Morgunblaðið - 09.05.1961, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. maí 1961
í
í
í
f
f
f
f
i SKALDSAGA EFTIR RENEE SHANN
i
------------------------------ 48 --------------
f
f
f
f
f
i
f
i
inn frá henni, heldur þurfti hún
nú að taka dótturina líka. Hún
þaut upp úr rúminu og nú var
máttleysið hennar horfið eins og
dögg fyrir sólu. Hún þreif inni-
skóna sína og sloppinn og þaut
framhjá Marie, sem horfði á
steinhissa.
— Hvernig dirfizt þér að koma
hingað, imgfrú Langland? aepti
hún. Ég hélt ég hefði sagt yður
það nógu skiljanlega á laugar-
dagskvöldið var, þegar ég sá yð-
ur með manninum mínum, að
hvorki ég né Janet óskaði að
hafa neitt með yður að gera. Og
ég gaf strangar fyrirskipanir um
að hleypa yður alls ekki inn, ef
þér skylduð koma hingað. En
stúlkan segir, að þér hafið heimt-
að að tala við annaðhvort mig
eða Janet.
Hún leit á Janet og nú snerist
reiðin gegn henni sem hverjum
öðrum liðhlaupa til óvinarins.
— í guðs bænum, Janet, hættu
þessu öskri. Ég get varla heyrt
til sjálfrar mín.
Janet stöðvaði grátinn nægi-
lega til þess að geta snúið sér
gegn móður sinni. — Mamma,
þetta er ekki satt, sem þú held-
ur. Ekki orð af því satt. Cynthia
ætlar alls ekki að fara burt með
honum pabba.
Margot ætlaði varla að ná and-
anum; svo agndofa varð hún við
þessi orð, að hún kom sjálf upp
engu orði.
— Ég er hrædd um, að hér sé
einhver meinlegur misskilningur
á ferðinni, frú Wells, sagði
Cynthia. Og vegna þess mis-
skilnings er ég einmitt hingað
komin.
Margot glápti á hana. Hún
reyndi að muna nákvæmlega
hvað Philip hafði sagt við hana
í þessari hræðilegu sennu þeirra
síðastliðið sunnudagskvöld. Hún
áttaði sig nú á því, að hún gæti
hafa misskilið hann. Hún mundi
nú, að enda þótt iiann segðist
hafa beðið Cynthiu um að hlaup-
ast á brott með sér, hafði hann
ekki sagt hitt, að hún hefði sam-
þykkt það. Nú, en var það kann-
ske ekki nógu slæmt ef hann
var ástfanginn af henni og vildi
fá hana til að hlaupa burf með
sér?
Auk þess var Cynthia senni-
lega ein þessara hræsnisdyggð-
ugu kvenna, sem hikaði við að
taka mann opinberlega frá konu
hans. Einnig gat hún þurft að
gera sér einhver læti þegar Jan-
et var annarsvegar. Én hún
skyldi bara bíða! Eftir nokkrar
vikur, þegar Philip væri farinn
frá henni, myndi hún hafa aðra
sögu að segja,
— Hvaða misskilningur ætti
svo sem að hafa getað átt sér
stað? spurði Margot kuldalega.
— Ég fæ ekki betur séð en þetta
liggi allt ljóst fyrir.
Cynthia hikaði ofurlítið. Henni
var meinilla við, að þetta skyldi
fara fram í návist Janets, en hjá
því varð sýnilega ekki komizt.
— Janet segir mér, að þér
standið í þeirri trú,'að við Philip
ætlum að fara að hlaupa á brott
saman.
— Hvorki nú né síðar.
— Nú ætlið þið það ekki kann
ske?
— Nei, mamma, þau ætla það
alls ekki! æpti Janet að móður
sinni í miklum æsingi. —- Það
var það, sem við vorum að segja
þér!
— Ég er ekki að spyrja þig,
Janet, heldur ungfrú Langland.
— Nei, vitanlega ekki, svaraði
Cynthia stuttaralega.
—•. Kannske ekki rétt í bili.
— Veit Philip af þessu?
— Já.
Janet leit á móður sína. Þurfti
hún frekari fullvissu?
— Mamma, gætir þú ekki látið
þér koma betur saman við
pabba?
Margot hló, en Cynthia fann,
•að það var móðursýkishlátur. En
jafnframt sá hún, að eldri konan
var ekki betur farin á sálinni en
Janet. Og verr þó. Því að hennar
eymd var margra ára gömul. Og
nú var hún hrædd við að horfast
í augu við framtíðina, þessa fram
tíð. sem hún hafði vanið sig á að
hugsa sér, að yrði án Philips.
— Gætirðu ekki reynt það,
elsku mamma? hélt Janet áfram.
Ég er viss um, að honum þætti
svo vænt um það. Hann vonar á-
reiðanlega í hjarta sínu, að þetta
geti allt batnað.
