Morgunblaðið - 07.02.1961, Side 20
Erlendir viðburðir
sjá bls. 8.
30. tbl. — Þriðjudagur 7. febrúar 1961
JARÐGUFA
Sjá bls. 11.
Hörmulegt slys
á laugardag
SVTPLEGT SLYS varð á laugar
dagskvöldið hér í bænum. Ung
Ur maður, Bjargmundur Sigurðs-
son, til heimilis að Þorfinnsgötu
12 hér í bænum, varð undir eig
in bíl og beið bana af.
Bjargmundur hafði um kl. 5
síðdegis farið með bíl sinn kipp
korn inn á opið svæði skammt
frá Grænuborg. Hugðist hann
framkvæma þar viðgerð á smá
vægilegri bilun, sem ekki varð
komizt að til að lagfæra nema ,þá
að skríða inn imdir bílinn. Hann
ók framlhjólum bílsins upp á dá
Verkfallinu
lokið a.m.k.
í bili
SJOMANNAFELAGIÐ hér í
Reykjavík ákvað um helgina, að
upphefja verkfall það sem vgrið
hefur á bátaflotanum undanfarn
mr vikur.
Ekki er þó vitað nú hvort vetr-
arvertíð hest af fullum krafti, því
boðað hefur verið verkfall yfir-
manna á bátaflotanum frá og með
8. þ.m. (á moxgun). 1 dag eiga
samninganefndir útvegsmanna og
sjómanna að mæta á fundi hjá
sáttasemjara.
Ekki er vitað hvaða áhrif það
hefur á verkfall í öðrum ver-
stöðvum, að sjómenn hér í
Reykjavík hafa ákveðið að hefja
róðra. Vestur á Snæfellsnesi
höfðu sjómenn í Olafsvík tekið
þá ákvörðun um daginn, að haga
sínum samningum samkvæmt því
samkomulagi er sjómenn í Stykk
hólmi semdu um við útvegsmenn
þar. Sjómenn í Stykkishólmi
höfðu aftur á móti ákveðið að
haga sínum aðgerðum í samræmi
við það sem ofaná yrði hér í
Reykjavík.
Utilegu'bátarnir héðan úr
Reykjavík, sem verkfallið stöðv-
aði, eru famir á veiðar, en þessir
bátar eru Helga, Hrafnkell og
Gunnólfur.
lítið barð, en við það hækkaði
bíllinn svo að hann gat auðveld
lega skriðið undir hann. Áður
hafði hann sett steina við aftur
hjólin.
Bjargmundur og kona hans
ætluðu þetta kvöld í bílnum í
brúðkaupsveizlu suður í Kefla-
vík. Er það dróst að Bjargmund
ur kæmi heim aftur fró viðgerð
inni á bílnum hafði piltur verið
sendur til að gá að hvernig hon
uná sóttist verkið. Er hann kom
að hafði bíllinn runnið niður af
barðinu, og fyrir það hve lágur
hann er hafði bíllinn lent ofaná
Bjargmundi með þeim afleiðing
um að hann lézt þar undir bíln
um.
Við athugun á slysstað kom í
ljós að vegna 'hálku, ‘höfðu stein
arnir við afturhjólin látið undan
þunga bílsins sem á þeim hvíldi.
Bjargm<undur Sigurðsson var
fæddur 6. febr. 1925. Hann lætur
eftir sig konu
--------- • • • '-••• ----------------------------------------------------------------------------------------------------- ' "•• " •*»
Verzlunarbanki Islands h.f. var stofnaður s.l. laugardag. Stofnfundurinn var mjög fjölmenn-
ur eins og sést á meðfylgjandi mynd. Sjá frásögn á bls. 3. (Ljósm.: Mlbl. Ól. K. M.)
Engin íslenzk tillaga
um lausn landhelgísdeilunnar
sagði utanríkisráðherra á þiaxgi í gær
Á Ð U R en gengið var til
dagskrár í neðri deild Al-
þingis í gær kvaddi 4. þm.
