Morgunblaðið - 02.02.1961, Qupperneq 10
10
MORGI'NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 2. febr. 1961
Hin
full-
komna
Aida
í>AÐ er hreint ekki tekið út
með sældinni að verða viður-
kenndur söngvari í Banda-
ríkjunum. Mikilfengleg söng-
rödd getur falizt um langt ára
bil fyrir forsjóninni og hafa
áreiðanlega margar perlur
glatazt af perlubandi sönglist-
ar-innar sökum þess eins að
þær náðu ekki áð vekja at-
hygli hinna réttu gagnrýn-
enda og áhrifamanna, sem
nauðsynlegir eru í þessum
heimi auglýsinga og sam-
keppni.
Sumir bandarískir söngvar-
ar hafa leitað til Evrópu og
reynt að afla sér viðurkenn-
ingar þar í þeirri von, að orð-
Nú er hinn raunverulegi þroskaferiil minn að hefjast, segir Leontyne Prince.
rómurinn um ágæti þeirra
berist aftur til heimalandsins
og þá til eyrna réttra aðila.
* * *
1 þessum mánuði mun koma
fram í fyrsta sinn á sviði
Metropolitan óperunnar í New
York, negrasöngkonan Leont-
yne Price, sem hefur átt ó-
venjulega greiða framabraut,
enda búin frábær-um söpghæfi
leikum og kunnáttu.
Leontyne Price er dóttir
trésmiðs nokkurs í borginni
Laurel 1 Missoury og konu
í heimsókn á æskustöðvum
hans, sem er negri. Tónlistar-
nám Leontyne hófst með námi
í píanóleik í heimahögum, en
um það leyti sem hún lauk
prófi úr menntaskóla 1 Ohio,
varð það lýðum ljóst að frami
hennar yrði fremur fólginn
í hinni hlýju, ríku og hárná-
kvæmu söngrödd hennar en
píanóleik.
En, sem fyrr segir, er það
enginn barnaleikur að komast
áfram á þeirri braut, enda þótt
hæfileikar séu fyrir hendi. Til
þess þarf mikla peninga, mik-
ið starf og mikla þrautseigju.
Þegar hér var komið sögu
gripu nýjar hendur í taumana.
Það voru ein ágætustu hjón
Laurel borgar, Alexander
Chisholm og kona hans. Með
þeirra fjárhagsaðstoð tókst
Leontyne að stunda nám við
Juillard tónlistarháskólann í
New York. Síðar létu þau
einskis ófreistað við að telja
kjark í hana sjálfa og foreldra
hennar er á móti blés og
hjálpa henni að komast í gegn
um þá óhjákvæmilegu eld-
raun sérhvers upprennandi
söngvara, að taka nokkrum
sinnum þátt í söngkeppni, þar
sem fram koma tugir og hundr
uð söngvara.
Að vísu slapp Leontyne
furðu vel frá þessu, því að
fljótt eftir að hún hafði lokið
prófi frá Juillard komst hún
að hjá söngflokki, sem sýndi
söngleik eftir Virgil Thomson
og skömmu síðar tók hún þátt
í söngferðalagi með viður-
kenndum óperuflokki, er þá
sýndi Porgy og Bess. En
Leontyne var fyrst kynnt hin-
um mikla skara óperuunn-
enda, er hún söng í Tosca með
NBC hljómsveitinni.
Upp frá því fékk Leontyne
hvert óperuhlutverkið á fætur
öðru. Hún fór í hljómleika-
ferðir og söng inn á hljóm-
plötur en eins og vænta má
hafði' hún auga á Metropolitan
óperunni. Leontyne ferðaðist
til Evrópu og hélt þar hljóm-
leika en stærsta sigur vann
hún í söngkeppni sem fram
fór hjá Sc-alaóperunni í Milano
er gagnrýnendur sögðu að þar
væri komin hin fullkomna
Aida.
* * *
En þótt sá sigur hafi verið
Leontyne mikils virði, segir
hún sjálf, að sér hafi orðið
enn meira um viðtökurnar er
hún fékk skömmu áður á
hljómleikum, er hún hélt í
heimahögunum til ágóða fyrir
gömlu kirkjuna sína í Laurel.
Hinir hreyknu borgarar, hvít-
ir sem svartir þyrptust sam-
an til þess að fagna henni.
— Það er hið bezta, sem
mig hefur hent, segir Leont-
yne. Allt þetta fólk, sem hef-
ur óskað mér alls góðs, beðið
fyrir mér og lagt leið sína til
móður minnar til þess að
spyrja hvernig mér vegni.
Þetta kvöld söng ég ekki eins
og ég hefði bezt getað, til-
finningar mínar urðu söngn-
um yfirsterkari, en ég tel að
þessir hljómleikar h-afi verið
mikill sigur þessarar litlu
borgar í Suðurríkjunum, —
þar þe-kki ég ekki hatur og
hleypidóma. I hálfa aðra
klukkustund vorum við öll
saman sem mannlegar verur
— ekki svartar — ekki hvítar.
A þessum hljómleikum sátu
saman á fremsta bekk fjöl-
skyldur Leontyne Price og
Chisholm hjónanna og af and-
litum allra mátti lesa hina
sömu gleði og hið sama stolt.
Þannig munu þau væntanlega
einnig sitja í hinu mikla óperu
húsi Metropolitan í New York,
þegar Leontyne Price kemur
þar fram í fyrsta sinn..
Ályktun verkalýðsfél.
