Morgunblaðið - 06.01.1961, Qupperneq 5
Fðstudagur 6. janúar 1961
MORCVNBLAÐIÐ
f DAG á 75 ára afmæli einn
þeirra manna er var mjög
I vinsæll í skemmtanalífi Reyk
víkirrga og einnig út um land
á árunum 1911—1935. Maöur
þessi er Reinholt Richter,
fyrrverandi leikari og gam-
anvísnasöngvari. Hann starf-
ar nú sem sölumaöur hjá sæl
gætisgeröinni Víking.
Reinholt Richter er fædd-
ur í Stykkishólmi 6. janúar
188<v. • Foreldrar hans voru
hjónin Soffía Emelía Richter
og Samúel Richter, verzlun-
arstjóri í Stykkishólmi. Rein-
holt ólst upp í Stykkishólmi
hjá foreldrum sínum ásamt
6 systkinum ag er hann sá
eini þeirra, sem enn er á lífi.
Reinholt starfaöi fyrst fram-
an af sem verzlunarmaður á
Sandi, Ólafsvík og Stykkis-
hólmi, en 1919 fluttist hann
til Reykjavíkur og gerðist þá
sölumaöur og hefur starfað
hjá ýmsum fyrirtækjum m. a.
hjá Víking í rúm 15 ár.
I gær höfðum við tal af
afmælisbarnúru og spurðum
hann:
— Hvað varð til þess, að
þér hófuð gamanvísnasöng?
— Það var árið 1911, að
Bjarni Björnsson kom til
Stykkishólms og langaði til
þess að fá staðbundnar vísur,
sem hann ætlaði að syngja
þar. Sneri hann sér þá til mín
og bað mig um að semja og
bjó ég til nokkrar vísur.
Honum leizt vel á þær og bað
mig um að syngja með sér á.
skemmtun, sem hann hélt
þarna í Stykkishólmi. Ég
féllst á það og á eftir hvatti
Bjarni mig til að halda á-
fram. Ég gerði það og söng
gamanvísur, bæði í Reykja-
vík og úti um land nær sam-
fellt í 25 ár, eða þar til ég
varð 50 ára, þá hætti ég.
f — Hver samdi textanna,
/ sem þér sunguð?
l — Örnrólfur í Vík, það er
Atvinnurekendur
Piltur meS gagnfræðapróf
og tvo bekki í Iðnskóla,
óskar eftir iðnnemaplássi
t.d. útvarpsvirkjun eða raf
virkjun. Tilb. sendis Mbl.
merkt: „Fljótt — 1008“
Atvinnurekendur
Ungur maður með Verzl
unarskólapróf og reynslu í
sölumennsku og skrifstofu
störfum óskar eftir atvinnu
fyrir vorið. Tilb. sendist
Mbl. fyrir 11. þ.m. merkt:
„Atvinna — 1007“
dulnefni og er það ég sjálfur.
— Þér hljótið að hafa sam-
ið fjölda texta?
— Já, satt er það, ég veit
ekki einu sinni hvað þeir eru
margir. Stundum skemmti ég
t. d. þrisvar sinnum sama
kvöldið hér í bænum, bæði á
skemmtunum, sem ég liélt
sjálfur og einnig öðrum.
— Hélduð þér margar sjálf
stæðar skemmtanir?
— Já, bæði í Reykjavík og
annars staðar og alltaf fyrir
fullu húsi.
— Hefur eitthvað af text-
um yðar verið gefið út á
prenti?
— Jás nokkrar vísur eftir
mig birtust í bók, sem gefin
var út 1955 og nefnist hún
Snæfellingaljóð. Einnig birt-
ust stundum vísur eftir mig
í Speglinum.
— Þér fenguzt við leiklist
var það ekki?
— Jú, ég lék nokkrum sinn
um t. d. í Revíunni Spánar-
nætur.eirrnig í nokkrum leik-
ritum, hjá Leikfélagi Reykja-
víkur o. fi.
— Munið þér eftir ein-
hverjum sérstökum lilutverk
um?
— Já, ég lék t. d. Skrifta-
Hans í Ævintýri á gönguför,
lækninn í ímyndunarveik-
inni og Ístru-Martein í Þrem
skálkum. Ég man sérstaklega
eftir, að þegar ég lék Skrifta-
inlegan þorpara. ’
á móti koma I
turatriðinu, að t
Hans, túlkaði ég hlutverkið
öðruvísi, en venja var til.
