Morgunblaðið - 26.03.1961, Side 21

Morgunblaðið - 26.03.1961, Side 21
Sunnudagur 26. marz 1961 MOnCVTShLAÐlÐ 21 A 2000 dansleikum í Þdrskaffi ÉG ER fæddur í Sandgerði, en til Reykjavíkur kom ég fyrst til dvalar, þegar ég hóf nám í Verzlunarskóla íslands haustið 1940. — Áhuga, — já, áhugann á tónlLstinni hefur ekki vantað, þótt árangurinn hafi kannski ekki ætíð verði eftir því, en sama samt. — Byrjaði að læra, fyrst á harmónikku hjá Sven O. Johan- sen, síðan á klarinettu hjá Vil- hjálmi Guðjónssyni, — nú kenn- ara við Tónlistarskólann í Reykja vík. — Og sem sagt: Öll þessi tuttugu ár, sem síðan eru liðin, hafa 'skipzt milli þrotlausra æf- inga og tónflutnings. Á þessa leið mælti hinn kunni hljómsveitarstjóri Kristján Krist jánsson, er við hittum hann að máli nú fyrir nokkrum dögum á skrifstofu sinni á Bragagötu 38A. Hann var þar önnum kafinn að setja á stofn innkaupaþjónustu fyrir fyrirtæki, er hann nefnir ,,í.slenzki verðlistinn". Kristján hefur, eins og alkunn- ugt er stofnað og stjórnað K.K.- sextettinum nú um fimmtán ár, þótfStutt hlé hafi þar á orðið á því tímabili. Iængst af þessum tíma hefur hljómsveit hans leikið fyrir dansi í Þórskaffi fimm kvöld vikunnar. Auk þess hefur hljómsveitin ferð ast víða um land og leikið í útvarp m.a. á þjóðhátíðum 17. júní. — Það má því rrteð sanni segja án þess þó að gera lítið úr nokkrum öðrum, að K.K.-sext- ett Kristjáns Kristjánssonar hef- ur verið einhver allra kunnasta og vinsælasta danshljómsveit landsins nú um : urgra ára skeið, þrátt fyrir það, þótt stundum hafi á móti blásið, mannaskipti orðið bæði á söng- og leikfólki hljómsveitarinnar oftar en æski- legt hefði verið. • Varla slitið barnsskónum Tónlistariðkun er ung á íslandi eins og fleira, er talizt getur til nútíma menningar hjá þjóðinni. Félag ísl. hljómlistarmanna hef- ur t.d. enn varla slitið barns- skónum, enda er því ekki að leyna, að margir þeir ,,lista- anenn“, sem einkum flytja dæg- ur- og danslög, hafa hlotið mis- jafna dóma. Er þess skemmst að minnast að þeir hafa verið ásak- aðir fyrir margs konar kæru- leysi og virðingarleysi á starfa gínum, slark og óreglu. Við innum Kristján eftir þessu máli, og hann segir, að því mið- ur sé svo um marga, sem út í tónlistarnám fara og byrja að leika í danshljómsveitum, að þeir geri sér lítt grein fyrir á- þyrgð þeirri, sem á þeim hvílir •— bæði gagnvart sjálfum sér og tilheyrendum. Hafi þeir þar af leiðandi oft tekið að stunda vín- élrykkju með atvinnunni og síð- an orðið því sem næst „alkóhól- istar“. Þetta verður að breytast til batnaðar bæði hjá hinum yngri sem eldri hljómlistarmönn- um. Stétt þeirra og list þarf að vinna sér meira traust og virð- ingu meðal þjóðarinnar. Þannig sagðist hinum unga en reynda hljómsveitarstjóra og paxófðnleikara frá. Undir þetta munu flestir geta tekið, og er vonandi, að hinir efnilegu, ungu ,listamenn“ fari að gera sér grein fyrir því, að „drottning listanna". hljómlistin, er engin sápukúlu- leikur, heldur gerir hún endalaus »r kröfur með vaxandi hljóm- listarþroska fólksins. — Hún Okrefst fágaðrar túlkunar og mik- ilalr ástundunar allt frá skóla- bekk til hinna glæstu sala sam- kvæmislífsins, þar sem túlkun hvers og eins hljóðfæraleikara þarf að ná hámarki. Þar skiptir engu máli um flutningsefnið, kröfurnar verða alltaf vaxandi, hvort heldur er um að ræða dans lög eða sígilda tónlist. Kristján Kristjánsson er glað- vær og hressilegur á leiksviði sem og í daglegri umgengni, — en engu að síður er hann þó frem ur fámáll um eigin afrek og hljómlistarferil. Við förum því aðrar leiðir til þess að fá ofur- lítið nánari upplýsingar varðandi þessi efni. • Við nám erleirdis Það kemur þá í ljós, að Krist- ján dagar ekki uppi meðal músíkbræðra sinna, er hann hafði leikið með til 1946, heldur drífur hann sig þá upp og held- ur til U.S,A. til frekara náms, aðallega á klarinettu. Dvelur hann þar nokkuð á annað ár. Að loknu námi í Ameríku inyndar hann sína eigin hljóm- sveit, K.K.