Morgunblaðið - 06.01.1961, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 6. janúar 196i
V
Danmerkurfarar Ármanns ásamt þjálfara, Ásgeir GuSmunds
mönnum á æfingu
KÖRFUKNATTLEIKSMÓTI
Reykjavíkur lauk fyrir jólin.
Þetta var eitt skemmtileg-
asta körfuknattleiksmót, sem
háð hefir verið hér á landi.
Yfirleitt mátti sjá greinilega
framför hjá flestum liðun-
um, leikir voru tvísýnir og
oft vel leiknir. En það sem
fyrst og fremst vakti athygli
mína, var hin glæsilega
frammistaða hjá ýmsum úr
flokki hinna yngri leik-
manna.
■Á Góður efniviður
Sá efniviður, sem er að vaxa
upp í dag, lofar góðu um fram-
tíð körfuknattleiks á íslandi.
Haldi hinir ungu menn áfram að
æfa af ástundun og kostgæfni, þá
verður þess ekki langt að bíða,
að íslenzkir körfuknattleiksmenn
geti sett markið hærra heldur en
að glíma við frændur vora Dani.
Eitt af fyrstu verkefnum vænt-
anlegs körfuknattleikssambands
verður að koma á landsleikum og
undirbúa þátttöku íslands í
Evrópukeppni í körfuknattleik,
svo fljótt, sem auðið er.
■Á Undirstaðan er stöðug
þjálfun
Það er með körfuknattleik,
eins og aðrar íþróttagreinar, að
góður árangur næst aðeins með
stöðugri og markvissri þjálfun.
Og það er ekki nóg að æfa t.d.
eina tegund af körfuköstum, sem
manni gengur vel að ná árangri
með. Það þarf að leggja áherzlu
á alhliða þjálfun og æfa bezt
það, sem manni gengur erfiðast
með. Æfingamar verður að taka
með alvöru og þó að ýmsum finn
ist leiðinlegt að æfa vítaköst, þá
eru það vítaköstin, sem oftast
ráða úrslitum í leik, þegar út í
keppnina er komið. Árangur
körfuknattleiksmanna okkar í
vítaköstum er vægast sagt léleg-
ur og bendir það til að ekki sé
lögð sú áherzla á þessar æfingar,
sem skyldi.
t heimsókn til Ármenninga
Ármenningar hafa verið sigur-
sælir í yngri flokkunum á
Reykjavíkurmótinu. Þeir sigruðu
bæði í II. fl. og III. fl. og þessi
árangur ásamt fyrri kynnum af
hinni glæsilegu keppnisför II.
flokks til Danmerkur sl. vor,
varð til þess að ég brá mér í
heimsókn á æfingu hjá Ármenn-
ingum nú fyrir skömmu.
Böfuðstöðvar Ármenninga eru
í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu. Fyrir aldarfjórð-
ir Karfa og handknattleikur
eiga ekki samleið
Ég potaði mér út í hornið, þar
sem nokkrir strákar stóðu, sveitt
ir og vígmóðir og fór að spyrja
þá hvernig æfingarnar gengju.
Þeir svöruðu greiðlega og sögðu:
„Eins og þú sérð, þá erum við
orðnir of margir fyrir svona lítið
húspláss og aðeins tvær körfur.
Það eru alltaf að bætast við ný
andlit í hópinn og nú verður
byrjað með fjórða flokk“.
„Er áhuginn hjá unglingunum
Knattmeofero æfð undtr stjorn Asgeirs.
margir piltar gengið upp úr II.
fl. svo að félagið geti nú sent lög
legt lið á Islandsmótið í meistara
flokki og að sjálfsögðu séu Ár-
menningar staðráðnir í að sigra.
Þeir sem fylgzt hafa með Ár-
menningum nú undanfarið, vita
að á næsta íslandsmóti geta þeir
orðið hinum liðunum hættulegir
keppinautar.
syni, og Boga Þorsteinssyni. fararstjóra í förinni.