Þeir, sem höfðu leikið hann
áður túlkuðu hann allir
sem óforbetranlegan þorpara.
Mér fannst
fram í næturatriðinu,
Skrifta Hans hefði tilhneig-
ingu til þess að bæta sig og
túlkaði harni samkvæmt því.
Fyrir þetta þ. e. a. s. nætur-
atriðið, fékk ég því slæma
dóma í blöðum, en góða fyrir
hina hluta leiksins. Eitt
kvöld, eftir að dómarnir
höfðu komið í blöðunum, var
ég að hreinsa af mér máln-
inguna að lokinni sýningu.
Þá var kallað í mig og mér
sagt að koma fram á svið,
þar stóð þá ein leikkonan á.-
samt eldri maimi, sem ég
þekkti þá ekki. Hann tók í
hönd mér og þakkaði mér
fyrir góða túlkun á Skrifta-
Hans, sérstaklega í nætur-
atriðinu. Hélt ég fyrst að
maðurinn væri að gera að
gamni sínu og ætlaði að fara
að gagnrýna mig, en svo var
þó ekki Þetta var Einar
H. Kvaran, rithöfundur og
fyrrverandi leiklistargagn-
rýnandi. Honum þótti með-
ferð mín á hlutverkinu alveg
rétt oig þótti mér ákaflega
vænt um það. Held ég að
þetta sé eitt minnisstæðasta
atvikið frá leikferli mínum.
Flugfélag íslands h.f.: — Hrímfaxi
fer til Óslóar, Kaupmh. og Hamb. kl.
08:30 í fyrramálið. — Isnanlandsflug
í dag: Til Akureyrar, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Vestmannaeyja. —
Á morgun: Til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Húsavíkur, ísafjarðar, Sauð
árkróks og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá London og Glasgow
kl. 21:30, fer til New York kl. 23:00.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss fór frá ísafirði í gær til Flateyr-
ar. — Dettifoss er væntanlegur á ytri-
höfnina um kl. 13:00 í dag. — Fjall-
foss er á leið til Reykjavíkur. — Goða
foss fór frá ísafirði í gær norður og
austur um land til Rvíkur. — Gullfoss
fór fi% Kaupmh. í gær til Leith. —
Lagarfoss fer frá Vestmannaeyjum í
dag til Bremerhaven. — Reykjafoss er
í Hamborg. — Selfoss fer frá N.Y. í
dag til Reykjavíkur. — Tröllafoss fór
frá Rvík kl. 5 í morgun til Keflavík-
ur. — Tungufoss fór frá Fáskrúðsfirði
í gær til Ólafsfjarðar og þaðan til
Ósló.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla fer væntanlega í dag frá Vent-
spils til Riga. — Askja lestar á Norð-
urlandshöfnum.
H.f. Jöklar: — Langjökull kemur í
dag til Hafnarfjarðar. — Vatnajökull
fór frá Grimsby í gær.
Hafskip h.f.: — Laxá er á leið til
Kúbu.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í
Aabo. — Arnarfell fór í gær frá Rvík
til Svalbarðseyrar. — Jökulfell kem-
ur í dag til Ventspils. — Dísarfell
lestar á Austfjörðum. — Litlafell los-
ar á Norðurlandshöfnum. — Helgafell
er í Riga. — Hamrafell er á leið til
Gautaborgar frá Tuapse.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
— Ég er mjög íram,gjarn og
mun ekki unna mér hvíldar, fyrr
en ég sit í stólnum yðar.
Afinn: — Hver er vinsælastur
af skólabræðrum þínum?
Nonni: — Síðasta misseri var
það Siggi, hann smitaði okkur
öll af mislingum.
. Vegfarandi: — Hvað gengur á?
Sá drukkni: — Ég er að leita
að hundrað króna seðli, sem ég
týndi hinum megin á götunni.
— Því í ósköpunum leitarðu þá
að honum hérna?
— Því það er miklu betra ljós
hér.
Reið eiginkona: — Hvaða mein
ing er það eiginlega að koma
heim klukkan 4 um nótt?
