Morgunblaðið - 29.03.1961, Blaðsíða 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 29. marz 1961
DÆTURNAR VITA BETUR
SKALDSAGA EFTIR RENEE SHANN
19
— Ég skil- En bara að þetta sé
nú rétt athugað hjá yður.
—bað er ég viss um, að það
er, og þessvegna neita ég að
gefa samþykki mitt til þessarar
trúlofunar. Eða að minnsta kosti
til hjónabands. Ég get vitanlega
ekkert við því sagt, þó að hún
trúlofi sig, en ég get ekki og vil
ekki, að hún giftist ennþá sem
komið er. En ef þér getið ein-
hvernveginn hjálpað mér.. og ef
samkomulagið batnar hjá okkur
Philip eftir að hún er gift.. Nú
bilaði röddin, og tárin náðu valdi
yfir henni. Hún greip höndum
um andlitið. — Afsakið þér. . ég
gat bara ekki að því gert. Mér
líður svo illa.
—Það er allt í lagi, frú Wells..
ég er svo alvanur þvi, að kven-
sjúklingar mínir fari að gráta
Vitanlega get ég hjálpað yður,
en það tekur bara dálítinn tíma.
Margot hágrét nú. — Það er
víst alltsaman mér að kenna.
Eða að mestu leyti, að minnsta
kosti, sagði hún milli gráthvið-
anna. — Ég veit, að ég er erfið
í umgengni, en það kemur svo
mikil beizkja ujSp í mér, þegar
ég er með Philip. Síðustu mán-
uðina hefur það farið hríðversn-
andi. Því afskiptalausari sem
hann hefur orðið um mig, því
verr hefur mér liðið, og af því
að mér líður illa, verð ég svo
skapill og andstyggileg. Ég heyri
sjálfa mig hreyta í hann verstu
ónotum. Ég veit vel, að ég ætti
ekki að gera það, en það er eitt-
hvað, sem rekur mig áfram....
Hún leit upp og á vingjarnlega
andlitið á manninum, sem sat and
spænis henni. — Þér haldið ekki
að ég sé að missa vitið, er það?
Stundum finnst mér það sjálfri.
Ég veit ekki hvernig ég er....
— O, þér eruð ekkert í þann
veginn að missa vitið, frú Wells.
— Líklega er ég alt of full af
sjálfsmeðaumkun?
— Já, dálítið, kannske.
— Mér finnst alltaf, að ég hafi
borið svo skarðan hlut frá borði
í lífinu.
— Ef þér heyrðuð sumar aðr-
McClune er illa við afskipti
lögreglunnar og hægfara réttlæti
hennar. Hann hefur ætíð sjálfur
ar sjúkrasögur mínar, myndi yð-
ur ekki finnast það.
Hún andvarpaði skjálfandi.
— Líklega ekki. Að mörgu
leyti hef ég víst ekki yfir neinu
að kvarta. Eg á indælis hús. Eg
hef nóga peninga, sem mundi víst
þykja bærilegt nú á dögum. Eg
á indæla dóttur og góðan eigin-
mann. Ef bara maðurinn minn
elskaði mig ennþá . . .
— Það er nú einmitt það, sem
að yður gengur — þessi hræðsla
um að hann geri það ekki.
— Nei, vissan um það.
Læknirinn færði til blekbyttu,
sem stóð á borðinu. — Mér skilst,
að hjá horugu ykkar sé um neina
ást á öðrum að ræða . . . ?
— Ekki hjá mér, að minnsta
kosti. Stundum hefur mér dottið
í hug, að væri svo, gæti það ef
til vill verið lausn á málinu.
— Ekki vil ég nú segja það. En
hvað um manninn yðar?
Margot hristi höfuðið. — Eg
býst ekki við, að hann sé heldur
með hugann neitt annarsstaðar.
Eftir því, sem ég bezt get séð,
hefur hann engan áhuga á öðrum
konum.
Læknirinn brosti. —- Jæja, þá
þurfið þér að minnsta kosti ekki
að hafa áhyggjur af því!
