Morgunblaðið - 29.08.1961, Page 2

Morgunblaðið - 29.08.1961, Page 2
2 MORCVTSBLÁÐIÐ Þ'ríðjucíagur 29. agust 1961 Fegurstu garÖarnir Hafnarfirdi i HAFNARFIRÐI: — Fegrunarfé- lagið hefur nýverið úthlutað verð launum fyrir fegursta garðinn í Bænum. í ár hlaut garður- inn að Kirkjuvegi 9, eign Ólafs Sigurðssonar fiskimatsmanns, heiðursverðlaun. Hverfisviður- kenningu hlutu: Suðurbær: Garð urinn Bæjarhvammur 2, eign Axels Kristjánssonar. Austurbær: Reykjovíkur- kynningin íromlengd HEYKJAVlKURKYNNINGIN hefir verið framlengd vegna ' mikillar aðsóknar og fjöl- margra tilmæla frá bæjarbú- um. Sýningardeildirnar í Melaskóla og Hagaskóla verða opnar þrjá daga til viðbótar eða til miðvikudagskvölds n. k. Verða þær opnar frá 17 til 23. Hvert kvöld kl. 21 verður kvikmyndasýning. Þá verður dag hvern farið í bin- ar vinsælu kynnisferðir um bæinn. Þessar kynnisferðir bafa verið fjölsóttar og fóru t .d. yfir 500 manns í þær sl. sunnudag. Alls hafa nú sótt Reykja- víkurkynninguna 3 7.500 manns, þar af 11.000 á sunnu daginn. Sjálfri afmælishátíð- inni lauk á sunnudagskvöldið kl. 24 á miðnætti með því að skotið var upp 175 flugeld- um. Veður var fagurt og mik ill hátíðabragur yfir þessum lokadegi afmælis höfuðborg arinnar. | Garðurinn Lækjarkinn 14, eign Ingva R. Baldvinssonar. Miðbær: Garðurinn Reykjavíkurvegi 16B, eign Kristínar Guðmundsdóttur. Vesturbær: Garðurinn Hellis- götu 1, eign Odds Hannessonar. Þá veitti félagið Nýju bílastöð- inni viðurkenningu fyrir fram- tak um snyrtingu og fegrun við bílastöðina. Formaður Fegrunarfélags Hafn arfjarðar er Valgarð Thoroddsen yfirverkfræðingur. r jr A humar- veiúum H'JMARBÁTURINN Fram, skip- stjóri Emil Pálsson, hefir farið þrjár ferðir austur í Breiða- merkudýpi 4 klst. siglingu frá Hornafirði og 27 klst siglingu frá Akranesi. í þessum ferðum hefir skipið fengið 10 tonn a£ humar og 8 tonn af öðrum fiski. Kennir þar margra grasa. Er þar þorskur, langa, skötuselur, karfi, lúða og steinbítur. Þarna austurfrá er togað á 106—120 faðma dýpi. í síðustu för bilaði vökvavinda skipsins er 50 faðmar af vír voru úti. Keyrði skipið þá með vörpuna upp und- ir Ingólfshöfða og var hún þar dregin inn með handafli og náð- ist allt sem í henni var. Bræla hefir verið austur frá. Fram fer aftur á veiðar er lokið er viðgerð á vindunni og veður batnar. — Oddur. Skagfirðingar kveðja skólastjórahjónin Hólum r r a Bæ á Höfðaströnd, 28. ágúst. I GÆR var haldið á Sauðárkróki kveðjusamsæti fyrir Kristján Karlsson, fyrrv. skólastjóra á Hólum og konu hans, en þau flytjast nú brott úr héraðinu. Búnaðarsamband Skagafjarðar og skólapiltar á Hólum stóðu fýrir samsætinu fyrir hönd Skag firðinga. Það sátu um 200 manns Og voru haldnar 20 ræður. Skóla stjórahjónunum fyrrv. færðu Skagfirðingar að gjöf þrjár fána stengur, allar á sama stalli, en á honum eru einnig fjórir blóma- /‘NAIShnitor / SVSOhnútar Jí Snjiioma •úamm \7 Siúrír K Þrumur WZ%, KuUaaiít ZS4 Hitaskit Hr Hml L Lasal Skákin SVART: Síldarverksmiðja ríkisins Raufarhöfn ABCBEFGH ABCDEFGH H V I T X : Síldarverksmiðja ríkisins Siglufirði Biskup drepur d5 vasar. Hæsta flaggstöngin er meter á hæð. Gripurinn er úr fægðum kopar, gerður af Jónasi Bjarnasyni frá Uppsölum, og þykir hin mesta völundarsmíð. — Fréttaritari. Háskólabíóið á Melunum. (Ljósm. Mbl." KMj _ Háskólabíóið á að veru til í byrjun október HÁSKÓLABÍÓIÐ er vel á veg komið og er ætlunin að reyna að ljúka því fyrir 1. okt. n. k. og að þar megi hafa hátíðahöld í sambandi við fimmtugsafmæli Háskóla íslands sem fara fram 5. og 6. okt. n. k. Fréttamenn Morgunblaðsins skimduðu í gær vestur á Mela til þess að skoða hina glæsi- legu byggingu. Ekki voru fyrirsvarsmenn þar bjartsýnir á að takast mundi að ljúka verkinu fyrir tilskilinn tíma, hvorki verkstjórinn né arkitektinn, Gunnlaugur Hall- dórsson, en við hann ræddum við nokkra stund. Háskólabíóið er byggt með til- liti til notkunar sem kvikmynda hús og fullkomið hljómleikahús. Útveggir þess eru eins og menn sjá einna líkastir haromíkubelg og ýmist kallaðist V-veggir eða harmoníkuveggir. 