Morgunblaðið - 07.02.1961, Blaðsíða 2
2
MORCVTSBLAÐIÐ
ÞriSjudagur 7. febrúar 1961
Minkur á
Austur-
landi
VOPNAFIRÐI, 6. febr.. — í
haustgöngum urðu menn þess
varir að eitthvert kvikindi
hafði hreiðrað um sig í eyði
býlinu að Fossi, en þar hafast
gangnamenn við. Þeim datt
helzt í hug að um rottu væri
að ræða. Nokkru siðar voru
svo gerðar ráðstafanir til þess
að fara með rottueitur á bæ
inn. Þegar komið var með
það, þóttust menn þess full-
vissir að þarna væri minkur,
en það dýr hefur ekki fram
til þessa sézt á Austurlandi,
og raunar ekki komizt nær
því en að Mývatni. Frekari
athuganir leiddu svo í Ijós að
inn við Einarsstaði fannst
minnkaslóð og er hann því
kominn að Hofsá. Björgvin
Stefánsson, sem þekkir nokk
uð til minka, fullyrðir að ekki
sé um að ræða nema eitt ein
asta dýr„
Og spumingunni um það
hvernig minkurinn hafj kom
izt til Austurlands, svara
menn á þá leið, að hann hafi
komizt yfir Jökulsá á Fjöll
um, síðan meðfram Skarðsá og
Langadalsá og fylgt henni
unz hún rennur í Hofsá.
— Sigurjón.
Símon Sigurðsson
form. Félags fram-
reiðslumanna
AÐALFUNDTJR Félags fram-
reiðslumanna var haldinn 25.
jan. s.l. A fundinum var flutt
skýrsla um starfsemi félagsins á
liðnu starfsári, reikningar félags
ins samþykktir og kjörnir trún-
aðarmenn fyrir árið 1961:
Stjóm: Símon Sigurjónsson,
form.; Haraldur Tómasson,, vara
form.; Bjarni Bender ritari; Jón
Maríasson, gjaldkeri; Róbert
Kristjánsson, meðstjórnandi.
Varastjóm: Valur Jónsson,
Guðmundur H. Jónsson, Grétar
Hafsteinsson.
Endurskoðendur: Henry Han-
sen, Guðmundur H. Jónsson. Til
vara: Janus Halldórsson.
Trúnaðarmannaráð: Baldur
Gunnarsson, Sigurður Gíslason,
Theódór Olafsson, Þórarinn
Flygenrig. Varamenn: Janus
Halldórsso*, Henry Hansen, Guð
mundur H. Jónsson, Viðar Otte-
sen.
Fulltrúi i stjórn S.M.F.: Har-
aldur Tómasson.
Slys á Akranesi
AKRANESI, 6. febr.: — öldruð
kona, Björg Gísladóttir, slasað-
ist á götu hér í bænum í dag.
Var hún á gangi eftir Kirkju-
brautinni. Sólin skein beint
framan í hana, svo hún blindað-
ist, en vörubíll kom undan sól
og er hann var í þann veginn að
nema staðar gekk gamla konan
beint á bílinn. Fékk hún mjög
þungt höfuðhögg og slæma byltu,
því hún skall á hnakkann í göt-
una. Var hún flutt í sjúkrahúsið
hér og var líðan hennar, að sögn
læknis í kvöld, eftir atvikum.
— Oddur.
Dagsbá Alþingis
Efri deild: — 1. Ríkisábyrgðir, frv.
— 2. umr. — 2. Sveitarstjórnarlög, frv.
— 2. umr. — 3. Sameining Afengis-
verzlunar og Tóbakseinkasölu, frv. —
3. umr.
Neðri deild: — 1. Afengislög, frv. —
Frh. 1. umr. — 2. Ríkisreikningurinn
1959 frv. — Frh. 2. umr. — 3. Fiskveiða-
sjóður Islands, frv. — 3. umr. — 4.
Fæðingarorlof, frv. — 2. umr. — 5. Á-
búðarlög, frv. — 2. umr. — 6. Lækkun á
byggingarkostnaði, frv. — 2. umr. —
7. Verðflokkun á nýjum fiski, frv. —
1. umr.
