Morgunblaðið - 06.01.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.1961, Blaðsíða 3
Föstudagur 6. janúar 1961 MORCVNBLAÐIÐ 3 ★ Jdta- kveðja TVÆB flogrvélar rákust á yf- kr New York-borg og brenn- andi flök þeirra féllu niður í íbúðarhverfi. Það var eins og sprengja hefði fallið, sögðu fréttamenn. Nær 140 fórust, óhugnan'egt og átakanlegt í senn. Stærsta flugslys sög- unnar. Þetta gerðist skömmu fyrir jól, eins og allir blaðalesend- ur vita. Allir voru í jóla- skapi. Margir að undirbúa heimferð um jólin, flestir að kaupa jólagjafir og skrifa jólakort til vina og ættingja. Og sjá'lfsagt má segja sama um þá, sem voru í ógæfuflug- vélunum tveimur. ★ ★ ★ Eftir margra stunda bar- áttu við e'dinn tókst slökkvi- liðsmönnum loks að ráða niðurlögum hans. Við þeim blasti ömurleg sjón. Rjúk- andi rústir, dauði og eyði- legging. Farið var að leita í flökunum og lákin voru borin í brott. Nokkrir hálfbrunnir póstpokar fundust í farang- ursgeymslu, kannski voru ein hver bréfanna enn heil. Það var allt og sumt. Flökin voru fjarlægð, fólk var aftur á gangstéttunum og bílar á ak- brautunum. íbúar hverfisins fyiitust óhug, þegar þeir gengu þarna um — en eftir nokkrar vikur gengur fólk flissandi um þessar götur. Þá verða öll ummerki afmáð og engir aðrir en þeir, sem sáu, vita hvar þessi hræðilegi atburður gerðist. ★ ★ ★ En hvað varð um hálf- brunnu póstpokana? Jú, þeir voru fluttir í pósthúsið. Eitt- hvað af þessu var það lítið brunnið, að hægt var að bera það út. Póstpokarnir eru út- troðnir um þetta leyti, jóla- pósturinn. Þeir brenna því ekki til ösku á skammri stundu. Og svo voru þau tínd úr, heillegu bréfin, sum meira og minna brunnin. Á þau var stimplað með rauðu: 3 Jólakortið og umslagið frá Þorvaldi. Greinilegt er hvernig það hefur brunnið. frá Þorvaldi „Skemmdirnar hafa orðið í höndum póstþjónustunnar“. Síðan voru þau send áleiðis til viðtakenda. ★ ★ ★ Eitt þesara bréfa barst til íslands. Það var til starfs- fólks Loftleiða. Jólakveðja frá gömlum starfsmanni, Þor- valdi Danielssyni, sem bú- settur er í Kaliforníu: „Kær kveðja, Þorv. Dan.“ Þorvaldur var verkstjóri hjá Loftleiðum á Reykjavík- urflugvelli. Hann fór í sumar með fjölskyldu sína til Kali- forniu og ætlar að vinna þar um hríð, við húsasmíðar. Póststimpililinn sýnir, að hann hefur póstlagt jólakort- ið í Berkeley, Kalif., 15. des- ember, kl. 6 e. h. — En það var Loftleiðamönnum ekki nóg til að sjá, að kortið hefði verið í annarri ógæfuvél- anna. ★ ★ ★ Sögunni víkur aftur til New York. Bolli Gunnarsson, stöðvarstjóri félagsins þar, skrifaði Sigurði Magnússyni, fulltrúa, og lét þess getið í lokin, að hann hefði fengið jólakort frá Þorvaldi Dan. í Kaliforníu. Það hefði verið hálfbrunnið og hann hefði leitað upplýsinga um ástæð- una hjá póstþjónustunni. Svarið var: „Jólakortið þitt er eitt af fáum, sem ekki brunnu í stóra slysinu þann 10. desefnber". Þarna kom skýringin á hálfbrunnu kortinu, sem hing að hafði borizt frá Þorvaldi. Hann hafði