Austurlands, Lúðvík Jósefs-
son, sér hljóðs og beindi
þeirri fyrirspurn til ríkis-
stjórnarinnar, hvort þær
brezku blaðafregnir, að ís-
lendingar hafi lagt fram til-
lögu til lausnar landhelgis-
deilunni, væru réttar. Þá
spurði hann einnig hvað liði
viðræðum Islendinga og
Breta og hvort senn væri
Efna til happdrættis
til vegalagningar
ÞAÐ er engin nýlunda að fé-
lög og félagasamtök efni til
happdrættis til eflingar starf
semi sinni. En það er ekki á
hverjum degi, að félög
hleypa af stokkunum happ-
drætti til að byggja fjallvegi,
því flestir vilja láta fé til
slíkra framkvæmda koma úr
ríkissjóði.
Það er ungmennafélagið
Djörfung á Austfjörðum, sem
sýnir nú þetta framtak og ætl-
unin er að leggja 18 km langan
veg yfir svonefnda Öxl. milli
Skriðdals og Berufjarðar, en
við þetta styttist akvegurinn
milli Egilsstaða og Hafnar í
Hornafirði um hvorki meira né
minna en 62 km.
Hjálmar Guðmundsson, frá
Berufirði, er í bænum til þess
að festa kaup á vinningnum,
Volkswagen. Hann tjáði blaðinu,
að Djörfung hefði í samvinnu
við þrjú hreppsfélög eystra lát-
ið ryðja veg yfir Öxl. Þetta verk
hefði verið unnið tvö sl. sumur
og nú þyrfti fé til að malarbera
veginn.
Það eru Búlandshreppur, Geit
hellahreppur og Hafnarhreppur,
sem sameinazt hafa Djörfung
um þetta verkefni, sem Hjálm-
ar segir, að sé mikið framfara-
mál byggðarinnar þar eystra.
Mikið starf hafi þegar verið
trnnið í sjálfboðavinnu og vega-
málastjórnin hafi veitt 15 þús.
krónur úr Fjallvegasjóði til
verksins, en það hefði nægt til
að greiða leigu á loftbor og
þjöppu, sem fengin hafi verið
hjá vegamálastjórninni.
Hinn 20. apríl verður dregið
um bílinn og vænta þeir þá að
geta farið að aka möl í veginn
þar eystVa. — Sigmar Björnsson.
væntanleg skýrsla frá ríkis-
stjórninni um þessar við-
ræður.
Guðmundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, varð fyrir
svörum af hálfu ríkisstjórnarinn
ar. Skýrði hann svo frá að í
sambandi við fund Atlantshafs-
bandalagsins í París í des. sl.,
hefði hann átt viðræður við utan
ríkisráðherra Breta, sem eink-
um hefðu beinzt að því að
glöggva sig á, hver tök væru á
að leysa landhelgisdeiluna. í
þeim viðræðum hefði ekki komið
fram neitt tilboð né tillaga af Xs
lands hálfu. Við heimkomuna
kvaðst ráðherra hafa gefið ríkis-
Kópavogur
HANDAVINNUKVÖLD Sjálf-
stæðiskvennafélagsins Eddu i
Kópavogi verður í kvöld, þriðju
dagskvöld, að MelgerðS 1, Kópa-
vogi. Kennari er Guðrún Júlíus-
dóttir.
stjórninni skýrslu um málið og
hefði það verið rætt innan rík-
isstjórnarinnar, bæði fyrir jólin
og einnig á þessu ári.
Ráðherrann sagði að ekki hefði
verið gerð nein tillaga af íslands
hálfu til lausnar málinu, né held
ur hefðu þeir gert Bretum nokk
urt tilboð. Þá vísaði hann til yfir
dýsingar forsætisráðherra frá í
haust, um að samráð yrði haft
við Alþingi áður en ákvarðanir
yrðu teknar um landhelgismálið.
— Hins vegar taldi ráðherrann,
að eins og málið nú stæði, væri
ekki heppilegt að gefa um það
langa skýrslu á Alþingi.
Fengu hver
sinn litinn
NESKAUPSTAD, 6. febr. —
ÞaS kom fyrir hér á Neskaup-
staS, sem einstætt er talið.
Fjórar konur sátu aS bridge og
þá gerðist þaS, aS þær fengu
sína sortina hver á höndina.
