Morgunblaðið - 29.03.1961, Page 1

Morgunblaðið - 29.03.1961, Page 1
24 síður 48. árgangrur 73. tbl. — Miðvikudagur 29. marz 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vélbáturinn Auður djúpúðga á siglingu við Skagaströnd. — Myndin er tekin skömmu áður en báturinn lagði upp í síðustu siglingu sína. Við fgramsiglu stendur Bernódus Guðjónsson. Ljósmynd: Þórður Jónsson. Vélbáturinn „Auður tíjúpúöga" er talinn af Með honurn fórust tveir menn Náin samstaða framsóknar og kommúnista einkenni útvarpsumræðnanna MALFLUTNINGUR fram- ■óknarmanna í útvarpsum- ræðunum í gærkvöldi var nákvæmlega hinn sami og kommúnista, svo að líkast var, að um einn flokk væri að ræða. Einna kátlegast var, þegar fulltrúar beggja töldu Kennedy Bandaríkjaforseta til síns flokks og að við ís- lendingar ættum að fylgja stefnu hans í efnahagsmál- um. Var engu líkara en þeir bandamenn vildu kref jast bandarískrar yfirstjórnar yf- ir efnahagsmálum íslend- inga. Síðastur stjórnarandstæð- Inga talaði Hannibal Valdi- marsson og æsti sig í lok máls síns upp í hótanir um Verkföll áður langt liði. Ingólfur Jónsson landbún- aðarráðherra benti á í ræðu íiinni, að ríkisstjórninni hefðu orðið þessar útvarpsumræður hagstæðastar vegna þess að þjóðinni hefði gefizt kostur á að kynnast til hlýtar stefnuleysi stjórnarandstöð- unnar. —- Stjórnarandstaðan hefði engin úrræði tiltæk og hefði því tekið þann kost að vera á móti öllu, sem ríkis- stjórnin hefði fram að færa. Fernt til athugunar Birgir Kjaran sagði, að mál- flutningur stjórnarandstæðinga í fyrrakvöld hefði gefið tilefni til samanburðar á verkum vinstri stjómarinnar og núverandi rik- isstjórnar. í þeim samanburði Bangkok, Thailandi, 28. marz. — (Reuter) — Suðaustur-Asfu-handalagið (SEATO) hélt í dag áfram að ræða Laosmálið og undir- húa ályktun, þar sem talið er að aðildarríkin lýsi yfir samhljóða ákvörðun um að koma í veg fyrir valdatöku kommúnista í Laos. Fulltrú- ar Frakka voru andvígir því kæmu einkum 4 spurningar til at- hugunar: 1. Hvernig var efnahagsástand- ið, þegar vinstri stjórnin lét af völdum? i 2. Hvernig hefði þjóðinni vegn- að, ef þeirri stefnu hefði verið haldið áfram? 3. Hvað hefur núverandi ríkis- stjórn gert á sv'iði löggjafar, sem til úrbófca hefur miðað? 4. Hvaða árangur hefur orðið af þessari löggjafarstarfsemi? Sagði Birgir, að aðstandendur V-stjórnarinnar hefðu sjálfir svar að 1. spurningunni bezt, en þeir hefðu lýst því yfir að atvinnulífið hefði verið helsjúkt þegar vinstri stjórnin fór frá, ný verðbólgu- skriða skollin yfir og engin sam- staða væri innan stjórnarinnar um úrræði. Jónas Haralz efnahagsráðu- nautur vinstri stjórnarinnar hefði svarað 2. spurningunni, en hann hefði lýst því yfir, að ef ekkert hefði verið aðhafzt hefði vísital- an verið komin upp í 270 stig haustið 1959 úr 185 stigum 1958. Sem svar við 3. spurningunni mætti minna á efnahagsráðstaf- anirnar á sl. ári og ýmsar hliðar- ráðstafanir þeirra. Framh. á bls. 17. Nurnberg, V-Þýzkal. 