Morgunblaðið - 10.03.1961, Síða 6

Morgunblaðið - 10.03.1961, Síða 6
6 MORGUNBLAÐ'Ð Föstudagur 10. marz 1961' Vísindaleg verndun fiskimiða land- grunnsins er fleiri þjóðum nauðsynleg en Islendingum BJÖHN Pálsson, alþingismað- ur, skrifar grein um landhelgis- málið og fiskveiðideluna við Breta og lausn hennar, í Tím- ann þann 8. marz sl. Grein þessi er sú eina, sem birzt hefur í nefndu blaði, sem ber vott um einhverja þekk- ingu og sanngirni í þessu máli. — Öll önnur meðferð framsókn arvaldsins í Reykjavík á mál- inu, vekur undrun og reiði manna um allt land. — Óbreytt ir og óbrjálaðir framsóknar- menn, bæði til sjávar og sveita, afneita nú hver eftir annan flokksforystunni í Reykja vík, og margir hafa yfirgefið flokkinn. — Kommúnistadekur, verkfallsáróður og kenningar um að fara ekki að málum frið samlega og lagalega, á ekki við eðli íslenzkra bænda. Grein Björns Pálssonar er að mörgu sk/nsamleg, þar til er hann kemur að landgrunnsút- færslunni. — Hann skrifar: „Enginn veit hvað gerist í framtíðinni. Breytingar eru ör- ar. Veiðitækni tekur árlegum framförum og mikil hætta staf- ar af ofveiði. — Vafalaust er því þörf á ýmsum gagnráðstöf- unum til þess að hindra aS fiskistofninn gangi ekki til þurðar o. s. frv.“ Mikið rétt. Heldur Björn þá að þessar ráðstafanir yrðu aðeins til hags bóta fyrir oss íslendinga? — Vísindaleg friðun hins íslenzka landgrunns, er nauðsynleg fyr- ir allar fiskveiðiþjóðir, sem sækja aflaföng á hin norðlægu fiskimið, það hefur öll reynsla sýnt og sannað. — Og það eru einmitt þessi raunvísindi og sannindi, sem vér íslendingar ætlum að nota í hinni réttlátu baráttu, í náinni framtíð. — Það er óhætt að fullyrða, að það vopn verður þyngra á met- unum og fljótvirkara, en ein- Telja samninginn hagstæðan ÞÚFUM, 7. marz. — Tíðarfarið undanfarið hefur verið mjög um hleypingasamt. Snjókoma annan daginn en rigning hinn. Þó eru samgöngur lítt truflaðar, vegir færir og Djúpbáturinn heldur uppi reglubundnum áætlunar- ferðum. Almennt eru menn ánægðir með úrslitin í landhelgisdeil- unni og telja þennan samning hagstæðan íslendingum. — P. P. hliða útfærsla frá þeim 12 mílna útlínumörkum, sem vér höfum þegar öðlazt vald yfir, og þá sérstaklega þegar slík útfærsla á sér ekki stoð í al- þjóðalðgum, né fordæmi ann- arra nágrannaþjóða, jafnvel ekki Rússa, sem fyrstir þjóða ákváðu 12 mílna landhelgi og sömdu við Breta um veiði rétt upp að 4 mílum. Akranesi, 8. marz 1961. Júlíus Þórðarson. Kongóstjórn seíur SÞ skilyrði fyrir fpvi oð lið freirra fái aftur að seíjast að i Matadi og Banana LEOPOLDVILLE, 9. marz. (Reuter). — Ríkisstjórnin í Leopoldville krafðist þess í gær, að fulltrúar hennar fengju að rannsaka allar flug vélar á vegum SÞ, sem koma til Kongó eða fljúga innan- Iands — og setti þetta sem skilyrði fyrir því, að lið sam- takanna fengi aftur að setj- ast að í hafnarbæjunum Mat adi og Banana, sem Kongó- hermenn tóku með valdi um helgina. Þessar hafnir eru mjög mikilvægar fyrir SÞ vegna aðflutninga þeirra til Kongó. — Það var settur for sætisráðherra í Leopoldville, Albert Delvaux, sem lýsti þessu yfir á blaðamanna- fundi. — Talsmaður SÞ sagði síðar, að slík af- skipti af starfsemi samtak- anna, sem krafa Delvaux fæli í sér, kæmu alls ekki til mála. Delvaux fullyrti, að það hefðu verið súdanskir hermenn í liði SÞ, sem áttu upptökin að átök- unum í fyrnefndum hafnarbæj- um, en talsmaður samtakanna neitaðí því — kvað rannsókn málsins standa yfir, en fullyrða rnætti nú þegar, að það hefðu verið Kongó-hermennirnir, sem hafið hefðu skothríðina. — Þá endurtók Delvaux kröfu stjórnar sinnar um að Dayal, aðalfulltrúi SÞ í Kongó, verði kallaður brott, en slíka kröfu hafa Kasavubu forseti og stjórn