Drukkinn eiginmaður: — Elsk-
an mín, hún er ekki nema eitt,
ég heyrði hana slá eb-t högg
h\íaíS ^ftir annað.
Austfjörðum á suðurleið. Esja kemur
árdegis í dag til Rvíkur. Herjólfur fer
frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmanna
eyja. Þyrill er í Karlshamn. Skjald-
breið fór í gær vestur um land. Herðu
breið er á Austfjörðum á norðurleið.
7960
Sem sagnfræðingur hlýtur maður
að hafa hæfileika, til þess að segja
fyrir um framtíðina . . .
Franski rithöfundurinn
Jaques Maritain.
Börnin á vorum tímum eiga föður
og móður, en því miður enga for-
eldra ....
Þýzki uppeldisfræðingurinn
Hildegard Walters.
Hjónaband er ágætt — maður á
bara ekki að gera það að venju . . .
Enski rithöfundurinn
Somerset Maugliam.
Það er gremjulegt, að hinn komm-
únistiski heimur veit mikið um
einingu, en ekkert um frelsi, — en
hinn frjálsi heimur veit mikið um
frelsi, en ekkert um einingu . . . .
Spánski heimspekingurinn
Salvador de Madariga.
Ekkert er eins dýrt og fyrsti veð-
réttur í loftkastala . . .
Franski stjórnmálamaðurinn
Edgar Faure.
Sagnfræðingar eiga aðeins að nota
blýant og strokleður við vinnu
sína ....
Franski rithöfundurinn
Lucas Duhreton.
Af tvennu illu á meður að velja
það fegurra ....
Franski leikarinn
Maurice Chevalier.
Sérhver kona er fús til að afsala
sér einhverju af hinu nauðsynlega,
ef hún aðeins fær dálítið af hinu
ónauðsýnlega.
ítalski leikstjórinn
Vittorio de Sica.
Hin fræga eðlisávísun konunnar
byggist aðallega á því hve létt er
að sjá í gegnum karlmennina . . .
Franska skáldkonan
Francois Sagan.
HÚSBYGGJENDUR
Gröfum húsigrunna, skurði
og aðra jarðvinnu. Upp-
mokstur, hífingar, spreng
ingar. Sími 32889.
r
___________f
senoibílastöðíK
2MII3
2ja herb. íbúð
helzt í nágrenni við Flug-
völlinn, óskast til leigu,
sem fyrst. Fyrirframgr.
Uppl. í síma 3-51-16 milli
kl. 5 og 8 í.h.
Píanókennsla
Tek nemendur í píanóleik.
Sverrtr Bjarnason.
Bjarnarstíg 10.
Sími 1-22-65.
Snæiellingur Hnnppdælir
Jólafagnaður félagsins verður i Skátaheimilinu
laugard. 7. jan. 1961 og hefst kl. 8,30.
Spilað verður bingó. — Góð verðlaun.
Hljómsveit Aage Lorange.
Félagar f jölmennið og takið með ykkur gesti.
SKEMMTINEFNDIN.
Frá dansskóla Hermanns
Ragnars
Endurnýjun skírteina þeirra
nemenda, sem voru fyrir jól
er í Skátaheimilinu í dag
frá kl. 3—6 e.h.
Nýir nemendur sæki skír-
teini í dag á sama stað
kl. 5—7 e.h.
Kennsla hefst mánudaginn
9. janúar.
Skrifstofuhúsnæði
tvö til þrjú herbergi óskast á góðum stað í bænúm.
Tilboð leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
þriðjudaginn 10. þ.m., merkt: ,,AB — 1408“.
Lærið taimál
erlendra þjóða í-fámennum flokkum: Skrifstofan
í Kennaraskólanum er opin frá kl. 4,30—7 e.h.
Sími 13271.
MÁLASKÖLI
HALLDÖRS ÞORSTEINSSONAR
Einkaritari
Stúlka, sem getur vélritað íslenzku og ensku óskast
frá 1. febr. Stúdentsmenntun æskileg. Laun skv.
XI. fl. launalaga. Umsókn með mynd sendist Rann-
sóknastofu Háskólans við Barónsstíg sem fyrst.
Efnalaugin Lindin hf.
Hafnarstræti 18 — Sími 18820
Skúlagötu 51 — Sími 18821.
Nú sækjum við og sendum.
Efnolnngin Lindin hf.