Morgunblaðið - 10.03.1961, Page 13
Föstudagur 10. marz 1961
MORCUniBLAÐIÐ
13
CTHH&ndaA Ovfone/wtíA
&i€endaA (wkme/tritiA
j?
i írinn
ti
sem allir dá
ÞEGAR „óði írinn“, leikskáldið
víðfræga Brendan Behan, átti að
vera viðstaddur sýningu á hinu
kunna leikriti sínu, „The Host-
age“ (Gislinn), kom hann
dauðadrukkinn fram á sviðið.
Hann átti að halda ræðu, en úr
því varð hálfgerð nektarsýning.
Fyrst fleygði hann af sér jakk
anum, síðan hneppti hann frá
sér skyrtunni. Svo skruppu
axlaböndin niður af holdugum
öxlunum, buxurnar duttu niðr-
um hann.... og hann hóf að
dansa fjörugan írskan þjóðdans
á sviðinu, meðan áhorfendur
ýmist öskruðu af hlátri eða
flúðu leikhúsið skelfingu lostn-
ir.
Behan hefur vaxtarlag róm-
versks keisara. Hann getur
drukkið meira en sjálfur páf-
inn, en hann er líka fullur af
hæfileikum. Eiturtungur og
hundingjar gefa í skyn, að Be-
han sé ekki eins óforsjáll og
hann vill vera láta, heldur sé
hann að draga fólk að miðasöl-
unni með furðulegum uppátækj-
um sínum, hann sé m.ö.o. að
látast. Þessir menn þekkja hann
ekki. Auðvitað er hann hálfgal-
inn, en hann er líka hálfur ann-
ar snillingur. Ókæfandi þróttur
hans og samúð með öllu
mennsku er svo yfirþyrmand:
að hann er oft á mörku i vit-
firringar, og þá finnur hann
ekki aðra leið út úr ógöngunum
en láta undan vínþorstanum.
Þess á milli étur hann antabus
og nýtur þá hjálpar konu sinn-
ar, listakonunnar Beatrice. Hún
er gædd óendanlegri þolinmæði
og umburðarlyndi. Þau gengu í
hjónaband fyrir þrem árum og
eru barnlaus.
Tólf ár í fangelsi
Ekki alls fyrir löngu var „óði
lrinn“ tekinn fastur fyrir óspekt
ir á götum úti. Þá lét hann öll-
um illum látum og öskraði svo
kröftuglega, að honum var
sleppt. Hann er án alls efa
drukknasti maður sem nokkurn
tíma hefur komið fram í brezku
sjónvarpi. Þegar rann af honum
og hann sá blaðafréttirnar um
hneykslið, varð honum að orði:
„Auðvitað var ég fullur. Dettur
ykkur í hug að hægt sé að
koma fram í sjónvarpi ófullur?"
í tólf ár hefur þessi frægi en
vansæli leikritahöfundur setið í
fangelsum eða betrunarhúsum.
Hann er 37 ára gamall. Veik-
indi hafa nú að nokkru leyti
neytt hann til að halda sig frá
flöskunni — a.m.k. við og við —
og þegar svo stendur á er uppá
haldsveig hans tevatn.
Þetta er í ættinni
' Þegar Behan var fyrst tekinn
fastur var hann 16 ára. Það
var sunnudagseftirmiddag á
brautarstöðinni í Liverpool.
Hann var með ferðatösku sem
hann hafði lagt frá sér á bekk
algerlega skeytingarlaus — en
það kom á daginn að í töskunni
var bráðhættulegt sprengiefni.
Þegar á þessum árum var hann
meðlimur írsku uppreisnarhreyf-
ingarinnar. „Ira“ er latneska
orðið fyrir reiði. I.R.A. (Irish
Republican Army) er hreyfing
reiðra Ira sem berjast gegn
Bretum. Þessi hreyfing er eitt
af eftirlætisyrkisefnum Behans.
Þetta er í ættinni. Afi Behans
samdi þjóðsöng íra, og ömmu
hans var stungið í steininn fyrir
að fela vopn í sængurdýnunni.
Faðir Behans sá hann fyrst 14
daga gamlan í fangi móður sinn-
ar, en fékk ekki að hossa hon-
um því hann var bakvið riml-
ana í Kilimain-fangelsinu í
Dublin, dæmdur fyrir byltingar-
starfsemi.
