Morgunblaðið - 18.07.1961, Qupperneq 1
20 siður
Mynd þessi var tekin í gær á heimili dönsku sendiherrahjónanna. Á hcnni eru
Geimferð í dag
Kanaverálhöföa, Florida,
17. júlí. —
1 DAG var tilkynnt á Kana-
veralhöfða að endanlega hafi
verið valinn næsti geimfari
Bandaríkjanna. Fyrir valinu
varð Virgil I. Grissom, höf-
liðsmaður í flughernum. Er
cetlunin að honum verði skot-
Ið út í geiminn í fyrramálið
(þriðjudag). Geimskot þetta
verður svipað því þegar Al-
•n Shepard var skotið út í
geiminn 5. maí s.l.
Seinna á þessu ári eða i byrj-
un næsta árs er ætlunin að
skjóta Bandaríkjamanni á braut
umhverfis jörðu.
Geimskip það, sem Grissom
fer í út í geiminn, er af Mercury
gerð, eins og skip Shepards, og
nefnist Liberty Bell, eða Frelsis-
klukkan. 'Nokkirar endurbætur
hafa þó verið gerðar á skipinu
í samræmi við reynslu úr fyrstu
geimferðinni. Áætlað er að
geimskipið nái um 185 km. hæð
og lendi á Atlafshafinu um
480 km. frá Kanaveralhöfða.
Fjöldi fréttamanna, erlendna
og innlendra, frá blöðum, út-
varpi og sjónvarpi, fylgist með
geimskotinu.
„Við viljum frið“
Nýju Delhi og Peiping,
17. júlí (Reuter)
MIKIL úrkoma hefur verið und-
anfarna daga víða í Asíu og vald
ið miklu tjóni. Vitað er að um
200 manns hafa farizt í flóðum á
Indlandi og eignatjón þar er met-
ið á um 1200 milljónir króna.
Einnig hefur mikið tjón orðið
víða í Kína þar sem mörg þorp
eru umflotin vatni.
Flóðin á Indlandi eru hin
verstu, sem komið hafa undan-
farin tíu ár. í Madras héraði er
talið að um 233 þorp liggi undir
vatni og í Tanjore hafa um
100.000 manns misst heimili sín.
Dr. Stikker, framkvæmdastj.
NATO. — Myndin var tekin
á blaðamannafundinum í gær.
sagðö Stikker framkvæmdastjóri
NATO á blaðamannafundi
í Ráðherrabustaðnum
Krúsjeff er persónulega flækfur
i Berlmardeiluna, Jbví er hún
erfiðari viðfangs
í G Æ R áttu fréttamenn blaðamannafund með fram-
kvæmdastjóra NATO, dr. Dirk Stikker, í Ráðherrabú-
staðnum, þar sem hann býr, meðan hann dvelst hér á
landi í opinberri heimsókn. Framkvæmdastjórinn kom
með flugvél á laugardagskvöldið frá París, en þangað
skrapp hann á fund frá Bretlandi, þar sem hann var í
opinberri heimsókn s.l. viku.
Dr. Stikker fer héðan til Parísar á miðvikudagsmorgun.
Dr. Dirk Stikker svaraði mörgum spurningum frétta-
manna í gær og sagði m. a.
að hann hefði komið hingað í venjulegum erinda-
gerðum til skrafs og ráðagerða,
að NATO vildi vinna að því af fremsta megni að
koma í veg fyrir átök vegna Berlínardeilunnar,
að Berlínardeilan væri erfiðari en ella fyrir þá sök,
að Krúsjeff væri persónulega flæktur í hana og álit hans
gæti verið í veði,
að ísland hefði einkum þýðingu fyrir NATO sem
birgðastöð og samgöngumiðstöð,
og loks sagði framkvæmdastjórinn, að íslendingar
þyrftu ekki um of að kippa sér upp við flotaæfingar Rússa
á austanverðu Atlantshafi.
Eigum að vera norbyggvar"
segir Peter Mohr Dam lögmaður
í samtali við MbL
-♦
FÆREYSKA sendinefndin,
sem ræðir við fulltrúa ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar um
réttindi Færeyinga til fisk-
veiða við ísland, kom til
Reykjavíkur á sunnudags-
kvöld með færeyska eftirlits-
skipinu Ternan.
Fréttamaður Morgunblaðs-
ins átti í gærkvöldi samtal
við Peter Mohr Dam, lög-
mann Færeyja, og fór sam-
talið fram á heimili dönsku
sendiherrahjónanna hér í bæ.
Lögmaðurinn kvaðst ekk-
ert geta sagt um viðræð*urn-
ar, sem hófust í gær. „Við
höldum áfram að tala sam-
an næstu daga,“ sagði hann,
„og vonum að niðurstöðurnar
verði jákvæðar.“
„Hvað eigið þér við með því?“
„Að við Færeyingar fáum rétt
indi til fiskveiða innan landhelg
innar eins og í gamla daga. Á
þessu stigi málsins er ómögu-
legt að segja um, hvaða rétt-
indi við fáum. En við Færey-
ingar segjum: íslendingar og
Frh. á • bls. 13. ,
Flotaæfingarnar
Auk Stikkers og blaðamanfia
sátu fundinn einkaritari hans og
aðstoðarmaður, Saint Mleux að
nafni auk Óttars Þorgilssonar,
fulltrúa í Upplýsingadeild NATO
í París. Leitaði hann tvisvar eða
þrisvar til Saint Mleux um upp-
lýsingar, áður en hann svaraði
spurningum, m. a. þegar hann
var spurður um flotaæfingar
Rússa á Atlantshafinu. Virtist
hann ekki hafa haft of nákvæm-
ar fregnir af liðssamdrætti Rússa
á þessum slóðum, og var honum
þá bent á, að margt hefði verið
um málið ritað, bæði í Noregi
og Danmörku. Hann sagðist ekki
telja æfingar þessar ögrun og
þyrfti ekki að veita þeim sér-
staka athygli nú sem stæði, eins
og hann komst að orði.
Engin sérstök mál
Stikker er mjög geðfelldur
maður og svaraði spurningum
blaðamanna yfirleitt greiðlega.
Þó vildi hann ekki fjalla um tvö
eða þrjú atriði, m. a. það hvort
ísland tæki nógu virkan þátt f
störfum Atlantshafsbandalagsins.
Hann sagðist vera framkvæmda-
stjóri bandalagsins og ekki hafa
umboð til að skýra mál einstakra
ríkisstjórna. f upphafi fundarins
sagðist hann hafa verið á ferð í
Framh. á bls. 13.
Afvopnun
Moskva, 17. júlí (Reuter)
f DAG hófust í Moskvu viðræðui
fulltrúa Bandaríkjanna og Sovét
ríkjanna um möguleika á því að
kalla saman að nýju afvopnun-
arráðstefnuna í Genf.
Formaður bandarísku viðræðu-
nefndarinnar er John McCloy séi
stakur ráðunautur Kennedys for-
seta í afvopnunarmálum, en for-
maður Sovétnefndarinnar ei
Valerian Zorin aðstoðar utanrík-
isráðherra.
vinstri: Bjarne Paulson sendiherra, Johan Hendrik Poulsen ritari nefndarinnar, frú Bodil
Strandkjær, hraðritari nefndannnar, Debes Christiansen útgerðarmaður, sendiherrafrú Agnete
Paulson, Peter Mohr Dam lögmaður, Dánial á Dul kennari og móðir sendiherrans, frú Ellen
Paulson. —