Morgunblaðið - 14.05.1961, Síða 14
M
l MP~ UNBLAÐIÐ
JJLa
Sunnudagur 14. mai 1961
Aðaliundur
Aðalfundur Loftleiða verður haldinn fimmtudaginn
15. júní n.k. kl. 2 e.h. í veitingastofu Loftleiða á
Reyk j avíkurflugvelli.
D A G S K R A:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál.
Reikningar félagsins munu verða til sýnis í aðal-
skrifstofu Loftleiða frá 12. júní og 14. júní verða
þar afgreiddir til hluthafa aðgöngumiðar vegna
aðalfundarins.
STJÓRNIN.
Akurnesíngar
SAMSÖNG heldur kór kvennadeildar Slysavamar-
félagsins í Reykjavík í. Akraneskirkju í kvöld kl. 20
undir stjórn
HERBERTS HRIBERSCHEKT
undirleik og einleik DR. PÁLL ISÓLFSSON.
Einsöngvarar með kórnum Snæbjörg Snæbjamar og
Sigurveig Hjaltestedt.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Tívolí opnað kl. 2
Kl. 3 Klemens Jónsson skemmtir
Fjölbreytt skemmtitæki.
Fjölbreyttar veitingar.
Eins og tveggja manna svefnsófar
sófasett, stakir stólar og kollar, sófaborð,
Hansahillur o. fl.
— Mikið úrval af áklæðum —
| -flúsgagnaverzlun I
Vr-7uðmundarHalldórssonar
Laugaveg2 • Simi 15700-
Við höfum tekið í notkun fyrstu sérbyggðu vélina
til sl(pingar á vélablokkum og toppstikkjum.
Vélin slípar blokkir allt að 120 cm. lengd. Vélin
gerir allt í senn, réttir af skekkjur- slípar flötinn
— og eykur gæði hlutanna.
Þ. Jónsson & Co.
Brautarholti 6 — Símar 15362—19215
-ykjavlkurbréf
Framhald af bls. 13.
t til ekki lítilla hluta. Þú
. kominn hingað til 'þess að
.linna samlanda þína á það, að
erlendur her hefur átt aðsetur
í landi okkar siðastliðin tíu ár.
Þú hefur með göngu þinni mót-
mælt frekari dvöl hins erlenda
hers. Þú vilt ekki, að íslenzka
þjóðin þurfi að vera í nábýli
við erlendan her í önnur tíu
ár. Þú vilt hafa ísland fyrir ís-
lendinga. Þökk sé þér, þökk sé
þér göngumaður, þú hefur hald-
ið vöku þinni. Þökk sé þér, að
enn á íslenzkur málstaður sér
örugga málsvara — málsvara,
sem ekki beygja sig þótt móti
blási, heldur að hætti okkar
beztu forfeðra eflast við hverja
raun og hefja fána íslenzks mál-
staðar hærra. Þökk sé þér fýrir
að styrkja þá von, að íslenzk
tunga og menning glatist ekki,
þótt land okkar liggi í straum-
mótum austurs og vesturs".
Kristni
f jór-þakkað
Þannig ávarpaði formaður
ungra Framsóknarmanna hinn
vegmóða göngumann, Kristinn
Andrésson og aðra kommúnista,
sem mest bar á í gönguferðinni.
Á sínum tíma sagði fyrsti
sendiherra Sovétríkjanna hér á
landi um Kristinn Andrésson,
að hann væri sá maður, sem
Rússar gætu verið öruggir um
að aldrei mundi bregðast þeim.
Eftir hálfan annan áratug hefur
Sovétstjórnin enn sömu mætur
á Kristni. Hann var ásamt Ein-
ári Olgeirssyni kvaddur á
kommúnistaþingið í nóv.—des.
sl., þegar settar voru niður deil-
ur Rússa og Kínverja um það,
hvort fylgja skyldi stefnu hinna
síðartöldu, um að lýst væri yfir
því, að nýtt heimsstríð væri ó-
umflýjanlegt eða það væri látið
opið, eins og Rússar lögðu til.
Þegar sýnt var að taka mundi
nokkrar vikur að ná samkomu-
lagi, var Einari leyft að hverfa
heim, en Kristni haldið fyrir
austan allt til fundarloka. Enda
var hann einn af þeim, er fjall-
aði um boðskapinn, sem ráð-
stefnan sendi frá sér og m.a.
boðaðí línnulaust stéttastríð og
sundurgröft allra þjóðfélaga,
þar sem kommúnistar hafa
ekki alger yfirráð. Nærri má
geta, að slikur maðul- hafi glaðzt
í hjarta sínu, þegar hann heyrði
formann ungra Framsóknar-
manna færa sér margfaldar þakk
ir, fyrir að hafa haldið vöku
sinni, tryggð við íslenzkan mál-
stað og fyrir að hefja fána ís-
lenzks málstaðar hærra.
Þetta fjórfalda þakkarávarp
sýnir betur en flest annað,
hversu vel kommúnistum hefur
orðið ágengt að smeygja erind-
rekum sínum inn í raðir Fram-
sóknarmanna og holgrafa hann
innan frá.
H úsgagnasmiðir
3—4 húsgagnasmiðir óskast strax.
Húsgagnavinnustofa Jónasar Sólmundssonar
Sími 16673
TT\r •
iimmn
„heimót tarlegur46 (>
En fram af öllum má ganga.
Uppivaðsla kommúnista í Fram-
sókn og þjónusta margra for«
ystumanna flokksins við þau ó»
róaöfl, hefur nú gersamlega
gengið fram af ýmsum mönnum
víðsvegar um land. 1 útvarpsum
ræðunum í vetur eyddu ræðu-
menn Framsóknar verulegum
hluta tíma sins til að afneita
kommúnistum og reyna að sýna
fram á, að Framsókn væri enn
sjálfráða flokkur, þrátt fyrir
kommúnistaþjónkunina. Þessar
afneitanir hafa þó ekki dugað.
Eftir að þingmennirnir komu
heim í kjördæmi sín, hafa þeir
orðið áþreifanlega varir við ó-
ánægju kjósenda. Um þetta hafa
þeir sent boð til flokksforust-
unnar hér og það orðið til þess
að Tíminn hefur síðustu vik-
urnar tekið nokkrum stakka-
skiptum. Nú eru þar öðru
hverju birtar greinar andstæðar
kommúnistum, en þó að mestu
í þeim dálkum, sem ritstjórnin
tekur ekki -sjálf ábyrgð á. —
Kommúnistum líkar ekki þessi
sjálfstæðisvottur og því segir
Þjóðviljinn hinn 11. maí svo: M
„Það hefur vakið athygli a3
undanförnu hVersu heimóttarleg
og tvíhent aðstaða Tímans hef-
ur verið til margra mála“. ^
Fróðlegt verður að sjá,
hverhig Timinn bregst nú við.
Sennilega þarf Þjóðviljinn þó
engu að kvíða. Jafnvel þótt Tím
inn reyni ögn að byrsta sig, þá
verður það einungis gert í þvl
skyni að véla um fyrir þeim,
sem ekki vilja una kommúnista-
þjónustunni og leiða þá blind-
andi áfram á ófarnaðarbraut-
AÐALSTRÆTI 16 (uppi)
IM Y T T
klæðskeraver!istæði
NÝ SNIÐ
URVAL
FATAEFNA
ÁRNI PETURSSON
KLÆÐSKERI
SÍMI 23119
AÐALSTRÆTI 16 (uppi)