— Vertu ekki með neina vit-
leysu, barn! Pabbi þinn þolir
ekki einusinni að sjá mig; það
hélt ég þú værir búin að sjá
svart á hvítu. Þú veizt ósköp
vel, að hann er bara að bíða eft-
ir því að þú farir að heiman, og
þá ætlar hann að fara frá mér.
Þessvegna hefur hann verið að
ýta undir giftingu ykkar Nigels,
þvert á móti vilja mínum. Hann
vill hafa frjálsar hendur. Hann
tekur hvort sem er ekki tillit
nema til þín einnar.
— Þú veizt, að ég mundi aldrei
giftast Nigel, ef það kostaði skiln
að ykkar pabba, sagði Janet. —
Ég hef að vísu aldrei sagt þér
það fyrr, bara af því að ég vildi
ekki vera að tala um þetta. En
nú er ég búin að skrifa Nigel og
slíta trúlofuninni okkar.
Margot leit á Janet. — Hvenær
gerðirðu það?
— í gærdag.
— Var það þegar pabbi þinn
var farinn að heiman og af því
að þú hélzt, að hann væri far-
inn fyrir fullt og allt?
— Ó, mamma, ég vissi ekki
hvað ég ætti að halda.
Nú varð ofurlítil þögn og þeg-
ar Janet minntist bréfs síns til
Nigels, fór hún aftur að gráta.
Hún skildi ekkert í því, að Cynt-
hia hafði ekki sagt eitt meðaumk
unarorð í því sambandi. Hún
hefði þó getað sýnt enhverja
ofurlitla samúð. Ekki sízt þar sem
hún hafði sjálf orðið óbeint til-
efni til þess arna.
— Þú ættir að skrifa Nigel
strax í dag og segja honum, að
þér hafi ekki verið alvara, sagði
Margot stuttarlega. Hún var nú
næstum hætt að kæra sig neitt
til eða frá um afleiðingarnar af
þessari heimsókn Cynhiu Lang-
lánd. Henni virtist lífið allt í einu
orðið slík truflandi ráðgáta. Hún
fann einhvern dofa læðast um
sig alla. Rétt eins og hún væri
orðin algjörlega kærulaus um
hvað sem fyrir kæmi. Víst ætti
hún að vera fegin að heyra, að
ekkert yrði úr brotthlaupi manns
ins hennar og Cynthiu. En var
það raunverulega nokkur lauáh
á málinu? Yrði Philip nokkuð fús
ari til að vera kyrr hjá henni?
Kannske gerði það bara illt
verra. Philip myndi þrá Cynthiu
eftir sem áður.
— Frú Wells, sagði Cynthia í
örvæntingu sinni. — Þér megið
ekki halda mig ósvífna, en.. ég
er á vissan hátt orðin aðili að
þessu máli, finnst yður ekki.
Gætuð þér ekki gert eitthvað til
að laga sambúð ykkar hjónanna,
eins og Janet er að biðja yður
um. Ég þykist alveg vita, að hann
þrái það líka.
Hún beið með óþreyju eftir
svari frá Margot, og vonaði, að
þetta væri satt, sem hún var að
segja við hana. Henni hafði orðið
það nokkur vonbrigði, að Philip
virtisf ekki hafa haft neitt sam-
band við heimili sitt enn sem
komið var. Liklega hafði hann
bara farið beint í skrifstofuna
sína og kæmi svo ekki heim fyrr
en eins og hann var vanur. En ef
hann hefði — sem hún vonaði —
lagt sér á hjarta allt, aem hún
hafði sagt við hann í gærkvöldi,
hlaut honum að vera ljóst, að ef
nokkur von ætti að vera um sætt
ir, urðu þau hjónin að mætast á
miðri leið. Og meira að segja
yrði hann kannske að fara lengra
en hálfa leið. Hún sá sér til
k
ú
á
5335»
THIS IS A
8AP SISHT,
I MARK/
UET'S GET OUT OF HERE AND
OO OM TO STEALAWAV LAKE..
WE'LL HAVE TO LEAVE
THE CAR HERE, DOC...
IF VOU FEEL UP TO ■
WALKING IN/
WHILE GEORGE TRIPWELL
AND ALEX COLTER
DISCUSS THEIR GOODY-
GOO ADVERTISING
CAMPAIGN, MARK AND
HIS FRIENDS STAND
DUMBFOUNDED BEFORE
SUNBURST FALLS
'-P WORLÐ'S
PINEST CANDV
L
^ WERE
made for
foe/mAND
QBANDMTM
[ IT'LL BE WORTH 1
k IT...AT LEAST
THE BILL POSTERS
CAN’T GET IN HERE/
The Tastb
is GBEXrM
'tw HOW COULD ANVONE
3 SPOIL SUCH A
JOTO. BEAUTIFUL SPOT?
c — Meðan Tripwell og Alex
ræða auglýsingaherferð sina fyr-
ir Goodygoo, standa Markús og
vinir hans þrumulostnir við
Sólskinsfossa.
— Þetta er sorgleg sjón,
Markús!
— Hvernig getur nokkur mað
ur eyðilagt svona fallegan stað?
