Morgunblaðið - 09.05.1961, Page 12
12
MORGUNBLAÐIB
Þriðjudagur 9. maí 1961
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannesser,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstraeti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
Tshombe leiddur fyrir rétt —
sakaður um landráð og morð
BORG FRAMFARA
OG UPPBYGGINGAR
<s>
AÐ er Sjálfstæðismönn-
um, sem stjómað hafa
Reykjavíkurbæ um áratugi,
hið mesta fagnaðarefni, að
þeir hafa borið gæfu til að
hafa merkilega forystu um
hagnýtingu vatnsafls og jarð
hita í landinu. Fyrir rúmum
30 árum markaði Jón heitinn
Þorláksson stefnuna í raf-
orkumálunum. Hann lagði til
að vatnsaflið yrði hagnýtt,
ekki aðeins í þágu þéttbýl-
isins, heldur og í þágu
sveitanna. í samræmi við
þessa stefnu hófst Reykjavík
síðan handa um virkjun
Sogsins. Enda þótt sú fram-
kvæmd mætti mikilli mót-
spyrnu Framsóknarflokksins,
reis þó fyrsta orkuverið í
Sogi árið 1936. Síðan hefur
hver stórvirkjunin þar rekið
aðra, og nú hafa verið virkj-
uð í Sogi nær 100 þús. hest-
öfl.
Á sama hátt hafði Reykja-
vík forystu um hagnýtingu
heita vatnsins í Mosfellssveit
til upphitunar borgarinnar og
sköpunar margvíslegra lífs-
þæginda. Síðan hafa verið
framkvæmdar fjölþættar
jarðhitarannsóknir í bæjar-
landinu og utan þess með
þeim árangri að mögulegt
hefur reynzt að auka hita-
veitukerfið stöðugt og veita
því til nýrra bæjarhverfa.
Aðrir kaupstaðir hafa síð-
an fetað í fótspor Reykja-
víkur um hagnýtingu vatns-
afls og jarðhita. Má segja,
að almennur skilningur sé
nú skapaður á því að hag-
nýta þessar auðlindir lands-
ins sem víðast í þágu sem
flestra landsmanna.
Á vegum Reykjavíkurbæj-
ar standa nú, eins og jafnan
áður, yfir miklar og marg-
háttaðar framkvæmdir. Unn-
ið er að áframhaldandi virkj-
unarundirbúningi og aukn-
ingu hitaveitunnar. Sex ný-
ir skólar eru í byggingu,
glæsilegt bæjarsjúkrahús er
risið og mun taka til starfa
innan 2—3 ára. Stórfram-
kvæmdir standa yfir á sviði
gatnagerðar og fjölmargar
aðrar framkvæmdir eru á
döfinni.
Engum er það Ijósara en
Sjálfstæðismönnum, sem hafa
stjórnað bænum, að hinn öri
vöxtur hans hefur skapað
margvísleg vandkvæði. En á
þeim hefur verið sigrazt og
uppbyggingin og framfarirn-
ar hafa haldið áfram jöfnum
og hröðum skrefum.
TRAUST FJÁR-
MÁLASTJÓRN
FN því aðeins hefur þessi
mikla uppbygging verið
möguleg, að fjármálastjórn
Reykjavíkur hefur verið
traust og hyggileg. Afburða-
menn hafa valizt í stöðu
borgarstjóra og bærinn hefur
notið starfskrafta margra
dugmikilla og mikilhæfra
tæknimenntaðra manna.
Almenningur í höfuðborg-
inni hefur fundið að bæjar-
félagi hans hefur verið vel
og viturlega stjórnað. Þess
vegna hefur öllum áhlaupum
minnihlutaflokkanna verið
hrundið við hverjar bæjar-
stjórnarkosningar. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur haldið
öruggum meirihluta í bæjar-
stjórn í áratugi. Stærsta sig-
ur sinn vann flokkurinn í
bæ j arst j órnarkosningunum
veturinn 1958, er hann fékk
10 bæjarfulltrúa kjörna af
15. Sýndu þau úrslit hið
mikla traust, sem Sjálfstæð-
isflokkurinn nýtur í þessu
mesta framfara- og umbóta-
byggðarlagi landsins.