Þegar Brendan Behan kom úr
fangelsinu eftir fyrstu setuna,
sem var 3 ár, skrifaði hann á
nokkrum mánuðum hið fræga
leikrit „Gislinn“, sem Joan
Littlewood setti seinna á svið í
Lundúnum við mjög góðan orð-
stír. Meðan á æfingum stóð
hringdi hún í Behan og kvaðst
ekki vera ánægð með niðurlag-
ið, spurði hvort hann gæti ekki
endurskrifað það. „Þú getur
gert það á tveim vikum", sagði
hún. „Flyttu þig bara inn í íbúð
ina mína og láttu eins og þú sért
heima hjá þér“.
Tveim vikum síðar var ekki
mikið um heil húsgögn í íbúð
Joan Littlewoods, og allt það
áfengi sem til var á mílu svæði
kringum íbúðina var horfið ofan
í maga Behans. En Joan Little-
wood tók þessu með jafnaðar-
geði og skírskotaði til hins góða
hjartalags skáldsins. Hann hristi
hausinn nokkrum sinnum, fór í
steypibað, drakk nokkra lítra af
svörtu kaffi og tók síðan til við
skriftirnar svo blekið freyddi
um eyrun á honum.
Á unglingsárunum vann Be-
han fyrir sér sem málarasveinn.
Honum var falið að lappa upp
á útvegginn á veitingahúsi, og
þegar hann hafði lokið því gerði
hann sér lítið fyrir og málaði
yfir þveran vegginn með risa-
stöfum: „Þetta er svei mér
bezta kráin í bænum!“
Skreytingin er enn á sínum
stað. Eftir að Behan varð fræg-
ur hefur hún orðið fádæma góð
auglýsing fyrir veitingastaðinn.
Vitfirring samtíðarinnar
Hafi menn fengið þá hug-
mynd af því sem að framan
segir, að Behan sé dálítið gal-
inn, þá er það ekki fjarri lagi.
En hann er líka einn af beztu
leikritahöfundum samtímans.
Mesta vandamál hans er að
sjálfsögðu Brendan Behan sjálf-
ur, en það er vandamál sem
aðrir hafa líka áhuga á, einmitt
vegna þess að hann er skáld.
Vitfirringin í verkum hans er
vitfirring samtíðarinnar. Leikrit
hans fjalla um Irland, kynferðis
mál, stjórnmál, trúarbrögð og
mennskuna í hverjum einstakl-
ingi. „Ég skrifa nefnilega aldrei
um neitt sem ég veit ekki deili
á sjálfur“, segir hann.
„Gislinn“ var frumsýnt í
Lundúnum fyrir tveimur árum.
Leikurinn fer fram í umhverfi
drykkjurúta og vændiskvenna.
Þetta er allt byltingarfólk,
vegna þess að það er orðið dauð
þreytt á lífinu og sjálfu sér, og
þjóðfélagið virðist ekki ’nafa
nein skynsamleg not fyrir það.
Leikritið er í senn grínleikur
og átakanlegur harmleikur.
Plötupúkar og sérvitringar af
öllum sortum eru á sífelldri rás
fram og aftur á sviðinu. Stund-
um dansa þeir villta írska þjóð-
dansa eða syngja drykkjuvísur,
Þegar Brendan Behan heldur sig frá sterkum drykkjum, er uppáhaldsveig hans tevatn. Hér er
Beatrice kona hans að gefa honum tesopa.
en í næstu andrá eru þeir djúpt
sokknir í alvarleg vandamál
manneskjunnar. Málið er lif-
andi og safaríkt, gneistandi af
skopi og kaldhæðni, en oft átak-
anlega tragískt.
Meginefni leiksins er á þá
leið, að ungur enskur skrif-
stofumaður, sem gegnir her-
þjónustu, hefur verið tekinn
fastur af I.R.A. Það á að taka
hann af lífi innan 24 tíma, ef
Englendingar taka af lífi I.R.A.-
mann sem þeir hafa í haldi.
Ungi maðurinn er geymdur í
þessu furðulega húsi, verður
ástfanginn, síðan örvæntingar-
fullur, þá vongóður, og loks
grípur hann algert kæruleysi
og hann horfist í augu við ör-
lög sín, sem verða raunar I
leikslok hrein tilviljun.
