Morgunblaðið - 18.07.1961, Page 20
ísl. listamenn
sjá bls. 6.
158. tbl. — Þriðjudagur 18. júlí 1961
ÍÞRÓTTIR
Sjá bls. 8 og 18.
Mikil síldveiði út af
Seyðisfirði
HeildarafSiiin orllinn 576,430
mál og fn.
MIKIL síldveiði var í gær út af Seyðisfirði, um 7 mílur
út af Brimnesi. Strax og lygndi á sunnudag fóru bátarnir
út til veiða, en megin hluti síldveiðiflotans er þarna nú.
Blaðið hafði samband við Sigurð Kristjánsson hjá síldar-
leitinni á Seyðisfirði seint í gærkvöldi, og sagði hann að
bátarnir hefðu fengið í gær og fyrrinótt frá 1200 mála
köstum niður í 300 mál. Það var mótorbáturinn Hrafn
Sveinhjarnarson, sem fékk fyrstur síld, eftir að lygndi,
á sjötta tímanum á sunnudag síðdegis.
Síðan hefur verið látlaus
sild, sagði Sigurður, en fólkið
er orðið úrvinda við söltunina
og verksmiðjurnar hafa ekki
undan skipunum. Fjórtá.n skip
biðu löndunar með fullfermi
í gærkvöldi, og þannig er það
á öllum suðurf jörðunum.
Og enn er verið að kasta,
sagði Sigurður, þótt tunnu-
leysi sé og hvorki fólk né
vélar hafi undan. Svartaþoka
var á miðunum í gærkvöidi,
en blæjalogn og bjuggust
menn við áframhaldandi
veiði.
Norsku síldveiðiskipin voru
nokkru dýpra en íslenzku bátarn
ir, 15—30 mílur utar. Veiði var
þar ofsaleg í gær og gærkvöldi,
og var hæsti norski báturinn með
1300Óhektólítra.
Eftirtaldir bátar voru með
mestan afla í frá því kl. 8 að
morgni 16. fram til hádegis í
gær: Kristbjörg 800 mál, Stefán
Árnason 1000. Kristján Hálfdáns
son 550, Einar Hálfdáns 600,
Bjarni 800, Gylfi 700 tunnur, og
Vegagerðor-
verkfallið hófst
ú miðnætti
VERKFALL það, sem
miðstjórn ASÍ hafði boð-
að hjá Vegagerð ríkisins
hófst á miðnætti sl., þar
sem samningar höfðu ekki
tekizt, en enginn fundur
var haldinn með deiluað-
ilum í gær.
Víðir 11. fór í gærmorgun með
1200 mál til Raufarhafnar og
Hjelga RE með 1000 mál, og
sama gerðu margir aðrir stórir
bátar.
Nokkuð af tunnum hefur borizt
til Seyðisfjarðar frá Eyjafirði,
en það eru dýrar tunnur, því
það kostar jafnmikið að flytja
þær þaðan á bílum og síldar-
stúlka fær fyrir að salta hverja
tunnu. — Tvær söltunarstöðvar
eru á Seyðisfirði. Kl. 22 í gær-
kvöldi hafði önnur þeirra, Strönd
in, saltað 5203 tn og hin, Hafald-
an, 4687 tn. Um 28 þús. mál hafa
farið í bræðslu.
í vikulokin var afli síldveiði-
bátanna á svæðinu frá Langa-
nesi til Dalatanga, en síldargang
an færðist nær landi er líða tók
á vikuna, 224.564 mál og tunn
ur (í fyrra 61.197), en heildar-
aflinn er orðinn sem hér segir:
í salt, upps, tn. 264,963, en var
á sama tíma í fyrra 40,702 tn.
í bræðslu, mál: 300,233, en var
á sama tíma í fyrra 371.013 mál.
í frystingu, uppm. tn. 11.234 tn,
en var é sama tíma í fyrra
5.552 tn. Útflutt ísað 0, en var í
fyrra 834. Samtals eru þetta
576.430 mál og tunnur, en var
í fyrra 418.101 mál og tunnur.