-sextettinn, eins og fyrr segir. Þessir sex menn skip uðu hijómsveitina: Trausti Thor- berg, Guðmundur Vilbergsson, 'Steinþór Steingrímsson, Hallur Símonarson Svavar Gests, — og sjálfur hljómsveitarstjórinn, Kristján Kristjánsson. Auk þess sem K.K. lék á klarinettu í hljóm sveitinni, varð hann einnig að vera söngvari með. Hljómsveit- in lék sem sé í fyrstu í sam- komusal Mjólkurstöðvarinnar og framkvæmdastjórinn þar, Guð- mundur Kristjánsson, óskaði ein dregið eftir því, að einhver söng- ur væri með hljómflutningnum. Var þá eigi svo auðhlaupið að fá slíka söngvara, sem nú er. Sumarið 1948 hverfur Kristján aftur til U.S.A. til frekana náms, en eftir heimkomuna þá um haustið náði hann ekki þeirri hljóðfæraskipan saman, að hann gæti þar vel við unað, svo að hann réðist í hljómsveit Carls Billich á Hótel Borg þá um sinn. Síðan stofnaði Kristján í ann- að sinn til „K.K.“ hljómsveitar sem lék m.a. á ,,gamla“ Röðli við Laugaveg í Listamannaskál- saxófón, bætt hina tæknilegu hlið tónflutnings með „Eckó“- magnara o. s. frv. Þá hefur hljómsveitin oft haft á að skipa hinum fjölhæfustu dægurlagasöngvurum, sem marg ir hverjir hafa hlotið miklar vin sældir. Má þar nefna Sigrúnu Jónsdóttur, Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms, sem öll hafa lært J Rabbað við j sKrisfján Krist-S Jjánsson hEjóm- j sveitarstjóra enda fram í blöðum, að þessi hljómleikaför hafði verið hin bezta landkynning og óvænt sending frá hinni afskekktu Sögueyju, eins og Norðurlanda- búar orða það, þegar ísland bér á góma. Um haustið 1954 ræður Ragnar Jónsson forstjóri Þórscafés K.K.. sextettinn til að leika fimm kvöld vikunnar á „garnla" Þórs- café. Hefur hljómsveitin átt sinn stóra þátt í því að gera það sam komuhús eftirsóttasta danshús borgarinnar, ekki sízt síðan starf semin var flutt í hin vistlegu húsakynni í Brautarholti 20. En auk K.K. leikur nú í Þórscafé hljómsveit Guðmundar Finn- og þjálfast undir leiðsögn Krist- bjömssonar á fimmtudags- og anum og síðan frá 17. maí 1949, í Tjarnarcáfé, en þar lék hljóm- sveit hans fyrir dansi á fjórða ár við miklar vinsældir. • Skipulagsbreyting 1953 Árið 1953 gerði Kristján Krist- jánsson algera skipulagsbreyt- ingu á hljómsveit sinni, tók þá upp eftirfarandi hljóðfæraskip- un, sem síðan hefur að mestu haldist: Píanó, altó-sax, guitar, víbrafón, kontrabassa og tromm ur. Eftir þessa breytingu, sem þá var gerð samkvæmt nýjustu kröfum þess tíma, komst K.K.- hljómsveitin í frémstu röð jazz- og danslagahljómsveita hérlend- is sem erlendis. Alla tíð síðan hefur K.K. sextettinn leitazt við að fylgja þróuninni og jafnan mætt kröfum fólksins á hverjum tíma, ef svo mætti segja. Nýlega hefur hann t.d. bætt við tenór- jáns Kristjánssonar og hlotið þaT af sinn söngframa. Enn mætti hér til nefna fleiri, enda eru þeir orðnir æði margir dægurlagasöngvararnir, er K.K. hefur „uppgötvað" og kynnt á þessum árum. Sextettinn stóð líka oft fyrir sérstökum kynn- ingarhljómleikum í þessu augna- miði. laugardagskvöldum. Hér hefur stuttlega verið rak in ferill K.K.