Jökuls, Ólafsvík
ðLAFSVÍK, 29. jan. — Á fundi í
verkalýðsfélaginu Jökli í Ólafs-
vík sunnudaginn 29. janúar sl.
var endanlega gengið frá sam-
þykktum á sjómannasamningun-
um. Áður á fundi hinn 24. janúar
sL hafði samkomulag það, sem
landssamninganefndir sjómanna
og útvegsmanna höfðu komið sér
saman um, verið lagt fyrir fund
og samþykkt, að undanskilinni
greininni um dragnótakjör.
Samþykkt fundarins 24. jan.
sl. var gerð með þeim fyrirvara,
að verkfalli því hjá sjómönnum,
er stóð yfir, væri frestað til 1.
febrúar nk., meðan reynt yrði að
ná heimasamningum um ýmiss á-
kvæði, er niður höfðu fallið við
gerð landssamningsins en voru í
heimasamningum, svo sem: há-
markslínulengd á tilgreindum
tímabilum hausts og vetrarvertíð
ar, um greinilega afmörkuð helg-
arfrí, ákvæðisvinnutaxta við
beitingu, uppstokkun og setningu
línu, netavinnu o. fl. Báðir þess-
ir samningar voru ' samþykktir
•amhljóða.
Á fundi þessum létu sjómenn
I ljós óánægju með flokkunar-
reglur og verðskráningu þá, er
L.Í.Ú. og fiskkaupasamtökin
höfðu gert samkomulag um, án
aðildar sjómannasamtakanna.
Eftirfarandi ályktun var ein-
róma samþykkt:
„Fundur sjómanna í verkalýðs
félaginu Jökli, haldinn 29. janú-
ar 1961, skorar á Landsamband
íslenzkra útvegsmanna að vinna
Macao og Pekmg, 30. jan.
— (NTB) —
Macao-fréttaritari Lund-
únablaðsins Daily Mail skýr-
ir frá því að flóttatilraun sjö
hundruð landbúnaðarverka-
manna frá Kína hafi mistek-
izt og hafi nokkrir flótta-
manna verið skotnir, aðrir
fangelsaðir.
Fréttaritarinn hefur þessi tið-
indi eftir kínverskum flótta-
mönnum, sem komnir eru til
Macao. Segir hann að flóttinn
hafi verið vel undirbúinn. Fólk
að því að framkvæmd á gæða-
mati aflans verði með þeim
hætti, að sanngjörn verðskráning
eftir gæðamati eigi sér stað, án
tillits til þess á hvaða hátt fisk-
ur er veiddur eða á hvaða tíma.
Einnig að tryggja skipshöfnum
fulla aðild til athugasemda við
framkvæmd á gæðamati aflans“.
★
Tólf bátar eru byrjaðir róðra
héðan og hefur afli verið heldur
tregur. Aflinn í gær komst upp
í 8 lestir á bát. — Fréttaritari.
þetta var frá Tungkun-héraði
fyrir norðan Hong Kong. Hafði
það komizt yfir kínverskar
skútur og smábáta, sem það
faldi við Perlufljót.
Matarskortur hefur verið
mikill í Tungkun, og þegar enn
var hert á matarskömmtun fyr-
ir skömmu, var ákveðið að
flýja. Þegar draga átti upp segl
og hefja flóttann bar þar að
lögreglubáta. — Nokkrir flótta-
menn féllu fyrir skothríð lög-
reglunnar, hinir voru handtekn-
ir. Þeir, sem teknir voru, hlutu
langa fangelsisdóma.
Ratsjá í
í GÆR var lokið niðursetnlngu
ratsjár í „Sólfaxa“ Flugfélags
Íslands. Verkið var að öllu leyti
framkvæmt af starfsmönnum fé-
lagsms og er þetta í fyrsta sinn,
sem slíkt er framkvæmt liér á
Iandi.
Batsjáin, sem er af banda-
rískri gerð, er mjög fullkomin,
enda stærri og þyngri en venju-
legar ratsjár í farþegaflugvél-
um, þar sem hún er ætluð til
leitar, en er einnig mjög góð sem
veðurratsjá.
Leitarskilyrði eru mjög góð
með þessari nýju ratsjá, þar sem
hún gerir flugmönnum mögulegt
að fylgjast með umlhverfinu í
320 km fjarlægð. Þess má geta
að ratsjá þessi var til skamms
tíma algjört leyndarmál banda-
ríska flotans.
„Sólfaxi" fer væntanlega til
Grænlands nk. föstudag, þar
sem hann verður staðsettur í
Narssarssuaq. Samkvæmt samn-
ingi Flugfélags íslands og Kon-
unglegu Grænlandsverzlunarinn
ar, mun hann annast ískönnun-
arflug ásamt fleiri verkefnum
og með tilliti til þess hefir þessi
sterka og fullkomna ratsjá verið
tekin í notkun.
„Sólfaxi" er önnur flugvélin
sem Flugfélag íslands staðsetur
í Grænlandi. Hin fyrri er
„Hekla“, sem leigð var frá Loft-
leiðum. „Hekla“ hefir nú verið
fyrsta mánuðinn í Syðri-Straum
Sólfaxa
,,.. en nú hefur ratsjánni
verið bætt framan á.
firði og kom heim til áhafna«
skipta og skoðunar sl. sunnu-
dagskvöld. Gert er ráð fyrir að
flugvélin fari aftur til Græn-
lands á morgun (miðvikudag).
Árni Guðjónsson
hæstaréttarlögmaður
Garðastræti 17
Flóttinn mis-
tókst