Morgunblaðið - 14.05.1961, Qupperneq 23
MORGVTntT AÐIÐ
23
Sunnudagur T4. maí 1961
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
arverkamenn að undanförnu. Eru
þar nú myrtir um 200 menn á
mánuði hverjum af sveitum þess
um, — allt menn, sem hafa eitt-
hvað látið að sér kveða gegn
kommúnistum. Þá hefur Laos
sameiginleg landamæri með Kam
bodíu, (sem kommúnistar hafa
anikinn áhuga á um þessar mund
ir), Thailandi (Síam) og Birma
(Burma). Enginn skyldi ímynda
sér, að Pathet Lao myndi
eira stjórnarvöldum Souvanna
ÍPhouma til langframa, enda yrði
Ihann hvort eð er að sitja og
standa að boði kommúnista. Þess
má og geta, að Pathet Lao skirrð-
ist ekki við að halda skæruhern-
aði sínum áfram, þegar friðar-
samningar voru gerðir 1957 og
tveir ráðherrar í ríkisstjórninni
voru frá Pathet Lao.
Hvers vegna ?
Ástandið er svona í LaOs í dag
vegna þess, að kómmúnistar hafa
markvisst unnið að því að ná
þar völdum, meðan andstaðan
gegn þeim var veik og hikandi.
Þar átti að ríkja „hlutleysi“, en
í örðabók kommúnista er ekkert
- raunverulegt hlutleysi til. „Hlut-
leysi“ í þeirra munni merkir
frið til að kollvarpa lýðræðislega
kjörinni stjórn lanclsins, frið til
að koma sér upp herjum og frið
, til að smygla vOpnum inn í land-
ið, meðan Vesturveldin verða að
íhalda að sér höndum og horfa
jþegjandi upp á gang mála, því
að „hlutleysið" verða þau að
virða. Kommúnistar leggja nú
Ofurkapp á „hlutleysi“ ríkja í
Suð-austur-Asíu. Takist þeim að
koma áformum sínum fram í
Laos er alveg víst, að næsta tak-
mark þeirra verður Suður Viet-
nam, Kambodía, Thailand og
Birma. Malaja og Singapore
verða þá einnig skammt undan.
Hefðu Bandaríkin brugðið fyrr
við og aðstóðað stjórn Laos svo
að um munaði, hefði öðru vísi
farið. En Bandaríkjamenn vOru
hikandi, hræddir við gagnrýni
„hlutlausu“ ríkjanna, og því fór
sem fór. Menn eru sammála um,
að sú aðstoð, sem Bandaríkja-
menn veittu um síðir, hafi verið
vel og skjótt af hendi leyst. En
hún kom of seint. Þeim tókst að
hindra fall höfuðborganna
tveggja — Vientiane og Luang
Prabang — áður en vopnahlé var
gert, en meira tókst þeim ekki
að gera á þessum stutta tíma.
Lexían af Laos
Hverja lærdóma er hægt að
draga af Laosmálunum?
Ekki aðra en þá, sem kunnir
máttu vera áður, að á vorum
dögum er „hlutleysi" máttlausrar
smáþjóðar, sem er veik út á
við, og (í þessu tilviki) einnig
inn á við, ekkert annað en agn
! fyrir kommúnista. Þeir heimta
„hlutleysi í átökum stórveld-
anna“ til þess eins, að geta mis-
notað sér aðgerðaleysi Vestur-
yeldanna. Þeir virða hlutleysið
ekki fremur en hvert annað úr-
elt hugtak, heldur halda beinlín-
is uppi hernaði gegn löglegri
Stjórn með flokkum sínum, sem
Stjórnað er frá Peking og
Moskvu.
M Þótt illa hafi farið í Laos og
ekki sé hægt að búast við öðru
en óhagstæðum samningum í
Genf, þá má þó svo fara, að hér
hafi kommúnistar gengið svo
iangt í tæknibrögðum sínum við
misnotkun „hlutleysis“, að tekin
verði upp ákveðnari stefna af
þjóðum Asíu í baráttunni við
heimsveldastefnu Kína og Sovét-
ríkjanna.
Fermiaig á
Eyrarbakka
Kl. 2 e.h.
Kölbrun Jenny Sigurjónsdóttir,
MerkisteinL
Sveinn Magnússon, Dagsbrún.
Kongóþing kvatt saman á ný
t16 þingmenn hafa látið lífið J
! síðan þíng kom síðast sam- j
\ an fyrir 8 mánuðum !
S i
Leopoldville, 12. maí.
