Morgunblaðið - 14.05.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.05.1961, Qupperneq 1
32 síður og Lesbók 48. árgangur 106. tbl. — Sunnudagur 14. maí 1961 Prentsmiðja Moi gunblaðsins Verkfallinn i Grimsby lokið -<?> ^ Mrmrnimrr- ' -v -vx' tf? <• "x'V'ímís f 7 »&u mi Hr# fiv&14 Mikeon., 8tyk^vijíl». ' M« vaatuts X»i« Jíir,jttl«# aras.o k,oóua»al*íva, viifci* wbí<H, c«et tua ol»n tulöud Á»»arikaaae Jtt #inu kirjavabatuöa «eat hoolitoavaá öoore»a<1 kaad. Teiltt Vfetttaa iaiklikult ja lfthidttlt. KtJU sm noíti»is> ðtontkurd koo* Pr<rcitttt»t Koaelt XUlínoa «Áltpt»a, 'at Taitt iatoaito auto^uhi ktjrvtU, aondtt fitelöa, oiitf vaiW.poet11,ot »ida*fi «rikorraliat ai juötttka. Voiö Tailo ötolba fkui olá okttpattiooni piavii ^e»tia ^uttu, kouet ja colotttttt, ottllaa oöoa,k*£» eaotiasteat on votaud o$& vft&lvttllfe togttúofit toieto iaíkuttt kttllal#«i olnud kuulöa kuuttgi,«t koogi ol«ka niatttanud aoiiaga fthoe<5u$ea T«ie r.ia$* fca ólfiin OftB raa»a.t«B «XB«kaaó ÍCfcl ÍJÖ " II anfinud filevaáto ko«*u- ftÍBtihtt ja nakelaato akttpataiaonl uj&atttöt. ; ' Satttku Taio pBiekonöa j& Joid »ínu parwoad ; koovid 160 togarar sigla út í dag Mynd af bréfinu frá Jan Lattik. VERKFALLI yfirmanna á togurum í Grimsby lauk í gær. Þá þegar um daginn sigldu sjö togarar út. Hins vegar er búizt við að 160 togarar, allur hinn mikli tog- arafloti Grimsby-borgar sigli út í dag, sunnudag. Verkfallið var ekki á nokkurn hátt leyst á kostnað íslendinga. Parísarsamningurinn frá 1956 um fisklandanir íslendinga í Bret- landi heldur fullu gildi. Það sem leysti verkfallið var að togara- eigendur hétu að greiða skips- mönnum hærri laun. Ekki hefur þó enn verið gengið endanlega frá launasamningum, en sjómenn sigla upp á væntanlega samninga, „Ég staðfesti að naín yðar var aldrei tengt neinu ofbeidi," — segir eistneski rithöfundurinn og r'dðherrann Jan Lattik vinur forseta Eistlands í bréfi til eistneskc flóttamannsins I TILEFNI af hinum sví- virðilegu árásum kommún- ista á eistneska flóttamann- inn, Eðvald Hinriksson, sem nú hefur fengið íslenzkan ríkisborgararétt og dvelst hér með fjölskyldu sinni, hefur hinn þekkti rithöfund- ur og ráðherra Jan Lattik ritað bréf, þar sem hann vottar að sakirnar séu upp- lognar og Eðvald Hinriksson hafi gegnt skyldum sínum við föðurlandið. Jan Lattik var utanrikisráð- herra og þingmaður í eistneska lýðveldinu og starfaði mikið að hvers konar félags- og skóla- xnálum. Hann er heimsþekktur rithöfundur, sem skrifað hefur fjölda bóka. Dóttir hans er gift syni eistneska forsetans Páts. — 30. júlí 1940 tóku Rússar for- setann, son hans Victor ásamt konu hans, sem er dóttir Latt- iks og tvo unga syni þeirra hjónanna, Enn og Matí og sendu þau öll til Rússlands. Páts for- seti, sonur hans Viktor og son- arsonurinn Enn dóu í rússnesk- um fangabúðum. Þegar ofbeld- isverkið var framið, bjargaði Lattik lífi sínu með því að flýja til skógar. Sonur Lattiks var eistneskur föðurlandsvinur og handtekinn af Þjóðverjum 1942, en Lattik sjálfum tókst að flýja til Svíþjóðar 1944, þar sem hann gerðist foringi eist- neskra flóttamanna. Bréf Latt- iks hljóðar þannig í heild: „Heiðraði herra Eðvald Mikson, Reykjavík. Ég svara nú bréfi yðar, kæri samlandi minn. Svar mitt hefur dregizt, vegna þess að ég er í fríi í Amer- íku og allar bréfaskriftir fyr- ir mig annast ungar hendur. En til yðar vil ég skrifa sjálfur stutt bréf. Ég ferðaðist oft með Pats Framh. á bls. 2 þó eftir að togaraeigendur hafa heitið ákveðnum kjarabótum. Tortryggni í verkalýðsmálum. í fréttabréfi frá fréttaritara Morgunblaðsins í Grimsby segir að þótt tilefni verkfallsins hafi formlega verið fisklandanir ís- lendinga í borginni, þá hafi allir vitað að það var yfirskinsástæða ein. Hin raunverulega ástæða verkfallsins var hin mikla tor- tryggni og óánægja sem komið hefur upp í röðum sjómanna á síðustu árum og er jafnvel talið undarlegt að ekki skyldi hafa komið fyrr til alvarlegra verk- falla. Óróinn í verkalýðsmálum borgarinnar sést m.a. af því að fjöldi fiskimanna hefur á undan- fömum árum sagt sig úr sam- bandi flutningaverkamanna og myndað nýtt verkalýðsfélag í samkeppni við hitt. Vegna þessarar tortryggni neit uðu sjómenn að fallast á það til- boð togaraeigenda, að sigla upp á væntanlega samninga og það almenna loforð togaraeigenda að þeir skyldu athuga