— Þótt undarlegt sé, finnst
mér það bara engin huggun. En
líklega ætti það að vera. Ofurlítið
bros færðist um varir hennar. En
svo hvarf það og áhyggjusvipur-
inn breiddist yfir andlitið. — Ef
ég kæmist að því, að önnur kona
væri í spilinu, held ég að ég yrði
alveg vitskert. Slæmt er það
núna, en þá yrði það þúsund sinn-
um verra. Eg gæti bókstaflega
ekki afborið það. Eg . . . ég . . .
Hún hækkaði röddina í miklum
taugaæsingi . . . ég mundi fremja
sjálfsmorð, ef það yrði.
— O, sesei nei, það munduð
þér aldrei gera, frú Wells. Bein-
línis af því, að ég ætla að koma
yður á aðrá skoðun á þessu öllu.
Auk þess . . . já, auk þess verður
þetta bara aldrei.
— Guð minn góður, það vona
tekið að sér að refsa mönnum á
sinn frumlega hátt.
— Eg er reiðubúinn Guli Björn
. . . Náðu í Markús!
ég heldur ekki. Stundum, þegar
allra verst liggur á mér, er ég
hrædd um það. Að enda þótt Phil
ip sé svona áhugalaus um konur
eins og hann er, þá geti einhver
komið, einn góðan veðurdag, sem
gerir hann vitlausan í sér . . .
sem getur veitt honum allt, sem
ég hef ekki getað veitt honum.
— Það er engin hætta á því,
ef samkomulagið batnar hjá ykk-
ur.
Hún leit á hann og nú togaðist
á um hana annars vegar sú vissa
að ef hún fæli lækninum allar
sínar áhyggjur, gæti hann látið
kraftaverkið gerast, og hins veg-
ar sú næstum eins sterka vissa,
að þetta kæmi ekki til nokkurra
mála. Þetta ófriðarástand milli
þeirra hjónanna var orðið allt of
langvinnt til þess. Hún hafði far-
ið of sent til læknisins. En var
það nú víst? Hafði hún ennþá
einhvern vonarneista?
•— Hvernig get ég stillt mig um
að segja hitt og þetta, sem ég
veit að æsir ófriðarbálið milli
okkar?
— Með því að losa yður við
löngunina til þess að segja það.
Það verður ekki nema með hugar
farsbreytingu. Og þar hef ég ein-
mitt von um að geta hjálpað yð-
ur.
— Eg skyldi verða yður þakk-
lát til eilífðar ef þér gætuð það.
— Eg ætla að reyna það. Hann
dró til sín viðtalstímabókina. —
Á morgun ætla ég í sumarleyfi
svo að við getum því miður ekki
byrjað á þessu strax. En eftir
hálfan mánuð . . . gætuð þér
komið til mín þann 28. n.k., á
sama tíma dags?
— Já, það skal ég gera.
Hann stóð upp og rétti henni
höndina. — Verið þér nú sælar,
frú Wells og reynið að gera yður
ekki ofmiklar áhyggjur út af
þessu.
— Það er nú hægar sagt en
gert. En mér líður strax betur
eftir þetta samtal okkar, þó að
ég viti, að jafnskjótt sem ég er
komin út úr stofunni yðar . . .
— Jæja, Markús . . . Eg vona
að ekkert sé að og þú tilbúinn að
berjast!
— Það er allt í lagi með mig
ja, það er nú gallinn á þessu.
Skapið hjá mér getur breytzt á
einni svipstundu. Eftir stutta
stund get ég verið búin að missa
allt traustið, sem ég hef nú á
yður.
-— Þér eruð að minnsta kosti
hreinskilin. Allt, sem ég bið yð-
ur um, er að reyna að missa það
ekki, heldur telja sjálfri yður
trú um, að ég geti komið öllu í
lag fyrir yður.
VI.
— Ó, Cynthia, hvað það var
gaman að sjá þig!
Cynthia brosti. — Komdu bless
uð! Eg er búin að hlakka svo til
að hitta þig, og heyra allar frétt-
irnar af þér.
