Morgunblaðið - 09.05.1961, Page 22
22
MORGl'yBT AÐ1Ð
Þriðjudagur 9. maí 1961
Hörð keppni og góð á ís-
landsmótinu í badminton
Sani maður vann 3 sigra í I. flokki
ÍSLANDSMÓTIÐ í badmin-
ton fór fram um helgina og
var fjöi-ugt og skemmtilegt.
Þátttaka var óvenjumikil,
einkum var það gleðilegt að
þátttakendur voru frá fleiri
stöðum á landinu heldur en
áður hefur þekkzt. Mótið fór
vel fram og skipulega, þó um
fangsmikið væri. Úrslit urðu
þessi:
Hefurðu
passa?
SÁ furðulegi atburður skeði
á íþróttavellinum á sunnu-
dagskvöldið að forseta ÍSÍ,
Benedikt G. Waage var mein
að um aðgang og hvarf hann
á brott. Ástæðan var sú
að Benedikt hafði ekki upp á
vasann boðsmiða eða passa
þann, sem boðsgestum er
ætlað að sýna við inngöngu.
Benedikt komst óhindrað
inn á völlinn, en við stúku-
dyr var hann stöðvaður af
verði. Kvaðst Benedikt enn
ekki hafa endurnýjað frá í
fyrra passa þann, sem gildir
sem aðgangskort að öllu, er
fram fer á vellinum. Var þá
vörðurinn hinn harðasti og
sagði að þá færi forseti ÍSÍ j
ékki í stúkuna.
Benedikt f ór til vallar-
;stjórans og skýrði honum
vandræði sín. Þeim viðskipt-
um lauk þannig að Benedikt
: vék af vellinum.
Hér er um einstakt
hneyksli að ræða. Alls staðar
ahnars staðar er sótzt eftir
því að hafa forseta íþrótta-
sambands landsins við kapp-
mót. Víðast er tekið á móti
þéim og þeim fylgt til sætis.
Én hér er spurt: Hefurðu
'passa? Og ef ekki, þá er
æðsti maður íþrótta á land-
inu rekinn frá. I þessu tilfelli
maður, sem í hálfa öld hefur
unnið íþróttunum.
Einasta afsökunin væri að
dyfavörður stúkunnar hefði
ekki þekkt forseta ÍSÍ. En nú
tnun svo ekki hafa verið. Og
yið teljum víst að vallarstjór-
ítin þekki forsetann í sjón og
ihefði þá enn verið tækifæri
tii leiðréttingar — þó ekkil
hefði þá verið beðizt afsök-
unar. ,
í En nú hlýtur afsökunar-
bréfið að koma. Ef ekki frá ^
vallarstjóra, þá frá yfirmönn-l
um hans, vallarstjórn eða|
ÍBR.
Það er gott að hafa reglur
og að hleypa ekki inn án
skírteina. Bara að það væri
haldið við það. Og skyldi
enginn hafa farið miðalaust í
stúkuna á sunnudagskvöldið?
Því miður skeði það. En regl-
ur með passa og því um líkt
gcta ekki gilt um forseta ÍSÍ.
Það er móðgun að spyrja
'æðsta mann hreyfingarinnar
um slíkt vegabréf.
Eágmarksskilyrði er að
starfsmenn íþróttavallarins
þekki forseta ÍSf — það ætti
ið vera skilyrði til að fá
vinnuna. A. St.
f einliðaleik karla voru kepp
endur 7 talsins. Var viðhöfð 1
þeim flokki sem öðrum útslátt-
arkeppni en til úrslita komust
Óskar Guðmundsson TBR og
Garðar Alfonsson TBR. Sigraði
Óskar með nokkrum yfirburðum
15:6 Og 15:4. Óskar var einnig
íslandsmeistari árið á undan.
f einliðaleik kvenna meist^ra-
flokks voru keppendur aðeins
tveir. Lovísa Sigurðardóttir TBR
sigraði Jónínu Niljohníusardótt-
ur TBR með 11:5 ög 11:0. Jónína
var íslandsmeistari.
f tvíliðaleik karla kepptu 8
„pör“. Til úrslita léku Ragnar
Thorsteinsson Og Lórus Guð-
mundsson TBR móti Einari Jóns
syni og Óskari Guðmundssyni.
Var þetta mjög skemmtilegur
leikur Og einn sá mest spenn-
andi í mótinu. Einar Og Óskar
unnu fyrstu lotu með 15:6. Næstu
unnu Ragnar og Lárus með 15:6.
Hófst þá úrslitastríðið^ sem lauk
með Sigri Ragnars og Lárusar
15:12. Þeir Einar og Óskar voru
íslandsmeistarar.
f tvenndarkeppni kepptu 6 pör.
Til úrslita léku Júlíana ísebarn
dóttir Og Hulda Guðmundsdóttir
á móti Jónínu Nieljohniusardótt-
ur Og Sigríði Guðmundsdóttur.
Var þar geysihörð keppni einn-
ig. Fyrstu lotu unnu Jónína og
Sigríður með 15:8. Aðra lotu
unnu Rannveig Og Hulda eftir
harða baráttu með 17:14. í loka-
lotunni, sem var geysihörð sigr-
uðu þær Rannveig og Hulda með
17:14. Var þetta tvísýnasti leik-
ur mótsins.
f tvenndarkeppni kepptu 6 pör.
