Morgunblaðið - 07.07.1961, Page 3

Morgunblaðið - 07.07.1961, Page 3
Föstudagur 7. júlí 1961 MORGUNBLAÐ1Ð 3 Þetta mót Séð yfir mótssvæðið ELLEFTA landsmóti Ung- mennasambands íslands er lokið og jafnframt einni stærstu samkomu, sem haldin verður hérlendis á þessu ári. Nálægt 600 manns gengu til ýmis konar keppni á mótinu og var aldur þeirra frá 11 ára og allt fram yfir fimmtugt. Fastir starfsmenn voru um 200. Gestir mótsins voru þeg- ar flest var nær 8000, og bjuggu þeir í hinum rúmgóðu skólahúsum að Laugum og í rúmlega 600 tjöldum, sem teygðu sig yfir stóran hluta af túninu sunnan skólahús- anna. Margir fóru þó heim að kvöldi einkum Þingeyingar og Eyfirðingar. Keppendur höfðu reist sína tjaldbúð austan skólahússins, og, bjó hvert héraðssambariS útaf fyrir sig. Höfðu þeir komið fyrir smekklegum hlið- um við innganginn að hverju svæði. Mörg hliðanna voru gerð af hinni mestu hug- kvæmni. í þessari keppenda- tjaldborg voru um 200 tjöld. Keppnin sjálf fór fram á mörg um stöðum innan húss og ut- an, en flest atriði þó á hinu stóra og rúmgóða íþrótta- svæði, sem gert hefir verið vestan Reykjadalsár gegnt skólahúsunum. Héraðssamband Suður-Þing eyinga sá um framkvæmd mótsins svo og allan undirbún ing, en að honum hefir verið unnið í marga mánuði, og hef ir Óskar Ágústsson kennari á Laugum átt þar drýgstan þátt, en hann var framkvæmda- stjóri mótsins. Mótsstjóri og yfirdómari var Þorsteinn Ein- arsson íþróttafulltrúi. Auk margra annarra störfuðu þarna margir af helztu íþrótta kennurum landsins. • Mótssvæðið Klukkan er nálægt 22:00 á föstudagskvöld, er við lítum yfir mótssvæðið. Veður er milt og hlítt. Þegar eru all- milt og hlýtt. Þegar eru all- margt gesta. Við hittum Óskar mótsstjóra eða Óskar á Laug- um eins og hann er oftast nefndur. Sá maður virðist hafa í nógu að snúast, því ekki færri en 10 manns'standa kringum hann Og allir krefj- ast úrlaúsnar á sínum vanda. „Hvar á ég að búa? Hvar get ég fengið kaffi? Má ég tjalda suður við ána? Get ég fengið mat fyrir 4?“ En Óskar virð- ist geta svarað öllum í einu, allir fá einhVerja úrlausn. Margt af íþróttafólkinu er að æfingum á túnunum hér í kring, en aðrir ganga um og skoða staðinn, sumir hafa þeg- ar gengið til náða, enda erfið- ur dagur að morgni. Um mið- nættið virðist komin á algjör kyrrð, þó sézt á stöku stað ferðafólk að koma fyrir tjöld- um, og úr einu tjaldinu hér suður á túninu, heyrast daufir gítarhljómar. Tvær ungar kvenraddir raula Capriljóðið hans Davíðs um Katarínu á klettaeynni, „Af hæsta tindi hamingjunnar, horfum við um sólarlag". Já, það er sólarlag á Laug- um í kvöld, og hér býr sann- arlega friður og hamingja í hjörtum þeirra, sem hér dvelja á þessu fagra sumar- kvöldi. Ungmennafélögin voru stofnuð af æskumönnum, hér gengur æskan tápmikil og hraust til leika. • MótiS hefst Klukkan er 7, á laugar- dagsmorgni, veður fagurt, sól- skin og sunnan andvari. Það er hljótt yfir staðnum, tæp- lega nokkur risinn úr rekkju, nema þá helzt fréttamenn, sem rölta hér um staðinn, leit andi efnis í dálka blaðanna Og sjást þeir bregða mynda vélinni upp, við og við. Lítill snáði, varla meira en 5—6 ára kemur frá einu tjaldinu. Hann er með vænan mjólkur-: brúsa í hendinni Og spyr all-| borginmannlega hvar vatn sé helzt að fá. Hann fær greið svör, og þessi litli verðandi ungmannafélagi