Morgunblaðið - 28.04.1961, Blaðsíða 22
22
MORGTiyBLAÐIÐ
Föstudagur 28. apríl 1961
Glsli Halldórsson:
Ijiróttahúsið að Káioga-
landi var bráðab irgðahús
En jboð hefur verið aðalvettvangur
islenzkra inniiþrótta
Á SÍÐASTA þingi ÍBK rakti
Gísli Halldórsson, formaður
samtakanna, gang mála varð-
andi íþróttamannvirkjagerð í um
Reykjavík undanfarna ára-
tugi. Hefur upphaf máls hans
áður verið birt hér í blaðinu
en hér á eftir fer sá kafli
ræðu hans sem fjallaði um
íþróttahúsið að Hálogalandi.
f.B.R. keypti íþróttahúsið við
Hálogaland árið 1944. Húsið var
í' upphafi byggt til þess að standa
í nokkur ár og því á engan hátt
vandað til þess sem skyldi. Þegar
við keyptum húsið var talið, að
það gæti staðið í 10—15 ár með
verulegum endurbótum. Til þess
að halda húsinu í nothæfu á-
standi og bæta þá aðstöðu sem
þar hefur verið, hefur verið lögð
um Yz millj. kr. í viðhald og
endurbætur á húsinu þann hálf-
an annan áratug, sem bandalagið
hefur átt húsið og rekið það.
Það hefur því verið eitt af
þeim málum, sem framkvæmda-
stjórnin hefur unnið að á ann-
an áratug, að leysa á farsælan
hátt úr þörf heildarinnar fyrir
keppnishús, en þar hafa mörg
vandamál verið á vegi okkar,
sum fjárhagslegs eölis en önnur
félagslegs.
Þegar B.Æ.R. var stofnað töldu
nokkur félög, að með því að ger-
ast aðilar að þeim' samtökum,
mundi þetta mál leysast, enda
var það eitt af höfuðstefnumál-
um B.Æ.R. að byggja stórt al-
hliða keppnishús, auk minni sala
fyrir tómstundastarf.
Nokkru eftir að þessi samtök
voru stofnuð, samþykkti bæj-
arstjórn Reykjavíkur að leggja
fram 50% af stofnkostnaði við
byggingu Æskulýðshallar, ef
byrjað yrði á byggingu íþrótta-
salar, er leyst gæti Hálogalands-
húsið af hólmi. íþróttahreyfingin
fagnaði að sjálfsögðu þessari
samþykkt og taldi að nú mundi
skriður komast á málið. Litið var
svo á, að ríkisvaldið mundi telja
sér skylt að leggja verulegt fé
í þessa byggingu, eftir að bæjar-
stjórn hafði gert áðurnefnda
samþykkt.
• Alþingi synjaði
Fyrst var leitað beint til Al-
þingis um stuðning við þessar
framkvæmdir, en þeirri mála-
leitan var synjað.
Eftir synjun þingsins leitaði
B.Æ.R. samninga við Í.B.R. um
byggingu hússins, en það var
gert til þess að hægt væri að
sækja um stuðning íþróttanefnd
ar ríkisins um styrkveitingu til
framkvæmdanna. Hjá íþrótta-
nefnd fengum við loforð um
stuðning við málið og hét hún
allt að 40% styrk út á bygging-
arkostnað hússins. Loforð þetta
var gefið út á væntanlega hækk-
un á framlagi til íþróttasjóðs, en
sú von brást. íþróttasjóður var
Og er mjög fjárvana og var málið
því komið í sjálfheldu, enda þótt
framkvæmdir hæfust um þetta
leyti við húsið.
• Bærinn styrkir
í ársbyrjun 1956 skipaði svö
borgarstjóri 5 manna nefnd til
þess að athuga möguleika á að
koma upp víðtækari samvinnu
byggingu þessa húss. Var
nefndinni settur þriggja vikna
frestur til þess að skila áliti um
málið. f nefnd þessari áttu sæti
fulltrúi borgarstjóra, fræðslu-
stjóri, framkvæmdastjóri Félags
íslenzkra iðnrekenda og formenn
B.Æ.R. og Í.B.R.
Nefndin skilaði áliti á tilsett-
um tíma og lagði til að komið
yrði upp íþrótta- og sýninga-
húsi, auk minni skála, sem nota
mætti við stærri vörusýningar.
Um haustið sama ár samþykkti
svo bæjarstjórn samning um
skiptingu byggingarkostnaðar
hússins og rekstursfyrirkomulag.
En eins og kunnugt er, mun bær-
inn greiða 51%, iðnrekendur
41% og f.B.R. og B.Æ.R. sjn 4%
hvor aðili. Jafnframt er þar reikn
að með, að f.B.R. eigi að sjá um
og reka húsið 7 mánuði ársins,
en iðnrekendur hina 5 mánuðina
að sumarlagi.
Framkvæmdir eru hafnar við
húsið og sjáum við nú hilla und-
ir þá stun^t, er við getum hætt
að notast við Hálogalandshúsið.
Langþráðu marki er því bráðum
náð.
