Morgunblaðið - 29.08.1961, Síða 15
'Þriðjudagur 29. agusf 1961
MORGUNBLAÐIÐ
15
Geta Bandarikja-
imenn náð Rdssu
{§ÍÐAN rússneski majórinn Gher-
imann Titov fór geimferð sína
Ibyrjun ágústmánaðar, hafa vest-
rænir stj órnmálamenn og blaða.
menn mikið fjallað um ástæður
fyrir því, að Rússar hafa komizt
svo fram úr Bandaríkjamönnum
á sviði geinirannsókna og hvort
—og hvernig — Bandaríkjamönn
um verði kleift að ná Rússum í
kapphlaupinu um himingeiminn.
Eru hinir bjartsýnustu þeirrar
skoðunar, að Bandaríkjamenn
muni ekki aðeins ná Rússum,
Iheldur jafnvel komast fram úr
iþeim á þeirri braut.
M Eftirfarandi spjall um þetta
efni er endursagt úr grein, sem
Ibirtist nýlega í bandaríska tíma-
(ritinu U, S. News & World Re-
port.
|1 Embættismenn í Bandaríkjun-
um eru sannfærðir um, að enn sé
sá möguleiki fyrir hendi að
Bandaríkjamenn komizt framar
Rússum á sviði geimrannsókna
og geimferða. í nýrri áætlun um
geimrannsóknir næstu ára er
gert ráð fyrir að þessu marki
verði náð innan sex ára. Til þess
að svo megi verða þurfa Banda-
ríkjamenn að gera mikið átak í
smíði risastórra og aflmikilla eld-
flauga, er komizt geti á brautir
umhverfis jörðu og aðra him-
inhnetti. Er nú unnið að tilraun-
um með slíkar eldflaugar af
miklu kappi.
Fregnin um geimflug Titovs
majórs varð mjög til að herða á
tilraunum Bandaríkjamanna, en
menn velta því jafnframt fyrir
sér hvers vegna Rússar hafa náð
Saturnus eldflaug í smíðum.
í kapphlaupinu um himinngeiminn?
*
Aætlun
Bandaríkjamanna
Síðla árs 1961 eða snemma
á árinu 1962:
Mannað geimfar sent á
braut umhverfis jörðu.
Árið 1962:
Rannsóknartæki látin
hitta tunglið. Rannsókn-
artækjum skotið fram
hjá Venus.
Áriff 1963:
Nákvæmari rannsóknar
tæki send til tunglsins.
Rannsóknarstöð á braut
umhverfis jörðu.
Árið 1965 — eða 1966:
Mannað geimfar fer um-
hverfis tunglið og aft-l
xur til jarðar.
ÁriS 1966:
Hreyfanlegum tækjuml
lent á tunglinu. Geim-|
far sent umhverfis aðrai
plánetu.
ÁriS 1967: j
Mannað geimfar lendirj
á tunglinu og snýr aftuh
tii jarðar.
i
þessu óumdeilanlega frumkvæði
í geimferðum.
Svarið er ofureinfalt. Rússar
hafa yfir að ráða því, sem Banda
ríkjamenn skortir, sem sé stór-
um aflmiklum eldflaugum. Rúss-
ar komust á sporið með smíði
þeirra fyrir hreina tilviljun, er
þeir unnu að rannsóknum á því,
hvernig unnt væri að varpa þung
um sprengjum langar vegalengd-
ir.
Ástæðan til bess að Bandaríkja
menn eiga ekki slíkar eldflaug-
ar er, samkvæmt opinberum
heimildum, sú, að Bandaríkja-
stjórn tók árið 1956 ákvörðun um
að eyða ekki of miklu fé til slíkra
tilrauna, sökum þess m. a. að
slíkra eldflauga væri ekki þörf
hernaðarlega samkv. stefnu
Bandaríkjamanna, og því væri
nægilegt að smíða litlar eldflaug
ar. Afleiðingin er sú að rannsókn
ir þar að lútandi lágu að mestu
leyti niðri um tveggja ára skeið.
Bandaríkjamenn hefðu getað
skotið gerfitungli á loft a. m. k.
ári á undan Sovétríkjunum og
þeir hefðu einnig getað orðið
fyrstir til þess að senda mannað
geimfar á braut um hverfis jörðu.
Þess í stað verða Bandaríkja-
menn að láta sér lynda að standa
Rússum nokkur ár að baki.
— ★ —
En hvað nú? Er unnt að vinna
upp þennan tíma? — Jú, það er
mögulegt segja menn og byggja
þá skoðun sína á þeirri staðreynd
að Bandaríkjamenn eru Rússum
fremri um smíði nákvæmra og
mjög fíngerðra rannsóknartækja
fyrir mannlausa gerfihnetti.
Bandaríkjamenn miða að því
að hafa náð því marki, sem
Rússar standa við nú, innan
tveggja ára og að hafa komizt
framar þeim fjórum árum síðar.
Kennedy forseti hefur jafn-
framt því að óska ríflegra fjár-
veitinga til geimrannsókna, gert
áætlun, þar sem gert er ráð fyr-
ir að unnt verði að láta menn
lenda á tunglinu innan sex ára.
En til þess þarf mikið fé. Til þess
að ná þangað, sem Rússar eru nú
komnir þarf sjö miljarða banda-
rískra dala og tuttugu miljónir
dala þarf til þess að láta mannað
geimfar lenda á tunglinu.