28. marz (NTB-Reuter). — TÉKKNESK flugvél af gerðinni IIyusin-18 hrapaði til jarðar í kvöld í nánd við Nurnberg. í vél- inni voru 52 manns og biðu allir bana. Vélin var á leið frá Prag til Ziirich í Sviss er hún hrapaði um 30 kílómetrum frá Nurnberg. Slökkviliðið var kallað á slysstað inn frá nærliggjandi borgum, en sprenging hafði orðið í vélinni er hún lenti á jörðinni og var björg að hafa ályktunina of harð- orða, en viðurkenndu nauð- syn aðgerða. Meðan ráðstefnan stendur yfir í Bangkok, herast stöð- ugt fréttir um áframhald- andi birgðaflutning Rússa til sveita Pathet Lao í Laos. Og enn er beðið svars frá Rúss- um við tillögum Breta um samvinnu til að koma á vopnahléi í landinu. VÉBATURINN Auður djúp- úðga er nú talinn af. — Leit hefur verið haldið uppi svo sem fært hefur verið frá því að tilkynnt var síðastliðið föstudagskvöld að um bátinn un útilókuð. Brak úr vélinni var dreift yfir 300 metra langt svæði. Sjónarvottur að slysinu kvaðst hafa heyrt flugvélina nálgast. Svo hafi heyrzt sprenging. Hljóp maðurinn þá út og sá vélina mjög lágt á lofti og logaði í henni. Svo féll vélin til jarðar, lenti á akri og splundraðist .við sprengingu. Þetta er annað flugslysið hjá tékkneska flugfélaginu á þessu ári. Hið fyrra varð 14. jan. s. 1. er Ilyushin-14 vél hrapaði nálægt Prag. Fórust þar tíu manns. Fulltrúi Thailands, nágranna- ríkis Laos, var mjög ákveðinn í að meðlimaríkjunum bæri að grípa til hverra þeirra aðgerða er á þyrfti að halda til að hindra frekari framsókn komm- únista í Laos. Kvað hann ríkis- stjórn sína reiðubúna til að senda herlið til landsins, ef um það væri beðið. HOME HEIM Var talið að ráðstefnan birti yfirlýsingu sína í kvöld og helztu fulltrúarnir héldu heim Framh. á bls. 23. væri óttazt. í gær voru leit- arskilyrði góð og tóku þá tvær flugvélar þátt í henni, hæði landhelgisvélin Rán og björgunarflugvél Björns Páls sonar. Skip tóku einnig þátt í leitinni. Leitarsvæðið var Straumnes og strandlengjan með Húnaflóa allt vestur að Hornbjargi. Einnig var leit- að djúpt á haf út. Grimsby, 28. marz. — (Reuter) TOGARAMENN í Grimsby lýstu því yfir í dag að brezk- íslenzka samkomulagið í fiskveiðideilunni hefði þegar kostað fiskiðnaðinn þúsund- ir sterlingspunda og að langt sé síðan páskalandanir brezkra togara hafi verið jafnlélegar og nú. 1 dag var aðeins Iandað 775 lestum í Grimsby, 315 lestum minna en sama dag páskavikunnar í fyrra. Sam- tals eru mánudags- og þriðju dags-landanirnar í ár 635 lestum minni en á sama tíma í fyrra. Fiskverðið hef- ur hækkað stórkostlega og Henry Hálfdánarson forstjóri Slysavarnafélags íslands skýrði blaðinu frá því í gærkvöldi að svo vel hefði nú verið leitað að óhugsandi væri að nokkur stærri hlutur úr bátnum hefði farið fram hjá leitarmönnum, sem flugu mjög lágt og hefðu því auðveldlega séð hvort heldur væri um að ræða brak eða gúmm bát við eða á ströndinni. Einnig hefðu þeir séð spor i snjónum ef einhver hefðu verið. Ekki komizt fyrir Horn Margt bendir til þess að bát- urinn h-afi . aldrei komizt fyrir Horn og því var öll áherzla lögð á að leita á HúnaiClóa. ísing lagðist á skip 1 óveðrinu um helg Framh. á bls. 23. verða f iskkaupmenn að greiða allt að £20 fyrir kitt- ið af kola frá íslandi (kr. 34,00 pr. kíló) og £11 fyrir kittið af ýsu (kr. 18,50 pr. kíló). Dennis Welch skipstjóri, formaður félags yfirmanna á togurum í Grimsby, sagði í dag: — Menn eru að kenna slæmu veðri um, en við er- um sannfærðir um að nýja samkomulagið á ríkan þátt í fiskskortinum. Þetta er á- bending um það sem við verðum að búa við í fram- tíðinni úr því búið er að útiloka skip okkar frá svo mörgum fengsælum fiski- miðum. SEATO ráðstefnunni lokið 52 farast í flugsiysi Ýsan á kr. 18,50 kg. Brezki íiskiðnaðurinn hefur tapað þús- undum sterlingspunda, segja togaramenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.