Morgunblaðið - 09.05.1961, Side 3
Þriðjudagur 9. maí 1961
3
MORUVNBLÁÐIÐ
Eiginkona Shephards ásamt foreldrum sínum og dottur.
Shephard við komuna til Bahamaeyja að lokinni geimferð.
sofið mikið nóttina fyxir geim
skotið. Þegar hún loksins festi
blund var kominn morgunn
og tími til að fara á fsetur og
fylgjast með geimferðinni.
KVEÐJA FRÁ KENNEDV
Þegar geimferðinni lauk og
geimskipið vaggaði sér á bár-
um Atlantshafsins, kom þyrla
f r á flugvélamóðurskipinu,
Lake Champlain, að saekja
Shepard. Var flugstjóranum
bannað að tala við Shepard,
en geimfarinn gat ekki orða
bundizt.
Eg hef þerraö tárin
sagðó kona Shepards þegar geimfarúin var *entur
í GÆR sátu Alan B. Shepard
og kona hans Louise boð for-
setahjónanna bandarísku í
Hvíta húsinu og sæmdi Kenn-
edy þá Shepard sérstöku heið
ursmerki fyrir það afrek að
verða fyrstur Bandaríkja-
manna út í geiminn.
Shepard kom í gær flug-
Ieiðis til Washington frá
Bahamaeyjum, en þar hefur
hann verið í læknisskoðun frá
því að geimferð hans lauk sl.
föstudag. Eiginkonan tók á
móti geimfaranum á flugvell-
inum í Washington, en þau
höfðu ekki sézt frá því kvöld-
ið áður en geimferðin var far-
in.
ÉG VISSI ÞAÐ
Louise Shepard fylgdist
með ferð eiginmannsins í sjón
varpi og útvarpi, eins og svo
margir landar hans. Að ferð-
inni lokinni sagði hún við
blaðamenn: „Það var dásam-
legt.... dásamlegt... . dásam-
legt. Ég víssi það....Ég vissi
Rússar mótmæla
Teikning þessi sýnir hvernig geimfarinn situr í skipinu.
alveg frá því að eldflaugin
lagði af stað að hann gæti
þetta.“ Aðspurð hvort hún
hafi ekki fellt eitt eða tvö tár,
sagði hún, „Ég hef þerrað þau
öll“ og brosti breitt. En hún
játaði samt að hún hafi ekki
Þegar Shepard kom um
borð í flugvélamóðurskipið,
var honum ákaft fagnað. —
Gekk hann þar undir bráða-
bjrgða læknisskoðun, en að
henni lokinni ótti hann sím-
tal við Kennedy forseta í
Washington. Sagði forsetinn
honum að hann hefði fylgzt
með ferðinni í sjónvarpi og
óskaði honum til hamingju.
Kvaðst hann vera hreykinn
og hamingjusamur yfir þessu
afreki og hlakka til að hitta
Shepard eftir helgina.
Flugvélamóðurskipið flutti
svo Shepard til Bahamaeyju,
en Þar var hann í tvo daga í
sjúkrahúsi í nákvæmri lækn-
isrannsókn.
BANDARÍKIN VINNA Á
Blöð hins vestræna heims
gera mikið úr ferð Shepards
út í geiminn og telja að
Bandaríkin hafi unnið mjög
mikið á Rússa, þótt ekki hafi
þau náð þeim enn. Þá lofa
blöðin mjög þá tilhögun
Bandaríkjamanna að leyfa
umheiminum að fylgjast með
geimskotinu. Þá er þrennt
sérstaklega tekið fram í sam-
bandi við þessa tilraun Banda
ríkjanna sem vakið hefur at-
hygli.
1. öll framkvæmd tilraun-
arinnar sýnir að manninum
er ekki fórnað fyrir tilraun-
ina. Hann var ekki sendur út
í geiminn fyrr en nokkurn
veginn var öruggt að tilraun-
in heppnaðist.
2. Geimskipið var þannig
byggt að Shepard gat sjálfur
stjórnað því eftir að hann
var laus frá eldflauginni. Þá
gat hann sett smá þrýsti-
loftsvélar £ gang og með
þeim ráðið ferð skipsins. Það
var einnig Shepard, sem
stjórnaði þvi hvenær fallhlíf-
ar geimskipsins opnuðust.
Hefði hann ekki verið fær um
að taka að sér stjórnina, hefði
skipinu verið stjórnað fró
jörðu.
3. Stærð bandaríska geim-
skipsins var aðeins fjórðung-
ur af stærð þess rússneska,
sem flutti Gagarin umhverfis
jörðu. Sammt var unnt að
koma fyrir í því öllum þeim
fjölda tækja, sem nauðsynleg-
ur er í svona geimferð. Þetta
sannar að á þessu sviði eru
Bandaríkjamenn langt framar
Rússum, þótt Rússar skari
enn langt fram úr Banda-
ríkjunum í eldflaugatækni.