— Þær eru nú ekki sem beztar.
— Þetta var. Nigel að segja
mér. En þú verður að segja mér,
hvernig þetta hefur gengið. En
fyrst verðum við að fá okkúr te.
Hún benti þjóninum og gaf hon-
um pöntunina. Svo hallaði hún
sér aftur í þægilega hæginda-
stólinn og leit á ungu stúlkuna,
og fór að hugsa um, hve lík hún
væri pabba sínum — þessum
manni, sem hún sjálf hafði elsk-
að svo heitt, endur fyrir löngu,
þegar hún var hér um bil á sama
aldri og Janet nú. Hvers vegna
hafði hún aldrei sagt Janet, að
þau hefðu þekkzt? Einhver eðlis-
ávísun, líklega — einhvern sjálfs
varnarhvöt — hræðslan við, að
slíkt tal gæti blásið upp í gömlum
glæðum. Og í kvöld átti hún að
hitta hann. Hafði hún verið
heimsk, þegar hún þá boðið hjá
Janet að koma og heilsa upp á
foreldra hennar?
En það hafði verið ákveðið
svo undirbúningslaust og lítt
hugsað, fannst henni. Hún skildi,
að Philip hafði verið staddur inni
í stofunni, þegar Janet talaði við
hana í símann, og hafði látið
skila, að það væri honum ánægja
að hitta hana. Hefði hann eitt-
hvað hikað og farið að hugsa sig
um, hefði hún sjálf fundið ein-
hverja afsökun, þegar Janet hefði
McClune . . . En það er aðeins
eitt, sem mig langar til að minn-
ast á áður!
endurtekið heimboðið. En það var
greinilegt, að hann kveinkaði sér
ekkert við að hitta hana. Og
hvað ætti hún þá að vera að hika?
Sflíltvarpiö
Miðvikudagur 29. marz
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimj — 8.15 Tónleikar
— 8.30 Fréttir — 8.35 Tónleikar —
9.10 Veðurfregnir — 9.20 Tónl.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar — 12.25
Fréttir — 12.35 Tilkynningar —
Tónleikar).
12.55 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Miðdegisútvarp (Fréttir — 15.05
Tónleikar — 16.00 Fréttir, veður-
fregnir og tilk. — 16.05 Tónl.).
18.00 TJtvarpssaga barnanna: „Petra
litla“ eftir Gunvor Fossum; III.
(Sigurður Gunnarsson kennari).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir — Tónleikar.
19.00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir og skíðarabb.
20.00 Framhaldsleikrit: ,,Ur sðgu For-
syteættarinnar" eftir John Gals-
worthy og Muriel Levy; sjöundl
kafli þriðju bókar: „Til leigu'*.
í>ýðandi: Andrés Björnsson. —
Leikstjóri: Indriði Waage. Leik-
endur: Þorsteinn Ö. Stephensen.
Margrét Guðmundsdóttir, Helgi
Skúlason, Herdís Þorvaldsdóttir.
Hóbert Arnfinnsson, Hildur Kal-
man, Baldvin Halldórsson, Bríet
Héðinsdóttir og Jónas Jónasson.
20.30 Einsöngur: Jón Sigurbjörnsson
syngur; Fritz Weisshappel við
píanóið.
a) ,,Þó þú langförull legðir" eftir
Sigvalda Kaldalóns.
b) ,,Bikarinn“ eftir Markús Krist
jánsson.
c) Tvö lög eftir Schumann: „Wan
derlied'* og „Die belden Grena
diere“.
d) „Söngur ferjumannanna á
Volgu“; rússn. þjóðlag.
20.50 Vettvangur raunvísindanna: Örn-
ólfur Thorlacius fil. kand. kynnir
enn starfsemi fiskideildar At-
vinnudeildar Háskólans.
21.30 „Saga mín“, æviminningar Pader-
ewskys; VIII. (Arni Gunnarsson
fil. kand.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (46).
