Morgunblaðið - 26.03.1961, Side 2

Morgunblaðið - 26.03.1961, Side 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. marz 1961 SKAK EFTIRFARANDI skák var tefld í 6. umferð á Skákþingi Reykja- víkur, sem er nýlokið: Hvítt. Ingi R. Jóhannsson. Svart: Jófaann Sigurjónsson. Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. Rg2 Skákmeistarar beita þessum leik mjög sparlega, því reynslan hefur sýnt að svartur er fljótari að jafna taflið í þessu afbrigði, en í flestum öðrum afbrigðum af Franskri vörn. Aftur á móti er leikurinn skemmtileg til- breyting frá þeim afbrigðum, sem mest eru notuð í dag. 4. — dxe4 5. a3 Bxc3t 6. Rxc3 f5 Það er mjög vafasamt fyrir svart að reyna að halda í e4- peðið. Betra er 6. Rc6. 7. f3! exf3 8. Dxf3 Dxd4 Ef 8. — Dh4f. 9. g3, Dxd4. 10. Rb5!, De5. 11. Be2 og síðan Bf4. 9. Dg3f Þannig lék Aljiohin gegn Nimzo- wich 1931. Þetta er mjög öflugur leikur, sem gerir svarti erfitt fyrir. 9. — cGf?) Full hægfara leikur. öllu betra var 9. — Rf6. T. d. 10. Dxg7, Hg8. 11. Dxc7, Ro6. 12. Bf4 með góðum sóknarmöguleikum. 10. Bf4 Það er erfitt að koma auga á betri leik fyrir hvítt. 10. — Rd7 11. Hdl Df6 ABCDEFGH 'mr 22. Kfl Df5 23. Bh6! b6! Jóhann verst af stakxi rósemi. Hótunin er dálítið óþægileg, sem sé Ba6f. 24. Hxg7 Kh8 Hefði svartur freistazt til að leika 23. — Dc2 í stað 23. — b6, þá vinnur hvítur auðveldlega með 25. Hg3 og mátar. ABCDEFGH ABCDEFGH V Staðan eftir 11. — Df6. 12. Hd6 Hér yfirsézt hvítum tveggja leikja flétta, sem vinnur mann, en sá mannsvinningur er ekki með öliu hættulaus hvíti. T. d. 12. Hxd7!, Bxd7. 13. Be5, Dh6! (13. — Dg6 14. Bxg7) 14. Bxg7, Dclf. 15. Rdl 0-0-0. 16. Bxh8, Rh6. Að vísu á hvítur manni meira, en hann þarf að tefla mjög vandvirknislega. Eigi að síður er fléttan bezti möguleiki hvíts. 12. — Re7 13. Bc4 Rb6 14. Bb5 Hér strandar 14. Bg5 á f4! 14. — 0-0 15. Bg5 Df7 16. 0-0 Red5 Þrátt fyrir að svartur hafi unnið tvö peð, þá er olnbogarúm hans mjög takmarkað, á meðan hvítur hefur möguleika á virkri sókn. 17. Rxd5 Rxd5 Eftir 18. — cxd5. 19. De5, hefur hvítur áframhaldandi sóknar- möguleika með Hf3—g3 ásamt h4—h5. 19. Hel Hvítur hefur nú alla menn sína í sóknaraðstöðu en svartur býr yfir hættulegu vopni. 19. — f4/ Eini möguleikinn. 20. Dh4 Ef 20. Dc3 þá 20. — Dh5 og svartur kemur við vörnum. 20. — f3/ 21. He7 Hrökkva eða stökkva. 21. — f2t , ABCDEFGH Stað'an eftir 24. — Kh8. 25. Hb7!/ Furðuleg björgun, og óþægileg hótun. 25. — c5? Jöhann átti nauman tíma, og yfirsást eina vörnin. 26. De7 gefið. í 25. leik átti svartur að leika Bxb7. 20. Dd4f, Hf6. 27. Dxf6f, Dxf6. 