— Við skulum fara héðan og
halda áfram upp a® vatninu ....
Seinna.
— Við verðum að skilja bif-
reiðina eftir hér Davíð .... ef
þú treystir þér til að ganga það
sem eftir er!
— Það verður þess virði ....
Þeir hafa að minnsta kosti ekki
komið auglýsmgaspjöldunum
þangað!
hryggðar, að Margot tók orðurn
hennar illa.
— Ég þarf ekki að sækja til
yðar neinar ráðleggingar um það,
hvernig ég eigi að hegða mér,
uni/frú Langland, sagði hún reiði
lega. Heldur ekki neina vitneskju
um, hvað maðurinn minn vilL
Það er ólíklegt að þér séuð fróð-
ari um það en ég.
— Ég segi þetta aðeins vegna
þess, að hann sagði mér sjálfur,
að hann óskaði þess.
— Sagði Philip yður að hann
óskaði, að okkur kæmi betur sam
an?
— Já, víst sagði hann mér það.
— Því trúi ég laust, svaraði
Margot.
Janet sem sá nú, að vonir henn
ar um hamingju voru sem óðast
að hverfa aftur, sagði: — Það er
af því að þú vilt ekki trúa henni.
Ég er farin að halda, að þú kær-
ir þig alls ekki um samkomulag
við pabba. Þú segir, að hann þoli
ekki að sjá þig, en ég fer að
halda, að það sérf þú, sem ekki
þolir að sjá hann.
— Það er eins og hver önnur
vitleysa.
— Viltu ekki sanna mér, að
það sé vitleysa.
Margot dæsti. Hún fann, að e£
þessari sennu við Janet og Cynt-
hiu Langland ætti að halda leng
ur áfrajn, yrði hún vitskert. En
hafði hún ekki bara hvað ' eftir
3|Utvarpiö
I»riðjudagur 9. maí
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik
ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleik
ar. — 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar
12:25 Fréttir og tilkynningar). ^
12:55 ,,Við vinnuna“: Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til
kynningar. 16:05 Tónleikar. —
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Erindi: ITr sögu íslenzkra banka-
mála; III. (Haraldur Hannesson
hagf ræðingur).
20:25 ..Andrea Chenier": Lög úr óperu
Giordanos (Renata Tebaldi og
José Solar syngja með sinfóníu-
hljómsveit útvarpsins í Torino;
Arturo Basile stjórnar).
21:00 Raddir skálda: Smásaga eftir
Ástu Sigurðardóttur og ljóð eftir
Jakobínu Sigurðardóttur. — Flytj
endur: Ásta Sigurðardóttir, Vil-
borg Dagbjartsdóttir og Þor-
steinn Ö. Stephensen.
21:40 Tékknesk tónlist, leikin af tékk-
nesku fílharmóníusveitinni. —
Stjórnendur: Valclav Talich og
Karel Senja.
a) Tveir slavneskir dansar nr. 9
1 B-dúr op. 72 og nr. 6 í D-dúr
op. 46 eftir Dvorák.
b) ,,Moldá“, þáttur-úr tónljóðinu
„Föðurland mitt“ eftir Smet-
ana.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Islenzkt mál (Ásgeir Blöndal
Magnússon cand. mag.).
22:30 Lög unga fólksins (Guðrún Ás-
mundsdóttir).
23:20 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 10. maí
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikmifi. — 8:15 Tónleik-
ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleifc
ar. — 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp: (Tónleikar.
12:25 Fréttir og tilkynningar).
12:55 ,,Við vinnuna”: Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til-
kynningar. 16:05 Tónleikar. —
16:30 Veðurfregnir). ^
18:30 Tónleikar: Öperettulög.
18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr,
19:30 Fréttir.
20:00 Tónleikar: Fiðlukonsert 1 a-mol!
op. 82 eftir Glazounov (Natan
Milsteín og sinfóníuhljómsveitin
í Pittsburg leika; William Stein
berg stjórnar).
20:20 „Fjölskylda Orra“, nýtt fram*
haldsleikrit eftir Jónas Jónasson;
fyrstí þáttur: „Sunnudagsmorg-*
unn“. Leikendur: Ævar R. Kvaj
an, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Steindór Hjörleifsson, Valdimar
Lárusson og Baldur Hólmgeirs*
son. Höfundurinn stjórnar flutn
ingi.
20:40 Tónleikar:^ Strengjakvartett f
d-moll op. 76 nr. 2 eftir Haydn
(Kvartett þýzku óperunnar leilc
ur).
21:00 Að vertíðarlokum, — dagskrá
flutt að tilhlutan Slysavarna-
félags íslands og saman tekin af
Birni Th. Björnssyni listfræðingi,
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Vettvangur raunvísindanna: Ön%
ólfur Thorlacius fil. kand. kynn
ir enn starfsemi búnaðaradeildar
Atvinnudeildar háskólans.
22:30 Harmonikuþáttur: Lög frá liðn
um vetri (Henry J. Eyland og
Högni Jónsson).
23:15 Dagskrárlok.