
grundvöll útvegsins, sem
nú verður að standa
óstuddur. Vegna þessara
lánveitinga fer fram víð-
tækt mat ríkisskipa,
vinnslustöðva og véla og
gert er ráð fyrir, að í sum-
um tilfellum geti verið
þörf á sérstakri athugun
á fjárhag fyrirtækjanna.
Getur stjórn Stofnlána-
deildarinnar þá tilkynnt
skiptaráðanda það og er
þá óheimilt að torvelda
Adenauer 85
ára — hress
og káfur
Bonn, Vestur-Þýzkalandi, 5. jan.
(Reuter)
ADENAUER kanslari Vestur-
Þýzkalands á 85 ára afmæli í
dag. Hann hefir undanfariðl legið
sjúkur, en við móttökuathöfn í
embættisbústað hans í dag var
hann hinn hermannlegasti og
ir.jög hress í bragði.
— ★ —
Fjöldi stjórnmálaleiðtoga og
embættismanna heimsótti kansl-
arann, þ. á. m. forseti sambands-
lýðveldisins, Heinrich Liibke.
Var þarna hið bezta samkvæmi
og afmælisbarnið hrókur alls
fagnaðar. — Adenauer er óvenju-
1-ega ern af svo gömlum manni,
og starfsþrekið virðist óþrjót-
andi — enda telja flestir, að hann
muni gegna embætti kanslara á-
fram, ef flokkur hans sigrar 1
komandi kosningum.
— ★ —
Heillaskeytin streymdu að
hvaðanæva úr heiminum í all-
an dag þ. á. m. voru kveðjur frá
Eisenhower Bandaríkjaforseta,
Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, Macmillan forsætisráð-
herra Betlands og de Gaulle
Frakklandsforseta.
rannsóknina með aðför
vegna skulda lánbeið-
anda. Sú stöðvun gildir þó
aldrei lengur en til árs-
loka. Lánsbeiðandi má
heldur ekki gera neinar
ráðstafanir, sem veruleg
áhrif geta haft á efnahag
hans.
Vextir af þessum lánum
verða ákveðnir af stjórn
Stofnlánadeildarinnar en
reglur um lánskjör að
öðru leyti og annað, sem
máli skiptir, verða settar
með reglugerð, sem vænt-
anlega verður gefin út
mjög bráðlega.
Bráðabirgðalögin hljóða
svo:
FORSETI ÍSLANDS gjörir
kunnugt: Viðskiptamálaráð-
herra hefur tjáð mér, að
sjávarútvegurinn eigi nú við
að etja rekstrarf járörðug-
leika, er einkum stafi af því,
að fyrirtæki hafi á undan-
förnum árum ekki fengið
nægilegt fjármagn til langs
tíma vegna þeirra fram-
kvæmda, sem þau hafa ráð-
izt í. Um leið og vertíð hefst
sé því nauðsynlegt að gera
ráðstafanir til þess, að all-
miklu af skuldum sjávarút-
vegsins til skamms tíma
verði breytt í löng lán. Ríkis
stjórnin telur því brýna
nauðsyn bera til, að stofn-
lánadcild sjávarútvegsins
verði nú þegar heimilað að
opna nýja lánaflokka, er geri
henni kleift að vinna að
lausn þessara mála. Jafn-
framt er nauðsynlegt, að
ákvæði séu sett um heimild
til tímabundinnar innheimtu
stöðvunar, sem grípa megi
til, ef á þarf að halda, til
þess að koma í veg fyrir
rekstrarstöðvun á meðan
verið er að athuga fjárhag
fyrirtækja, sem sækja um
lán.
Framhald á bls. 23.
HIN hörðu átök í smárikinu
Laos og allt ástand mála þar
hefir orðið ábyrgum stjórn-
málamönnum víða um heim
mikið áhyggjuefni. Hefir það
rifjað upp fyrir mönnum á-
standið, sem ríkti í Kóreu áð-
ur en hin blóðuga styrjöld
þar brauzt út — enda hafa
sumir talað um, að alvarlegri
atburðir en þeir, sem nú eru
að gerast í Laos, hafi ekki
komið fyrir í heimsmálunum
sl. tíu ár.
Myndin er tekin í smábæ
„einhvers staðar“ í Laos fyrir
fáum dögum. Hermaður bíð-
ur við glugga með mundaða
vélbyssu — algeng sjón und-
anfarið austur þar.
rslitaorrusta í Laos?
Hægrimenn sagðir búa sig undir að
taka hinn miki/væga flugvöll
Krukkusléttunni4
W ,,l
VIENTIANE, Laos, 5. jan. —
(Reuter) — Upplýsingamála-
ráðherra stjórnar Boun
Oums tjáði fréttamönnum í
Lœfur Belgíu-
sfjórn undan?
BRUSSEL, 5. jan. — (NTB/
AFP/Reuter) — Þær fregn-
ir bárust út um Briissel í
dag, að Baldvin konungi
hafi með viðræðum við for-
ystumenn stjórnmálaflokk-
anna, tekizt að opna dyr til
samninga milli flokkanna
um að hinum umdeildu
sparnaðarráðstöfunum stjórn
ar Eyskens verði frestað um
óákveðinn tíma. Segir í
fregnum þessum, að Eyskens
og Leo Callard, form. Jafn-
aðarmannaflokksins, hafi
lagt grunninn að slíkum
samningum.
Þá virðist svo sem all-
mjög hafi dregið úr verk-
Frh. á bls. 23
iTTunrt:"
dag, að hersveitir stjórnar-
innar sæktu nú að flugvelli
þeim á „Krukkusléttunni“,
sem vinstrimenn náðu með
skyndiáhlaupi á dögunum.
Sagði ráðherrann, að sótt
væri að flugvellinum úr,
tveim áttum — frá Luang I
Prabang, konungsborginni,
og stjórnarsetrinu Vientiane.
— Ráðherrann sagði, að rúss
neskar flugvélar lentu „án
afláts“ á sléttunni og flyttu
vopn og vistir til liðs vinstri
manna. — Er af mörgum lit-
ið svo á, að hin yfirvofandi
orrusta um þennan mikil-
væga flugvöll geti vel orðið
úrslitaorrustan í borgara-
styrjöldinni í Laos.
• Vegartálmanir
Hinar tvær herdeildir stjórnar-
innar geta aðeins sótt hægt fram.
þar sem lið fallhlífaliðsforingjans
Kong Les og hermenn Pathet Lao
hafa sprengt upp brýr, fellt tré
yfir vegi og víða komið fyrir
jarðsprengjum. En deildin, sem
sækir fram frá Luang Prabang
er þó sögð hafa náð mikilvægum
vegi vestur af sléttunni og borg-
inni Phu Koun, sem er um 30
mílur vestan hennar.
Frh. á bls. 23
Líkin
óþekkjonleg
Dortmund, V.-Þýzkalandi
5. janúar (Reuter) ■
VITAÐ er nú, að 15 manns
léfcust af völdum spreng-
ingarinnar, sem varð í verk
smiðju einni hér í gær.
Auk þess er fjögurra
manna saknað og 11 eru
alvarlega slasaðir, tveir
þeirra svo, að mjög er ótt-
azt um líf þeirra. — Níu af
líkum þeim, sem fundizt
hafa, eru svo illa útleikin,
að ekki hefir enn reynzt
unnt að þekkja, hverja þar
er um að ræða.