Morgunblaðið - 11.01.1961, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 11. jan. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
23
— Sigurður Birkis
Framh. af bls. 8
Hann gat ekki dvalizt marga
daga á hverjum stað, en nógu
lengi til þess að tendra þann
áhugaeld, sem síðan hefur ekki
fculnað. Það var yndi að starfa
með Sigurði Eirkis og ég gat
ekki annað en dáðst að því, hve
auðveit honum virtist að skapa
samstilltan flokk úr ósamstæð-
um hópi mar.na og kvenna, sem
komu þreytt frá vinnu. Og
kveikja í hugum fóiksins ást á
eöng og alúð við það híutverk,
sem það hafði tekið að sér að
rækja.
Sigurður Birkis átti það töfra
vald fölskvalausrar ósíngirni að
hann gat tendrað þjónustuviija,
sönggleði og trúmennsku í brjóst
um okkai' með því að koma til
okkar, vinna með okkur og'
hjálpa ökkur. Þannig reyndist
hann okkur eyfellska safnaðar- j
íólkinu, sem langaði til að láta
sönginn lifa í kirkjunni og byggð
inni. Og slík voru áhrif hans
hvar sem hann kom og starfaði. I
Allstaðar tókst honum að vekja
og efla söngsins sálbætandi
mennt. Af þrotlausri alúð vann1
hann að því með okkur prest-'
unum að skapa möguleika á því j
að halda uppi fagurri þjónustu'
í kirkjum fandsins. Ósérhlífni
hans og vinnugleði var dæma- j
laus Með djúpum söknuði sjá-j
um vér á bak þessum síglaða,
prúða vini og smekkvísa kenn-
ara.
Blessuð sé minning hins dygga
verkmanns á akri hinnar feg
urstu listar.
Sifrurður Einarsson
í Holti.
t
„Ég. vil lofa nafn Guðs í
hljóði og mikla það í lof-
söng“. Sálir. Dav. 69,31.
ÞANNIG söng Davíð konungur
og margir hafa síðan tekið undir
þá játningu. Menn sungu lofsöng-
inn, sem náði frá hjarta til hjarta.
Þannig hafa sálmarnir hljómað í
kirkjunum og mikið á þjóðin að
þakka þeim mönnum, sem hlutu
köllun til að fegra sönginn og
fullkomna. Ég minnist á þetta í
dag þegar vor hjartkæri söng-
málastjóri, Sigurður Birkis, er
kvaddur í hinsta sinn, því hann
hlaut þá köllun að helga kirkju-
kórum og íslenzkum sálmasöng
krafta sína. Starfstími hans er
ekki langur á mælikvarða í sög-
unnar rás, en miklu hefir Sigurð- 1
ur Birkis áorkað og gengur það
kraftaverki næst. Gætu allir þeir
kirkjuvinir og kórfólk, sem hann
hefir leiðbeint og eiga svo góðs
að minnast, komið að kistu hans
með þá hjartans þökk, sem inni
fyrir býr, yrði sá hópur stór. En
frá byggðum íslands kemur þessi
kveðjg frá öllum vinum hans og
samstarfsmönnum. Þar yljar hlý
og björt minning um hjartaræt-
ur. Hinn bjartsýni, fórnfúsi dreng
skaparmaður mun ekki gleymast.
Vér munum hinn eldlega áhuga,
hinn sterka persónuleika, hinn
ljúfa og elskaðá vin. Fegursta
minnisvarðann hefir han sjálf-
ur reist með fegurri og betri söng
er lofað í hljóði og miklað í lof-
er lofað í hljóði og miklað í lof-
söng.
Ég sendi hinni eftirlifandi eig-
inkonu, frú Guðbjörgu Birkis, og
bömum þeirra einlæga samúðar-
kveðju. Blessuð sé minning hins
látna söngmálastjóra.
Pétur Sigurgeirsson.