— ríkisstjórnin
harmar
SENDIHERRA Sovétrikjanna
lierra Alexander M. Alexandrov
gekk í dag á fund Emils Jóns-
eonar, ráðherra, sem gegnir
etörfum utanríkisráðherra í f jar-
veru Guðmundar í. Guðmunds-
eonar, og bar fram mótmæli
vegn-a atburðanna við sendiráð
Sovétríkjanna að kvöldi sunnu-
dagsins 7. maí.
! Emil Jónsson lýsti því þegar
yfir, að hann og ríkisstjórnin öll
harmaði það, sem gerzt hafði.
Ríkisstjórnin vill eindegið
brýna fyrir fólki að gæta þess
*ð óvirða ekki fulltrúa erlendra
ríkja hér á landi með því að
etofna til aðgerða slíkra sem
þeirra, er hér hafa átt sér stað.
(Frá Utanríkisráðuneytinu)
f - •> m * «. >■
Kennedy Bandankjaforseti og kona hans fylgjast með geimskotinu í sjónvarpi í Hvíta hús-
inu ásamt Lyndon B. Johnson, varaforseta, Arthur M. Schlesinger og Arleigh Burke, aðmírál
STAKSTEINAR
Fyrir opiium tjöldum
Hin ameríska geimför i síff-
ustiu viku gerðist fyrir opnum
tjöldum. öllum heiminum var til
kynnt um hana fyrirfram og all
ur heimurinn fylgdist með henni
sjálfri. Engin leynd var um þetta
stórkostlega fyrirtæki og vísinda
lega afrek. Ef það hefði misheppn
azt, hefði af því leitt mikinn álits-
hnekki og vonbrigði fyrir banda
rísku þjóðina og leiðtoga hennar.
En það misheppnaðist ekki.
Rússar hafa haft allt annan
hátt á í þessum efnum. Þeir hafa
ekkert tilkynnt fyrirfram um til
raunir sinar. Leiðtogar Sovétríkj
anna leggja ekki í þá hættu, sem
í því er fólgin að slík tilraun mis
heppnist. Þeir hafa ekki talið sig
hafa efni á þeim. En lýðræðis-
ríki eins og Bandaríkin hefur allt
af efni á því að heimurinn viti
sannlcikann um athafnir þess.
1 þessu er hinn mikli munur á
stjórnarháttum einræðis- og lýð-
ræðis fólginn.
Samhljóma kór
íslendingur á Akureyri birtir
nýlega forystugrein um hið nána
bandalag kommúnista og Fram-
sóknarmanna og kemst þá m.a. að
orði á þessa Ieiff:
„Á undanförnum mánuftum hef
ur lesendum stjórnarandstöðun-
blaðanna oft verið það nokkuð
óljóst, hvort þeir voru að lesa
Timann eða Þjóðviljann, ef ein-
hver þjóðmál eða þingmál bar
þar á góma. Svo lík var röddin,
svo samhljóða tónninn. Urðu þeir
gjarnan að líta að nýju á blaff-
hausinn til að fá vissu sína. Gilti
þetta einkum um afstöðu þessara
blaða til lausnar fisveiðideilunn
ar við Breta, svo og um verka-
lýðsmál, kosningar stjórna í
verkalýðsfélögum, cfnahagsmál
o.fl. f eldhúsdagsumræðunum á
síðustu dögum Alþingis mátti og
vart á milli þeirra greina.
Þessi samkór Framsóknarliðs
ins í Reykjavík og íslenzkra
kommúnista var þó fyrr stofnað
ur. Eftir hina frægu Keflavíkur-
göngu forðum, virtist Tíminn
hafa hneigð til að sýna henni
fyllstu samúð í skrifum blaðsins.
En sú ganga var gerð til að mót-
mæla landvörnum sem aðstand-
endur vinstri stjórnarinnar sál-
ugu höfðu lofað að afnema en
höfðu ekki haft manndóm til að
gera, fremur en að efna mörg
önnur heit“.
Tap hvers verkamanns
15000 krónur
Fylkir, blað Sjálfstæðismanna
í Vestmannaeyjum ræðir nýlega
afleiðingar verkfallanna í Eyjum
á s.l. vetri. Kemst blaðið þá m.a.
að orði á þessa leið:
„Því hefur mjög verið haldið
á lofti í blöðum hér, að verkafólk
iff, sem átti í 6 vikna verkfalli,
hefði unnið einhvern stórsigur.
Því miður er reyndin öll önnur.
Sennilega hefur aldrei orðið eins
mikiff tap á nokkru verkfalli og
einmitt nú fyrir launafólk. Miðað
við það að hér hefði verið nokk
urn veginn eðlilegt ástand á
fyrstu mánuðum ársins, er ekki
óvarlegt að álita að tap verka-
manns í beinum vinnulaunum sé
allt að 15000 krónur á þeim tima,
sem stöðvunin stóð. Hið eina sem
upp í þetta fékkst, var náðargjöf
af jötu kommúnista, úthlutað eft-
ir geðþótta eins eða tveggja
manna, sem tóku í sínar hendur
styrkveitingar, en úr hendi verka
mannanna sjálfra“.