Morgunblaðið - 05.04.1961, Blaðsíða 6
6
MORGVNBtAÐlÐ
MiðviKudagur 5. apríl 1961
ankerspil. Þá er í skipinu vökva-
knúinn sleí- eða togkrókur,
mjög fullkominn. Er slíkt alger
nýjung hér á landi.
„Lóðsinn“ á siglingu við Vestmannaeyjar í gær.
Nýr hafnsögubátur
til Vestmannaeyja
f GÆR kom til Vestmannaeyja
nýr hafnar- og dráttarbátur af
nýjustu og fullkomnustu gerð frá
Norðanáhlaup
við Djúp.
PÚFUM, N.-ísaf,, 28. marz. —
Laugardaginn 25. þ.m. um kl. 10
til 11 fyrir hádegi gerði eitt versta
norðanáhlaup, sem hér hefur
lengi komið. Margir bændur voru
búnir að láta féð út á haga og
lentu í hinum mestu erfiðleikum
við að ná því í hús. Það tókst þó
yfirleitt, en ekki fyrr en seint um
daginn sums staðar.
Verst fór hjá Rafni Vigfússyni,
bónda á Hafnardal. Hann var úti
hjá fé sínu í sex klst. til varnar
því, að það færi í sjóinn. Stóð
hann allan timann yfir því og átti
fullt í fangi með að missa það
ekki, því að stórviðri var og
svartabylur, og ekkert afdrep,
þar sem féð var. Þó tókst hon-
um að bjarga meginhluta þess og
koma því í hús um nóttina, en
nokkrar kindur missti hann.
— P. P.
Vestur-Þýzkalandi. Hefur hafn-
sögubátnum verið valið nafnið
LÓÐSINN. Skipið reyndist í alla
staði ágætlega á uppsiglingunni,
þótt það hreppti hið versta veður.
Skorti klukkustund upp á, að
heimsiglingin tæki fimm sólar-
hringa.
Fyrir tæpu ári síðan, eða 21.
apríl 1960, undirritaði Jón f. Sig-
urðsson, hafnsögumaður, f. h.
Hafnarsjóðs Vestmannaeyja, sem)
um hafnsögu- og dráttarbát fyrir
Vestmannaeyjahöfn við skipa-
smíðastöð Ernst Menzer í Geest-
haoht við Saxelfi. Teikningu og
útboðslýsingu gerði Hjálmar R.
Bárðarson, skipaskoðunarstjóri.
Lýsing skipsins.
Skipið er 70 brúttó-tonn. Það
er 22,30 metra langt, 6,60 metra
breitt og 2,90 á dýpt.
Aðal aflvél skipsing er 500 ha.
Deutz-dieselvél. Ljósavél er ein
og vél til að knýja dælur, t.d.
við slökkvistarf og við að dæla
sjó úr skipum við björgun.
Ein 6 tonna vökvadrifin tog-
-K
Skipið er búið sjálfstýringu,
ratsjá, miðunarstöð og talstöð.
Enn fremur eru ýmisskonar björg
unartæki af nýjustu gerð þar
um borð.
Björgunarfélag Vestmannaeyja
gaf í skipið ratsjá, miðunarstöð
og talstöð.
Slysavarnafélagið Eykyndill
gaf ýmis björgunartæki. Gang-
hraði s'kipsins í reynsluferð var
10,5 sjóm. Skipið er sérlega vand
að að allri smíði og útbúnaði og
hefir reynzt mjög vel á leiðinni
heim.
Skipstjóri á heimsiglingu var
Tryggvi Blöndal, fyrsti vélstjóri
Erlendur Friðrik Ólafsson, stýri
maður Einar Sveinn Jóhannesson
og 2. vélstjóri Jón í. Sigurðsson-
Eigandi skipsins er HafnarsjóS
ur Vestmannaeyja, eins og fyr»
segir.
er eigandi bátsins, smíðasamning vinda er í skipinu og vökvadrifið
Þessir sigldu „Lóffsinum" upp til Islands (frá vinstrl): Jón 1.
Sigurffsson, hafnsögumaffur, 2. vélstjóri, Erlendur Friffrik Ól-
afsson, 1. vélstjóri, Tryggvi Blöndal, skipstjóri, og Einar
Sveinn Jóhannesson, stýrimaður.
Dufl á reki?
