Morgunblaðið - 26.03.1961, Síða 14

Morgunblaðið - 26.03.1961, Síða 14
Sunnuda^ur 26. marz 1961 listasögunni og kasta honurn fyr- ir borð? — Picasso. Hann er skynsamur og sér hvert stefnir. Picasso er andlegur. Hann segir, að þegar hann heyrði fyrst nafn Kokos- chkas hélt hann það væri ein- hver tegund af tékknesku kók- aíni. En Picasso líður of vel, hann nennir ekki eða þorir ekki aö ráðast á heilögu kýrnar. Hann er teiknari og svartlistarmaður, get ur sagt allt með svörtu og hvítu eða með einum eða tveimur lit um. Þar hefur hann skotið sinni ör og sagt allt. Ástæðan til að hann málar myndir er sú, að þær seljast vel. Picasso elskar óhóf eins og flestir broddar kommún- ista. Hvað hefur hann að gera með allar þessar hallir í Suður- Frakklandi? Þær eru kannski ó- dýrari en nýtízku íbúð, hann er mikill kaupsýslumaður. Það segi ég ekki honum til lasts, Tizian var það líka. Jafnaldrar Picassos eru bara sinnulausir. Þeir sjá þetta allt saman, en gætu alveg eins vel starað á steinvegg. Við skulum ekki lá ungurn mönn- unum þó þeir færi sér í nyt óvið- jafnanlegt tækifæri til að græða stórar fúlgur með auðveldum hætti. — Ég held alls ekki að það sé hreyfiaflið í framleiðslu ungu mannanna. Ætli málaralistin breytist ekki í samræmi við tím- ann. Heimsmyndin hefur breytzt. Einstein, Bohr og Rutherford. Við eigum spútníka og tunglflaugar, kjarnorkuna, hinar miklu upp- finningar, tæknina. t — Menn fundu líka einu sinni upp á því að kveikja eld. Og hvað um hjólið. Fyrir einum 125 árum var eimreiðin fundin upp. Frá dögum faraóanna höfðu menn ekki þekkt annað en hesta, múl- dýr og þræla til flutninga og ferðalaga. Hvílík stórkostleg bylting hlýtur ekki einmreiðin að hafa verið! En Corot og Cour- bet gáfu sér ekki tíma til að mála illa af þeim sökum. Málaralistin verður að gefa auganu eitthvað, hún verður að vera sjónræn. Það sem ekki sést er listinni framandi það heyrir undir trúarbrögð, vísindi og heimspeki. — Þeir sem mála mannamynd- ir vilja nú samt helzt festa það innra á léreftið líka. — Það er sennilega vegna þess hve erfitt þeir eiga með að máia það ytra. — Er það múgsefjun sem veld- ur ástandinu í listum'í dag? Er það auglýsingatækninni að kenna? Eins og t. d. þegar kvik- myndastjórnur eru skrumaug- lýstar. — Það er heimtað eitthvað af kvikmyndastjörnum. Þsér verða að geta leikið í grínleikjum, eða að minnsta kosti verða þær að vera ungar og fallegar. Ekki gaml ar, skorpnar og ljótar. Því Ijót- ara sem málverk er, þeim mun meiri hylli nýtur það. Á okkar dögum er klaufaháttur og af- skræming vísasti vegurinn til frægðar. Landi yðar Thorvald- sen í Via Sistina var ný-klass- ískur, kunni sitt fag. Hvar ættu ungu mennirnir að læra sitt fag nú á dögum? Ekki á listaskólun- um, því þá yrðu prófessorarnir fyrst að læra eitthvað sjálfir. Til að gefa eitthvað verða menn að hafa fengið eitthvað. MORCVNV1. AÐIÐ þurrt loft EINANGRUNARGLER Þverskurður af THERMOPANE rúðu Símar 1-14-00. tvær rúður ffotié? Upphitun íbúða kostar í dag svo mikla peninga, að enginn ætti að nota ein. faldar rúður í glugga. Lausnin er að nota THERMOPANE tvöfalt einangr- unargler, þá sparið þér peninga daglega. Getum nú útvegað THERMOPANE með stuttum fyrirvara. Tvöfalt eða margfalt í öllum stærðum. 