Morgunblaðið - 29.08.1961, Síða 12

Morgunblaðið - 29.08.1961, Síða 12
12 MORGUISBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. águst 1961 JHrogttitMflfrifr ’ Útgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík. Fra.nkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Jöhannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. VERÐA REYNDIR NYIR SVIKA- SAMNINGAR ? T EYNISAMNINGAR þeir sem forysta Framsókn- arflokksins og kommúnista gerði í vor til að hindra við- reisnina, þegar sýnt var að hún mundi heppnast, voru fyrst framkvæmdir norðan- lands. Karl Kristjánsson var látinn semja við sjálfan sig um miklar kauphækkanir á Húsavík og síðan samdi KEA Og SÍS á Akureyri við komm únista til 4ra mánaða. Þetta nægði til þess, að SÍS í Reykjavík treysti sér til að ganga frá svikasamningunum við Dagsbrún og bregðast hlutverki sínu sem heilbrigð- ur atvinnurekandi í lýðræð- isþjóðfélagi. Samningar þessir miðuðu að því að hindra raunhæfar kjarabætur, hleypa af stað nýrri verðbólguskriðu og þannig átti að kollvarpa Við- reisnarstjóminni. Hún brást hins vegar karlmannlega við vandanum, eins ög alkunn- ugt er, staðfesti þá breytingu á gengisskráningunni, sem raunverulega var fram- kvæmd í verkföllunum og treysti fjárhag landsins að nýju. Nú hafa kommúnistar á Akureyri boðað, að þeir muni hafa lausa kaupgjaldssamn- inga og geta þar af leiðandi efnt til vinnustöðvana. Jafn- framt hefur svokölluð for- mannaráðstefna Alþýðusam- bands íslands verið boðuð. Enn er ekki ljóst, hvort kommúnistar munu treysta sér til þess að reyna að hefja verkfallabaráttu að nýju, en hins vegar má telja fullvíst að það muni þeir ekki gera án þess að njóta til þess styrks Framsóknarflokksins Og SÍS. Þess vegna geta menn gengið út frá því sem vísu, að þegar kommúnistar fara að sýna tennurnar og láta ófriðlega, þá hefur Eysteinn Jónsson samið við þá um það að láta SÍS svíkja á ný og Framsóknarmenn styðja nið- urrifsstarfsemi kommúnista. Ekki skal hér rætt um vilja Eysteins Jónssonar til slíkra verka, en hitt er víst, að hann mun óttast fordæmingu allra góðra manna, ef hann semur aftur við erindreka heimskommúnismans. KJARABÆTUR AN VERKFALLA l/OMMÚNISTAR hafa aldrei verið til viðræðu um kjarabætur án verkfalla. Þar með er ekki sagt, að lýð- ræðissinnar eigi að láta af baráttu sinni fyrir kjarabóta stefnu. Morgunblaðið hefur margbent á leiðir, sem fara mætti til að bæta kjörin, án þess að hagur atvinnuveg- anna væri skertur. Meðal þeirra leiða, sem þegar má vinna að, er aukin ákvæðisvinna, bætt vinnutil- högun, samstarfsnefndir laun þega og vinnuveitenda og sérstök rannsóknarstofnun atvinnuvega og launþega til að ganga úr skugga um raun verulega getu atvinnuveg anna til að standa undir hækkuðum launum. Kommúnistar lögðu vísvit- andi mikla áhei;zlu á það vinnudeilunum að fá yfir- vinnuálag hækkað, enda þótt sú kauphækkun kæmi verst við útflutningsframleiðsluna, en við hag hennar verður að miða efnahagsráðstafanir. Þannig var vísvitandi gerð tilraun til þess að hindra raunhæfar kjarabætur. Miklu fremur hefði átt að vinna að því að koma á vaktavinnu í útflutningsframleiðslunni og reyna að sækja kauphækk- anir til þeirra atvinnuvega, sem fremur gátu undir þeim staðið. 4°Jo HÆKKUN Á NÆSTA ÁRI ÁKVÆÐI eru um það í öll- um hinum nýju kjara- samningum, eins og kunnugt er, að kaup skuli hækkað án uppsagnar um 4% á næsta ári. Áhrif hinnar nýju geng- isfellingar koma fram á all- löngum tíma. Þannig njóta launþegar næstu mánuðina nokkurs af kauphækkunun- um, sem urðu í sumar, og geta síðan fengið án baráttu 4% hækkun á næsta ári. Ef vinnufriður verður tryggður fram til þess, má gera ráð fyrir, að þar verði um veru- legar raunhæfar kjarabætur að ræða. Og þá mætti líka vænta nýrra kjarabóta ári síðar. Ef nú verða ekki hafin ný verkfallaátök, má örugglega ganga út frá því að við höf- um loks náð því marki að búa við traustan efnahag, sem færi jafnar og vaxandi kjarabætur