Þetta gerðist á sunudags-
kvöldiS á heimili frú Línu
Jónsdóttur, sem á Bakarí Nes-
kaupstaSar. Hún fékk sjálf tíg-
ulinn. Ingibjörg SigurSardótt-
ir kona Eyþórs ÞórSarsonar,
kennara gaf. Farið var eftir
hinum venjmlegu reglum um
stokkun, dregiS úr stokk og
eitt og eitt spil gefiS. Ingibjörg
fékk allt hjartaS, frú Ólöf
Gísladóttir kona Jóhanns
Gunnarssonar rafveitustjóra
fékk spaSann og frú SigríSur
Árnadóttir kona Óskars Uárus-
sonar útgerSarmanns fékk
laufiS. — S.U.
MaBur deyr í eldi
KUNNUR Vesturbæingur, Jó-
hannes Loftsson skrifstofumaður,
lézt í gærmorgun hér í Reykja-
vík og bar dauða hans að með
sviplegum hætti. Jóhannes sem
bjö í rishæðarherbergi að Freyju
Sunþykkir tiliærslu en
ekki grunkuupshækkun
Frá samninganefnd vinnuveitenda
í Vestmannaeyjum
AÐ GEFNU tilefni vegna frásagn
ar Hermanns Jónssonar formanns
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja í
viðtali við Alþýðublaðið sl. laug-
ardag, þar sem því er haldið
fram, að atvinnurekendur hafi
ekkert boðið fram til lausnar
þeirri vinnudeilu, sem þar stend-
ur yfir, vill samninganefnd at-
vinnurekenda taka fram eftirfar-
andi.
Kröfur þær sem Verkalýðsfélag
Vestmannaeyja setti fram voru í
tvennu lagi. f fyrsta lagi grunn-
kaupshækkun. Og í öðru lagi um
tilfærslu til hækkunar milli
flokka innan ramma samninesins
á ýmsri tegund vinnu.
Samninganefnd atvinnurek-
enda taldi sig reiðubúna til samn
inga um síðara atriðið gegn þvi
að verkfallinu yrði aflýst og við-
ræðum um grunnkaupshækkun
frestað, en sama grunnkaup iátið
gilda í Vestmannaeyjum og hjá
Dagsbrún í Reykjavík, og ef þar
yrði grunnkaupshækkun, yrði
hún látin gilda einn mánuð aftur
fyrir sig í Vestmannaeyjum.
Telur samninganefnd atvinnu-
rekenda því umrædda staðhæf-
ingu formanns V.V. í viðtalinu
við Alþýðublaðið um að verka-
mönnum hafi ekkert verið boðið
upp á nema gömlu samningana
alranga og setta fram í blekking-
arskyni.
götu 36. 1 gærmorgun um klukk-
an 8,30 varð kona sem býr í
næsta herbergi við hann, þess
vör að út um gluggann í herbergi
hans lagði reyk. Hún brá þegar
við. Er hún opnaði hurðina að
herbergi hans, var eldur í legu-
bekk hans, logaði hann, svo og
rúmfötin. Jóhannes var oltinn
framúr legubekknum með log-
andi sængina. Konan kallaði nær
stadda til hjálpar og var komið
með vatn og skvett á eldinn. Var
Jóhannes þá látinn. Slökkvilið
og sjúkralið var kallað til hjálp.
ar. Brunaskemmdir urðu ekki
teljandi.
Jóhannes Loftsson lætur eftir
sig tvo syni sem eru flugmenn
í Bretlandi. Jóhannes var borinn
og barnfæddur Reykvíkingur.
Hann starfaði nú í skrifstofu
Heildv. Björgvins Schram. Hann
var 57 ára að aldri.
Bíó á Vopnafirði
VOPNAFIRÐI, 6. febr.: Þá hef
ur kauptúnið eignazt sitt eigið
bíó. Er nú lokið uppsetningu sýn
ingarvéla í félagsheimilinu og
hófust kvikmyndasýningar unt
helgina. Vélarnar, sem eru ný-
uppgerðar sýningavélar af eldri
gerð, eru þó endurbættar þannig;
að hægt er að sýna breiðtjalds-
myndir CinemaScope.