Vitað var um 215 skip ( í fyrra
246) í vikulokin, sem höfðu feng
ið einhvern afla og af þeim höfðu
208 skip (í fyrra 213) aflað 500
mál og tunnur eða meira. Á öðr-
um stað í blaðinu er skrá yfir þau
skip.
Aflahæst eru þessi skip: Víðir
II. Garði 11468 mál og tunnur,
Ólafur Magnússon EA 9457, Har-
aldur AK 9016, Guðbjörg Ólafs-
dóttir 8894, Heiðrún Bolungar-
vík, 8824, Guðmundur Þórðarson
RE 8180.
Þessi mynd var tekin úr þyrilvængju varnarliðsins af
súlubyggðinni í Eldey. — Sjá nánar frétt á bls. 2.
Pilti bjargað
irá drukknun
Hafði verið Vi tíma á sundi
AKRANESI, 17. júlí. — Sl.
laugardag sýndu tveir feðg-
ar, Sigurður Þorvaldsson og
Andri sonur hans, Heiðar-
braut 5 hér í bæ, frábært
snarræði, er þeir björguðu 18
ára gömlum pilti frá drukkn-
un í Syðra-sundi.
Nánari atvik eru þau að á laug
ardagsmorgun reru Vésteinn Vé-
steinsson, til heimilis á Laugar-
braut 16, á kajak sínum frá hafn-
argarðinum út fyrir Suður-flös
og ætlaði inn í Lambhúsasund.
Úti fyrir því miðju eru boðar og
sker og leggur öldur frá boðun-
um, jafnvel í blíðskapar veðri.
Kajaknum hvolfir
Þegar Vésteinn var kominn á
LJ
Þróttar
deilan
SÁTTANEFNDIN boðaði
til fundar með samninga-
nefndum Vörubílstjórafél.
Þróttar og vinnuveitenda í
gærkvöldi kl. 20,30. Um
kl. IIV2 hafði blaðið sam-
band við fundarmenn og
spurði, hvort fundur myndi
standa lengi, og fékk það
svar, að svo myndi lík-
lega ekki verða.
Þjóöverjar viöur-
kenna 12 mílurnar
Oska sömu takmörkuðu veiðiréttinda
og Bretar
A F U N D I I utanríkismálanefnd sl. föstudag skýrði utanríkis-
ráðherra frá því að Vestur-Þjóðverjar hefðu farið fram á sömu
takmörkuðu veiðiréttindi hér við Iand innan 12 mílna fiskveiði-
takmarkanna og Bretum hafa verið veitt til þriggja ára. Teldi
ríkisstjórnin rétt að við þessari ósk yrði orðið gegn því að Þjóð-
verjar viðurkenndu 12 mílna mörkin og síðustu útfærslur á
grunnlínum.
Utanríkismálanefnd samþykkti
með 3 atkvæðum gegn tveimur
atkvæðum Framsóknar og komm
únista að mæla með því að við
þessari ósk yrði orðið. Ekki hef-
ur ennþá verið gengið frá sam-
komulagi um þetta.
Tíminn og Þjóðviljinn blása
sig upp af þessu tilefni sl. sunnu
dag og láta, sem þeim komi
væntanlegt samkomulag við
Þjóðverja mjög á óvart. í vetur
þegar lausn fiskveiðideilunnar
var í deiglunni fullyrtu þó leið-
togar kommúnista og Framsókn-
ar að svipað samkomulag myndi
gert við Þjóðverja og þá var
ákveðið að gera við Breta. —
Munu og flestir hafa gert ráð
fyrir að slikt samkomulag yrði
gert við Vestur-Þjóðverja, sem
eiga við okkur mikil og hag-
kvæm viðskipti. Þess má einnig
minnast að þeir gerðu enga til-
raun til þess að beita okkur of-
beldi er reglugerðin um 12 mílna
fiskveiðitakmörkin var sett.
