Morgunblaðið - 02.02.1961, Page 24
Verksmiðjuiðnaður
1960 — Sjá bls. 13
or0iMiií)íaí>iíí
26. tbl. — Fimmtudagur 2. febrúar 1961
Marilyn
og Miller — Sjá Ws. 1*.
Saltað í 3-4000
tunnur síldar
1 GÆRDAG var nær öll sú
síld er barst á lajid hér Suð-
vestanlands söltuð. — Hafði
mikið verið saltað hér í
Reykjavík, á Akranesi, í
Hafnarfirði og í verstöðvum
Húsbruni
í Eyjum
Vestmannaeyjum, 1. febrúar
RÉTT fyrir kl. 12 í gærkvöldi
kom upp eldur í íbúðarhúsinu að
Túngötu 21. Þegar að var komið
var talsvert mikill eldur 1 húsinu
og reykur. Slökkviliðið kom á
vettvang og tókst á tiltölulega
skömmum tíma að ráða niður-
lögum eldsins.
Húsið er ein hæð með kjatll-
ara, en allstórt. Ibúðarhæðin er
mikið til eyðilögð af vatni, eldi
og reyk og innanstokksmunir.
Þar bjó Hörður Agústsson kaup-
maður með fjölskyldu sinni.
Eldsupptök eru þau, að verið
var að kveikja upp í arni og
kviknaði í tré, sem hluti af stof-
unni er fóðraður með. Brann það
að miklu leyti. Húsmunir munu
hafa verið vátryggðir, en blaðinu
er ekki kunnugt um fyrir hve
mikið. — Bjöm.
Sölur í
Þýzkalandi
I GÆR seldu Fyikir og Geir í
Bremerhaven. Var Fylkir með
123 'lestir, sem seldúst fyrir 80
þús. mörk, en Geir með 139 lest-
ir, sem seldust fyrir 89.684 mörk.
Næsta togarasala í I>ýzkalandi
er á föstudag. Þá selur Egill
Skallagrímsson.
Hreindýrin koma
til bæja
SKRIÐUKLAUSTRI, 1. febr. —
Tíðarfairið hefur verið hér gott
frá áramótum, lengst af þíður en
allmiklar rigningar, einkum
seinast í janúar. Um 26. gerði
allmikið hvassviðri til dalanna.
Nú er nær alveg snjólaust, en
frost hefur verið síðustu tivo
dagana.
Á efra Jökuldal er þó mjög
haglítið vegna storku. Þar hefur
verið heldur slæmt síðan um
jól og fé að mestu inni. Hreindýr
hafa sést heima við bæi, eins
og jafnan þegar haglaust verður
inni á heiðunum.
á Suöurnesjum. Töldu kunn-
ugir ekki ósennilegt að eftir
daginn hefðu verið milli
3000—4000 uppsaltaðar tunn-
ur. —
TIL, RÚMENfU
Síldin var heilsöltuð fyrir
Rúmeníumarkað, Þangað hafa nú
nýlega verið seldar 6000 tunnur
síldar. Um einn sjötti síldarafl-
ans í gær var stórsíld. Var hún
sykursöltuð fyrir Finnlands-
markað. Er einnig mjög langt
komið með söltun upp í síldar-
sölu þangað. Gg er svo yfirleitt
með þá sölusamninga á magurri
síld, sem nú liggja fyrir að mjög
langt er komið með að uppfylla
þá alla.
FEITA SÍLD VANTAR
Það gengur aftur á móti ekki
eins vel að salta upp f Rúss-
landssamninga. Rússar vilja all-
miklu feitari síld en þá sem bát-
arnir hafa verið að veiða hér
undanfarið.
Síldarfrysting var lítil sem
engin í gær og stafar það af því
að eins og er liggja ekki fyrir
sölusamningar um frysta síld.
Síldarvertíðin við Noreg, sem
er eða ætti að fara að hefjast af
ful.lum krafti, hefur mikil áhrif
á þessar óvæntu vetrarsíldveið-
ar okkar Íslendinga.