22.20 Spjall um veðrið og fleira (Páll
Bergþórsson veðurfræðingur).
22.35 Harmonikuþáttur (Högni Jóns-
son og Henry J. Eyland).
23.10 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 30. mar?
(Skírdagur)
9.00 Fréttir.
9.10 Veðurfregnir.
9.20 Morguntónleikar:
a) Frá Casals-hátíðinni í Porto
Rico 1959:
1. Concerto grosso f g-moll op.
6 eftir Handel (Hátíðarhljóm
sveitin leikur; Pablo Casals
stjórnar).
2. Aríur og dúett úr kantötum
eftir Bach (Eileen Farrell og
Norman Farrow syngja).
b) Píanósónata í Es-dúr op. 31 nr.
3 eftir Beethoven (Wilhelm
Bachaus leikur).
c) Sinfónía nr. 97 í C-dúr eftir
Haydn (Hljómsveit Ríkisóper-
unnar í Vín leikur; Hans Swar-
owsky stjómar).
11.00 Messa í Fríkirkjunni (Presturt
Séra Þorsteinn Björnsson. Organ
leikari: Sigurður ísólfsson).
12.15 Hádegisútvarp.
12.45 „Á frívaktinni“, sjómannaþáttur
í umsjá Kristínar Önnu Þórarins
dóttur.
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Jean Doyen leikur á pfanó
sónötu í As-dúr op. 39 eftir
Weber, þrjár kaprísur op. 76
eftir Brahms og ballötu í F-dúr
op. 38 eftir Chopin (Hljóðritað
á tónlistarhátíðinni í Chartres
sl. sumar).
b) Sönglög eftir Schubert (Adele
Stolte syngur).
c) Kvintett í Es-dúr op. 44 eftir
Schumann — (Jan Hoffmann
píanóleikari og Erben-kvart-
ettinn flytja).
15.30 Kaffitíminn: — (16.00 Veðurfr.L
a) Georg Kulp harmonikuleikari
og félagar hans leika.
b) Lulu Ziegler og Gustav Winkl
er og kór syngja.
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Gyða
Ragnarsdóttir og Erna Aradóttir).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Þetta vil ég heyra: Thor Vil-
hjálmsson velur sér hljómplötur.
19.10 Tilkynningar.
19.30 Fréttir og skíðarabb.
20.00 „Morgunverður í grængresinu":
Um sænska skáldið Carl Michael
Bellman (Sveinn Einarsson íil.
kand. tekur saman dagskrána*
sem er hljóðrituð í Stokkhólmi).
20.30 Efst á baugi (Björgvin Guðmunds
son og Tómas Karlsson).
21.00 Nútímatónlist: Pétur Þorvalds-
son sellóleikari og Gísli Magnús-
son píanóleikari flytja sónötu op.
40 eftir Sjostakovitsj.
21.30 Erindi: Örlagaspá Einars Bene-
diktssonar (Séra Sigurður Einars
son).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (47).
22.20 Kvöldtónleikar: Birgit Nilsson
syngur óperuaríur eftir Beethov-
en og Weber; hljómsveitin FíN
harmonía í Lundúnum leikur und
ir. — Stjórnandi: Heinz Wall-
berg.
23.00 Dagskrárlok.
Skáldið og mamma litla
1) Mikið ert þú dugleg stúlka að
ijálpa mömmu þinni að leggja á
iorð.
2) Ég hjálpa ekki mömmu að 3)
leggja á borð....
, ..ég hjálpa pabba!
a
r
k
ú
á
Hating the
POLICE FOR
INTERFEPENCE
AND SLOW
JUSTICE,
HUNT AACCLUNE
HAS ALWAYS
TAKEN
PUNISHMENT
INTO HIS OWN
HANDS, AND
METED OUT
JUSTICE »N HlS
PECULIAR WAY
I'M READY, YELLOW
BEAR...BRING
TRAIL OUT/
I'M OKAY, MR.
McCLUNE... BUT
THERE'S ONE THING \
l'D LIKE TO SAY I
TO YOU FIRST/ J