Ég tel ekki ástæðu til að lýsa
hinu nýja húsi, þar sem hér er
mættur fræðslustjóri, sem er for
maður byggingarnefndar, en
hann hefur lofað að skýra frá
húsinu og væntanlegum fram-
kvæmdum yið það.
3 landsleikir
á einni viku
UM miðjan næsta mánuð mun
enska landsliðið keppa þrjá
Myndin er af Kristínu Jóns-
dóttur Ármanni. Hún vakti á’
sér athygli í leik Ármanns og
KR á sunnudaginn. Hýn var
ákveðin, snör og hugmyndarík
í Ieik sínum og átti einna mest-
an þátt í sigri Ármanns yfir
fyrrv. íslandsmeisturum KR.
Knattspyrnumenn gera strik
reikninginn í kauphöllinni
i
FLEST ENSK atvinnumanna-
félög eru eins og kunnugt er
hlutafélög og rekin samkvæmt
því. Hefur því velgengni félags
ekki aðeins áhrif á æstustu fylg
ismenn heldur og á verð hluta-
bréfa í kauphöllinni. Eins og önn
ur hlutafélög verða félögin að
birta reikninga sína og nú fyrir
stuttu voru reikningar allflestra
félaga birtir.
Reikningar þessir, sem eru fyr
ir árið 1960 eru fróðlegir yfirlestr
ar og þó einkum hvort félagi
hefur tekizt að hafa tekjur um-
fram gjöld eða ekki. Til gamans
skal hér birtiur listi yfir núver
andi I. deildarliðin og gefa töl
urnar til kynna hvort og hve
mikill gróðinn var, en þar sem
mínus er þýðir það svo og svo
mikið tap hafi orðið:
W ol verhampton
W. B. A........
Arsenal .......
Blackburn ....
Manchester U. ..
Sheffield W. ..
Tottenham ....
Bumley ........
Cardiff
Preston .......
Blackpool ....
Bolton ........
78.546 £
33.843 —-
32.267 —
31.667 —
29.744 —
24.123 —
23.070 —
13.654 —
8.124 —
7.352 —
4.920 —
4.185 —
Leicester
Birmingham
Chelsea
West Ham .
Newcastle
3.329 —
363 —
273 —
151 —
... -r- 7.540 —
N. Forest ...........-k 13.638 —
Aston Villa .........-4- 15.806 —
Everton .............-f- 49.504 —
Wolwerhamton, sem græddi
meira en nokkurt annað lið í
Englandi sl. ár eru núv. bikar-
meistarar og urðu þar að auki nr.
2 í deildarkeppninni. Mikla at-
hygli vekur hið mikla tap hjá
Aston Villa og Everton, og er
einkennilegt að Aston Villa, lið,
sem sigraði II. deild s.l. ár skuli
koma út með tap.
landsleiki á einni viku. Fyrsti
leikurinn verður gegn Portúgal
ög er hann í undankeppni heims-
meistarakeppninnar. Síðan mun
enska liðið fara til Ítalíu og leika
í Róm og síðasti leikurinn verður
gegn Austurríki.
Þar sem allir leikirnir eru á
útivelli hefur verið valinn 19
rnanna hópur til fararinnar og
eru það þessir:
Markverðir: Springett (Shef-
field W.) og Hodgkinsson (Shef-
field U.)
Bakverðir: Armfield (Black-
pool), McNeil (Middlesbrough)
og Angus (Burnley).
Framverðir: Robson (W.B-.A.),
Swan (Sheffield W.), Millc-r
(Burnley), Flowers (Wolver-
hamton) og Anderson (Sunder-
land).
. Framherjar: Douglas (Black-
burn), Connelly (Burnley), Grea
ves (Chelsea), Eastham (Arsen-
al), Smith (Tottenham), Hitc-
hens (Astón Villa), Haynes (Ful
ham), Byrne (Chrystal Palace),
og Charlton (Manchester U.).
Sá siður hefur lengi verið, að
enska landsliðið leiki kvöldið
fyrir úrslitaleik bikarkeppninnar
við landslið yngri leikmanna. Sá
leikur mun að venju fara fram
föstudaginn 5. maí n.k. og mun
enska landsliðið verða óbreytt
frá leiknum við Skotland að undi
anskildu því, að í stað Smith,
sem leikur í úrslitum bikarkeppn
innar, leikur Hitchens frá Aston
Villa. Landslið yngri manna hef-
ur verið valið og er þannig skip-
að: Macedo (Fulham), Angus
(Burnley), Ashurst (Sunder-
land), Shawcross (Manchester
City), McGrath (Newcastle),
Moore (West Ham), Paine
(Southampton), Hill (Bolton),
Byrne (Chrystal Palace), Robson
(Burnley Og Harris (Burnley).
Auk þessara leika mun enska
landsliðið keppa við Mexico niið-
vikudaginn 10. maí n.k. á
Wembleyleikvanginum í London.