póstlagt þau bæði í sama skiptið. Þau hafa leg- ið saman í póstpokanum meðan flakið brann. ★ ★ ★ Flugvélarnar, sem rákust á, voru DC-8 þota frá United Airlines og Constellation frá TWA. Þotan kom frá Chic- ago, hin frá Dayton, Ohio. Líklegt er, að kortin hafi verið í þotunni, því þotur United fljúga mil.li Kaliforn- íu, Chicago og New York. í henni voru 85 manns, meðal þeirra Stephan litli, sá eini, sem komst lifs frá slysstaðn- um. En hann dó líka. Hálfbrunnu jólakortin, sem tínd voru úr póstpokanum vestur í New York að kvöldi hins 16. desember, voru ekki aðeins jólakveðjur frá Þor- valdi. Þar sendu miklu fieiri kveðju sína. Gagnbylting á Kúbu undirbúin að sögn ,,Samtaka lýðrœðissinnaðra byltingarmanna" Havana og New York, 5. jan (Reuter-NTB) EFTIR næturlangan ráðuneytis- fund lýsti Kúbustjórn því yfir í morgun, að það væri á ábyrgð hínnar „árásargjörnu og fjand- samlegu“ Eisenhowerstjórnar að sí.Jórnmálasamband landanna væri nú úr sögunni — en stjórn- in liti ekki svo á, að tengslin við bandarisku þjóðina væru rofin, þrátt fyrir slit stjórnmálasam- bandsins. Þá gerði stjórnin á næt urfundi sínum þá breytingu á lög unum um varnir Iands og þjóðar, að dauðarefsing skal nú lögð við hvers konar uppreisnar- og und- irróðursstarfsemi gegn Castro og stjórn hans. En á meðan þetta gerðist, sagði New York-fulltrúi þess félagsskapar Kúbumanna, sem nefnir sig „Samtök lýðræð- issinnaðra byltingarmanna“, að samtökin væru nú nær reiðubú- in að koma af stað gagnbyltingu á Kúbu. — Leiðtogi samtaka þessara er dr. Manuel Antonio de Varona, fyrrum forsætisráðherra á Kúbu. — ★ — Flestir sendiráðsmenn Banda- ríkjanna eru nú farnir frá Kúbu, aðeins 11 eru eftir til þess að ganga frá málum við svissneska sendiráðið, sem tekur að sér að gæta hagsmuna Bandaríkjanna á Kúbu. Um 50 þúsund Kúbubúai hafa sótt um leyfi til að flytjasi til Bandaríkjanna, en þar sem bandaríska sendiráðinu hefir nú verið lokað, er ekki ljóst, hvernig málum þeirra reiðir af. Um 300 Kúbumenn komu með 6 banda- rískum flugvélum til Florida í dag. — Nokkrar æsingar urðu við brottför bandarísku sendi- ráðsmannanna. ★ Mikið er nú um að vera í Havana og víðar á Kúbu — og engu líkara en verið sé að búast til varnar gegn innrás. — A framhaldsfundi Öryggisráðsins í kvöld um kæru Kúbu á hend- ur Bandaríkjanna, hlutu Kúbu- menn daufar undirtektir. STAKSTEIMAR Runnu út í sandinn ^ Ólafur Björnsson, prófessor og' alþingismaður ritar athyglisverða grein í síðasta hefti „Frjálsrar verzlunar". Ber hún titilinm „Aukin framleiðni er undir- staða aukins kaupmáttar launa“. Ræðir hann þar m.a. niðurstöð- ur rannsóknar, sem fram fór á kaupmætti launa, á árunum 194S til 1959. En sérfræðingar Alþýðu- sambands íslands töldu að kaup- máttur launa hefði aðeins verið rýrari árið 1959 en hann var ári* 1945. Ólafur Björnsson kemst sið- an að orði á þessa leið: j „Ekki verður því kennt um, að því er snertir þann lélega ár- angur, sem orðið heflur af kjara- baráttu launþega, að