Mbl. er kunnugt um að ósk
Svía um að njóta sömu réttinda
og samið var um við Breta hef-
ur einnig verið til umræðu í
ríkisstjórninni. Ekki munu vera
líkur til að við henni verði orðið.
Kommúnistar og Framsókn
armenn ættu að hafa vit á
að forðast að hefja umræð-
ur um fiskveiðideiluna að
nýju. Yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar telur að ríkis-
stjórnin hafi haft farsæla for-
ystu um lausn hennar.
kajaknum inn á Syðra-sund,
hvolfdi honum í öldugangnum.
Greip Vésteinn þegar sundtökin,
er honum hafði tekizt að losa
sig frá kajaknum, en skreið síð-
an upp á hann aftur og reyndi
að róa honum á hvolfi, en varð að
gefast upp við það, Og greip þá
sundtökin aftur. Víkur þá sög-
unni til 10 ára gamals bróður
hans, Viðars að nafni. Hann hafði
horft á eftir bróður sínum frá
hafnargarðinum, en var nú kom-
inn vestur í Lambhúsasund til að
taka á móti honum, en sá þá
ekkert til ferða hans.
Greip hann þá óró og ótti, Og
hljóp hann til Andra, sem var að
mála trillubát sinn, og sagði
honum, að hann sæi hvergi til
bróður síns.
Vésteinn á sunði
Andri lét ekki segja sér þetta
tvisvar, setti vélina í bátnum óð-
ara í gang og renndi að bryggju-
stúf, sem þarna er. Þar var fyr-
ir Sigurður faðir hans, og stökk
hann út í bátinn til sonar síns.
Síðan brunuðu þeir feðgar út á
Syðra-sund og fundu kajakinn
mannlausan. En nokkru nær
landi sáu þeir til Vésteins á
sundi Og veifaði hann til þeirra.
Þeir stímuðu þegar til hans og
innbyrðu hann.
Hann hafði reynt að komast
upp á sker, sem er þarna nærri,
en orðið að gefast upp vegna frá-
kastsins. Hélt hann sér á sundi á
bakinu, en hann er mjög góður
sundmaður. Samt var nokkuð af
honum dregið, sem er ekki furða,
þar sem hann hafði verið um
hálfa stund á sundi. Enn eftir
aðra hálfa stund var hann bú-
inn að jafna sig og varð ekki var
við nokkur eftirköst.
Viðar litli bróðir hans, sem
hafði átt þátt í björguninni, var
ósköp feginn að heimta þannig
bróður sinn úr helju. — Oddur.
Borað eftir
gulli
Bergur Lárusson á Klrkju-
bæjarklaustrí hefur í hyggju
að athuga nánar flak það, sem
hann fann austur á söndum,
er hann fór þangað að leita
Indíafarsins fræga, en þá
urðu tæki hans vör við málm
niðri í sandinum á þeim stað
sem skipið gæti hugsanlega
verið.
Með Bergi austur fer Gunn-
ar Böðvarsson, verkfræðingur,
er ætlar að hafa meðferðis
lítinn bor, sem notaður er til
að bora í gegnum laus jarð-
Iög, til að athuga þykkt á yfir
borðslögum. Ætla þeir að vita
hvort ekki er hægt að kanna
með bornum hvað er þarna
í sandinum.
HERAÐSMÓT
Sfálfstæðismanna
■ Austur-Skaftafells-
sýslu 22. júlí
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Austur-Skaftafellssýslu
verður haldið að Mánagarði, Hornafirði, laugardaginn 22.
júlí kl. 20.30.
Á móti þessu munu þeir
Gunnar Thoroddsen, f jár-
málaráðherra og Sverrir
| Júlíusson, útgerðarmaður,
flytja ræður.
|| Flutt verður óperan Rita
eftir Donnizetti. Með hlut-
verk fara óperusöngvararnir
Þuríður Pálsdóttir, Guðm. {
Sverrir Guðjónsson og Guðmundur Gunnar
Jónsson og Borgar Garðars-
son, Ieikari. Undirleik annast F. Weisshappel, píanóleikarL
Dansleikur verður um kvöldið.