—★—
Á STUND sorgarinnar er gott
að eiga fagrar minningar. Þrátt
fyrir harm vina þinna og ætt-
ingja verða þeir að minnast þín
eins og þú varst. Jafnvel í dag
hljóta þeir því að sjá fyrir sér
bros þitt, heyra þennan glað-
væra hlátur, sem svo oft hljóm-
aði — fyrst einn —■ en lauk
ekki fyrr en allir aðrir voru
þátttakendur í gleði þinni. Þessi
dýrmæta mynd getur aldrei
gleymzt ástvinum þínum. Þess
vegna heldur þú áfram að vera
á meðal okkar og gera lífið
fegurra.
Ey. Kon. Jónsson.
ÞEGAR sólin hækkar sinn i
gang aftur, skapast nokkur /
slysahætta, þegar ekið er á
móti sólui. Og þessi árekstur,
sem varð um hádegisbilið í
gær, var settur í samband við
það, að sá sem ók þessum bíl,
hafi ekki vegna sólarinnar séð
til ferða mjólkurbíls, sem kom
á móti honum, hlaðinn mjög
og á verulegri ferð. Ók þessi
bíll í veg fyrir mjólkurbílinn,
sem reyndi að hemla og
sveigja undan, en allt kom
fyrir ekki. Harður árekstur
varð og mjólkurbíllinn fór út
af veginum með framhjólin.
Slys varð ekki á mönnum. En
kranabíll varð að draga báða
bílana af árekstrarstaðnum.
(Ljósm.: Sv. Þormóðsson).
— Strandiö
Framh. af bls. 1
því kunnugur. Ekki var heldur
vitað hvort um vélbilun var að
ræða, en helzt var þess getið til.
Skipið strandar.
Það skipti nú engum tagum að
skipið lendir upp í grjóteyrinni,
sem er sunnanvert við Norður-
garðinn og strandar þar. Björg-
unarlið brá við skjótt og fór þeg
ar á vettvang á fjórum bátum,
því ekki er fært landveg út á
garðinn. Lýstu þeir upp slys-
staðinn.
Herjólfur dælir út olíu.
Herjólfur var að leggja frá
bryggju á leið til Reykjavíkur er
slysið bar að höndum. Lónaði
hann úti á víkinni allan tímann á
meðan á björguninni stóð og
dældi olíu í sjóinn og er talið
fullvíst að það hafi mjög hjálp
að til við björgunina, því sjór
fór vaxandi. Meðan á björgun-
inni stóð óx vindurinn og voru
þá um 9 vindstig.
Björgunin gekk vel.
Mjög fljótt tókst að koma
björgunarlínu um borð í skipið
og var þegar hafizt handa um
að draga hina 6 skipverja í
land. Tókst það skjótt og vel.
Skipið var í fyrstu um 100 m.
frá garðinum og voru skipbrots
menn að mestu dregnir í sjó frá
skipinu. En þegar lauk björgun
var skipið komið 50 m. nær
landi og steytti þunglega á grjót
inu.
Hraktir og blautir
Skipshöfn mun ekki hafa verið
slösuð svo teljandi sé en menn
voru blautir og hraktir. Skip-
stjóri var sýnilega talsvert das-
aður.
Má segja að björgun þessi hafi
tekist mjög giftusamlega. Rign-
ingarskúrir voru á meðan á björg
un stóð. Skipstjórinn komst á
land 10 mín fyrir 11 og hafði
björgunin þá staðið tæpa klukku
stund. Skipbrotsmenn voru
fluttir í sjúkrahúsið í Vest-
mannaeyjum og munu verða
þar í nótt.
Enn sáust ljós blakta um borð í
hinu yfirgefna togskipi þar sem
það steytti við hafnargarðinn um
miðnætti í nótt.
— Belgia
Frh. af bls. 1
héldi fast við sitt. Mundi slíkt
verkfall hafa í för með sér algera
lömun atvinnulífsins um margra
vikna skeið eftir að þeim linnti.
