Morgunblaðið - 10.03.1961, Síða 24
L I S T
Sjá blaðsíSu 13.
trpmMaMð*
57. tbl. — Föstudagur 10. marz 1961
íþróttir
Sjá bls. 22.
Séra Friðrik Friðriksson
dr. theol látinn
Séra Friðrik Friðriksson.
SÉRA Friðrik Friðriksson dr.
theol. er látinn. Hann andaðist
að heimili sinu Amtmannsstíg 2,
þar sem eru höfuðstöðvar Kristi
legs félags ungra manna í Reykja
vík, kl. 8 í gærkvöldi, nær níutíu
og þriggja ára að aldri. Með hon
um er til foldar fallinn mesti
æskulýðsleiðtogi, sem ísland hef
ur alið, fjölhæfur gáfumaður og
mannvinur, sem naut almennrar
ástsældar og virðingar þjóðar
sinnar.
Séra Friðrik hafði verið al-
gerlega rúmliggjandi í um það
bil 3 siðustu vikur. En hann
hafði meðvitund öðru hverju
fram til s.l. miðvikudags.
t t t
Hann var fæddur að Hálsi i
Svarfaðardal 25. maí árið 1868.
Nafnakall á nafnakall ofan
Foreldrar hans voru Friðrik
Pétursson smiður og skipstjóri
og kona hans Guðrún Pálsdótt
ir. Lauk hann stúdentsprófi árið
1893 og heimspekiprófi við Kaup
mannahafnarháskóla árið 1894.
Guðfræðiprófi lauk hann við
Prestaskólann í Reykjavík árið
1900. Það ár var hann vígður
prestur við Holdsveikraspítal
ann í Laugarnesi og gegndi því
starfi til ársins 1908.
Hann stofnaði Kristilegt félag
ungra manna í Reykjavík árið
1899 og gerði þar með kristlega
æskulýðsstarfsemi að höfuð lífs-
starfi sínu. Hann gegndi prests-
störfum á ýmsum stöðum, m.a. í
Reykjavík og Akranesi. í Ame-
ríku dvaldi hann árin 1913 til
1916. Ferðaðist hann þar um
milli íslenzkra safnaða og stund
aði kristilega æskulýðsstarfsemi.
Á Norðurlöndum ferðaðist
hann einnig víða um, og þá fyrst
og fremst um Danmörku, þar sem
hann dvaldi árum saman, flutti
fyrirlestra og hélt samkomur á
vegum KFUM. Naut hann þar
mikilla vinsælda og virðingar.
t t t Jl
Séra Friðrik Friðriksson var
ekki aðeins mikill og sérstæður
prédikari og boðandi orðsins held
ur afkastamikill rithöfundur.
Hann samdi og þýddi f jölda bóka,
sem komið hafa út innanlands og
utan. Njóta æviminningar hana
mikilla vinsælda. Hann var mála
maður mikill og var latínuþekk
ingu hans einkum viðbrugðið.
Þótti hann og snjall kennari t
hinum klassisku fræðum.
Séra Friðrik Friðrikssyni var
sýndur margvíslegur sómi fyrir
hið mikla lífsstarf sitt. Hann var
sæmdur fjölda heiðursmerkja,
innlendum og erlendum, og Há*
skóli Islands sæmdj hann dokt
orsnafnbót honoris causa.
Séra Friðrik Friðriksson hafði
víðtæk áhrif á íslenzka æsku, og
þá fyrst og fremst unga fólkið
í Reykjavík, þar sem hann starf
aði mest. En öll íslenzka þjóðin
þakkar líf hans og starf. Hann
var mikilmenni, sem mun lifa í
hjörtum og sögu þjóðar sinnar
fyrir stórbrotið starf í þágu kær
leikans og kristinnar menningar.
er samkomulagið við Breta var samþykkt á Alþingi
Kindum misþyrmt í
fjárhúsi á Akureyri
VIÐ höfðum frétt að komið
væri að lokum afgreiðslu
þingsályktunartill. um sam-
komulag í fiskveiðideilunni
við Breta og brugðum okk-
ur því niður í Alþingishús
kl. 4.30 í gærdag til þess að
vera viðstaddir hinn sögu-
lega atburð er þetta mál
yrði afgreitt.
Lúðvík Jósefsson var að tala,
en þingforseti Friðjón Skarphéð-
insson sat sem fastast í forseta-
stóli og Skúli Guðmundsson við
hlið hans.
Fátt var þingmanna í salnum
en þeir voru ýmist í hliðarher-
bergjunum, á göngunum, inni í
lestrarherbergi eða niðri í forsal
©g Kringlu. Áhuginn á að hlýða á
mál manna, sem nú hefir staðið
um þessa einu tillögu í samfleytt
37 Vi klst, var sýnilega farinn að
dofna verulega.
Hljóðskraf við forseta.
Laust eftir að við komum í hlið
arherbergið gengu þeir Karl
Kristjánsson og Guðmundur í.
Guðmundsson utanríkisráðherra
hver á eftir öðrum til forseta og
áttu við hann hljóðskraf. Okkur
flaug í hug hvort ráðherrann
hefði nú verið að athuga hvort
Karl ætlaði að lengja fundinn.
Klukkan 4.40 voru 16 þingmenn
af 60, sem í þinghúsinu voru, inni
í þingsal. Þar mátti sjá þá Akur-
nesingana Jón Árnason og Daníel
Ágústinusson rabba saman í bróð
erni. Klukkan 4.45 var Hannibal
Valdimarsson farinn að geispa.
Okkur datt 1 hug hvort hann
hefði kannske einhverntíma áður
heyrt það sem félagi Lúðvík var
að segja.