hans sett fram margsinnis á undanförnum vik- um. Dayal mun leggja af stað til New York á morgun til við- ræðna við Hammarskjöld um ástandið í Kongó. Hann kemur við í London á leiðinni. Meðan Hammarskjöld óskar Dayal sagði á fundi með EINS og frá hefur verið skýrt í blöðum efnir Kaflakórinn Fóstbræður til kabarnttsýn- inga í Austurbæjarbíói næstu kvöld. Verður fyrsta sýningin í kvöld. Hér á myndinni sjást stjórn endur kabarettsins og fyrir- svarsmenn á æfingu. — Frá vinstri: Carl Billich við hljóð færið, Jón Sigurbjörnsson stjórnandi kabarettsins, Þor- steinn Helgason form. kórsins og Kristinn Hallsson einsöngv ari. (Ljósm. Sv. Þormóðsson). fréttamönnum i dag, að nauð. syn bæri til að herlið Samein- uðu þjóðanna fengi aftur að koma til Matadi og Banana, Sagðist hann vinna að því eftir mætti, að hermennirnir fói að koma þangað með friðsamleg- um hætti. Eitt flutningaskip bíð ur nú þegar í mynni Kongó- fljóts eftir að komast til afferm ingar og á næstu þrem vikum Framih. á bls. 23 ar af barninu, þegar hún vissi hvað þar væri gert og hvernig það væri uppalið í fóstrinu. Hún sagðist ekki • Heimilisfang óþekkt —■———WBb m— f fyrra sögðum við hér í dálk unum frá júgóslava, sem hafði skrifað sænska sendiráðinu hér og skýrt frá vandræðuin sínum. Hann kvaðst lengi hafa reynt að læra íslenzku af bókum, en nú hefði allur sinn íslenzki bókakostur brunnið í annað sinn, og þar með loku fyrir það skotið að hann gæti haldið áfram þessu námi sínu. íslenzkur rithöfundur einn tók strax til bækur, sem send ar voru til Júgóslavíu fyrir milligöngu Velvakanda og sendiráðsins. En nú er pakk inn kominn aftur. Júgóslav- inn finnst ekki á því heim- ilisfangi, sem hann' gaf upp. Hann hefur heldur ekki lát- ið frekar frá sér heyra. Og hefur bókunum því verið skilað til hins rausnarlega gefand^ * Rigndi á ungbarnið Fyrir nokkrum dögum gerðist það hér í bænum, að útlend kona setti 3 mán. gamait barn í vagni út fyrir hús sitt við Kvisthaga. Veðr. ið var ekki sem bezt, svo hún greip úlpu manns síns og breiddi hana yfir vagninn, til að skýla barninu. En ekki leið á löngu áður en einhver vegfarandi hafði tekið úlp- una með sér, og hirti ekki um þó rigndi og blési á þetta varn arlausa ungbarn. Sennilega hefur þetta þó verið gert meira eða minna af óvitaskap, því einhver hafði séð krakka draga úlpu eftir götunni. * Mæðrafundir æskilegir Húsmóðir nokkur hrigndi til Velvakanda í fyrradag. Sagðist hún eiga barn í leik- skólanum Brákarborg, og hefðu mæður barnanna þar verið boðaðar á fund daginn áður. Þar komu 40—50 kon. ur og hittu fóstrurnar í skól- anum, sem ræddu við þær um krakkana hvað þeir væru látnir gera á daginn og sýndu þeim leikföngin. Var konan ákaflega hrifin af þessu, sagð ist engar áhyggjur hafa fram- FERDIISIAIMI* vita hvort það væri gert á öðrum barnaheimilum að kalla saman mæðurnar, en mælir mjög með því eftir þessa reynzlu sína. ^JIættulegartrögjmr Nokkrum sinnum hefur fólk vakið máls á því yið mig, að nokkur slysahætta sé í stig- anum í hinu nýja Laugarás- biói. Þannig háttar til að tröppurnar ná ekki allar alveg út að sætaröðinni og myndast þar bil, sem fólk sér ekki í myrkri og tekur lítið eftir, jafnvel þó bjart sé í bíóinu. í sumar sagði mér kona, að hún hefði verið heppin að meiða sig ekki er hún steig þarna út af tröppu og datt. Ekki hefur samt orðið af þvl að ég minntist á þetta. En núna fyrir nokkrum dögum meiddi kona ein sig talsvert á fæti með þeim hætti að hún lenti þannig nið- ur á milli trappa, bæði sneri sig um öklann og marðist illa. Ættu forráðamenn bíósins að gera hið skjótasta ráðstafan- ir til að þessu fyrirkomulagi á tröppunum sé breytt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.