Stýrimann tók út af
brezkum togara við
Island
B R E Z K I togarinn Lord
Montgomery frá Fleetwood
missti stýrimann fyrir borð
Ávinningur að /r/ð-
un fiskveiðisvæda
En óliklegt að þau afmarkist af
grunnlinu
RÍKISÚTVARPED hafði það í
fréttum í gærkvöldi eftir
fréttaritara sínum í Lundún-
um, séra Emil Björnssyni
að sjávarútvegsmálaráðuneyt-
ið brezka hefði nú gefið út 50
blaðsíðna skýrslu um fiskveið-
ar og fiskstofna við ísland.
Höfundur hennar er J. A.
Cullard við Fiskimálarann-
sóknarstofnunina í Lowestoft.
Er það haft eftir ráðuneytinu
að þetta sé fyrsta fulikomna
tilraunin til að leggja fram
vísindaiegar staðreyndir þessa
máls. — Hér fara á eftir nokk
ur atriði úr niðurstöðukafla
ritsins.
# Aukning aflamagns
Þorskmagnið við Island hefir
ekki breytzt mikið síðustu 50 ár-
in. Þótt gengið hafi lítillega á
þorskstofninn, eins og veiðum
er nú háttað, myndi aukin út-
Nýr kaupEélagsstjóri
ráðinn hjá K.Á.
SELFOSSI, 3. febr.: — í dag kom
stjórn Kaupfélags Árnesinga
saman á fund, til þess að fjalla
um ráðningu kaupfélagsstjóra
fyrir Kaupfélag Árnesinga.
Áður en fundur þessi var hald
inn, var um það rætt manna á
milli hér á Selfossi að sennilega
myndu um það sækja, þegar að
því kæmi að starfið yrði auglýst,
þeir Grimur E. Thorarensen og
Helgi H. Bergs verkfræðingur.
Á stjórnarfundinum hafði ver-
ið samþykkt að ráða Grím Thor-
arensen sem stjórnanda K. Á.
Grímur er sonur Egils heitins
Thorarensen kaupfélagsstjóra.
Hefur Grímur verið starfsmaður
K. Á. í um 20 ár. Hefur hann
verið innkaupastjóri þess. Grím-
ur hefur oft gengt starfi kaup-
félagsstjóra í forföllum Egils og
í fjarveru hans. Hefur Grímur
einnig haft prókúruumboð fyrir
K.Á. Hann er 41 árs að aldri.
gerð hafa í för með sér aukinn
afla. Unnt væri að auka fisk-
veiðarnar með því að veiða ekki
ungfiskinn, og myndi það auð-
veldast á þann hátt að auka
möskvastærð vörpunnar. Stækk-
un möskva úr 110 mm upp í 130
mm myndi auka meðalveiðimagn
um 4 af hundraði. Virðist þar,
sem átt sé við að meira af góð-
um markaðsfiski verði þá í vörp-
unni. — Þessi aukning að við-
bættri^vernd ungfisksins, segir
Gullard, myndi auka aflamagn-
ið að meðaltali um'50% 'miðað
við núverandj meðalveiði.
• Áhrif landhelgisstækkunar
Ofveiði gæti fremur í kola og
ýsustofninum en þorskstofninum.
Kolinn virðist hafa haft gott af
lokuninni og stækkun landhelg-
innar 1952 og aflamagnið aukizt,
og ávinningur væri að því fyrir
ýsuna að vernda ungfiskinn.
Þorskur, ýsa, ufsi og langa gera
78% alls aflamagns við Island.
Það yrði ávinningur fyrir fisk-
veiðar við Island að friða svæði,
þar sem ungfiskur eða smáfiskur
er yfirgnæfandi, en mikilvægt
er að þau svæði séu rétt afmörk-
uð ef friðun þeirra á að koma
fiskimönnum allra þjóða að
gagni. Enn þá hefir eigi verið
rannsakað til hlítar hvaða svæði
væri gagnlegast að friða, en það
er mjög ólíklegt að þau myndu
endilega fylgja línum, sem hvar
vetna væri dregin í sömu fjar-
lægð frá ströndinni eða falla
saman við grunnlínur. Þorskveiði
væri langþýðingarmesta fiskveið-
in við Island. Brezkir, islenzkir
og þýzkir togarar veiddu nær
500 þús. lestir árlega þar.