— (Reuter —• NTB)
KASAVUBU, forseti Kongo,
tilkynnti í dag í Leopold-
ville, að hann hyggðist kalla
saman þjóðþing landsins
undir lok þessa mánaðar, en
þingið hefur ekki komið sam
an til funda í átta mánuði.
Fyrsti fundur þess verður
væntanlega haldinn þegar
að lokinni ráðstefnu stjórn-
málaforingja í Coquilhatville,
en þar er rætt um stofnun
ríkjasambands í Kongó und-
ir sterkri miðstjórn sem að-
setur hafi í Leopoldville.
Fyrsta vandamálið, sem kann
að liggja fyrir þinginu er að
ákveða löglega hver sé forystu-
maður löglegrar stjórnar og þá
jafnframt hver sé lögleg stjórn
landsins.
Antpine Gizenga, forystumað-
ur Lumumbasinna í Stanleyville,
telur sig sjálfkjörinn og lög-
legan eftirmann Lumumba, sem
var forsætisráðherra þeirrar einu
stjórnar landsins, sem staðfest-
ingu hefur hlotið af þinginu. Er
því talið ólíklegt, að Gizenga
fallist á annað en nýjar kosning-
ar fari fram. Stjórnin í Leopold-
ville, sem nú er undir forsæti
Josephs Ileo, hefur aldrei fyrir
þingið komið.
Kasavubu sagði er hann til-
kynnti um endurreisn þingsins,
að hann mundi fara þess á leit
við Sameinuðu þjóðirnar að
starfsmenn þeirra önnuðust
flutning þingmanna til Leopold-
ville og veittu þeim og fjölskyld-
um þeirra nauðsynlega vernd.
Er talið , að Kasavubu vilji með
þessu undirstrika samvinnu Leo-
poldvillestjórnarinnar og starfs-
liðs Sameinuðu þjóðanna, sem
hefur færzt í allgott horf eft,-
margra mánaða illindi og tor-
tryggni.
Þingið í Kongo er í tveim deild
um. í neðri deild eru 137 þing-
menn en 84 í Öldungadeildinni.
Af þessum mönnum eru nú 9
látnir úr neðri deild en 7 úr öld-
ungadeildinni.
Listamanna-
laun
í FRÁSÖGN blaðsins í gær af
úthlutun listamannalauna féllu
niður nöfn þriggja manna, Guð-
mundar Daníelssonar, sem hlaut
20 þús. kr. og Óskars Aðalsteins,
og örlygs Sigurðssonar, sem
hlaut 10 þús. kr. hvor. Eru þeir
beðnir velvirðingar á þessu.
- NATO
Framh. af bls. 18 1
Þjóðin er ekki á einu máli um
varnirnar. Sumir segja að þær
hefðu átt að vera sterkari, aðrir
að við hefðum getað látið okkur
nægja með minna. En í meginat-
riðum eru þó allir lýðræðisflokik
amir sammála. Stöndum saman
um frið og frelsi og sjálfstæði —
(Lófatak).
Mannfjöldin stóð rólegur og
hlustaði með athygli. Þetta var
ekkert „Alþingi götunnar". En
allt í einu skapaðist Japanskt á-
stand“ í útjaðri mannfjöldans.
Þar eru nokkrir ung-kommar á
ferð með kröfuspjöld, sem á
stendur. Engin atómvopn o.fl.
þess háttar. Og þeir æpa- „Útav
NATO, Útav NATO“. Me'ð hægð
og festu kom lögreglan í veg fyr
ir allar óspektir, en fólkið reif
spjöldin í tætlur og siagði strákun
um að skammast sin.
Þessi mikli fjöldafundur, sem
er sá stærsiti í Noregi eftir
stríðið, fór ágætlega fram og
blöð allra lýðræðisflokkanna
luku á han,n lofsorði og hann
sýndi betur en orð fá lýst, hve
einhuga fólkið stendur að varnar
samtökum gegn ofbeldi og yfir-
gangi.
NATO-fundinum lýkur í dag.
Margt fleira mætti til tína og
segja frá í sambandi við hann, en
hér skal láta staðar numið.
Mjög erriðar sam-
gongur í S-Þing.
ÁRNESI, S.-Þiing, 15. mai. —
Sauðburður er almennt hafinn og
gengur vel. Veðráttian er góð
og snjóa hefur telkið iupp að
mestu í byggð og tún tekin að
grænka,
Voranniir enu byrjaðar, mesti
annatími bænda, er allt þarf að
gena á sama tíma, en á þessum
tíma árs er hvað erfiðaist að fá
fólk til sveitastarfá, meðan skól-
amir eru enn að störfum.
