Morgunblaðið - 14.05.1961, Qupperneq 12
12
MORCVNBLAÐIb
Sunnudagur 14. ma! 1961
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Franikvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalotræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÚTHLUTUN LISTAMANNALAUNA
UINNI árlegu úthlutun^
listamannalauna er ný-
lega lokið. 107 listamönnum
úr öllum listgreinum hefur
að þessu sinni verið veitt sú
viðurkenning fyrir listastarf
sitt, sem felst í úthlutun
listamannalauna til þeirra.
Listamannalaunin eiga fyrst
og fremst að sýna viðurkenn
ingu og þakkir þjóðfélags-
ins til listamanna sinna.
Þess vegna skiptir upphæð-
in, sem veitt er hverjum ein-
stökum listamanni ekki meg-
m máli, enda þótt æskilegt
sé að hún geti verið honum
fjárhagslegur stuðningur.
Nú, eins og jafnan áður,
munu dómar manna mis-
jafnir um úthlutunina. Vegna
takmarkaðra fjárráða hefur
ekki verið unnt að veita eins
mörgum viðurkenningu og
æskilegt hefði verið. Og þeg-
ar gera á upp milli hinna
einstöku listamanna koma
jafnan mörg sjónarmið til
greina. Óhætt er að fullyrða
að margir þeirra, sem ekki
hlutu listamannalaun að
þessu sinni hafi verðskuldað
þau, og ýmsum mun sjálf-
sagt finnast einhverjir þeirra
sem hlutu þau lítt maklegir
þeirra.
En aðalatriðið er að þjóð-
félagið meti hið skapandi
listastarf og skilji þýðingu
þess fyrir menningarlíf fólks
ins. Viðurkenningu og virð-
ingu fyrir starfi listamanns-
ins er einnig hægt að sýna á
marga aðra lund, en með
veitingu listamannalauna. —
Til þess að þjóðin geti notið
listamanna sinna þarf hún
að kynnast verkum þeirra,
hvort sem heldur er um að
raeða á sviði tónlistar, mynd-
listar eða orðsins listar. Enn
þá er allt of lítið gert að því
í okkar landi að fela t. d.
myndlistarmönnum skreyt-
ingu opinberra bygginga og
jafnvel einkahíbýla. Með því
að fá listamönnunum verk-
efni og gefa þeim tækifæri
til þess að framkvæma hug-
myndir sínar gefur þjóðin
þeim mestan byr undir
vængi.
Lífið er stutt en listin er
eilíf,- segir gamalt máltæki.
Þess er hverri kynslóð hollt
að minnast. Jákvæð afstaða
og skilningur á starfi lista-
mannsins hefur grundvallar-
þýðingu fyrir menningarlíf
hvers tíma. Á síðasta Al-
þingi voru uppi tillögur um
það frá ríkisstjórninni og
einstökum þingmönnum að
koma verðlaunaveitingum
þjóðfélagsins til handa ís-
lenzkum listamönnum í fast-
ara og öruggara horf en ver-
ið hefur undanfarið. Munaði
minnstu að frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um þetta efni
næði lagagildi. Vonandi
dregst það ekki lengi úr
þessu að slík löggjöf verði
sett. Það skipulag, sem ríkt
hefur í þessum málum á
undanförnum árum er síður
en svo til frambúðar.
HASKALEGT
ATFERLI
KOMMÚNISTA
TSLENDINGAR eru ýmsu
vanir af kommúnistum.
En skrif þeirra um afurða-
sölumálin undanfarið eru ís-
lenzkum hagsmunum háska-
legri en flest annað, sem
birzt hefur á síðum Þjóð-
viljans. Kommúnistar hika
ekki við að reyna að spilla
fyrir því, að íslenzkur fisk-
iðnaður og sjávarútvegur fái
nauðsynlega verðhækkun á
hraðfrystum karfa í Sovét-
ríkjunum.
Vitað er að íslendingar
hafa fengið hækkað verð fyr
ir ýmsar fisktegundir á öðr-
um mörkuðum sínum. Stór-
fellt verðfall hefur að vísu
orðið á fiskimjöli á heims-
markaðnum og hefur það
valdið útgerðinni gífurlegu
tjóni. Þess vegna er þörfin
ennþá brýnni fyrir hækkað
karfaverð. En kommúnistar
reyna að spilla fyrir því eft-
ir fremsta megni að íslend-
ingar fái þessa verðhækkun.
Slík hækkun á karfaverði
fæli í sér, segir Þjóðviljinn,
„verðbætur á tapsölu“ til
annarra landa. Þjóðviljinn
skorar hreinlega á Rússa að
verða ekki við óskum íslend-
inga í þessum efnum!
Engum hugsandi íslend-
ingi getur dulizt að hér er
um hrein landráðaskrif að
ræða af hálfu kommúnista.