28. Hxf6. Að vísu hefur hvítur vinningsvonina vegna mótstöðu svarta kóngsins, og tímaeklu andstæðingsins. Óneit- anlega skemmtileg skák, þrátt fyrir ýmsa afleiki af beggja hálfu. Hrasaði í hálku Á TÍUNDA tímanum á fimmtu- dagskvöld hrasaði maður í hálk- unni á Háteigsvegi. Hann kvart- aði nm eymsli í fæti eftir fallið og var fluttur í Slysavarðstofuna. Spilið, sem hér fer á eftir var spilað á Heimsmeistara- keppninni í Como á Ítalíu. Spil þetta er gott dæmi um góða vöm enda var hinn kunni spil- ari. Forquet, sem stjórnaði henni. Sagnir gengu þannig: Austur Suður Vestur Norður 1 Hjarta 1 Spaði Dobl. 2 Hjörtu DobL Pass Pass Pass Konunglegur knattborðsleikari „BILLIARD" eða knattborðs- leikur mun ekki vera sérlega mikið iðkaður hér á landi og nýtur víst lítillar virðingar sem íþrótt. Þetta þykir þó hin bezta frístundaskemmtun víða um lönd — og háir sem lágir leika „billiard" til þess að drepa tímann, þegar þeir hafa ekkert þarfara að gera. —o— Hérna á myndinni sjáum við t.d. konunglega persónu við knattborðið, Elísabetu, móður Englandsdrottningar, en hún er sögð hafa glöggt knattauga, sem kallað er, og hefir „marga hildi háð“ með knattprikinu — og oft farið með frægan sig- ur af hólmi. —o— Myndin var tekin í „Pressu- klúbbnum" í Fleet Street í Lundúnum — en þangað bauð fyrrverandi forseti klúbbsins, Thomas McArthur, drottning- armóðurinni fyrir skemmstu — og notaði tækifærið til þess að skora á hana í einleik við knattborðið. Hún tók áskorun- inni, allra náðarsamlegast — en ekki fylgir sögunni hvort þeirra bar sigur úr býtum . .. Sænshur námsstyrkur SAMKVÆMT tilkynningu frá sænska sendiráðinu í Reykjavík hafa sænsk stjórnarvöld ákveðið að veita fslendingi styrk, að fjár hæð 4300 sænskar krónur, til há- skólanáms í Svíþjóð skólaárið 1961—1962. Styrkurinn veitist til átta mánaða nóms og greiðist styrkþega með jöfnum mánaðar- legum greiðslum, 500 sænskum krónum á mánuði, en styrkþegi hlýtur 300 sænskar krónur vegna ferðakostnaðar. Vera má, að styrknum verði skipt milli tveggja umsækjenda eða fleiri, ef henta þykir. Umsóknir sendist menntamála- ráðuneytinu fyrir 20. apríl n.k. ásamt afritum prófskírteina og meðmælum, ef til eru, og grein- argerð um, hvers konar nám um- sækjandi hyggst stunda og við hvaða skóla. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og hjá sendi- ráðum íslands erlendis. Enginn hafragrautur STARFSEMI Loftleiða eflist stöðugt. Flugvélakosturinn |H vex, farþegum fjölgar ogf|| starfsmönnum að sama skapi.fÍ: Birgir Karlsson er einn hinnaí nýju starfsmanna félagsins — og starf hans er líka alveg nýtt. Hérlendis á hann engan starfsbróður og þess vegna verður senniiega bið á því að stofnað verði séi-stakt stéttar- félag í hans grein. * * * * Það er sem sé verkefni Birgis að sjá um að farþegar Loftleiða fái sem bezta þjón- ustu, bæði í mat og drykk. „Ég er að útbúa matseðlana fyrir sumarið", sagði Birgir, þegar fréttamaður Mbl. hitti hann að máli á dögunum. „Það er mikið verk og vandasamt, því við reynum auðvitað að gera það þannig," að öllum líki. Fyrsta boðorðið er, að allir far þegar séu ánægðir, þeim líði vel — og þeir séu mátulega mettir frá því að þeir eru komnir um borð í flugvélina þar til þeir stíga út á ákvörð- unarstað". * * * Birgir hefur svo- sem þjálf- unina. Hann lærði