Saimgöngur eru mjög erfiðar
vegna aurbleytiu á vegunium.
Hafa truikk'ar og jarðýtur orðið
að draga mjóikurbíla yfir verstu
torfærumar. Hafa vegir raiunar
verið ófærir bílum á aðra viku,
og heÆur mjóllkin verið flutt á
allsskonar farartækjum. Undan-
‘tekning er þó vegurinn frá Hús'a-
víik að flugvellinum í Aðaldial,
er byggjur var í fyrra. — Hann
hiefur eklki haggazt í þesisari
dæmalausu aurbleytu. Unnið er
að vegaviðgerðum, en enn er
þó ófært til Akureyrar og veg-
urinn lokaður öllum öðrum bíl-
um en jeppum. — Hermóður.
Lögþing Færeyja samþykkir
oð slíta samkomu-
laginu v/ð Brefa
EINKASKEYTI til Mbl. frá Fær
eyjum. 13. maí. — Lögþingið í
Færeyjum óskaði í dag eftir að
slitið yrði samkomulagi Breta
og Dana um fiskveiðitakmörkin
við Færeyjar. Samkvæmt því
samkomulagi sem undirritað var
í apríl 1959 var Bretum leyft að
halda vissum „sögulegum“ rétti
til veiða innan sex mílna við eyj
arnar en aðrar þjóðir verða að
l
— Arnasafn
Framh. af bls. 1.
almannaþörf. Því getur þriðj-
ungur þingmanna krafizt þess, að
staðfestingu laganna verði frestað
unz kosningar hafa farið fram
að nýju til þjóðþingsins og ný-
kjörið þjóðþing einnig samþykkt
frumvarpið.
Andersen telur, að ekki geti
orðið um að ræða skaðabóta-
kröfu því að stofnunin geti ekki
selt handritin og líði því ekki
fjártjón þótt hún sé án þeirra.
í grein hans kemur fram, að hann
er andvígur afhendingu handrit-
anna.
Politiken skýrir frá grein And
ersens í morgun og segir, að al-
veg nýtt atriði virðist koma fram
í handritamálinu með þessum at-
hyglisverðu utnmælum Pouls
Andersen.
lúta ákvæðum um 12 mílna fisk-
veiðilögsögu. Færeyska lögþingið
samþykkti í dag tillögu frá Þjóð
veldisflokknum, þar sem svo var
kveðið á, að samkomulagið skyldi
falla úr gildi í apríl 1963. Til-
laga Sambandsflokksins um að
leysa málið eftir venjulegum
diplómatískum leiðum var felld.
Loftpressur
með krana til leigu.
GUSTUR HF.
Símar 12424 og 23956.
Ungur maður er á heima 1
sveit á stórt bú og nýjan bíl
úskar ef lir að kynnast
góðri stúlku á aldrinum
25—35 ára, með hjónaband
fyrir augum. Æskilegt að
mynd fylgi. Tilb. sendist afgr.
Mbl. merkt: , 1253“.
LOFTUR ht.
LJÖSMYNDASTO FAN
Pantið tíma i sima 1-47-72.
Þakka hjartanlega vinum og vandamönnum fyrir gjaf-
ir og góðar óskir í tilefni af sjötugs afmæli mínu,
Þorbergur Ölafsson
EFTIK SEXTUGSAFMÆLH).
Vorið ljómar vík og sker.
Vinsemd róma gegna hjalla
þakka sóma sýndan mér,
sögur blóm og góðvild alla.
Lifið heil.
Einar Sigmundsson, Barmahlíð 37.
Móðir okkar,
GUÐMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Arnarnúpi í Dýrafirði,
andaðist 12. þessa mánaðar.
Börnin.
Útför mannsins míns
JÓNS EINARS JÓNSSONAR
Hátúni 4,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudginn 16. maí n.K.
kl. 1,30 e.h.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Rósa Bjarnadóttir.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar,
ÖNNU PÁESDÓTTUR
Bræðratungu 37, Kópavogi,
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. maí kL
1,30 e.h. — Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
llelgi Ólafsson og börnin.
Útför föður okkar,
MICHAELS SIGFINNSSONAR,
Langholtsvegi 44,
fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 15. mai
kl. 10,30. — Athöfninni verður útvarpað.
Jónína Michaelsdóttir, Laila Michaelsdóttir
Ásta Michaelsdóttir, Linda Michaelsdóttir
Karl Michaelsson
Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auðsýndu mér
vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns
JÚLlUSAR PÉTURSSONAR
Borgarnesi.
Ragnheiður Jónasdóttir.