frá einu ári til annars, eins og raunin er á í öllum nágrannalöndunum, þar sem vel er stjórnað. Engum ríður meira á því en launþegum, að komið verði í Ug YMSmi JŒUÁj Myndin sýnir Jean Suny aka á tveim hjólum með 35 km hraða á klukkustund eítir bíla- brautiirni í Hróaskeldu. Bíllinn er ósköp venjulegur Simca Ariane. Hjólbarðarnir eru af Kléber-Colombes tegund með 5,5 kg. þrýstingi í stað 1,3—1,5 kg við venjulegar aðstæður. Þyngd bílsins er 1060 kg og þola hliðar hjólbarðanna ekki nema tæplega þriggja km akstur. Frakkinn Jean Suny Ekur eins og Ijdn — með abra hlið á lofti „HVER ekur eins og ljón með aðra hönd á stýri?“ er spurt í danslagatextan- um víðkunna. Og svarið veg fyrir ný stórátök í þjóð- félaginu. Vonandi hafa menn þrosk- azt svo af þeim atvikum, sem áttu sér stað í sumar, að tak- ast muni að hindra skemmd- arverk kommúnista, jafnvel þótt þeir kunni að njóta til þeirra atbeina Framsóknar- flokksins. Háværar raddir voru um það að lögfesta tillögu sátta- semjara í júní-mánuði. Hefði það að vissu leyti verið rétt- lætanlegt, vegna þess að Ijóst varð, þegar er tillagan hafði verið felld, að lengur yrði ekki um venjulega vinnudeilu að ræða, heldur pólitísk átök, þar sem hrund- ið væri í framkvæmd leyni- samningi milli kommúnista og Framsóknarflokksins um að reyna að eyðileggja fjár- hag landsins. Hins er svo að gæta, að þeir, sem með verk- fallsvopnið fara, mundu vafa laust beita því óvægilega, ef sú venja skapaðist að þeir væru ábyrgðarlausir; það væri ríkisvaldið, sem að lok- um leysti allar vinnudeilur. Enn er því rétt að reyna á Dað, hvort launþegasamtökin vilja beita verkfallsvopninu af ábyrgðartilfinningu eða hvort þau beinlínis keppa að dví að gera það áhrifalaust með framkomu, sem útheimt ir beinar aðgerðir af hálfu ríkisins. er, eins og allir vita: „Bjössi á mjólkurbílnum, Bjössi á mjólkurbílnum“. Það verður áreiðanlega ein hverjum hugsað til Bjössa, þegar þeir virða fyrir sér myndina, sem hér birtist af bíl, sem ekið er á að- eins tveim hjólum. Eru ekki annars einhver brögð i tafli? Getur maðurinn haldið áfram að aka svona, án þess að velta bílnum? Já, hann getur það — og meira að segja farið hring eftir hring. Franskur í Hróaskeldu Sá, sem hér er á ferðinni, heitir Jean Suny og er 29 ára gamall, franskur að uppruna. Hann er um þessar mundir í Danmörku, og var myndin hér á síðunni tekin af akstri hans á bílabrautinni í Hróaskeldu, þar sem hann var að æfa sig. Gerir hann sér vonir um að geta jafnvel sett þar nýtt met í akstri á tveim hjólum — bæði lengdarmet og tímamet Suny er smllingur í sinni list. Danskur blaðamaður, sem sat í bílnum hjá hon- um heilan hring á braut- inni — þ. e. hvorki meira né minna en 1400 m — sagði, að aksturinn hefði verið stórkostlegt ævintýri. Og það mátti skilja á hon- um, að það væri talsvert æsilegra að sitja í svona ósköp venjulegum bíl, sem hefði 2 hjólin hanrgandi hálfan annan metra yfir brautinni jafnt á beygjum sem á milli þeirra — eða kappakstursbíl, sem bara stundum lyftir hjólunum á beygjum. Kostaði sjö bíla Þó að hægt sé að ímynda Og hér stendur félagl franska ökuþórsins á bílhliðinni, sér, að þessi ósköp taki á taug- arnar, er Jean Suny sallaró- legur yfir öllu saman. Hann viðurkenndi reyird ar, að það hefði kostað sig 7 bíla, að læra listina. En í staðinn kæmi svo það, að nú hefði hann ekki oltið síðustu þrjú árin. Suny leggur ekki i að reyna listina í öðrum bílum en stærri Simca-gerðunum. Hann aftekur samt með öllu, að hann sé á nokkurn hátt á snær um fyrirtækisins, sem þá sel- ur. Það eina, sem þeir geri fyrir sig, sé að gefa svolítinn afslátt af bílunum. sem hann notar til sýninganna. Hefur ekið tæpa 4 km Akstursmet Suny voru, þeg- ar síðast fréttist, 1420 og 3700 metrar, þ. e. a. s. staðfest og óstaðfest. Eftir þann árangur, sem hann náði á æfingunum í Hróaskeldu, horfir alls ekki illa um, að honum takist að setja nýtt met.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.