★
í maí næsta ár munu fara
fram bæjarstjórnarkosningar
um land allt. í sæti borgar-
stjóra situr nú Geir Hall-
grímsson, ungur og glæsileg-
ur maður, sem hefur frá
æskuárum tekið virkan þátt
í stjórn bæjarmálefna. Enda
þótt hann hafi aðeins farið
með borgarstjórn um skamm
an tíma, er óhætt að full-
yrða að hann hafi getið sér
hið bezta orð fyrir dugnað,
víðsýni og frjálslyndi í störf-
um sínum og allri framkomu.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
munu ganga sigurvissir til
næstu bæjarstjórnarkosninga
undir forystu hans.
GÖN G UFERÐIR
OG RÚÐUBROT
AÐ ér vissulega illa farið
að nokkrir unglingar
skyldu verða til þess sl.
sunnudagskvöld að brjóta
rúður í flokksskrifstofum
kommúnistaflokksins og rúss
Leopoldville, 8. maí (Reuter).
MOISE TSHOMBE, forsætisráð-
herra Katangafylkis í Kongó, hef
ur nú verið fluttur til Leopold-
ville og mun þar verða stefnt
fyrir dóm, sakaðiur um landráð og
morð.
Justin Bomboko, utanríkisráð-
herra stjórnarinnar í Leopold-
ville skýrði frá því í gær, í Coquil
hatville að stjórnin bæri fulla
ábyrgð á handtöku Tshomibes, og
að valdi yrði beitt ef nauðsynlegt
reyndist, til þess að beygja Kat-
angastjórn til hlýðni við Leopold
villestjórn. Sagði Bomboko, að
kæran á hendur Tshombe um
landráð væri 1 fjórum liðum:
1. Tshombe er sakaður um að
bera ábyrgð á morðum fjölda
Baluba-manna í Norður-Kaí-
anga.
2. Hann er sakaður um uppreisn
undir forystu erlendra manna,
gegn stjórninni í Leopoldville.
3. Hann er sakaður um að hafa
með ólöglegum hætti lagt hald
á flugvélar, skotfæri og fjár-
muni, sem voru í eigu Leo-
pold villestj órnar.
4. Hann er sakaður um að hafa
gefið út falska peninga með
því móti að slá sér mynt fynr
Katangafylki.
Loks er Tshombe sakaður um
að hafa tékið Patrice Lumumba
af lífi, án dóms og laga.
Bomboko gerði ekki grein fyrir
því, hvort fjallað yrði um mál
Tshombes fyrir opnum dyrum né
heldur gerði hann grein fyrir,
hverjar ráðstafanir Leopoldville-
stjórn hyggðist gera til þess að
vinna aftur Katangafylki til fylg-
isspektar við Leopoldvillestjórn.
• Hvítir hermenn í haldi
Fregnir berast um það frá
Elisabethville, að starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna í Katanga
Moise Tshombe
hafi umkringt eitthundrað hvíta
hermenn, úr liði Katangastjórnar.
Hefur stjórn SÞ í Leopoldville
gefið út fyrirskipun um handtöku
þessara manna, og er það liður í
framkvæmd þeirrar samþykktar
neska sendiráðsins, og hafa
þar í frami uppnám og ó-
spektir. Slíkar aðfarir ber að
fordæma, hver sem gerist
sekur um þær. Með grjót-
kasti og rúðubrotum verður
engu máli ráðið til lykta í
lýðræðislandi. Enda þótt al-
menningur beri litla virðingu
fyrir gönguferðum og úti-
fundum kommúnista og aft-
aníossa þeirra að erlendri
fyrirmynd, eiga þeir menn,
sem slíkar gönguferðir vilja
fara, rétt á því að vera í
friði á labbi sínu og við
fundahöld sín. Það er grund-
vallarregla íslenzks lýðræð-
is og hana ber að hafa í
heiðri, hverjir sem í hlut
eiga. Þá meginreglu ber lýð-
ræðissinnuðum mönnum að
virða, enda þótt kommúnist-
ar hafi sjálfir allt önnur
vinnubrögð. Þeir hafa ekki
hikað við að greiða atkvæði
með grjóti. Þeir hafa ráðizt
á löggjafarsamkomuna að
störfum með grjótkasti og
öðrum skrílslátum. En íslend
ingar eiga að eftirláta komm
únistum einum slík vinnu-
brögð.