Lykillinn að þessari framtíðar
áætlun eru tvær stórar eldflaug-
ar, sem nú er unnið að rannsókn
um á, — Saturnus og Nova.
Fyrsta Saturnus eldflaugin, sem
verður álíka há og fimmtán
hæða hús, verður væntanlega
send á loft frá Canaveralhöfða
í haust.
Síðastliðin þrjú ár hefur verið
unnið mjög slitrótt að rannsókn-
um varðandi gerð Saturnus eld-
flaugarinnar, en nú er lögð mik-
il áherzla á það starf. Árið 1959
var öll fjárveiting til Saturnus
skorin niður á þeirri forsendu að
hennar væri engin hernaðarleg
þörf.
Árið 1964 er gert ráð fyrir að
C-1 gerð af Saturnus verði til-
búin til að flytja þung geimskip
út í geiminn, meðal annars á að
vera unnt að senda á loft með
henni geimfar, mannað tveim,
— þrem mönnum, er haldist á
braut umhverfis jörðu 1 viku-
tíma.
Ári síðar — 1965 — ætti gerð
C-3 af Saturnus að vera tilbúin
þannig að unnt verði með henni
að senda á loft 10—15 lesta geim-
skip. Þá verða bandarískir geim-
farar sendir á braut umhverfis
mánann og þá er gert ráð fyrir
að Bandaríkjamenn muni hafa
náð Rússum.
Það verður hins vegar fyrsta
lending mannaðs geimfars á
tunglinu sem sker úr um, hvort
Bandaríkjamenn komist fram úr
Rússum og hafa forystumenn
þeirra góða von um að það takist.
— ★ —
Nú víkur sögunni að enn stærri
eldflaug — Nova — sem verður
nálægt hundrað metrum að
lengd og á að geta lyft meira en
hundrað tonna þunga. Standist
áætlun Bandaríkjamanna verður
geimskipi með þriggja manna á-
höfn skotið á loft með Nova eld-
flaug. Munu mennirnir lenda
geimfarinu á tunglinu, svipast
þar um og snúa aftur til jarðar.
í hinni nýju áætlun er einnig
gert ráð fyrir nýju geimfari, sem
koma skal í stað Mercury geim-
farsins, sem nú er notað. Verður
eflaust hætt að nota Mercury-
geimförin, þegar þau hafa flutt
menn umhverfis jörðu átján sinn
um — sem gert er ráð fyrir að
verði á næstu tveim árum. Mer-
cury-geimförin eru þannig gerð,
að Atlasflugskeyti geti skotið
þeim á loft, en alls ekki ætluð
til langra geimferða.
Geimfar framtíðarinnar heitir
Apolló. Það verður 60 tonn að
þyngd, fullhlaðið eldsneyti og
verður notað til tunglferða.
Loks er í áætlun þessari rætt
um geimskipið Dyna Soar, en
flugherinn á að annast smíði
þess. Það geimfar er einkum ætl-
að til þess að hindra að Rússar
geti beitt yfirburðum þeim, sem
þeir nú hafa í geimnum til að
taka sér hernaðareinokun. Verð-
'ur geimfarið eins og vængjaður
sleði, því skal stjórnað af flug-
manni og notað til könnunar-
ferða en á að geta varpað sprengj
um og eldflaugum.
Bandaríkjamenn eru sér þess
fyllilega meðvitandi, að Rússar
leggi nú alla áherzlu á að undir-
búa tunglferðir manna. Þeir eru
þess jafnframt fullvissir að Rúss
ar hafi hreint ekki í hyggju að
gefa auðveldlega nokkuð eftir af
því frumkvæði sem þeir nú hafa
í geimsiglingum. Engu að síður
telja Bandaríkjamenn sig hafa
ástæðu til að vera bjartsýnir.
Með þeim mikla árangri sem
þeir hafa náð í gerð vísindatækja
telja þeir sig hafa góða aðstöðu
til þess að leysa ýmis vandamál
sem enn eru óleyst á sviði geim-
rannókna. Yfirburðir Rússa nú
séu óumdeilanlegir — en verði
það sennilega ekki alltaf.
r*w
TIL S Ö L U
7 tonna dekkbátur
með 1. fl. línuútbúnaði. Talsvert af línu getur fylgt.
í bátnum er talstöð og nýr 4 manna gúmmíbjörg-
bátur. Uppl. í síma 13657 kl. 7—9 á kvöldin.
Stúlka óskast
til símavörzlu, einnig herbergisþerna-
Upplýsingar á skrifstofunni.
Hótel Vík
íannlækningastofan
Laugavegi 126
er lokuð út þessa viku.
Birgir J. Jóhannsson, tannl.
HRINGUNUM.
fa/></2U¥ur2!t 4
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa.
Austurstræti 10 A — Sími 11043
Guðtaugur Einarsson
málfluti.ingsskrifstofa
Freyjugötu 37 — Sími 19740.
Rœstingakona
óskast
XIDDABÚÐ
Njálsgötu 64.
IVfeiraprófsbifreiðastjórí
óskar eftir vinnu við akstur. Hefur margra ára
reynslu í akstri leigubíla stórra og sm.árra.
Uppl. í síma 13657 kl. 7—9 á kvöldin.