kvartanir sjó manna. Það er ekki fyrr en tog- araeigendur hafa heitið tiltekn- um lágmarks kjarabótum sem verkfallið leysist nú. Vilja endurbætur í höfninni. Slíkt verkfall, sem nú hefur staðið í Grimsby hefur ekki kom ið í borginni síðan í mikla vél- stjóraverkfallinu 1901. Það er því í fyrsta skipti í mörg ár sem sjómennirnir eru allir saman komnir til að ræða vandamál út- vegsins og hafnarinnar. Á fund um sínum hafa þeir krafizt þess að ný stefna sé tekin upp í hafn armálum og útvegsmálum borg- arinnar. Sjómennirnir hafa sagt sig úr Iðnaðarráði Grimsby-borg- ar, vegna þess að þeir telja ekki nógsamlega hafa verið tekið tillit til óska þeirra. Þeir vilja og losa sig úr tengslum við samband flutningaverkamanna og yfir höf uð óska þeir þess að vandamál borgarinnar séu leyst af bæjar- mönnum án þess að þurfa að taka tillit til samtaka eða hags- muna allrar þjóðarinnar. Verði það gert telja þeir fyrst skapast möguleika til að endurbæta höfn ina í Grimsby, koma upp nýjum og fullkomnum löndunartækjum o.fl. — Gera Grimsby að full- komnustu og beztu fiskihöfn Bretlands. Samheldni sjómanna. Fréttaritari Mbl. í Grimsby seg ir, að sjómennirnir muni nú sam tals hafa tapað meira en 300 þús. sterlingspundum í launum í verk fallinu. Um 2500 sjómenn misstu atvinnuna. Margir þeirra voru farnir að finna til fjárhagsvandræða. Sum ir vélstjórarnir og hásetarnir voru búnir að fá sér vinnu ann- asstaða og það er ólíklegt að þeir fari aftur á sjóinn. Samt eru margir sem þrauka og neita að fá sér nokkra aðra vinnu. Fréttaritarinn átti tal við 62 ára sjómann, hann er mat- sveinn um borð í Norðursjávar- togara. Skömmu eftir að verkfall ið hófst var honum boðin vinna hjá bænum sem hefði gefið hon- um 10 sterlingspunda laun á viku. Hann neitaði og sagði: Ég er fiski maður, og ég er í verkfalli eins og hinir. Flestir myndu segja að þetta hafi verið kjánaskapur af honum, en það sýnir nokkuð þá samstöðu sem ríkir meðal flestra sjómanna. St|órn Arnastofnunar hyggst leggfa handritamáliö fyrir dómstóla Einkaskeyti til Mbl. frá Sig. Línrdal, Kbh., 13. maí. TIL umræSu er nú hjá stjórn Árna Magnússonar-stofnunarinn ar að leggja frumvarpið um af- hendingu handritanna tl fslands fyrir dómstóla. Enn hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun í þá átt, heldur fylgist stjórnin með störfum handritanefndar þjóðþingsins og er jafnframt haldið áfram almennri baráttu gegn afhendingu handritanna. Ef nefndin og þjóðþingið fall- ast á handritafrumvarp stjórnar- innar verður tekin ákvörðun í stjórn stofnunarinnar um það í hvaða formi málið verður lagt fyrir dómstólana. Það er einkum tvennt sem til greina kemur. Annarsvegar að fá viðurkenningu á því, að um eignarnám sé að ræða. Stjórn stofnunarinnar getur þá borið fyrir sig, að í stjórnarskránni sé kveðið svo á, að almannaþörf sé skilyrði fyrir eignarnámi. Enn- fremur er talið, að stjórnin leggi þá áherzlu á rétt stofnunarinnar til fullra bóta en fullar bætur telur hún ekki unnt að greiða því að eignarnám feli í sér raunveruleg endalok stofnunar- innar. Verði ekki fallizt á þetta get- ur stjórn stofnunarinnar hinsveg- ar látið skera úr um það, hver sé heimild löggjafarvaldsins til þess að breyta ákvæðum erfða- skrár Árna Magnússonar. Eignarnám Poul Andersen, fyrrverandi prófessor í stjórnlagafræði ritar grein í „Ugeskrift' for Retsvæsen“ í dag. í greininni kemst hann að þeirri niðurstöðu, að lög sem samþykkt kunna að verða um afhendingu handritanna séu eign arnámslög. Handritin séu eign Árnastofnunar að skilningi eign- arnámsákvæða stjórnarskrárinn- ar og verði ekki tekin frá henni nema með lqgum skv. 73 gr. dönsku stjórnarskrárinnar. Hins vegar telur hann slík lög naum- ast verða véfengd á þeim for- sendum, að ekki sé fyrir hendi Framhald á bls. 23. Furtseva til íslands MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað, að Furtseva, mei.ntamálaráðherra Sovétríkjanna, muni koma í opinbera heim- sókn til íslands í næsta mánuði. — Furtseva er einn af 14 meðlimum framkvæmdaráðs rúss- neska kommúnistaflokks ins og að sögn áhrifa- mikil í þeim þrönga hópi. Má af því sjá, að Furtseva er einhver valdamesti maður sem komið hefur í opinhera heimsókn til íslands. Þess má að lokum geta, að ráðgert er að Furtseva komi til ís- lands 6. júní n. k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.