PORTÚGAL OG
NÝLENDU-
STEFNAN
DRETLAND og Frakkland,
U hin gömlu nýlenduveldi,
hafa skilið þá grundvallar-
stað>reynd, að nýlendustefn-
an hefur runnið sitt skeið á
enda. Þeir hafa breytt ný-
lenduveldum sínum í sam-
band frjálsra þjóða. Síðan
síðari heimsstyrjöldinni lauk
hafa 500 millj. manna, sem
áður byggðu nýlendur Breta
og Frakka, öðlazt sjálfstæði.
Á sama tíma hafa Rúss-
ar tekið upp nýlendu- og
kúgunarstefnu, sem er hálfu
verri hinni fyrri. Þeir hafa
lagt undir sig fjölda þjóð-
landa og lagt á þjóðir þeirra
hlekki ófrelsis og kúgunar.
Það situr því vissulega illa á
kommúnistum að fordæma
hina gömlu nýlendustefnu.
En nú er röðin komin að
Portúgal um að skilja kall
hins nýja tíma. I Afríkuný-
lendum Portúgala ólga nú
uppreisnir og blóðug átök.
En stjórn Salazar virðist
ekki hafa sama skilning á
hinum breyttu aðstæðum og
Bretar og Frakkar. Hún
reynir að spyrna á móti þró-
uninni og bæla niður með
iharðri hendi frelsishreyfing-
ar nýlendufólksins. En sú
andspyrna er vonlaus. Ný-
lendur Portúgala, eins og
önnur lönd Afríku, hljóta að
fá frelsi.
Öryggisráðsins, að allir erlendir
hermenn og ráðunautar, sem ekki
starfa á vegum SÞ, hverfi úr
landinu.
Hins vegar segir í fregnum,
þessum, að ekki hafi enn verið
gengið lengra eftir handtökuskip-
aninni, en að halda hermönnun-
um innikróuðum í herstöð einni í
Nyunzu. Hafði Katangastjórn á
laugardaginn sent stjórn liðs SÞ
tilmæli um viðræður til sátta,
en ekki er enn vitað hverju þeim
verður svarað.
• Árekstrar í Port Francqui
Fregnir berast um árekstra I
Port Francqui, en þar sló fyrir
nokkru í brýnu milli Ghanaher-
manna og Kongóhermanna og
létu þá nokkrir Ghanahermenn
lífið í bardögum.
Nú munu Kongóhermenn hafa
tekið öll völd í Port Francqui,
eftir að Ghanahermenn reyndu
árangurslaust að leysa deilumál-
in með viðræðum.
Tveir menn eru sagðir látnir,
annar brezkur en hinn sænskur
liðsforingi, sem hafði gefið her-
mönnum sínum fyrirskipun' um
að hleypa ekki af skoti, nema
hann gæfi um það skipun. Virð-
ist svo sem enginn hafi vitað fyrr
en eftir á, að hinn sænski liðs-
foringi var fallinn fyrir hendi
Kongóhermanns. Ennfremur er
36 Ghanahermanna sakrtað.
Hammarskjöld, framkvæmda-
stjóri SÞ, hefur sent Kasavubu
forseta tilmæli um að þeim, sem
ábyrgir eru fyrir atburðum þess-
um, verði refsað.
Seftist
meðal
áheyrenda
LONDON, 8. maí. (Reuter) —
Brezki þingmaðurinn Anthony
Wedwood Benn reyndi í dag að
taka fyrra sæti sitt í neðri deild
brezka þingsins, en var meinað-
ur aðgangur. Benn, berst ákaft
fyrir því, að fá að afsala sér
lávarðstign þeirri, sem hann tók
í arf eftir föður sinn og fá þar
með að halda sæti sínu í neðri
deildinni. í brezkum lögum seg-
ir svo fyrir um, að sá er erfi
slíka nafnbót skuli jafnskjótt
taka sæti í lávarðadeild og
aukakosningar fara fram í kjör-
dæmi hans.
Þegar Benn kom til þinghúss-
ins í dag, var honum meinaður
aðgangur að þingsal. Sagði dyra
vörður, að það væri gert sam-
kvæmt skipun íorseta neðri
deildarinnar, sem telur sig ekki
geta leyft Benn að setjast í sæti
sitt gegn vilja þingmanna.
Er svo var komið tók Benn
sér sæti á áhorfendapöllum
ásamt eiginkonu sinni, sem
fædd er í Bandaríkjunum, móð-
ur sinni og níu ára syni. Gegnt
Benn sat einnig á áhorfenda-
palli andstæðingur hans frá
aukakosningunum í BristoL