veitinga- og gistihúsarekstur í Tallahasee á Florida á árunum 1952—57 og vann auk þess á hótelum og veitingastöðum hin margvís- legustu störf, því að það var Birgir Karlsson hluti af náminu. Eftir að hann kom heim starfaði hann um langt skeið fyrir Offisera- klúbbinn á Keflavíkurflug- velli, en í haust réðist hann til Loftleiða. Hann hefur „flogið" með flugfreyjunum í nokkra mánuði — og nú er hann seztur við að sjóða sam- an matseðlana. * * * „Við getum tekið til dæmis farþega, sem fljúga frá Amsterd. til N.Y. Hann fær veitingar milli Amsterdam og Glasgow, síðan aftur milli Glasgow og Reykjavíkur. f Reykjavík snæðir hann á flug vellinum, fær svo veitingar á milli Reykjavíkur og Gander og aftur á síðasta áfanganum, milH Gander og New York. Á öllum áföngunum verður far þeginn að fá hæfilega mikið, góðan mat og vel framreiddan, en aldrei það sama“. „í Amsterdam er maturinn látinn í flugvélina fyrir tvo fyrstu áfangana, en í Reykja- vík fyrir tvo þá síðustu. Allur matur er settur á bakkana áður en hann er fluttur út í flugvélina — og því verður að bera íarþegunum þetta og V K-D-G-7-6-5-4 ♦ D-9-8 * 9-6-2 * Á-K-G 6-3 V ♦6-4-3-2 * D-10-8-3 A 10-5-2 N v Á-9-8 V A 3-2 s ♦ 5 * Á-K-G-5 A D-98-7-4 V 10 ♦Á-K-G-10-7 * 7-4 Austur lét úr laufa kðng og fékk þann slag, en því næst lét hann út Tígul 5, sem drepið var í borði með ÁS. Nú var hjarta 10 látin úr borði og allir gáfu þann slag. Sagnhafi lét nú út lauf úr borði og Vestur var vel vakandi og drap með 10 og fékk þann slag. Nú lét Vestur út Tígul, sem Austur trompaði og því næst lét Austur út laufa gosa, sem Vestur drap með drottningu. Enn var tígU spilað og enn trompaði Austur. Að lok um fékk svo Austur á Tromp Ás og spilið tapaðist. Augljóst er að það sem gerir það að verkum að spilið tapast er að Vestur er vel á verði og lætur laufa 10 á þegar laufi er spilað úr borði ef hann gerir það þá ekki þá eru ekki mikil líkindi tilað A-V setji spilið niður. * ekkert annað. Við getum ekki matbúið í vélunum, eins og þú skilur. — Og til þess að engin hætta sé á því að við hér í Reykjavík matbúum fyr- ir farþegana það sama og gert er í Amsterdam verður allt auðvitað að ganga eftir sett- um reglum. Þeir, sem annast þssa þjón- ustu fyrir Loftleiðir á enda- stöðvunum: London, Amster- dam, Luxemburg, Hamborg, Kaupmannahöfn, Helsingfors, Osló, Stafangri og New York verða því að hafa matseðliinn fyrir hvern dag. Allt verður að haldast í hendur — og veitinga hús Loftleiða hér á flugvell- inum er auðvitað hlekkur í keðjunni. ☆ Þú kærðir þig ekkert um að fá nautasteik á leiðinni milli Amsterdam og Glasgow, aftur nautasteik á Reykjavíkurflug- velli — og enn nautasteik á milli Reykjavíkur og Gander. Það er mitt starf að samræma allt þetta og sjá um að mat- urinn sé alltaf fyrsta flokks. Ha? Nei, enginn hafragraut- ur á matseðlinum hjá mér“. á matseðlinum hjá mér Jbj—.rul Lr r*»i-* ■ - ^ .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.