í kvöld sagði framkvæmda-
stjóri jafnaðarmannaflokksins,
Jean Luyten, að ekki væru allir
jafnaðarmenn lengur á því að
krefjast þess, að stjórnin drægi
frumvarpið til baka. Stefna van
Ackers hefði verið samþykkt á
fundi miðstjórnar flokksins, en
felld uppástunga um að hefja
allsherjarverkfall. Hins vegar
væri opinber stefna flokksins ó-
breytt, en menn vonuðu að sam-
komulag næðist er neðri deild
þiúgsins kemipr saman aftur.
f kvöld féllust verkamenn í
stálsmiðjum í Bruges og bifreiða-
stjórar í Ghent að taka til
starfa á morgun.
ölflöskum grýtt.
Um það bil 5 þús. belgískir
hermenn voru fluttir yfir landa
mæri Þýzkalands og Belgíu í
nótt. í býtið í morgun höfðu þeir
slegið vörð um allar meiriháttar
byggingar i borginni Mons, þar
sem ástandið var sem verst í
gær.
í dag kom til alvarlegra bar-
daga 1 Antwerpen. Þúsundir
verkfallsmanna — sumir segja
6 þús., aðrir 10 þús. — komu
saman á útifundi. Kom til átaka
við lögreglumenn, er beittu kylf
um. Nokkrir verkfallsmenn fóru
upp á ölgérðarbifreið og grýttu
ölflöskum í allar áttir. Aðrir
grýttu múrsteinum og járnbút-
um er Þeir rifu úr sporvagnalín
um. Bardaginn stóð í 45 mín.,
en þá dreifðist mannfjöldinn rétt
áður en ríðandi hermenn komu
á vettvang.
í Liege kom einnig til átaka,
er verkfallsmenn reyndu að
hindra hljóðfæraleikara úr
lúðrasveit borgarinnar í að fara
til æfinga. Ekki voru átök þar
alvarleg, en fréttir í kvöld
herma, að ástandið þar hafi
versnað með kvöldinu.
Fréttaritari Reuters í V-Berlin
segir, að vestur-þýzkir hafnar-
verkamenn neiti að skipa upp úr
belgískum skipum sem liggja
í vestur-þýzkum höfnum.
Miðstjórn brezka verkalýðs-
sambandsins fór þess formlega á
leit við viðskiptabanka sína í
dag að þeir afhentu lán það er
ákveðið hefur verið að veita verk
fallsmönnum. Mun sú lánveiting
einsdæmi í sögu brezka verka-
lýðssambandsins.
— Ástin
Framh. af bls. 6.
myndari .einn mun taka mynd-
ir þar.
Um kvöldið efnir Ólafur kon-
ungur til brúðkaupsveizlu að
sveitasetri sínu Skaugum og er
200 manns boðið þangað. Meðal
veizlugesta eru Margrét Dana-
prinsessa, Bertil Svíaprins, Mar-
grét Bretaprinsessa og maður
hennar, Armstrong Jones, ljós-
myndari, Jean og Charlotte af
Luxemburg og Margrét prins-
essa af Burbon-Parma.
Næsta dag leggja brúðhjón-
in af stað í hveitabrauðsferð til
Mið j ar ðarhaf sins.
Engin merki er-
lendra hermanna
Vientiane, Washington,
Bangkok, Nýju Dehli, London,
10. jan. — (Reuter-NTB-AFP)
TILKYNNT var af hálfu
Laos-stjórnar í dag, að her-
menn frá Rússlandi og Norð-
ur-Viethnam herðust nú með
hermönnum Pathet Lao gegn
hægrimönnum. Fregn þess-
ari var þegar tekið með
nokkurri tortryggni af hálfu
vestrænna aðila í Vicntiane.