1 wjjám
^ '• ■■■
Enn læknaskípti
á Vopnafirði
VOPNAFIRÐI, 6. febr.: — Enn
standa fyrir dyrum læknaskipti
hér á Vopnafirði. Guðjón Guð-
mundsson læknir, sem hér hefur
starfað í níu mánuði, er nú á
förum héðan, til framhaldsnáms
í Svíþjóð. Hér hefur hinn ungi
læknir aflað sér slíkra vinsælda
og trausts, að hann fékk almenna
áskorun um það frá Vopnfirðing-
um, að gerast héraðslæknir
sveitarinnar. Guðjón taldi sig
ekki geta orðið við þessari beiðni
okkar, þar eð fyrir löngu hafi
verið búið að gera áætlanir um
frambaldsnámið. Héðan fylgja
Guðjóni og konu hans hinar
beztu óskir um gæfu og gengi.
Við starfi héraðslæknis tekur
Gissur Pétursson, sem kemur
hingað um líkt leyti og Guð-
jón hættir störfum. Það hefur
verið boðað að Gissur muni að-
eins starfa hér skamma stund.
— Sigurjón.
ÞESSUM BÍL var á laugardag
inn ekið eftir Snorrabraut-
inni. Hann var nýlega kominn
af verkstæði, þar sem hann
hafði verið gerður upp að
verulegu leiti. En svo skeði
óhappið. Ökumaðurinn missti
allt í einu stjóm á bilnum og
hann rakst á ljósastaur, og
lagði hann nærri því að velli.
Bíllinn stórskemmdist, en
ökumaðurinn slasaðist ekki.
(Ljósm.: Sv. Þormóðsson).
Eysfeinn Jónsson
slasast \\\a
EYSTEINN Jónsson, alþingis-
maður og fyrrum ráðherra,
slasaðist á laugardaginn á skíð-
um skammt frá Skíðaskálanum
í Hveradölum.
Eysteinn, sem er 54 ára og
mikill unnandi skíðaíþróttarinn-
ar og iðkar hana mjög,
hafði farið upp í Hveradali á
laugardaginn ásamt Tómasi
Ámasyni, framkvæmdastjóra
Tímans.
Eysteinn stakkst fram yfir
sig og virtist nærstöddum bylt-
an ekki slæm. En hann gat
ekki hreyft sig og í ljós kom
að hann hafði fótbrotnað á öðr-
um fæti, hlotið slæmt brot. —
Einnig hafði hann handlegs-
brotnað. Tómas bar Eystein
heim í Skíðaskálann og þangað
var hann sóttur af sjúkrabíl.
Læknar skýrðu honum frá
því, að hann ætti fyrir höndum
allt að þriggja mónaða spítala-
legu. Stafar það m. a. af hand-
leggsbrotinu, því hann getur
Þorrablót vestra
Kindum náð úr
Akrafjalli
AKRANESI, 6. febr.: — A föstu-
daginn tókst nokkrum mönnum
að ná þrem kindum, sem verið
hafa á sillu ndir Hanahnjúk í
Akrafjalli síðan fyrirhluta vetr-
ar. Er illmögulegt að komast
þangað upp. Fjórar voru þær
upphaflega en ein kom niður
milli hátíða. Voru tvær kindanna
sem náðust á föstudaginn orðnar
æði horaðar, en ein var sæmileg
til fara, eins og bændur kalla
það. — Oddur.
MIÐHÚSUM, 22. jan. — Laug-
ardaginn 21. janúar í blíðskapar
veðri héldu kvenfélagskonur í
Geiradal þorrablót í hinu vist-
lega félagsheimili sínu, Voga-
landi.
Þær buðu Reykhólasveitung-
um þátttöku og var margt um
manninn í Vogalandi þetta
kvöld, sem allir áttu það sam-
eiginlegt að skemmta sér.
Skemmtunin hófst með borð-
haldi og var þjóðlegur matur á
borðum, svo sem hangikjöt, há-
karl, harðfiskur og margt fleira
góðgæti. Síðan hófust skemmti-
atriðin og var þar meðal ann-
ars upplestur; Grímur Arnórs-
son, Tindum, og Stefán Jóhann-
esson, Kleifum, lásu; útvarps-
gamanþáttur (hermt eftir þjóð-
kunnum mönnum), sungnar
gamanvísur, sýndir borðsiðir.