Lesa gamlar ræður
Karl Guðjónsson, Halldór Sig-
urðsson og Sigurvin Einarsson
grúfa sig yfir ræður sínar, sem
þeir hafa áður flutt, og lesa þær
yfir. Gott að nota tímann til þess
því ræðurnar eru langar. Jón
Skaftason skrifar í gríð og erg.
Kl. 4:50 er slangur af fólki komið
á áheyrendabekkina. Ráðherrarn
ir Ingólfur Jónsson- og Gunnar
Thoroddsen erú komnir í sæti sín
og taka hljóðskraf saraan. í hlið-
arherbergi sjáum við þá ræðast
við Guðmund í. Guðmundsson,
utanrikisráðherra og Agnar Kl.
Jónsson, ráðuneytisstjóra.
Nú er Björn PáLsson kominn í
salinn. Hann hefir þó skamma
viðdvöl en gengur til Halldórs
Sigurðssonar og skrafar við hann
en hverfur síðan á braut. Okkur
kem,ur til hugar hvort hann ætli
að vera fjarstaddur atkvæða-
greiðsluna. Við tökum eftir því,
að þeir Geir Gunnarsson og Ág-
úst Þorvaldsson eru farnir að
teikna myndir á þingskjölin sín.
Eðvarð Sigurðsson situr sem fast
ast og hlýðir af áhuga á félaga
Lúðvík.
Kl. 5,10 sezt Ólafur Jóhannes-
son í sæti sitt, en Einar Olgeirs-
son bregður sér til Hermanns Jón
assonar. Ræðast þeir fóstbræðra-
lega við um stund, mjög alvöru-
gefnir.
Nú líður að lokaorðum Lúðvíks
sem voru eitthvað á þá leið, að
þegar þessi ríkisstjórn, sem nú
situr, færi frá völdum mundi
þessi samningur úr gildi felldur.
Það mundi þá myndast þingmeiri
hluti, sem gæti riftað samningn-
um og vonandi yrði ekki langt að
bíða þeirra kosninga.
Fundi frestað.
Forseti rís nú úr sæti sínu, seg-
ir hin langþráðu orð, að fleiri hafi
ekki kvatt sér hljóðs og að um-
ræðu sé lokið. Gefur hann síðan
tíu mínútna fundarhlé. Um,
leið og bjallan hringir ganga þeir
hlæjandi saman út úr salnum Jó-
hann Hafstein og Einar Olgeirs-
son. Þingverðir taka til að fjar-
lægja vatnsglös og bera nýtt vatn
í karöflurnar við ræðustólinn
og á borðum ráðherra.
Eftir fimm mínútur taka þing
menn að ganga í salinn einn og
einn. Forseti er seztur í sæti sitt
Frh. á bls. 2
AKUREYRI. Síðast liðinn þriðju
dag er Guðmundur Jónsson
starfsmaður við ullarþvottastöð
Gefjunar, hér í bænum, kom í
fjárhús sitt, en það er á Glerár
eyrum, blasti við honum ömur-
leg sjón. Þrjár kindur voru hel
særðar og var augljóst að það
var af mannavöldum. Við nánari
Geimfar
LONDON 9. marz. (Reuter) —
Tass fréttastofan skýrir frá því,
að Rússar hafi í dag skotið á loft
geimfari með lifandi hundi innan
borðs og náðist hann til jarðar
aftur heill á húfi. — Geimfarið
vó 4.700 kg.
athugun kom í ljós að svo virt
ist sem einhverskonar eggjárni
hafi verið beitt. Svo voru kind
urnar særðar að lóga varð þeim,
öllum samstundis.
Þetta hefur vakið ugg, einkum
meðal fjáreigenda hér í bænum,
og ,er það einlæg von allra að
sem fyrst komizt upn um þann,
eða þá sem þetta níðingsverk
unnu á skepnunum. —St.E.Sig.
Cisenga
úr sessi?
LEÖPOLDVILLE, 9. marz. —
(Reuter) — Óstaðfestar fregn
ir herma, að Victor Lunduia,
herráðsforingi stuðningmanna
Lumumba í Stanleyville, hafi
steypt Antoine Gisenga a £
stóli forsætisráðherra Stanley
ville stjórnarinnar.
Dayal, fulltrúi Hammar-
skjölds í Kongó hefur ekki
talið sig geta staðfest þessa
fregn, en haft er til merkis
um að hún sé rétt, að ýmsir
pólitískir fangar, sem Gisenga
hafði í haldi, eru nú frjálsir
ferða sinna.
Liz úr
hœttu
LONDQN, 9. marz. (Reuter)
Læknir kvikmyndastjörnunn
ar Elisabeth Taylor sagði í dag
að leikkonan væri nú úr allri
hættu og mætti væn-ta þess að
hún kæmist á fætur eftir um
það bil tvær vikur.
Læknirinn dr. Carl H. Goldl
man, sagði að enn gæti hún J
hvorki talað né risið upp við I
dogg, en andardráttur hennar |
væri að mestu eðlilegur orð-t
inn. »
47 farazt
TÓKÍÓ, 9. mrz. — (NTB
Reuter) — Að minnsta kosti 72
menn lokuðust inni í kolanámu
í suðurhluta Japans í dag, er eld
úr kom upp í námunni. Unnið heí
ur verið að björgun í allan dag,
en allar líkur benda til þess að
minnsta kosti fjörutíu og sjö ,
menn hafi látið lífið.
Á myndinni sjást aðalforingjar stjórnarandstöðunnar, Einar Olgeirsson og Hermann Jónasson,
ræðast við alvörugefnir, en fyrir framan þá sjást Finnbogi R. Valdimarsson og Karl Krist-
jánsson. —