-sextettsins. — En aldrei má láta staðar numið, eins og fram kom í orðum Kristjáns Kristjánssonar sjálfs í upphafi þessara hugleiðinga. Hann held- ur áfram og hljómsveit hans að betrumbæta flutning og túlkun sem endranær. Kyrrstaða í þess- viðfeldnu söngkonu, Díönnn Magnúsdóttur, sem nú syngur með hljómsveitinni, hefur Krist- ján samæft kvartett? og tríó-söng innan hljómsveitarinnar, en í því eiga einnig mikinn þátt útsetj- arar sveitarinnar, þeir Jón Sig- urðsson og Ólafur Gaukur, sem eru nú eins og m. f. mynd sýnir meðlimir hennar. Hefur þetta mjög aukið á blæbrigði í flutn- ingi hljómsveitarinnar og fært aukna gleði þeim áheyrendum, sem löngum áður höfðu sönginn einan sér til dægrastyttingar og hátíðabrigða. En hvað um það. Hinir úngu, efnilagu hljómlistarmenn þjóð- ar okkar verða að gera sér grein fyrir ábyrgð þeirri, sem á þeim hvílir, — eins og Kristján sagði. — Það er hreint enginn leikur að verða sér og stétt sinni til sdma. Framundan er ör þróun og sífellt harðnandi samkeppni. Gæti það ekki orðið heilladrjúgt okkar tónlistarmönnum að gera að einkunnarorðum hina ströngu en hollu reglu Kristjáns Krist- jánssonar: Þeir fyrstu hljómleikar, sem K.K. hélt af þessu tagi voru í Austurbæjarbíói í júní og 5. júlí 1954, en þá höfðu um 30 söngvar- ar óskað eftir þátttöku í kynn- ingarhljómleikunum. Tíu þeirra voru valdir og æfðir fyrir hljóm leikana og fengu flestir þeirra góða dóma. Húsfyllir var á öll- um þessum hljómleikum og und- irtektir blaða og almennings eftir því. Eitt dagblaðanna segir td.: ,,Telja má þessa nýbreytni hljóm sveitarinnar mjög virðingar- verða viðleitni til að auka á fjölbreytni í skemmtanálífi bæj arins og einnig að gefa ungu fólki kost á því að sýna sönghæfileika sína á opinberum vettvangi". En það má með sanni segja, að sumarið og reyndar allt árið 1954 hafi verið „topp“ ár hjá K.K., því auk þess sem hér að fráman getúr, þá fór hijómsveit- in í apríl í kynningar- og hljóm- leikaför til Skandinavíu. — Er það gleðiefni að sjá hvað hljóm- sveitin hlaut þá ágæta dóma í nágrannalöndum okkar. • Utanferðir Auk hljómleikahalds lék sveit in fyrir norska ríkisútvarpið í þessari för. Árið eftir, sumarið 1955, fór hljómsveitin aftur utan, þá til Þýzkalands og lék nokkra mánuði þar í landi. í Norðurlandasigurför sextetts ins var hann auk Kristján Krist- jánssonar, hljómsveitarstjóra, skipaður þessum mönnum: Gunn ari Sveinssyni, Eyþóri Þorláks- syni, Kristjáni Magnússyni, Guð- mundi Steingrímssyni, Jóni Sig- urðssyni og síðast en ekki sízt hinum „sígilda" söngvara Hauki Mortens. En það var mál manna, og kom um efnum táknar beinlinis aftur- för. Því meiri sem fjölbreytnin er og túlkunin fjölhæfari, því meiri vinnu- og mússíkgleði hjá hljómsveitinni og aukin skemmt- un hjá gestum hússins. • Söngur með hljómsveitum vaxandi Músíktízkan er sífelldum breytingum háð eins og annað í hinum listræna heimi. Söngur með hljómsveitum hefur t.d. far- ið mjög í vöxt hin síðari ár og ekki hefur K.K. látið sitt eftir liggja á því sviði. Auk hinnar I) Árni Scheving, vibrafónleik- ^ i ari; Þórarinn Ólafsson, píanó- ( , leikari; Guðmundur Stein-r ) grímsson, trommuleikari; Di-J \ ana Magnúsdóttir, söngkona; 1 ^ Kristján Kristjánsson, hljóm- \ i sveitarstjóri, Alto-Sax; Jóni ’ Sigurðsson, útsetjari; Gunnar? 1 Ormslev, tenor-Saxófónieikari 1 \ og Ólafur Gaukur, gítarleikari, \ ^ útsetjari. ^ Vinna og aftur og aftur œfing. E. B. vinna, æfing Malmquist. AHir bóbaunnendur þurfa að lesa EIMREIÐINA. Frá því fyrir aldamót hafa allir fremstu rithöfundar, skáld og menntamenn þjóðarinnar skrifað í EIMREIÐINA. EIMREIÐIN er tímarit vandlátra lesenda í öllum stéttum, sem meta kunna fagrar bókmenntir og listir, og taka þær fram yfir dægurflugur og stundarglamur. Nýir áskrifendur geta fengið nokkuð, af eldri árgöngum EIMREIÐARINNAR með hagkvæmu verði. Gerizt áskrifendur að EIMREIÐINNI. Áskriftargjald árgangsins aðeins Jt*-, 100.00 (3 hefti 228 bls). Áskriftarsími 1 61 51 — Pósthóif 1127. EIMREIDIN Stórholti 17 — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.