Til úrslita kepptu Júlíana ísebarn
og Vagn Ottosson hinn gamal-
kunni og margfaldi íslandsmeist-
ari. Gegn þeim kepptu Jónína
Niljohníusardóttir og Lárus Guð
mundsson. Þau Jónína Og Lárus
unnu fyrstu lotu með 15:3. En
tvær þær næstu unnu þau Júlí-
ana Og Vagn nokkuð létt 15:7 og
15:5 og tryggðu sér íslandsmeist-
aratitilinn.
1. flokkur
Keppt var einnig í 1. flokki.
f einliðaleki karla sigraði ' Jón
Árnason TBR nokkuð örugglega.
í tvílðialeik sigraði Jón einnig
ásamt Viðari Guðjónssyni TBR.
í tvenndarkeppni 1. flokks vann
Jón einnig ásamt Gerðu Jóns-
dóttur.
Valur vann 5:1
í GÆRKVÖLDI léku Valur og
Víkingur í Reykjavíkurmótinu.
Sigraði Valur með 5 mörkum
gegn 1.
Dóttir Ármanns klappaði stolt fyrir föður sínum er hann
hafði hlotiö beitið.
>»
Armann J. Lárusson vann
Grettisbeltið i 9. sinn
ÍSLANDSGLÍMAN var glímd að I oft áður og af 12 skráðum kepp-
Hálogalandi á sunnudaginn. Var endum mættu aðeins 6 til leiks.
rislægra yfir stjórn mótsins en I Höfðu sumir lögleg forföll. Á-
Björgvin Árnason skoraði síðara mark Fram.
(Ljósm.: Sveinn Þormóðsson)
KR sigraói í baráttuieik við Fram
Knattspyrnuunnendur hafa
orðið fyrir sárum vonbrigð-
um á þessu vori. Vitað var
fyrirfram að sum Reykjavík-
urfélaganna voru ekki sem
sterkust, en flestir bjuggust
við mestu af KR-ingum. Þeir
voru Reykjavíkurmeistarar í
fyrra, taplausir sumarið þar
á undan, áttu flesta menn
einstakra liða í landsliði,
höfðu sýnt jafnbeztan leik og
skemmtilegastan. í vor fóru
sögur af vel sóttum og vel
skipulögðum æfingum þeirra
og stórum sigrum á æfingum [
yfir öðrum Reykjavíkurfé-1
Iögum.
• Vonbrigði
En hvað skeður. í fyrsta leik
vorsins tapar liðið gegn Víking,
sem á sl. ári vann engan leik.
Komu þá áberandi gallar fram
við leik KR-liðsins. í fyrrakvöld
mætti liðið Fram. Sá leikur var
að vísu mun betri Víkingsleikn-
um, en svo langt frá því að vera
góður að allir sem knattspyrnu
unna hafa orðið fyrir sárum von
brigðum. Það virðist ekki bjart
framundan á knattspyrnusvið-
inu, hvað sem veldur svona
stjörnuhrapi.
• Daufur leikur
Leikur KR og Fram var á köfl-
um daufur, einstaka sprettir sá-
ust þó, tilþrif fá góð Og aldrei
glæsibragur nema ef vera skyldi
fyrra mark Fram, sem Baldur
Scheving rak endahnút á.
KR-ingar áttu fyrri hluta leiks
ins. Ef frá eru talin þrjú upp-
hlaup Fram, var sókn Fram
næsta máttlaus og alveg mátt-
laus og skipulagslaus þegar
lengra kom yfir miðju en 20
metra.
KR átti hins vegar nokkrar
sæmilegar lotur en ekki meira en
sæmilegar. Á 7. mín. skorar Ell-
ert af 12—15 m. færi eftir þver-
sendingu frá hægri frá Þórólfi.
Framhald á bls. 23.
horfendur voru í færra lagi enda
var ekki mikil áherzla lögð á að
auglýsa mótið.
Úrslit urðu þau að Ármann J.
Lárusson, Breiðablik, sigraði með
yfirburðum, lagði alla sína keppi-
nauta Og vann Grettisbeltið í 9.
sinn. Hefur enginn maður unnið
beltið svo oft.
Annar varð bróðir hans Krist-
ján Heimir, hlaut 4 vinninga.
9 Aukaglímur
í næsta sæti urðu þrír jafniP
með 2 vinninga. Varð að glíma
aukaglímur til að skera úr um
röð. 3. varð Sveinn Guðmunds-
son, Ármanni með 2 plús 2 vinn-
inga, 4. Trausti Ólafsson, Á með
2 plús 1 vinning og 5. Hannes
Þorkelsson, UMFR, 2 vinninga.
6. varð Hreinn Bjarnason með
0 vinning.
Á mótinu kvaddi Benedikt G.
Waage sér hljóðs og afhenti Kjart
ani J. Bergmann þjálfara Ár-
menninga í glímu, þjónustumerki
ÍSÍ. Sæmdi ÍSÍ hann merkinu í
tilefni fimmtugs afmælis hans.
6:0
á Akranesí
BIKARKEPPNI Hafnfirðinga,
Akumesinga og Keflvíkinga
hófst á Akranesi sl. sunnudag,
Þá léku Skagamenn við Kefl-
víkinga. Leikurinn var allójafn
og sýndu Skagamenn mikla yf-
irburði. Skoruðu þeir 6 mörk
gegn engu. Fyrir yfirburði Ak-
urnesinga varð leikurinn ekki
eins skemmtilegur og búizt
hafði verið við.
Lið Skagamanna er sagt f
góðri þjálfun og verður gaman
að sjá það 28. maí er það leikur
sinn fyrsta leik í fyrstu deild.