(Myndirnar tók Sveinn Þormóðsson)
Fyrirliði 2. flokks tekúr við
sigurlaunum á Keykiavikur-
mótinu. —
ungi, þegar húsið var tekið í
notkun, þá var þetta glæsilegasta
íþróttahöll höfuðborgarinnar. Nú
er húsið við Lindargötuna orðið
alltof lítið, enda var körfuknatt-
leikur ekki til á íslandi í þann
tíð og húsið byggt fyrst og
fremst til glímu- og fimleikaæf-
inga .En þrátt fyrir þröng salar-
kynni, hefir körfuknatleiksdeild
Ármanns verið þarna til húsa
allt frá stofnun, eða í 8 ár og
vaxið og dafnað og er nú að
sprengja utan af sér húsnæðið.
Þegar' ég kom á æfinguna hjá
Ármenningum, klukkan 9 um
kvöldið, þá voru blómarósirnar
úr kvennaliðinu að búast til
brottferðar. Sumir eru alltaf jafn
óheppnir, svo að ég varð að láta
mér nægja að horfa á æfingu
hjá piltum úr III. flokki.
Tvö lið voru í hörku keppni
og ennþá stærri hópur beið í
einu horninu eftir að röðin kæmi
að þeim. Ásgeir Guðmuijdsson
þjálfari stöðvaði leikinn, fyrsti
hópurinn fór í hornið, en næsti
flokkur hóf hina erfiðu baráttu
við að koma knettinum í netið.
Sveittir og ánægðir börðust þess-
ir ungu piltar eins og þeir væru
í úrslitaleik á íslandsmóti. Þröng
ur salurinn orsakaði árekstra,
þegar hraðinn var meiri, heldur
en knattmeðferðin leyfði. En
strákarnir létu slíkt ekki á sig
fá og hlýddu flautu þjálfarans
möglunarlaust.
fyrir körfuknattleik að vaxa?“
„Já, það er alveg áreiðanlegt.
Þetta er svona hjá öllum félög-
unum. ÍR er t.d. með ein sex lið
í fjórða flokki og aðsóknin er
víst jafngóð hjá KR og KFR. Síð-
an að farið var að kenna körfu-
knattleik í skólunum hefir áhug-
inn vaxið, en það er ekki til nægi
legt húsrúm handa okkur öllum“.
„Æfið þið ekki handknattleik
líka?“
„Jú flestir eru líka í handbolta,
en það fer ekki vel saman. Ef
maður ætlar að ná einhverjum
árangri, þá verður maður að
snúa sér eingöngu að annari
hvorri íþróttinni".
„Og þið ætlið að snúa ykkur
að körfunni?“
„Já, okkur finnst karfan
skemmtilegri".
Nú er ljósmyndarinn kominn,
svo að ekki vinnst tími til frekari
viðræðna að sinni.
Piltarnir raða sér upp til
myndatöku og Sveinn ljósmynd-
ar hvern hópinn á fætur öðrum.
Að myndatökunni lokinni hefst
æfing hjá II. fl. og meistarafl.
og það er ekki fyrr en að æfingu
lokinni, sem mér tekst að ná tali
af Davíð Helgasyni, formanni
körfuknattleiksdeildarinnar. —
Davíð segir mér að í deildinni
séu nú 50 piltar og 18 stúlkur,
deildin hafi verið stofnuð árið
1952 og að aldrei hafi fleiri ung-
lingar sótt um upptöku, en ein-
mitt nú í vetur. Davíð fræðir
mi2 á bví að um áramótin hafi
■Á Skjótþroska unglinga
skortir verkefni
Á leiðinni niður í bæ, ræðum
við Ásgeir Guðmundsson um æsk
una og körfuknattleik og upp-
eldislegt gildi íþrótta. Ásgeir seg
ir: „Það er ekkert efamál að ung
lingarnir eru í dag betur líkam-
lega þroskaðir, heldur en jafn-
aldrar þeirra voru fyrir 20—30
árum eða svo. Þessir unglingar
þurfa að fá útrás fyrir lífsorku
sína og athafnaþrá. Líttu á alla
krakkana, sem eru að ráfa þarna
tilgangslaust niður í Austurstræti
og virðast ekkert hafa fyrir
stafni. Fjöldi þessara unglinga
mundi vilja æfa íþróttir, körfu-
knattleik eða handknattleik, en
það er hvorki til húsrými, til að
talca við öllum þessum fjölda, né
heldur nægilega margir þjálfarar
hjá félögunum. Þeir peningar,
sem er varið til að ná ungling-
unum af götunni og skapa þeira
skilyrði til hollra frístundaiðk-
ana og íþróttaþjálfunar, eru
bezta innleggið í varasjóði fram-
tíðarinnar, en er ekki þetta inn-
legg okkar allt of lítið?“
Ég veit að Ásgeir talar hér
bæði af þekkingu og reynslu.