Allra þessara leika er beðið
með mikilli eftirvæntingu þvi
enska landsliðið hefur átt góða
leiki undanfarið og er jafnframt
farið að tala um England sem
væntanlegan sigurvegara í heims
meistarakeppninni á Chile 1962.
— Skiðakappar
Framh. af bls. 6.
óhætt er að telja, að öllum skíða-
görpum ólöstuðum, að hann sé
fræknasti og vinsælasti skíða-
kappi landsins, verður honum
helgaður sérstakur kafli í lok
þessarar greinar.
Yngsti sonur þeirra Gottskálks
hjóna er GUÐLAUGUR. Hann
keppti við ágætan orðstír á lands
skíðamóti sem háð var hér á
Siglufirði 1932 og síðar á öðrum
skíðamótum.
Kunnastur mun þó Guðlaugur
vera fyrir skíðakennslu og
skipulagningarstörf við skíða-
mót. Átti hann því að fagna, að
vera einn af þeim mörgu er nutu
kennslu.hins ágæta norska skíða-
kappa Helge Torvöe og hygg ég,
að fáir hafi notfært sér þá
kennslu eins vel og hann. Þekki
ég engan, sem er honum snjall-
ari í þeirri list að íinna rétt
skíðaland þar sem bezt eru skil-
yrði fyrir gangbrautir, svigbraut-
ir, stökkbrekkur o. s. frv. og
skipuleggja keppni samkvæmt
því.
Sonur hans Birgir sem á fal-
lega sigra að baki sér, kornung-
ur að aldri, á bjarta framtíð fram
undan á skíðabrautinni.
Af því, sem hér hefir verið
sagt er það augljóst, að vagga
íslenzkrar skíðaíþróttar hefir
staðið á Siglufirði og í Fljóíum.
Afkomendur þeirra Gottskálks-
hjóna hafa unnið brautryðjenda-
starf á sviði íslenzkrar skíða-
íþróttar, sem seint verður full-
þakkað.
★
Eins og fyrr segir á JÓN ÞOR-
STEINSSON GOTTSKÁLKS-
SONAR fertugs afmæli 27. þ.
mán.
Fjögra ára gamall hóf hann
skíðagöngu á tunnustöfum, sem
móðurafi hans lagfærði fyrir
hann. Á. þessum farkosti renndi
hann sér niður úr Hvanneyrar-
skál í keppni við sér eldri drengi.
Tíu árum síðar, eða nánar til
tekið á Siglufjarðarmóti 1935
vinnur hann 18 km göngu.
Ári síðar er háð THULE-mót
í Reykjavík. Jón er þátttakandi,
dregur töluna 40 í 18 km. göngu,
kemur annar í mark, — vinnur
með glæsilegum yfirburðum. Á
sama móti er hann sigurvegari
bæði í stökki og svigi.
ANDVÖKU-bikarinn vinnur
hann þrisvar í röð til eignar.
Skíðabikar Islands vinnur
hann árið 1944 og 1947, — þannig
mætti lengi telja.
Allt er fertugum fært. Fyrir
tveimur árum síðan er hann ann-
ar í stökki á Reykjavíkurmóti
(1958).
Það er löngu viðtekin regla, að
afhenda sigurvegurum í íþrótt-
um verðlaun í viðurkenningar-
skyni. Eigi fer það þó ætíð sam-
an, að vinna hjörtu samkeppnis-
manna sinna, mótstjórnar og á-
horfenda og að hlotnast verð-
launagripi í formi bikara, gull-
peninga o. s. frv. Við, sem störf-
um að skipulagningu skíðamóta
þekkjum af reynslu, að því mið-
ur eru þeir til, sem fyllast of-
metnaði vegna sigurvinninga
sinna. Þetta hefir aldrei hent Jón
Þorsteinsson.
Ástæðurnar fyrir þessu eru
einfaldlega þær, að hann hefir
óvenju prúða og rólega fram-
komu. Hann stundar skíðaíþrótt-
ina vegna gildi íþróttarinnar
sjálfrar.
Öllum leik fylgir einhver á-
hætta, allsstaðar ræður heppni
eða óheppni einhverju, á þaS
ekki hvað sízt við um skíða-
íþróttina. Þetta veit Jón og hann
tekur því eins og sannur íþrótta.
maður. Hann hefir oft orðið fyrir
óhappi, hann tekur því æðru-
laust og brosir góðlátlega. Hafi
heppnin brosað við honum hefir
mér virzt, að það væri honura
næst skapi að biðja afsökunar.
Slíkur íþróttamaður vinnur
bæði verðlaunabikara og hjörtu,
Við sendum honum, Ingibjörgu
Jónasdóttir konu hans, börnum,
foreldrum og Gottskálksfjölskyld
unni allri beztu hamingjuóskir á
þessum tímamótum.
Sumardaginn fyrsta, 1961.
Aage Schiöth.
Framboðsfresfur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um
kjör fulltrúa á 3. þing Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna. Kjörnir verða 45 fulltrúar.
Listar þurfa að hafa borizt kjörstjórn fyrir kl. 24
laugardaginn 29. apríl n.k.
KJÖRSTJÓRNIN