Morgunblaðið - 29.08.1961, Page 1
24 slður
48. árgangur
iíííXv
' .:..■: ■'
' '
■I
.
Frá flugeldasýningu Reykjavíkurkynningarinnar.
Fúsir að rœða við
Rússa um Berlín
— segir von Brentano, en Frakkar
nndvígir frumkvæði vesiur-
veldanna
BONN, S8. á>gfAst — Vesturveldin
piunu á næstunni bjóffa Rússum
viðræður um Berlírrarmálið, sagði
von Brentano, utanríkiráðherra
V-Þýzkalands á blaðamannafundi
í dag, Hann bætti því við, að
þetta væri alls ekki veikleika-
merki hjá vesturveldunum, nema
síður væri. Þau ætluðu ekki að
fara fram á viðræður, heldur að
láta Rússa vita af því, að vestur-
veldin væru fús til þess að ræða
málið í þeim tilgangi að lægja
öldurnar. Vesturveldin mundu
ekki hvika frá rétti sínum og
skyldum í Berlín.
— ★ —
Macmillan hefur lýst því yfir,
eð hann væri fús til þess að ræða
deiluna við Rússa, en vitað er, að
tíe Gaulle og franska stjórnin
eru andvíg því, að vesturveldin
hafi frumkvæði um málið. Sjón-
armið Frakka er, að slíkt frum-'
kvæði yrði túlkað sem veikleika
merki þar eð Rússar, en ekkr
vesturveldin, eigi sök á því
hvernig komið er í Berlín.
— ★ —
Á fundinum í dag sagði von
Brentano, það skoðun sína, að
æskilegast væri, að utanríkisráð-
herrar stórveldanna ræddu málið
— og heyrzt hefur, að það sé
vilji Bandaríkjanna, að sá fund-
ur verði haldinn í New York j
haust þegar Allsherjarþingið kem
ur saman.
JVjfe#" safft á Geni
rr
Genf, 28. ágúst
BANDARÍKIN gerðu í dag loka-
tilraun til þess að ná samkomu-
lagi um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Gengu tillögur
Bandaríkjamanna mun lengra til
móts við Rússa en vænzt hafði
verið, en svar rússneska full-
trúans á þríveldaráðstefnunni var
hið sama og alltaf áður: „Það er
ekki þetta sem við viljum:“
Dean, fulltrúi Bandaríkjanna,
hvatti rússneska fulltrúan Tsar-
apkin til þess að ganga að samn-
ingaborðinu með einlægni og at-
huga vel tillögur Bandaríkja-
manna. Nú bjóðast Bandaríkja-
menn til þess að smásprenging-
ar, sem erfitt er að fylgjast með,
falli einnig undir samninginn Og
Frh. á bls. 23
Geysifjölmennt var á flug-
sýningu Flugmálafélagsins
á sunnudaginn. Þarna flýg-
ur Constellation könnunar-
vél frá varnarliðnu lágt
yfir flugvöllinn með mikl-
um gný. — Sjá nánar bls.
10. — (Ljósm. Mbl. KM).
Rusk væntir við-
ræðna við Rússa
yrði, sem hann vænti, þá yrðl
ekki aðeins rætt um Berlínar-
málið, heldur um Þýzkalands-
málið í heild.
Kafbátur úr plasti
Tokyó, 28. ágúst.
JAPANIR hafa smíðað fyrsta kaf
bátínn úr plasti. Hann er ekki
j afnrammbyggður og stálbátur en
vegur aðeins fjórðung af því sem
jafnstór stálbátur mundi vega.
Flugskeytastöð
1 ðvipjoo
Stokkhólmi, 28. ágúst
ALLT bendir til að Kiruna-hér-
að í Svíþjóð verði „Cape Cana-
veral Evrópu“ innan tíðar.
Evrópu-nefndin um vísindalega
samvinnu í geimrannsóknUm hef-
ur látið í ljós mikinn áhuga á að
koma upp sameiginlegum stöðv-
um í Kiruna þar sem 75—110 sér
fræðingar gætu starfað og hægt
yrði að skjóta upp flugskeytum.
Áætlað er, að kostnaður við bygg
ingu slíkrar stöðvar murii kosta
35 millj. norskra króna og rekst-
ursköstnaður yrði 7 millj. á ári.
WASHIN GTON, 28. ágúst. —
Dean Rusk, utanríkisráðh. Banda
ríkjanna, sagði að vesturveldin
mundu að líkindum hefja við-
ræður við Rússa um Berlínar-
málið. Staður og stund eru ekki
ákveðin, sagði Rusk, en ummæli
hans komu aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að von
Brentano hafði sagt það í Bonn,
að vesturveldin mundu gefa
Rússum til kynna, að þau væru
fús að ræða Berlínarmálið.
Rusk bar eindregið til baka
blaðafregnir um að Bretar og
Bandaríkjamenn hefðu orðið
sammála um að hefja viðræður
við Rússa án samþykkis Frakka.
Hins vegar er haft eftir áreið-
einlegum heimildum, að Kenn-
edy Bandaríkjaforseti hafi skrif
að de Gaulle og hvatt hann
eindregið til þess að fallast á
utanríkisráðherrafund vestur-
veldanna og Rússa.
Skömmu áður en Rusk ræddi
við blaðamenn hafði hann átt
fundi með Stevenson, aðalfull-
trúa Bandaríkjanna hjá S.Þ., svo
og Hammarskjöld. Sagði Rusk,
að ekki væri ólíklegt, að Berlín-
armálið yrði tekið fyrir á næsta
Allsherjarþingi. Ástandið er orð-
ið mjög alvarlegt, sagði hann
og vesturveldin hafa nána sam-
vinnu um lausn málsins.
Loks tók Rusk það fram, að
ekki hefði Verið gengið frá fundi
með Rússum, en ef úr honum
Herinn hafnar Couiart
RIO de Janero, 28. ágúst —-
Mazilli, sem gegnir nú forseta-
embætti í Brazilíu, vinnur nú að
því að mynda nýja stjórn.
Quadros, sem skyndilega sagði af
sér forsetaembætti á föstudaginn,
er á leið til Evrópu með fjöl-
skyldu sína.
Varaforsetinn Coulart er í
París á heimleið úr heimsúkn til
hins kommuniska Kína. í kvöld
barst tilkynning um það frá
æðstu yfirmönnum Brazilíuhers,
að herinn felldi sig ekki við
Coulart sem forseta og mundi
ekki samþykkja, að hann sneri
aftur heim.
Coulart sagði á fundi með blað
mönnum í París í kvöld, að hann
væri löglegur forseti Brazilíu og
færi heim sem slíkur.
Allt er með kyrrum kjörum i
Brazilíu, ’ en mjög er nú óvíst
hvernig móttökur Goulart fær,
þegar hann kemur heim. Goulart
hefur verið bendlaður við komm
únista og för hans til Kína þyk-
ir styrkja grun manna um að
hann sé í rauninni hliðhollur
þeim.