Milli þátta var almennur söng-
ur og voru sungin ættjarðarlög.
Undirleik annaðist frú Ólína
Jónsdóttir, Miðhúsum.
Að lokum var stiginn dans og
lék Erlingur í Melbæ fyrir
dansinum ásamt félögum sínum,
Halldóri Dalkvist og Jakobi
Ormssyni.
Dansinn hófst með vísna-
marsi og stjómuðu marsinum
/* NA /5 fimi/or / SV50hnútar H SnjóÁoma 9 06i J7 Skúrir IC Þrumur 'WS, Kutíaaht ZS Hitaski! H H»i L
A SUNNUDAG var djúp Iægð
(970 mb.) suður af Vestmanna
eyjum. Eins og þetta kort ber
með sér hefur lægðin þokazt
í áttina til Skotlands, en er
ennþá um 975 mb. Er allsnarp
uf V-vindur um Bretlandseyj
ar og 4—8 stiga hiti. Hér á
landi hefur lægðin haft furðu-
lítil áhrif og má nú heita hæg
NA-átt um allt land með bjart
viðri á S og V-landi en þykk-
viðri norðaustan lands. Víðast
er frostlítið með ströndum
fram, en i innsveitum er um
eða yfir 10 st. frost. — Ný
lægð er að koma í ljósmál
suðaustan af Nýfundnalandi
og mun hreyfast ANA-eftir.
Veðurhorfur kl. 10 í gærkvöldi
Suðvesturland og miðin:
Hægviðri og bjartviðri, en
hvessir sennilega af austan
annað kvöld.
Faxaflói til Suðausturlands
og miðin: Hægviðri og heið-
ríkt eða léttskýjað.
frú Steinunn Hjálmarsdóttir,
Reykhólum, og Baldvin Sigur-
vinsson, Gilsfjarðarbrekku, af
mikilli röggsemi og fjöri.
Þorrablótinu stjórnaði formað
ur kvenfélagsins, frú Friðrika
Bjamadóttir, Króksfjarðamesi.
Þorrablótið fór prýðilega fram
og skemmtu menn sér yfirleitt
ágætlega. — Sv. G.
Ný þingskjöl
í fyrradag var lögð fram á
Aliþingi breytingartiilaga frá
Gísla Jónesyni við fr.unwarp
Péturs Sigurðssonar um breyt-
ingu á áfengislöigiunium. Er breyt
ingartillaga Gísla svoihljóðandi:
„Við 1. gr. Greinin orðist svo:
2. mgr. 31. gr. laganna orðist
svo:
Áfengisivamaráð lætur gera
krvikmyndir um öll þau atriði,
sem talin eru upp í 1. mgr. þess
arar greinar. Skal fræðslumála
stjórninni skylt að sjá uim, að
skólamir eigi jafnan kost á að
sýna kvikmyndir þessar í heild
eða kafla úr þeim, eftir því sem
við á á hverju skólastigi, o>g að
þeir eigi enn fremur aðgang að
hentugum kennslubókum og öðr
um kennsdukvikmyndum tid
fræðslu um áhrif áfengisnautn-
ar, enda sé haft fullt eftirlit með
því, að haldið sé uppi slíkri
fræðslu í öllum skólum lands-
ins. Kostnaður við kvikmynda-
gerðina greiðist úr gæzluvistar-
sjóði“.
Þá kom frá landibúnaðarnefnd
frumvarp til laga um varnir gegn
útbreiðslu kartöfluhnúðorma og
æxlaveiki i kálijurtum og út-
rýmingu hennar.
Allmörgum nýjum frumvörp
um var útbýtt á Alþingi í gær.
Stjórnin flytur frv. til erfðalaga,
sem er mikill lagabálfcur í níu
köflum og 62 greinum. Önnur
stjórnartfrumvörp: beryting á
lögum um réttindi og skyldiur
hjóna, breyting á lögum um
skipti á dánarbúum og félags-
búium o.fl., breyting á lögum um
ættaróðal og erfðaábúð.
Frá menntamáilanefnd var
lagt fram frv. um bókasafnasjóð.
Er lagt til í frv. að hann verði
styrktur með skatti atf tímaritum
og blöðum öðrum en dagbíöðum.