stikar snúð- ugt í sínu fyrsta starfi á Ung- mannafélagsmóti, að sækja vatn í morgunteið handa mömmu og pabba. Upp úr kl. 8 fer að færast líf í mótssvæð- ið. Menn rölta hér um og skrúðganga íþróttafólksins, því skammt er þar til keppni hefst, en í dag skal keppa í mörgum greinum. Er keppendur hafa fylkt liði á iþróttasvæðinu, en áhorf endur skipað sér í brekkuna umhverfis, setur séra Eiríkur J. Eiríksson mótið með snjallri ræðu. Að því búnu hefst keppnin. Keppnisgreinarnar voru svo margar, að þeim verður ekki lýst í stuttri frétta grein, flestar íþróttagreinarn- ar, sem nú eru stundaðar, starfsíþróttir margs konar, og kvennakeppni í saumum, hann yrðum og fleiri innanhúss- störfum. Laugardeginum lík- ur með dansleikum á þrem stöðum. Þar er fjölmenni mik- Óskar á Laugum. Kristjánsson alþingismaður og Óskar Ágústsson framkvæmda ■ stjóri mótsins. Fólkinu hefir fjölgað í dag hér að Laugum. Margir bílar og mörg tjöld bæt ast við. Það er einkum ferða- fólk í sumarfríi á leið aust- ur á land, sem ætlar að dveija hér í dag og nótt. Undir kvöldið skín sólin að nýju, og það er eins og létti yfir mannskapnum og brosin færast aftur á andlitin, einnig hjá þeim, sem tapað hafa leik, enda er það hinn sanni íþrótta andi að taka ósigrinum engu síður en sigrinum. Mitt í einni keppninni, flýgur stór álfta- hópur yfir mótssvæðið, og þá minnumst við þess, að ema göfuga grein vantar á keppn- isskrána, svifflugið. Það er al- mennings íþrótt, sem ungir og aldnir geta stundað sér til ánægju og þroska. Kannski verður svifflugið á næsta landsmóti UMFÍ? Kvöldi hallar, og sólin sezt, og nú líður að leikslokum. Af- hending verðlauna fer fram á palli sunnan við skólahúsið. Sigurvegararnir ganga stoltir, en yfirlætislausir af pallinum með tákn unnins afreks. Það líður enn meira á kvöldið og dansinn hefst. Það eru lok- in. Unga fólkið, keppendurnir, virðast ekki þungir í spori þrátt fyrir erfiði síðustu daga. Húmið færist yfir. Marg ir búast til heimferðar. Tjöld- in hverfa eitt af öðru, en enn er mikið starf fyrir höndum, að pakka öllu saman, og sitja kannske alla nóttina í bíl, en ungmennafélögunum vex það ekki í augum, og allir taka höndum til glaðir og ánægðir. Bifreiðin okkar er komin á heimleið, og á hæðinni gegnt Laugaskóla verður okkur litið hefur skapaö kynni og vináttu teyga tært morgunloftið. — íþróttafólkið hefir nú klæðzt sínum marglitu búningum og undir fánum síns sambands, eða félags fylkir það liði. — Lúðrasveit hefur leik og kl. 9 eru fánar dregnir að hún tugum saman allir í senn. fs- lenzki fáninn um allt móts- svæðið, en fánar Norðurlanda við tjörnina sunnan við skóla- húsið. Þessi látlausa athöfn er svo táknræn og fögur, að hún mun seint úr minni líða þeirra er á horfðu. Á íþróttasvæðinu hefst nú ið, en allt fer þó fram með reglu. ★ • Sunnudagurinn Sunnudagurinn er ekki eins blíður og dagurinn í gær. í morgunsárið rignir og nú andar köldu úr norðri. Keppn in hefst þó ■eigi að síður, og í dag er það einkum úrslita- keppni, svo og ýmsar sýning- ar, fimleikar, þjóðdansar að ógleymdri glímunni. Einnig eru í dag aðalræður mótsins, en aðalræðumenn eru Ingólf- ur Jónsson ráðherra, Jóhann Skaftason sýslumaður, Karl yfir staðinn. í næturkyrrðinni blasa við skólahúsin, leikvang urinn, tjaldbúðasvæðið og fólkið. Það hefur skipzt í smá