samtök þeirra hafi látið sitt eftir liggja um það að knýja fram kaup- gjaldshækkanir, ef slíks var kost ur. Hækkun kaupgjalds hefur orðið meiri hér en sennilega í nokkru öðru Evrópulandi. En all- ar hafa þessar kauphækkanir „runnið út í sandinn“, þar sem verðlagið hefur hækkað til jafns við hið hækkaða kaup, þannig að árangmr kauphækkananna hefur orðið sá einn, að rýra verð gildi peninganna, en kaupmáttur launa hefur haldizt óbreyttur“. Stórátak Grein Ólafs Björnssonar lýkur með bessum orðum: „Með efnahagsráðstöfunum þeim, er gerðar voru á sl. vetri, var gert stórt á'ak í þá átt að bæta úr þeim veilum í efnahags- kerfinu, sem nefndar hafa verið og hindrað hafa kjarabætur til handa almenningi hér á landi. Enn er of snemmt að spá um það, hvort þessar aðgerðir heppnast svo sem til var ætlazt. En undir því verður það komið, hvort þjóð in get"" á næstu misserum horft fram á veginn til betri efm>hags- afkowu.“ Þetta sagði Ólafur Björnsson. Hafa ekkert lært af reynslunni En leiðtogar kommúnista hafa ekkert lært af reynslunni. Með- an þeir voru í vinstri stjórninni, hikuðu þeir að vísu ekki við að taka af launþegum þá launahækk un, sem þeír börðust með hnú- um og hnefum fyrir árið 1955. En nú leggja þeir höfuðáherzlu á að telja verkalýðnum trú um að hann geti bætt kjör sín með verulegum kauphækkunum, þrátt fyrir það, þótt bjargræðis- vegir landsmanna berist í bökk- um og séu raunar reknir með halla. Vitanlega er þessi stefna komm únista í algeru ósamræmi við þær ályktanir, sem draga má af rannsókn hagfræðinga Alftýðu- sambands íslands á þróun kaup- máttar launa á tímabilinu 1945— 1959. Sú rannsókn sýndi að kaup- máttur tímakaupsins jókst eng- an veginn, þrátt fyrir stórfelld- ar kauphækkanir. Vísitöluskipu- Iagið og verðbólgan átu þær upp. „SIogor3astríð“ í Algeirsborg Þjóðaratkvœði hefst í dag ALGEIRSBORG, 5. jan. (Reut- er) — Á morgun hefst þjóðar- atkvæðagreiðsla í Alsír um það, hvort íbúar landsins skuli fá rétt til að ákveða sjálfir framtíðarstjórnskipulag sitt. — Greidd verða atkvæði i sveita- kjördæmum í dag, á morgun í hinum minni borgum og á sunnudag í stærstu borgunum, svo og í Frakklandi öllu. — Ólga var nokkur í Alsír í dag, einkum í Algeirsborg og Oran — og voru yfir 20 þúsund her- menn og lögreglumenn til taks Fnamh. á bls. 23 Dregur úr derringi Nokkuð hefur undanfarið dreg ið úr derringi kommúnista í sam- bandi við nýlendumálin. Það hef- ur nefnilega sannazt á þá, að þeir hafa varið hina nýju nýlendu- stefnu Rússa í líf og blóð. En Rússar hafa eins og kunnugt er undirokað fjölda þjóða og inn- limað lönd sumra þeirra hrein- Iega í Sovétríkin. „Nýlendusérfræðingur“ Þjóð- viljans hefur Iítið viljað um þetta ræða. Hann hefur látið sér nægja að lýsa yfir að allar þær þjóðir, sem Rússar hafa hneppt í ný- Iendnifjötra hafi verið „frelsaðar undan oki auðvaldsins“. Þannig hafa t.d. Lettar, Eistlendingar og l.itháar verið ..frelsaði»-“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.