20 ára notkun THERMOPANE hérlendist sannar góða endingu og gæði. Allar upplýsingar hjá umboðsmönnum verksmiðjunnar. Eggert Kristjánsson & Co. hf. Málmrammi — Listir Framhald af bls. 13. Kannski er ég einn á báti. En einhver verður þó að vera það. — Segonzac og ýmsir af meist- urum nútímans hafa líka áhyggj- ur af þróuninni. — Já. En gera þeir nokkuð? Auk þess dáir Segonzac Cézanne. Nú á dögum er auðveldara að hall mæla Tizian, Tintoretto og Mic- helangelo en Cézanne. — Cézanne hefur þó flutt mál- aralistina fram um eitt skref, hann er faðir nútímamálaralist- ar! — Það er nú einmitt ógæfan. Flutt listina fram! Já, þakka yð- ur fyrir, en hvert? Hann hefur verið tekin í dýrlingatölu ásamt van Gogh og Gauguin, þeir eru orðnir heilagar kýr. Menn eiga að dá þá og tilbiðja eða bara halda kjafti. Ég deildi ekki á van Gogh. Vesalingur. Spítalamatur. Þeir menn eru nú ekki á hverju strái sem skera af sér eyrun og leggja þau í umslag til að koma sinni útvöldu í hórukassanum á óvart með lítilli gjöf. Geislabaugar þessara dýrlinga stafa af sög- unum um einkalíf þeirra. Róman tík, kænska listaverkaprangara og nokkrir skriffinnar í henni sem eru gagnsýrðir af prangara- sjónarmiðum. Menn tala ekki um málverk þeirra, heldur segja skrýtlur um líf þeirra. Gauguin hefur skrifað ljóð, „Nóa-Nóa“ er ekki sem verst, en hvað kemur það málaralist við? Hann stakk af frá bankastarfinu, dönsku kon- unni sinni og börnum til að finna sér nokkrar húðdökkar hnátur á Tahiti og útbreiða sýfilis. Er það ekki hrífandi! Hann hlýtur að vera mikill málari! Og Céz- anne, sonur hans ríka pabba síns. Dálítill hrærigrautur á efsta lofti, skapillur og visinn sér- vitringur sem götustrákarnir í Aix-en-Provence hlupu á eftir, þegar hann kom höktandi með léreftin sín, sem áttu eftir að verða kavíar fyrir uppboðshald- ara. Hann gat látið út úr sér af- káralegar athugasemdir, sem oft voru fyndnar, en maður verð- ur tæplega Goya eða Velazques af því! Það þarf eitthvað til að vera miðlungsmaður Á sínum betri stundum vissi Cézanne að hann var óhæfur. Og hver hefði átt að vita það betur en hann sjálfur? Það er erfitt að mála tré, sýna hvernig greinarn- ar hríslast frá stofninum, hvernig tréð er vaxið o. s. frv. Hann gat það ekki og málaði því greinarn- ar eins og niðurrennur með sprungum og þykka bolina eins og skólprör sem standa upp á endann. Hann málaði keilur og kubba, eins og börn gera, það eru hin upprunalegu form sem allir byrja á. Eftir Cézanne kom fram taksöm kynslóð sem upphóf allt skólpræsakerfið og gaf því nafn ið KÚBISMI. Eins og það væri ný og merkileg uppgötvun! Öll myndgerð byggir á rúmtækum lögmálum. Það er ekki hægt að segja að Cézanne hafi verið miðl- ungsmaður. Maður verður þó að segja að Gézanne hafi verið miðl- ungsmaður. Það gerði hann ekki. Úrkynjunin byrjaði með im- press j ónistunum. —Það er eins gott að ég sit, því annars væri ég löngu dottinn um koll. Ætli það séu fleiri en þér, sem skera svo stóran bita úr Verzlunar- og skrifstofuhúsnœði er til leigu í Miðbænum, að stærð allt að 300 ferm., sem leigist með hagkvæmum kjörum í einu lagi eða í hlutum. Þeir sem áhuga kunna að hafa á slíku húsnæði, vinsamlega tilkynni það til blaðsins fyrir 30. þ.m. merkt: „Fyrsta flokks viðskiptahúsnæði — 1603“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.