Hann er kennari, auk þess sem
hann hefir þjálfað Ármenning-
ana í körfuknattleik. Ásgeir er
því öllum hnútum kunnugur.
Hann veit hvar skórinn kreppir
að og hann hefir reynsluna af
uppeldisgildi íþróttanna.
Ásgeir Guðmundsson er ekki
eini íþróttaleiðtoginn, sem kvart-
ar undan fjárhagsörðugleikum
íþróttahreyfingarinnar. — Öll í-
þróttasamtök í landinu hafa
sömu sögu að segja, kostnaður
vex, en tekjur minka. Happ-
drætti eru hætt að borga sig og
enginn sækir hlutaveltur lengur.
Ef slíku heldur áfram hlýtur
starfsemi ýmissa félaga að drag-
ast saman. Hefur þjóðin efni á að
vanrækja æskuna? Er tekjum rik
isins af áfengisverzlun og tóbaks-
sölu betur varið á annan hátt, en
að láta þær renna óskiptar til
íþróttahreyfingarinnar og félags-
legs uppeldis æskunnar í land-
inu? —. BÞ.
Enska knattspyrnan
ÞRIÐJA umferð ensku bikar-
keppninnar fer fram á morgun
(laugardag). Koma nú liðin úr I.
og II. deild til keppni og er þetta
því af mörgum nefnd hin eigin-
lega fyrsta umferð keppninnar.
Leikirnir eru þessir:
Aldershot — Shrewsbury
Brighton — Derby
Bristol Rovers — Aston Villa
Burnley — Bournemouth
Cardiff — Manchester City
Chelsea — Crewe
Chesterfield — Blackburn
Everton — Sheffield U
Gillingham — Leyton Orient
Hull — Bolton
Leicester — Oxford
Lincoln — W.B.A.
Liverpool — Coventry
Luton — Northampton
Manchester U. — Middlesbrough
Newcastle — Fulham
N. Forest — Birmingham
Plymouth — Bristol City
Portsmouth — Peterborough
Preston — Accrington
Reading — Barnsley v
Rotherham — Watford
Scunthorpe — Blackpool
Sheffield W. — Leeds
Southampton — Ipswich
Stockport — Southport
Sunderland — Arsenal
Swansea — Port Vale
Tottenham — Charlton
West Ham — Stoke
Wolverhampton — Huddersfield
York — Norwich
Þau 16 lið, sem sigra í þessan
umferð munu keppa í fjórðu um-
ferð sem fram fer 28. janúar n.k.
Fimmta umferð fer síðan fram
18. febrúar og sú sjötta 4. marz.
Undanúrslit fara síðan fram 18.
marz og úrslitaleikurinn verður
háður á Wembley-leikvanginurn
í London 6. maí.
Á síðasta ári sigraði Wolver-
hampton í þessari vinsælu keopni
er þeir unnu Blackburn í úrslita-
leiknum.
Skautamót
Islanas
SKAUTAMÓT íslands 1961
verður haldið á Akureyri 28.
jan. nk. Keppt verður á þess-
um vegalengdum:
Skautahlaup karla: 500, 1500,
3000 og 5000 metrum.
Skautahlaup kvenna er
áformað ef næg þátttaka fæst
og þá kenpt í þessum vega-
Frh á bls. 23
Með ungum áhuga-