Morgunblaðið - 28.04.1961, Page 14
14
MORGVNBLÁÐIÐ
Föstudagur 28. apríl 1961
ÍJTGEFANDI: SAMBAND UNGRA S JÁL FSTÆÐISM ANNA
RITSTJÓRI: JAKOB MÖLLER
Ungir framsóknarmenn
og varnarmáf
TJNGIR FRAMSÓKNARMENN
bafa nú gert sig að viðundrun
með stefnu sinni í varnarmálun
um og þátttöku Islands í sam-
starfi vestrænna þjóða. Á aðal-
fundi samtaka sinna samþykkja
þeir ályktun um utanríkismál,
Taka þeir þar undir kröfu „fóst
bræðra sinna um að varnarliðið
verði rekið úr landi. Það er þó
ekki þetta, sem. undrun vekur,
þetta var alveg eftir þeim. Held
7 Heimdallarferðir í sumar
FERÐADEILD HEIMDALLAR hefur nú skipulagt starf-
semi sína fyrir sumarið og eru áformaðar 7 ferðir til hinna
fegurstu staða..
Fyrsta ferðin verður farin í Raufarhólshelli laugardaginn
24. júní, og verður í þeirri ferð einnig farið að Gullfossi
og Geysi og komið aftur til Reykjavíkur á sunnudagskvöld.
Önnur ferðin verður 8. júlí í Landmannalaugar og verð-
ur það sömuleiðis helgarferð.
Þriðja ferðin verður til Kerlingarfjalla laugardaginn 23.
júlí og komið aftur á sunnudagskvöld.
Fjórða ferðin verður um Verzlunarmannahelgina og
verður þá farin Fjallabaksleið nyrðri, Landmannaleið. Þetta
verður 3ja daga ferð. Farið á laugardegi og komið aftur
á mánudagskvöld.
Fimmta ferðin verður helgarferð í Surtshelli 19. ágúst.
Sjötta ferðin verður í Þjórsárdal 2. september og verður
einnig helgarferð.
Sjöunda og síðasta ferðin verður svo í Þórsmörk 16.
september og verður komið aftur sunnudaginn 17. sept.
Heimdallarferðirar hafa verið mjög vinsælar undanfarin
ár og er ekki að efa að svo reynist enn.
nr hitt, að ekki er minnzt einu
orði á Atlantshafsbandalagið í
þessari áiyktun né heldur á sam
skipti íslendinga við vestrænar
þjóðir- yfirleitt. Það er fiurðulegt
að æskulýðssamtök næststærsta
flokks þjóðarinnar skuli ekki
minnast einu orði á þessi mál,
sem hljóta þó að skipta miklu,
hver sem afstaðan til þeirra er.
Sama dag og þessi furðulega
ályktun birtist í Tímanum birtist
þar einnig grein eftir Heimi
Hannesson, sem verið hefur þar
blaðamaður. Grein þessi nefnist
„Utanríkismál og undirskrifta-
söfnun“ og hrekur hann þar rök
„hernámsandstæðinga“ í þessum
málum.
En eins og til þess að sýna, að
stefna Tímans í þessum málum er
ekki hin sama og Heimis, er grein
in birt undir „orðið er frjáls", en
það er nokkurs konar ruslakista
blaðsins.
Frá Heimdallarferð til Breiðaf jarðareyja.
Frá aSaliundi Þórs, FUS,
Rkranesi
Mikið starf á árinu
fyrir allri starfsemi félagsins.
Frá því aðalfundurinn var hald-
inn, hefur verið þar málfúnda-
starfsemi. Á fundunum hefur ver
Frh. á bls. 23
Guðni Grímsson og Sigfús Johnsen.
Hvítasunnuferð til
Vesfmannaeyja
HÉR í BÆNUM hafa verið stadd
ir undanfarna daga tveir af for
ustumönnum félags ungra sjáif
stæðismanna í Vestmannaeyjum,
þeir Sigfús Johnsen, form. félags
ins og Guðni Grímsson. Þeir
komu hingað til viðræðna við
sjórn S.U.S. vegna fyrirhugaðrar
Hvítasunnuferðar S.U.S. til Eyja.
Fréttamaður Æskulýðssíðunnar
spjallaði við þá nokkuð um starf
semi félags ungra sjálfstæðis-
manna í Eyjum í vetur.
Þeir kváðu starfið hafa gengið
vel og þátttaka verið góð. Helztu
þættir starfsins hafa verið fund
ir um þau mál, sem hæst hefur
borið hverju sinni og hafa þeir
fundir verið vel sóttir og þótt
takast vel í hvívetna, ennfremur
hafa verið haldin spilakvöld hálfs
mánaðarlega og hafa þau einnig
verið fjölsótt og tekizt prýðilega.
