Morgunblaðið - 03.05.1961, Side 8
ð
MORCVNMAÐ1Ð
Miðvik'udagur 3. maf 1961
AMERISKAR SKÁPALAMIR
PLAST RENNIBRAUTIR
FYRIR RENNIHURÐIR
BORÐPLAST
BORÐLISTAR
VERZL. DVERGHAMAR
LAUGAVEGI 168 — SÍMI 17296
Ónotaðar 5 tonna
Sturtur
til sölu. Verð kr- 18 þúsund
H. Jónsson & Co.
Brautarholti 22
Kópavogur - íbuð
Vil kaupa góða 2ja herb. íbúð í Kópavogi. Tilboð
sendist afgr. Mbl. föstudagskvöld, merkt:
„Mikil útborgun — 1926“.
Verkamer" ^ast strax
Upplýsingar á Laugavegi 10
milli kl. 5—6 1 dag.
Goði h.f.
TIL SÖLU
3/o og 4ja herh. íbúðir
á hitaveitusvæði í austurbænum. Sérhitaveita verð-
ur fyrir hverja íbúð. íbúðirnar seljast tilbúnar und-
ir tréverk og málningu eða fokheldar með mið-
stöð eða fullgerðar ef óskað er.
Nýja Fasteignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300
kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.
Hvers vegna rækta ég
kartöflur og grænmeti?
Á SÍÐUSTU 20 árum hef ég
fengizt við að rækta kartöflur
og grænmeti í kálgörðum Reykja
víkur. Ástæðan fyrir því að ég
hef verið að rækta þetta sjálfur
er sú, að með því hef ég fengið
bæði betri og. efnisríkari garð-
ávexti heldur en ef ég hefði
keypt þá af Grænmetisverzlun
ríkisins.
Þetta hefur mér tekizt á þann
hátt að nota í kálgarð minn mik-
inn húsdýraáburð en lítinn kem-
iskan áburð, ekki meira en 3 kg
á hverja 100 fermetra, og tel ég
það hæfilegt til þess að flýta fyr-
ir byrjunarvaxtartíma plantn-
anna, því húsdýraáburðurinn er
seinvirkari. Hins vegar er hús-
dýraáburðurinn betri og gefur
efnisríkari ávexti, og á ég þar
við allar tegundir garðávaxta.
Garðávextirnir verða við það
þéttari og bragðbetri og auk þess
geymast þeir miklu betur og
lengur.
Til útrýminf<ar illgresis tel ég
mjög varhugavert að nota mikið
af kemiskum efnum, og hefur
það gefið beztu raunina að nota
ekki nema um 2 kg af tröllamjöli
á hvérja 100 ferm. Til þess að
fá sem jafnasta dreifingu á því,
hef ég blandað saman við það
fínum sandi, og að mínum dómi
gefur það eins góðra raun eins
og að nota 15—20 kg af trölla-
mjöli en með því að nota svo
mikið af þvi, fær jarðvegurinn
allt of rh'ikið af köfnunarefni og
þar af leiðandi kemur vont bragð
af kartöflunum og af öllu því
grænmeti, sem þar er ræktað.
Rétt tel ég að þeir, sem rækta
garðávexti, géri tilraunir til þess
að rækta sem flestar tegundir, en
binda sig ekki við eina eða tvær
tegundir, og um leið þyrfti að
leiðbeina fólkinu um ræktunar-
aðferðir, um næringargildi garð-
ávextanna o. fl. Vil ég hér um
leið nefna eina jurt, sem er mjög
lítið þekkt hér á landi, en er
Bréfritari á ensku
hálfan daginn, óskast til Heildverzlunar í miðbænum.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Ensk bréfritun
—480“, sendist afgr. Mbl.
8/acfr//eéu/
HAR YÐAR ER í ÞORF FYRIR ECG...I
AUÐVITAÐ!
>að er BLACK-HEAD eggjashampoo
sem gerir hárið töfrandi fagurt.
Það er hið leeitín-ríka og nærandi
BLACK-HEAD eggjashampoo sem
gerir hárið silkimjúkt og lifandi.
BLACK-HEAD-þvegið hár er prýði
hverrar konu.
Heildsölu-
birgðir
STERLING HF
Sími 11977.