Var send á vettvang nefnd
Frakka undir forystu Serge
Gailliez, hershöfðingja og
segjast þeir ekki hafa séð
neinar líkur um sann-
leiksgildi fregnarinnar. —
Jafnframt sagði talsmaður
brezka utanríkisráðuneytis-
ins í London í dag, að brezka
stjórnin hefði engar upplýs-
ingar í höndum, er bentu til
sannleiksgildis þessarar til-
kynningar.
★ FriSsamlegar viðræður
Sarasin, framkvstj. SEATO,
sagði fréttamönnum í dag að
sér virtist ástandið í Laos sízt
batna. Lítt mun miða í átt til
þess að alþjóðlega eftirlitsnefnd
in komi saman á ný. Þó sagði
talsmaður brezka utanríkisráðu
neytisins í dag, að bæði Bretar
og Bandaríkjamenn væru því nú
hlynntir.
1 dag barst Nehru, forsætis-
ráðherra Indlands, bréf frá Eis-
enhower. Bréfið fjallar um Laos
málið, en engar nánari upplýs-
ingar liggja fyrir um efni þess.
Þá ræddust þeir við í Washing-
ton í dag, Hérter utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og Mensji-
kov, sendiherra Rússa. Þeir neit
uðu að segja nokkuð um við-
ræðurnar annað en að þær
hefðu fjallað um Laosmálið og
farið friðsamlega fram.
Samningar íslands
og Ungverjalands
VIÐSKIPTA- og greiðslusamn-
ingur íslands og Ungverjalands
frá 6. marz 1953, sem falla átti
úr gildi við sl. áramót, hefir ver-
ið framlengdur til ársloka 1961
með erindaskiptum milli Péturs
Thorsteinsson ambassadors og
Geza Reves, ambassadors Ung-
verja í Moskvu.
(Frá utanríkisráðuneytinu),
Mitið um dýrðir
VESTMANNAEYJUM 7. jan. —
Geysimikið var hér um dýrðir
á þrettándanum. Týsmenn og
skátar fóru blysfarir um bæinn
og fylgdi slíkur mannfjöldi, að
nærri lætur, að allir bæjarbúar
hafi verið þarna saman komnir.
Börnin voru í alils kyns grímu-
klæðum og gerðu mikla „lukku“.
Sonur okkar og bróðir
SIGURÐUR BRYNJÓLFSSON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
12. janúar kl. 1,30. — Blóm afþökkuð. En þeir, sem
vilja minnast hans, láti Langholtskirkju njóta þess.
Hólmfríður Jónasdóttir,
Brynjólfur Sigurðsson,
Brynjólfur Brynjólfsson,
Móðir mín og tengdamóðir
RÓSALINDE ÁRNASON
(fædd Jörgensen)
andaðist laugardaginn 7. janúar. Jarðarförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 13. jan. kl. 1,30.
Jarðsett verður að Kálfatjörn.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Sigvaldi Sveinbjörnsson,
Brekkugötu 12, Hafnarfirði
Ekkjan
PÁLÍNA JONSDÓTTIR
frá Saltvík
andaðist í Bæjarspítalanum 6. janúar. — Jarðarförin
fer fram í Fossvogskirkju, föstudaginn 13. janúar kl.
13}30. miðdegis.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðjón Sigurjónsson.
Kveðjuathöfn um hjartgæran föður og stjúpföður
okkar
SIGURÐ MAGNÚS JÓNATANSSON
ættaðan frá Rifi,
er lézt 7. janúar í Hrafnistu, verður gerð frá Foss-
vogskirkju, fimmtudaginn 12. janúar kl. 10;30. Kirkju-’
athöfninni verður útvarpað. — Blóm vinsamlegast af-
þökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
minningarsjóð Matthildar Þorkelsdóttur. — Minningar-
spjöldin fást í Miðbæjarbarnaskólanum og Reykjavíkur-
vegi 32, Hafnarfirði. — Jarðsett verður að Ingjaldshóli
laugardaginn 14. jan.
Rósbjörg, Þórleif, Steinunn Sigurðardætur
og Sigurjón Kristjánsson
fSBBBSMSSnmSSSB