Hér eftir getur enginn verið
í vafa um, að hagsmunir ís-
lendinga eru þeim einskis
virði. Þeir skirrast ekki við
að beita fáránlegustu bar-
áttuaðferðum til þess að
Sigur kommúnista í Laos
EINS og kunnugt er af fréttum,
átti 14 ríkja ráðstefna um Laos
að, koma saman til fundar í Genf
á fóstudag. Laosstjórn og aðrar
ríkisstjórnir höfðu sett það skil-
yrði fyrir því að mætt yrði til
ráðstefnunnar, að raunverulegt
vopnahlé væri fyrst komið á í
landinu, og var það eðlilegt, því
ella myndu kommúnistar halda
áfram að leggja landið undir sig,
meðan á ráðstefnunni stæði.
Fyrst í stað virtist ætla að ganga
erfiðlega að koma vopnahléi á
vegna tregðu kommúnistahersins
— Pathet Lao. Menn urðu þvi
bjartsýnir í Genf á föstudag,
þegar fréttir bárust þess efnis
austan frá Laos, að raunveru-
legt vopnahlé væri komið á, og
að hin alþjóðlega eftirlitsnefnd,
sem skipuð er fulltrúum Pól-
lands, Indlands og Kanada, hefði
sent erindreka sína og eftirlits-
menn til helztu staða í landinu.
En þá kom babb í bátinn. Ráð-
stefnan hafði frá upphafi átt að
vera bundin við ríkisstjórnir. í
Laos er nú við völd stjórn, sem
Boun Oum prinz veitir forstöðu.
Áður var þar við völd ríkisstjórn
Souvanna Phouma prinz, en
hann veltist úr valdasessi og
dvelst nú erlendis. Boun Oum
er Vesturveldunum hliðhollur, en
Souvanna Phouma fylgir svokall
aðri hlutleysisstefhu, Og berst all
miklli her í Laos undir merkjum
hans. Þriðja aflið í landinu er
her Pathet Lao, kommúnistaher-
inn, en ekki hefur hann borið
við að mynda „ríkisstjórn“ enn.
Mun það gert af tilhliðrunarsemi
og tillitssemi við „hlutleysisöfl-
in“, en stuðning þeirra vilja
kommúnistar ekki missa fyrst
um sinn. Nú kom í ljós í Genf,
að Sovétríkin kröfðust þess, að
fulltrúar kæmu frá báðum ríkis-
stjórnunum og kommúnistahern-
um að auki. Bandaríkjamenn
sögðu hins vegar, að enginn aðili
nema hin löglega ríkisstjórn Boun
Oum gæti sent fulltrúa, en til
samkomulags gætu þeir fall-
izt á, að útlegðarstjórn Souvanna
Phouma ættu einnig fulltrúa í
Genf. Hins vegar kæmi ekki til
mála að veita herstjórn uppreisn
ar- og innrásarafla aðild að ráð-
stefnunni.
Þannig stóðu málin í gær (laug
ardag), og var ekki búizt við
samkomulagi fyrr en í fyrsta
lagi á mánudag. Við skulum nú
skaða atvinnuvegi þjóðarinn-
ar og grafa undan efnahags-
grundvelli hennar.
ÞAÐ ER EKKERT
MORGUNBLAÐ
fjJÓÐVILJAMENN eru að
vonum kampakátir yfir
að austur-þýzki sjómaður-
inn, sem hér baðst hælis
sem pólitískur flóttamaður
skuli hafa snúið heim til
Austur-Þýzkalands. Morgun-
blaðinu er ókunnugt um
ástæðurnar til þess að hinn
ungi maður valdi að hverfa
þangað aftur, en hins vegar
veit blaðið, að erlendir er-
indrekar heimskommúnism-
ans tóku hann þegar tali, er
hann sté hér á land og hafa
vafalaust lagt hart að hon-
um að hverfa heim síðan.
Ekki ber að efa að þeir
hafi heitið honum gulli og
virða ofurlítið fyrir okkur ástand
ið í Laos.
Hvernig standa málin í Laos?
Því er auðsvarað: Alger sigur
kommúnista vofir yfir. Hernað-
arstaðan er þessi: Her Pathet
Lao og her „hlutleysissinna“
undir stjórn Kong Le ráða nú
um helmingi landsins. Allur aust
urhluti þess er á valdi þessara
herja, Og hefði vopnahlé ekki ver
ið gert, hefði þeim verið leikur
einn að sækja vestur að Mekong-
fljóti og kljúfa landið í tvennt.
• Pathet Lao herinn telur 11
herfylki. Herfræðingar og tækni
fræðingar frá Norður-Vietnam
stjórna aðgerðum að mestu leyti.