í óveðri við íslandsstrendur
fyrir skömmu, og sást hann
ekki aftur. Þetta var 24 ára
gamall maður, Ralph Conn-
olly frá Fleetwood.
Þegar þessi atburður gerðist,
var um 10 vindstiga rok, að því
er fram kom [ sjóprófi í Fleed-
wood í síðustu viku. Stýrimað-
urinn var á leið aftan úr mat-
salnum með te, sem >hann ætlaði
að færa yfirmönnum upp í brú.
Reið þá geysimikill sjór yfir
skipið, og var hallinn á því 25
gráður, að því er skipstjórinn
telur. Stýrimaðurinn sást efcki
framar. Hann mun hafa verið
góður sundmaður, en í þvílíku
veðri og svo mikið klæddur, eins
og hann var, er talið að hafi
ekki haft neina möguleika til að
bjargast.
Máttur brimsins hefur nú rið-
ið belgíska togaranum Rosette j
að fullu og er hann nú horfin ]
í greipar Ægis. — Mynd þessa ’
tók Sigurgeir Jónasson af sið-|
ustu leifum skipsins. Menn-
irnir á myndinni standa vartj
í rokinu, en annar þeirra er'
fulltrúi tryggingafélagsins er |
togarinn var tryggður hjá.
Vöruskiptajöfn-
uður óhagstæður
um 816 millj. kr.
á sl. ári.
I DESEMBERMANUÐI sl. var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 32 millj. kr. og á öllu ár-
inu rúmlega 816 millj. Ut var
flutt fyrir 257 millj. í desember,
2532 millj. á öllu árinu, en inn-
flutningur var í desember 584
millj. og á öllu árinu 3348 millj.,
þar af skip fyrir 599 millj.
A árinu 1959 nam innflutning-
ur rúmum 3379 millj. en út var
flutt fyrir 2468 millj. kr. Þá var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 911 millj. kr.
Síldin
upp í
kom illa
gœrdag
í FYRRINÓTT var ágætis
síldveiði, 30 bátar fengu um
17 þús. tunnur. En í gær
kom síldin illa upp. Veður
var lieldur ekki gott á mið-
unum, og um kl. hálftíu í
gærkvöldi höfðu aðeins tveir
bátar kastað, að því er Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur,
tjáði blaðinu. Hann er um
borð í Ægi út af Krísuvíkur-
bergi og sagði tvísýnt veð-
urútlif.
Bátamir, sem fóru inn með
afla eftir þriðjudagsnóttina,
voru sem óðast að koma út aft-
ur. Þeir voru flestir vestur af
Eldey, ásamt sildarleitarskipinu
Fanneyju. Þar var heldur skárra
veður en út af Krísuvíkur-
bjargi, en síldin stóð djúpt.
Hæstu bátarnir í fyrrinótt
voru Guðmundur Þórðarson
með 1400 tunnur, Akraborg með
1100, Heiðrún með 1000 og
mörg önnur með ágætan afla.
Fréttaritari blaðsins í Kefla-
vík símaði að í gær hefðu 9
síldarbátar komið til Keflavík-
ur með alls 4000 tunnur, 200—•
700 tunnur á bát.
5 klst. að hrista úr nótinni
Fréttaritarinn á Akranesi sím
aði að þangað hefðu borizt 5
þús. tunnur í gær. Sigurður AK
hafði 800 tunnur, Höfrungur II
700, Sigurvon og Sveinn Guð-
mundsson 650 hvor, Reynir 600,
Böðvar 400, Sæfari 300 og Höfr-
ungur I 400, en fékk nót í skrúf
una, og Keilir 400. Sá síðast-
nefndi hafði fengið mjög stórt
kast og verið nærri búinn að
missa nótina.
Sigurfari sprengdi nótina 9
mílur SV af Eldey, 8—900
tunna kast, en veltingur var og
nótin rifnaði af teinunum, að
sögn fréttaritarans á Akranesi.
Heimaskagi sprengdi líka, hafði
stórriðna nót, sem óhemju mik-
ið hafði ánetjazt í. Voru skip-
verjar 5 klst. að hrista síldina
úr nótinnL