Þeir lögðu áherzlu á hið mikla
gildi, er Hvítasunnuferðirnar
hafa fyrir starf félagsins í Eyj-
um og fögnuðu því mjög, að þær
hefjast nú á nýjan leik, eftir að
hafa legið niðri síðustu ár. Með
þeásari férð hefst sumarstarf
félagsins í Eyjum, en fyrirhugað
ar eru nokkrar ferðir UPP á land
í sumar og eru þær einn liðurinn
í að styrkja félagsböndin innan
kjördæmisins.
AÐALFUNDUR Þórs, félags
ungra Sjálfstæðismanna á
Akranesi, var haldinn 27.
febrúar sl. í nýjum fundar-
sal, sem félagið hefur fengið
til afnota að Vesturgötu 48.
Hafa félagsmenn unnið . að
standsetningu salarins og
búið hann húsgögnum. Var
aðalfundurinn fyrsti fundur
félagsins í hinum nýju húsa-
kynnum.
Á fundinum fóru fram venju-
leg aðalfundarstörf. Ólafur Ingi
Jónsson, skrifstofum., sem verið
hefur formaður félagsíns síðast-
liðið starfsár, var endurkjörinn
formaður. Aðrir í stjórn voru
kjörnir: Einar J. Ólafsson, vara-
formaður, Oliver Kristófersson,
ritari, Sigurður Ólafsson, gjald-
keri, Jósef H. Þorgreisson, Hróð-
mar Hjartarson, Böðvar Jó-
hannesson. í varastjórn eru Gísli
Stefánsson og Sigurður Sigurðs-
son. í skýrslu stjórnarinnar köm
fram, að félagsstarfsemin hefur
verið þróttmikil á s.l. ári. Félagið
sá um rekstur samkomustaðar-
ins ölvers í Borgarfirði síðastlið-
ið sumar. Voru þar haldnar fjór-
ar skemmtanir, sem allar voru
vel sóttar. Félagið mun einnig
annast reksturs Ölvers á kom-
andi sumri. Vetrarstarfsemin
hófst með því/ að haldið var
stjórnmálanámskeið. Stjórnandi
þess var Árni Grétar Finnsson,
varaformaður S.U.S. Á námskeið
inu voru flutt erindi og æfingar
voru í ræðumennsku. Rætt var
um málefni kaupstaðarins og
landsmál almennt. Námskeiðið
var allvel sótt og fór hið bezta
fram. Fyrri hluta vetrar gekkst
félagið fyrir skemmtunum á
Hótel Akraness. Voru þær haldn
ar annan hvern sunnudag. Spiluð
var félagsvist, og síðan voru al-
mennir dansleikir á eftir. Eftir
áramót var svo spilað Bingó.
Með tilkomu hins nýja fund-
arsalar hefur verið greitt mjög<§-
Leiðrétting
Á SÍÐUSTU síðu var hér hér
nokkuð rætt um misnotkun
kommúnista á ríkisútvarpinu.
Var þar m. a. rætt um víðtal,
sem Stefán Jónsson átti við
bandarískan mann, sem hér hef*
ur dvalið að undanförnu vegná
galla á fisksendingum, sem keypt
ar hafa verið vestur í Ameríku.
Á eftir viðtalinu lét Stefán þau
orð falla, að „jafnvel í konungs-
ríki einkaframtaksins" væri ekki
leyft að selja skemmdan fisk.
Eins og von var til þótti mönnurrí
þetta illkvitnislegt orðalag og
var þess getið hér á síðunni. Rit-
stjóri síðunnar hefur nú fengið
nánari upplýsingar um þetta mát
Og við það sannfærzt um að
vegna aðstæðna hér heima átti
þetta orðalag rétt á sér. Ber þvl
að harma, að þetta skyldi gert
að ásteytingarsteini. Annað, sem
sagt hefur verið um misnotkun
útvarpsins hér á síðunni stendur
hins vegar x fullu gildi.
Stjórn Þórs, ÆF.U.S. Akranesi: Fremri röð,talið frá vinstri: Oliver Krlstófersson, Ólafur
Ingi Jónsson, formaður, Einar J. Ólafsson. — Aftari röð frá vinstri: Gísli Stefánsson, Sigurð-
ur Ólafsson, Sigurður Sigurðsson, Jósef H. Þorgeirsson og Hróðmar Hjartarson. Á myndina
vantar Böðvar Jóhannesson.