ágæt til bragðbætis, bæði í steik,
súpur o. fl., og er einnig talin
vera efnisrík. Hún heitir P a s t i
n a k (Pastinaca sativa). Það er
rótjurt, sem er auðvelt að rækta
hér og bregst yfirleitt ekki upp-
skera hennar.
Við að rækta margar tgeundir
garðávaxta verður meiri vinna
í görðunum, en þar á móti kem-
ur svo ánægjan af því að rækta
margar tegundir og nota þær svo
sjálfur í mat. Við að neyta sinnar
eigin framleiðslu eykst ánægjan
og um leið holl útiveran í görð-
unum.
Kostnaðarhliðin við ræktun
matjurtagarða eykst að sjálf-
sögðu nokkuð við kaup á miklum
húsdýraáburði, en samt borgar
það sig áreiðanlega með tilliti til
þess, að með því fæst miklu
meira næringargildi og hollari
fæða.
Og þá er ég kominn að öðru
helzta vandamáli í þessu mikla
og merkilega ræktunarmáli, en
það er geymsla garðávaxtanna
og yfir höfuð álls grænmetis.
Jarðhúsin við Elliðaárnar, sem
Grænmetisverzlunin á, hafa í
mörg ár tekið kartöflur til
geymslu, Og hafa þær geymzt þar
vel, en nú í haust hættu jarð-
húsin þessu og er það einkenni-
legt háttalag af hendi þess opin-
bera, þar sem fyrir nokkrum ár-
um árum voru teknar prósentur
af verði þeirra kartaflna, sem
Grænmetisverzlunin keypti af
Reykvíkingum, og var þetta fé
tekið í því augnamiði að byggja
með því kartöflugeymslur fyrir
Reykvíkinga. Síðastliðið haust
horfði því til vandræða með kar-
töflugeymslu fyrir okkur rækt-
unarmenn í Reykjavík, en þá
hljóp Reykjavíkurbær undir
bagga og lét útbúa kartöflu-
geymslur í kjallara eins barna-
skóla bæjarins, og fór þangað
mikið af kartöflum. Ég fór þang-
að með mínar kartöflur í þeirri
trú að það mundi verða sett kæl-
ing í geymslurnar, en svo varS
ekki mér til mikilla og sárra von
brigða. Og svo kom á daginn aS
þessar bráðabirgðageymslur 1
skólanum voru lítils eða jafnvel
einskis virði, þar sem í ljós kom
að kartöflurnar voru farnar aS
spíra í lok nóvembermánaðar, og
þar með var mikið verk við rækt
unina orðið að engu.
Með tilliti til þess að við, sem
ræktum garðávexti handa sjáif-
um okkur, fáum ekki niður-
greiðslu á þær kartöflur, sem viS
notum sjálf, spörum við fyrir hiS
opinbera stórfé. Ég hef tekið þaS
lauslega saman hvað ég og fjöl-
skylda mínum höfum sparaS
fyrir ríkissjóðinn síðan er niður-
greiðslan á kartöflum byrjaði,
og telst mér það vera ekki minna
en 10000 kr.
Nú er spurningin hvort nokk-
uð þýðir fyrir okkur Reykvík-
inga að setja niður kartöflur og
aðra garðávexti í vor. Er von um
að við fáum góðar geymslur í
haust, en þær kysi ég helst aS
hafa þannig að þær tækju
allar tegundir garðávaxta, en þá
fyrst má búast við að garðarækt-
un Reykvíkinga aukist, ekki ein-
ungis til gagns og ánægju þeim
sjálfum, sem að þessu ganga,
heldur og einnig til mikils sparn
aðar fyrir hið opinbera, sem und-
anfarin ár hefur orðið að kaupa
kartöflur Og aðra garðávexti er-
lendis frá fyrir stórar fjárhæðir
Og dýrmætur gjaldeyrir hefur
eyðst. Er það leiiðinlegt og jafn-
vel skammarlegt þar sem unnt
er að rækta allt þetta í okkar
eigin landi, ekki einungis nóg
handa öllum landsmönnum, held
ur ættum við að geta flutt út
mikið af þessari góðu og nyt-
sömu vöru og það í stórum stíl.
Og þess er að síðustu að minn-
ast, að íslenzkir garðávextir eru
margir betri og ljúffengari en
þeir, sem inn hafa verið fluttir
frá öðrum löndum.
Valdimar Sörensen