í næstu viku verður þetta
fræga verk sett á svið á Allé
Scenen í Kaupmannahöfn undir
stjórn Erlings Schröders með
feðgana Osvald og Fritz Hel-
muth í tveimur aðalhlutverkun-
um. Er það í fyrsta sinn sem
þeir koma fram í sama leikriti.
Biily lygari" í London
Cambridge Theatre í Lond- ]
on hefur að undanförnu <
sýnt leikritið „Billy Liar“. |
Leikrit þetta er * samið af
Keith Waterhouse, eftir sam'
nefndri skáldsögu hans, og
iWillds Hall hefur einnig lagt j
hjálparhönd á verkið. Hann er,
bezt þekktur fyrir leikritið: „The|
Long and the Short and the Tall“
sýnt í London á sl. ári. Leikur-
inn er gamansamur en dálítinn
tíma tekur að venjast blótsyrð-
unum, sem faðirinn notar í tíma
og ótíma.
Aðalhlutverkið, Billy Liar, er
leikið af nýrri stjörnu, Albert
Finney, sem var reistur til þeirr
ar frægðar í nýrri kvikmynd,
Saturdaynight and Sunday-
morning. Verðskulduð frægð
fyrir efnilegan leikara.
Ég held ég hafi aldrei séð svo
hnitmiðaða túlkun hjá svo ung-
um manni. Hann er einnig eini
leikarinn sem leyft hefur sér að
snúa sér við á sviðinu og horfa
beint framan í áhorfendurna og
segja þeim að þegja, annars fari
hann heim! Slíkt hefur ekki kom :
ið fyrir hér um áratugi og hefur
þetta atvik vakið geysimikið
hneyksli. Munu áhorfendur hafa
verið órólegir og ef til vill sum
ir drukknir, því þolinmæði leik-
arans þraut. Á hinn bóginn má
segja að þeir hefðu borgað fyrir
aðgöngumiðana sína og ættu rétt
á að sjá leikinn án truflunar.
Billy Liar, getur ekki gert að
því að skrökva. Heimur hans er
einn lygavefur. Vinstúlkum sín-
um segir han.i að faðir hans sé
einfættur, amma hans sé mikið
veik, það verði að skera af
henni fótinn; móðir bezta vinar
hans, kona um fimmtugt sé ó-
frísk. Móður sinni segir hann að
grænmetissalinn hafi framið
sjálfsmorð, þótt hann viti að móð
ir sín kaupir kartöflur hjá hon-
um á hverjum morgni! Billy get-
ur ekki að því gert, hann bara
lýgur og skrópar í vinnuna.
Hann vinnur hjá fyrirtæki, sem
sér um jarðarfarir. Borðstofu-
skápur heima hjá honum er læst
ur. Foreldrar hans og amma
vita ekkí hvað er í skápnum.
Seinna kemur í ljós ótöl dagalöl
og bréfa sem hann hefur verið
beðinn um að pósta fyrir firm-
að en aldrei átt frímerki fyrir
þeim. Billy á í stríði við vin-
stúlkurnar, því hann er trúlof-
aður þeim öllum, en á bara einn
hring og galdurinn er að ná
hringnum frá eihni til þess að
gefa annarri. Ein þeirra, sem ann
honum bezt, reynir að fá hann
til þess að flýja með sér. Billy
tekst allur á loft, nýtt líf . . .
en lestin brunar af stað án hans.
Hugrekkið var brotið, hann á að-
eins heima í sama umhverfinu,
sama lygavefnum, sem honum
þykir svo gaman að vefa.
Þráðurinn í þessum leik virð-
ist ekki markverður, en eðlileg
samtöl þessa alþýðufólks og frá
bær leikur Alberts, sérstakiega
íátbragðsliist hans, gerir þessa
sýningu ógleymanlega. — Krf.
Afli Akranesbáta
AKRANESI, 8. marz: — Átján
bátar komu hingað í gær með
138 lestir alls. Aflahæstir voru:
Sigurvon með 14,3 lestir, Sveinn
Guðmundsson með 13,8 lestir og
Sigurður SI með 11,5 lestir. Höfr
ungur II landaði 32 lestum af
slægðum fiski eftir 4 lagnir.
Hann er á útilegu. —Oddur