LANDHELGISGÆZLAN sendi
út aðvörun í fyrradag til skipa
um að sézt hefði á reki stór
hlutur, sem gæti verið dufl,
djúpt út af Húnaflóa, austan
við Strandagrunn. Mun hlutur
þessi hafa sézt frá brezkum
togara. í gær höfðu Landhelgis-
gæzlunni ekki borizt neinar nán
ari upplýsingar um rekald
þetta.
* Fjórir aldursflokkar
„bíó barna“
í miðvikudagsblaðinu í síð-
ustu viku var ofurlítið rætt
um ung börn og bíóferðir. í
skýrslu um þetta efni í
„Courier", blaði sem UNESCO
Menningar- og fræðslustofn-
un Sameinuðu þjóðanna gefur
út, er fjallað um rannsóknir,
sem gerðar hafa verið á áhrif
um kvikmynda á börn.
„Bíó börnunum“ er skipt í
fjóra aldursflokka. Upp að sjö
ára aldri eru börn talin nei-
kvæðir bíógestir: flestir þeir
sem rannsakað hafa þessi mál
teija að börn eigi alls ekki að
sjá kvikmyndir fyrr en þau
eru sjö ára gömul — að
minnsta kosti ekki nema í
fylgd með ábyrgum fullorðn-
um aðilum. Sambandið milli
hugarburðar og raunveruleika
er blátt áfram alltof losara-
legt til þess ennþá.
• Hrseða lítil börn
T. d. hefur dönsk kona,
Ellen Siersted rannsakað
áhrif kvikmynda á börn á
barnaheimilum, með hjálp
Ijósmyndara. Voru viðbrögð
barnanna mynduð, án þess að
þau vissu af, meðan þau
horfðu á ákveðnar myndir.
Það kom í ljós, að margar
teiknimyndir og Tarzanmynd-
ir hræða lítil börn. Sum grétu
og reyndu að komast út
(þ.e.a.s. þau sem voru frjáls-
legast uppalin þorðu að gefa
tilfinningum sínum lausan
tauminn), önnur fengu maga-
pínu, náðu varla andanum og
fengu hitasóttareinkenni, og í
þriðja lagi skýrðu foreldrar
frá því, að allt upp í hálft
ár á eftir hafi börnin verið
myrkfælin og „séð myndir úr
kvikmyndinni", þegar þau
áttu að fara að sofa. Þetta voru
sömu börnin, sem lýstu því
yfir að myndin hefði verið
skemmtileg og vildu alls ekki
viðurkenna að þau hefðu orðið
hrædd. Aftur á móti sýndu
myndir, sem teknar voru af
FERDINAIMP
Copyright P. I. B,, Bo* 6 Copenhagen
börnum meðan þau höfðu
dýramyndina „Barnaheimili
rándýranna“ og tékknesku
brúðumyndina „Jóladraumur“
aðeins glaðleg og róleg börn,
sem ekki sáust á nein hræðslu
merki. k
• Fara að skilja máliS
Næsti aldursflokkur er tal-
inn 7—12 ára. Það er „Robin-
son-aldurinn“, þegar „þykjast-
leikirnir“ verða meira og
meira að víkja fyrir spenn-
andi atburðum í lífinu. Börn-
in kynnast veröldinni eins og
hún er og geta tekið hlutlausa
afstöðu til myndarinnar og
fylgt efnisþræðinum.
Kvikmyndahúsin hafa þó
fyrst höfuðþýðingu á unglings
árunum þegar fer saman hrað-
ur þroski og mikil spenna
milli barnsins og umhverfis-
ins. T.il eru sálfræðingar, sem
vilja telja áhrif kvikmyndanna
á þessum aldri á borð við
áhrif heimilanna og skólanna.
Ekki aðeins af því að á þeim
aldri verða krakkarnir svo
æstir í kvikmyndir, heldur af
því að þá fyrst „skilja þau
málið“, eins og það er orðað.
Fjórði og seinasti aldurs-
flokkurinn á að byrja við
16—17 ára aldurinn, þegar
áhuginn fyrir kvikmyndum
stendur í nánu samibandi við
löngunina til að þrengja sér
inn í hinn dularfulla heim full
orðna fólksins.
Ekki verður farið hér
lengra út í hinar mörgu
skýrslur um þetta efni, sem
UNESCO hefur safnað. En í
lokin er látin í ljós ósk um að
tilsögn í „kvikmyndamáli“
verði í ríkara mæli gerð að
kennslugrein í skólunum en
hingað til. Nú þegar er það
gert í nokkrum löndum, með
Bandaríkin og Sovétríkin í
broddi fylkingar.