Frá sömu nefnd var lagt fram
frv. um kirkjuorganleikara og
söngkennslu í barna- og imglinga
skólum utan kaupstaða.
Frá fjárhagsnefnd var lagt
frv. um kirkjubyggingarsjóð og
lagt til að greidd verði til hans
ein miEjón á árin næstu 20 árin.
Þá var lagt fram frv. til laga um
verðflokkun á nýjum fiski, flm.
Lúðvík Jósefsson og Karl Guð-
jónsson.
ekki stuðzt við hækjur fyrr ea
handleggur hans er að fuilu gró
inn. Líðan Eysteins var eftir
atvikum í gær.
Norræni sumar-
skólinn
N O R R Æ N I Sumarháskólinn
verður haldinn í Sigtuna í Sví-
þjóð dagana 18.—30. júlí n.k. og
er það í 11. sinn, sem Sumar-
háskólinn starfar. Oftast hafa
sótt hann um 250 norrænir
stúdentar, kandidatar og há-
skólakennarar, en tilgangur
Sumarháskólans er að ræða efni,
sem liggja á mörkum fræði-
greina. Eru haldnir umræðu- og,
undirbúningsfundir að vetrinum
í öllum háskólabæjum Norður-
landa, en í Sumarháskólanum
skiptast menn svo í hópa eftir
áhugamálum og ræða þau. Gefst
mönnum þar gott tækifæri til að
kynnast persónulega þeim, sem
stunda hliðstæð störf á Norður-
landi eða glíma við svipuð
vandamál og viðfangsefni.
Nokkrir ísíendingar hafa á-
vallt sótt Sumarháskólann, og
hafa verið haldnir hér undir-
búningsfundir síðari hluta vetr-
ar. Svo verður einnig nú. Þeir
sem kynnu að hafa áhuga á þátt-
töku í Norræna Sumarháskólan-
um, en hún er heimil öllum, sem
lokið hafa stúdentsprófi, skulu
snúa sér til þeirra Ólafs Björns-
sonar, prófessors, eða Sveins
Ágeirssonar, hagfræðings, fyrir
10. febrúar, en þeir gefa allar
upplýsingar.
(Frá íslandsdeild
Norræna Sumarháskólans)
Stálu 16 hundruð
wiskýflöskum
Toulon, 6. febr. (Reuter).
I DAG átti lögreglan hér í
miklum eltingaleik við bófa
lokk, sem hafði stolið 16
hundruð flöskum af wiskýi
úr vöruhúsi nokkru í nótt.
— Aðspurð sagði lögreglan,
að það hlyti að hafa tekið
þjófana mestalla nóttina að
koma öllum þessum flösk-
um fyrir í bílnum. Lögregl-
an hatfði upp á bílnum í
dag, en allur drykkurinn var
þá á brott.
Útsvörin
á Akranesi
AKRANESI, 6. febrúar. — Fjár-
hagsáætlun fyrir Akranesbæ, fyr-
ir árið 1961, var lögð frám til
fyrri umræðu á fundi bæjarstjórn
ar sem haldinn var í dag.
Helztu liðir tekjumegin eru;
Fasteignaskattur ..... kr. 508.000,00
Húsaleigur ............. — 160.000.00
Söluskattur frá jöfn-
imarsjóði ........ — 1.500,000,00
Niðurjöfnuð útsvör ..... — 11.000.000,00
ASrar tekjur ........... — 80.000,00
Kr. 13.248.000,00
Gjöld bæjarsjóðs eru áætluö
sem hér segir:
Stjórn kaupstaðarins .... Kr. 613.400,00
Framfærslumál .......... — 365.000,00
Lýðhjálp og lýðtrygging — 2.305.400,00
Menntamál ........_..----- 1.325.175,00
Heilbrigðismál --------- — 303.000,00
Lögreglumál -------------— 459.200,00
Skipulagsmál ........... — 155.000,00
Landbúnaðarmál ......... — 125.000,00
Brunamál-----------------— 110.500,00
Þrifnaður---------___. — 335.000,00
Vextir og skattar------- — 437.500,00
Ymsir styrkir .......... — 146.500,00
Óviss Útgjöld -------- — 150.000,00
Verklegar framkvæmd-
ir og eignaaukning .... — 6.417.325.00
Kr. 13.248.000,00