Höfuðstyrkur hersins hafa verið
daglegar vopnasendingar frá
Kína og Sovétríkjunum. Fyrir
Pathet Lao er Souphanouvong
prinz. Hann er af konungsættinni
Og hálfbróðir Souvanna Phouma.
Hann er nú 48 ára gamall, lagði
stund á verkfræði í París á yngri
árum og þótti framúrskarandi
námsmaður, en gerðist snemma
ofstækisfullur kommúnisti, eins
Og sumir aðrir meðlimir hinnar
fjölmennu konungsættar, sem
stóðu fjarri ríkiserfðum eða virð-
ingarstöðum. Fyrir stríð var
hann verkfræðingur í Indó-Kína,
en hefur síðan fullnumið sig í
fræðum kommúnista í Peking.
Pathet Lao hefur stundum reynt
grænum skógum, ef hann
hyrfi aftur austur fyrir járn-
tjald. Hitt er líka líklegt að
þeir hafi eitthvað minnzt á
hin nánu skyldmenni hans,
sem þar dvelja. Allir velvilj-
aðir menn hljóta að óska hin
um unga Austur-Þjóðverja
gæfu og gengis og vona að
heit þau, sem honum hafa
vafalaust verið gefin, verði
ekki rofin.
Þjóðviljinn er hins vegar
mjög ánægður í gær þegar
hann segir, „en það er ekk-
ert Morgunblað í Austur-
Þýzkalandi." Nei, þar eru
engin frjáls blöð og þess
vegna verður ekki þægilegt
að fylgjast með afdrifum
þessa unga manns, og hann
á þar engan, sem tekur op-
inberlega upp hanzkann fyr-
ir hann, ef svo kynni að fara
að ástæða þætti til að hegna
honum fyrir brotthlaupið.
að dylja það, að hér er um komm
únistaher að ræða, en í seinni tíð
hefur það verið lagt af að mestu.
A. m. k. titlar Tass-fréttastofan
foringja hersins nú kommúnista.
• Her Kong Le telur sjö her-
fylki. Kong Le er höfuðsmaður
að tign og ekki nema 28 ára
gamall. Hann er mjög vinstri
sinnaður, en telur sig „hlutleysis-
sinna“. Hann gerði byltingu f
Laos 1960, kom Souvanna
Phouma til valda, en þegar átök
hörðnuðu milli konungshersins
Pathet Lao, gekk hann með her-
deildir sínar í lið með hinum síð-
arnefndu. Kong Le hefur nú raun
verulega gengið kommúnistum á
hönd, þar eð hann er þeim alger-
lega háður um vOpn og vistir.
Sovétríkin og Kína hafa útbúið
her hans nýtízku vopnum, og
þótt Kong Le hafi upphaflega
ætlað sér að tryggja „hlutleysi“
Laos, þá hefur hann reynt hið
sama og margir sama sinnis, að
eftir að aðstoð hefur verið þeg-
in úr hendi Maos og Krústjoffs,
Og þiggjandinn orðinn háður. veit
andanum, verður „hlutleysissinn
inn“ að ganga erinda kommúnism
ans beint eða óbeint, hvort sem
honum líkar betur eða verr.
• Her rikisstjórnarinnar telur
um 6 herfylki, en baráttuþrek
hans er á þrotum eftir ósigur á
ósigur ofan gegn margfaldlega
sterkari andstæðingi. Herinn er
illa búinn, örþreyttur og kjarkur
inn bilaður. Nú er ekki talið, að
nema 1200 hermenn séu orrustu
hæfir auk varðflokka bænda og
borgara úti um landið. Hershöfð-
ingin er Phoumi Nosavan.
Hvað gerist?
Þessi aðstaða þýðir einfaldlega
það, að nú geta kommúnistar tal-
að eins og þeir, sem valdið hafa
í Laos, og það með réttu. Að-
staða þeirra á ráðstefnunni f
Genf verður mjög sterk, því að
Vesturveldin vita, að fari bún út
um þúfur og styrjöldin hefjist að
nýju, geta kommúnistar lagt
landið undir sig áður en hægt er
að koma ríkisstjórninni til hjálp-
_ar. Líklegt er, að samið verði
upp á þau býti, að Souvanna
Phouma komist aftur til valda og
hafi meiri hluta ríkisstjórnarinn-
ar, en auk þess verði þrír ráð-
herrar frá Pathet Lao og þrír
frá hægri mönnum. Með þessu
hafa kommúnistar komið ár sinni
vel fyrir borð. Starfsemi þeirra
verður léyfð, og þess mun þá
vart langt að bíða að þeir taki
öll völd í sínar hendur. Laos er
mikilvægt í þeirra augum, þvi
að það á langa landamæralínu
sameiginlega með Suður-Viet-
nam, en þangað hafa kommúnist
ar sent skæruliðasveitir og hermd
Framhald á bls. 23.