hópa, er að kveðjast. Á stöku stað sjást þó aðeins tvö reikandi um í næturdögginni, þaU eru líka að kveðjast. Þetta mót hefir skapað kynni og vináttu milli byggðarlaga, milli héraða og landshluta, og einnig milli nokkurra ain- staklinga. Þessi kynni gleym- ast ekki, en samveru stund- unum er lokið að sinni. — St. E. Sig. STAKSTEINAR Enginn vissi betur Alþýðublaðið ræðir í gær í for- ystugrein sinni mjólkurhækk- unina og aðrar hækkanir á verð- lagi og þjónustu, sem eru afleið- ingar þeirra kauphækkana, sem orðið hafa. Kemst blaðið síðan að orði á þessa leið: „Þannig verða afleiðingar hinn ar miklu kauphækkunar. Alþýðu blaðið tók það strax fram, er verkalýðsfélögin settu fram kröf- ur sínar, að ekkert gagn væri í því að knýja fram miklar kaup- hækkanir, ef þær væru aftur teknar af launþegum með hækk- uðu vöruverði og hækkuðum sköttum. Alþýðublaðið taldi að betra væri að hækka kaupið minna en unnt væri þá fremur að tryggja launþegum raunhæfar kjarabætur. Það er nú að koma í Ijós, að þetta var rétt. Og for- ystumenn kommúnista í verka- lýðsfélögunum vissu þetta einn- ig. Enginn vissi betur en Eðvarð Sigurðsson að strax og kaup verkamanna hefði verið hækkað um 10% mundi mjólkurlítrinn hækka um 12 aura. Eðvarð situr í verðlagsnefnd landbúnaðaraf- urða og veit þetta því mæta vel. En samt beitir hann sér fyrir gíf- urlegum launahækkunum.“ Fyrirlíta heilbrigða dómgreind Mikil er fyrirlitning kommún- ista á heilbrigðri dómgreind al- mennings í landinu. Þeir efna til bandalags með Framsóknarmönn um beinlínis til þess að koma af stað kapphlaupi milli kaupgjalds og verðlags. Tilgangur niðurrifs- bandalagsins með því að setja verðbólguhjólið af stað var fyrst og fremst sá að knýja núverandi ríkisstjórn frá völdum og brjóta viðreisnarstefnu hennar á bak aftur. Stjórnarandstaðan gerði sér vitanlega ljóst, að af stór- hækkuðu kaupgjaldi hlyti að leiða hækkanir verðlagsins. Og það var meira að segja höfuð- takmark niðurrifsbandalagsins að knýja þessa hækkun verðlags- ins fram, til þess að torvelda rík- isstjórninni framkvæmd þeirrar jafnvægisstefnu, sem hún hefur markað í efnahagsmálum þjóð- arinnar. Nú, þegar 18% kauphækkun á einu ári hefur verið knúð fram, ráðast kommúnistar og Fram- sóknarmenn hinsvegar af taum- lausri heift á ríkisstjórnina fyrir það að hún ætli að „sleppa öllu verðlagi lausu“!/ Hefur önnur eins hræsni og yf- irdrepsskapur nokkurn tíma ver- ið um hönd hafður í íslenzkum stjórnmálum? Áreiðanlega ekki. Verða flokkarnir sameinaðir? Samstarfið milli Framsóknar- manna og kommúnista er nú orð- ið svo náið að margir gera ráð fyrir að flokkar þeirra, kommún- istaflokkurinn og Framsóknar- fiokkurinn, muni á næstunni verða algerlega sameinaðir í einn flokk. Er þá rætt um að Einar Olgeirsson verði formaður hins nýja flokks út á við en Hermann Jónasson formaður inn á við. Er þetta svipað fyrirkomulag og haft var þegar Héðinn heitinn Valdi- marsson fór með nokkurn hluta Alþýðuflokksins yfir í kommún- istaflokkinn. Voru þá kosnir tveir formenn í hinum nýja flokki. Mikill áhugi er sagður ríkja fyrir því, bæði innan Framsókn- arflokksins og kommúnistaflokks ins, að úr algerum samruna flokkanna verði. Ekki mun það þó fullráðið, hvenær hið rétta augnablik verði talið heppilegt til hess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.