1 hverju vaffi verður komið fyrir plötu á hjör um og er með henni ýmist hægt að gera veggina „harða“ eða „mjúka“, eins og það er nefnt. MJÖG hlýtt loft streymir nú sunnan að norður um Vestur- Evrópu. Er hitinn um og yfir 20 stig á Bretlandseyjum og víða á Norðurlöndum. Sunnar er enn hlýrra, 28 stig í París og 31 stig í Bordaux. Mestar líkur eru á, að þetta hlýja loft komi ekki við hér á landi. Þá má búast við, að það valdi einhverri úrkomu austan lands um leið og lægðin suð- ur í hafinu rennir sér fram hjá landinu á lbið sinni norð- austur hafið í grennd við Fær- eyjar. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi SV-land og miðin: Vaxandi 77 i msmi / / ri i il fÓOO &á ,020 austanátt í nótt, allhvasst og rigning á morgun. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Hægviðri og úrkomu- laust í nótt, austan eða NA kaldi og dálítil rigning síðd. á morgun. Vestfjarðamið: Allhvast NA, rigning eða þokusúld norð an til. Vestfirðir til Austfjarða og norðurmið til Austfj. miða: Stillt og bjart veður til fyrra- máls, austan eða NA stinn- ingskaldi og rigning síðd. SA-land og miðin og aust- urdjúp: Vaxandi SA átt, all- hvass og rigning á morgun. Verið að setja upp nýju vélarnar í bióinu. Þurfa þeir að vera mjúkir þeg- ar kvikmyndasýning fer fram en harðir á hljómleikum. Bakveggnum er einnig hægt að breyta með teppum til þess að milda hljómburðinn. Þá eru botnar sætanna „absorberaðir" með götóttri plötu og steinull, þannig að þegar ekki er setið í sætinu á hljómburður í hús- inu að vera líkur og þegar mað- ur er í því. Þannig á hann ekki að breytast hvort sem húsið er fullsetið eða ekkL Fullkominn hljómútbúnaður Sýningartjaldið verður mjög voldugt, er 5 tonn að þyngd og er hægt að lyfta því upp í turn- inn þegar hljómleikar fara fram á sviðinu. Sérstakur útbúnaður verður á sviðinu til þess að hljómurinn sé eðlilegur frammi í sal og til þess að hljómlistar- mennirnir sjálfir heyri hann eðlilega. Allur þessi hljómútbúnaður er sem sé mjög fullkominn. Plötum veggjarins verður stjórnað með vökvaþrýstingi og rafseglar halda þeim föstum eftir því hvernig þær eiga að vera á hverjum tíma. Mjög stór og rúmgóður sýn- ingarvélasalur er 1 húsinu og er nú verið að koma vélum þar fyrir. Þá er og fullkomið upp- tökuherbergi fyrir útvarp og þar getur einnig kvikmyndaeftirlitið haft aðstöðu til að skoða mynd« imar án þess að þurfi að hita upp sýningarsalinn sjálfan. For- dyri er mjög glæsilegt og er það að mestu með glerveggjum. Búningsherbergi verða undir sviði en það er nægilega stórt fyrir sinfóníuhljómsveit og kór. Sæti eru rúmgóð og þægileg i húsinu og dúkurinn á gólfinu er með svampi og því sérlega mjúkur að ganga á svo og á hann að þola slit á við þykka gúmmidúka. Háskólabíóið tekur 1000 manns í sæti. Verkfallið olli töfum Ástæðan til þess að bíóið verður seinna búið en ráð var fyrir gert í fyrstu er verkfallið í vor. Enn gætir mjög áhrifa þess og eru þessa dagana ýmis þýðingarmikil tæki að berast til landsins. Vonandi er að hið glæsilega hús verði tilbúið fyrir afmælis- hátíðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.