Morgunblaðið - 17.09.1961, Qupperneq 17
Sunnudagur 17. sept. 1961
MORCVTSBLAÐIÐ
17
Kristnibodar
Framhald af bls. 3.
að gera við bílinn, þar sem
enginn aukaöxull var fyrir
hendi og bíllinn of þungur til
þess að læknisjeppinn gæti
dregið hann upp allar þær
brekkur, sem framundan voru.
Voru þá nokkrir sendir
áfram í læknisjeppanum, en
við hin ætluðum að bíða hjá
þeim bilaða um nóttina. Sváf-
um við í bílnum um nóttina,
en einn stóð á verði fyrir utan
yfir farangrinum. Skiptumst
við Jóhannes á um það. V'ar
næsta einkennilegt að standa
tþarna úti aleinn í niðamyrkri,
aðeins með vasaljós, og heyra
öll sérkennilegu hljóðin í marg
víslegum dýrum, sem eru á
ferli að nóttu til.
Eftir nokkurn tíma náðist í
viðgerðarmann. En hvar átti
að fá öxul? Þá bar svo við,
að fylkisstjórinn á staðnum,
sem er ákaflega vinveittur
kristniboðinu, bauðst til þess
að lána af sínum varahlutum,
og þar með var okkur borgið.
Var nú ráðgert að aka áfram
næsta þriðjudagsmorgun, því
að frétzt hafði um tvo bíla,
sem komizt höíða yfir ána
þá um daginn, enda hafði nú
verið þurrt í þrjá daga.
Chencha er alþekkt rigningar-
bæli, ef ég má nota svo ljótt
orð um stað, sem þó reyndist
ökkur gott athvarf í rúma
viku. Réttar tvæi vikur voru
liðnar frá því, er við lögðum
af stað frá Irgallem.
Á tilteknum degi héldum
við svo áfram og komumst þá
alla leið til Gidole, sem er
síðasti áfangastaður, áður en
komið er til Konsó.
Komið til Konsó
Þar hafa norskir kristni-
boðar sjúkrahús, skóla og
ýmsa aðra starfsetni. Og dag-
inn eftir fórum við hina 50 km
leið til Konsó. Er það tveggja
til þriggja klukkastunda akst-
ur. Vegurinn er öruggur, þótt
auðvitað sé hann ekki upp á
það bezta.
Fagnaðarfundunum hér í
Konsó ætla ég ekki að lýsa.
Benedikt Jasonarson, kristni-
boði, hefur legið í gulu í 10
vikur, en er nú að rétta við
aftur. Margrét Hróbjartsdótt-
ir kona hans, hefur ekki held-
ur farið varhluta af gulunni,
en slapp betur, og bæði hún
og Elsa Jackobsen, færeyska
hjúkrunarkonan, eru við góða
heilsu.
Það var einhver sérstök til-
finning, sem bærði á sér, er
við risum úr rekkju hér í
Konsó í fyrsta sinn. Gleði og
eftirvænting fyllti hug og
hjarta, og — þakklæti til
guðs, sem hafði séð fyrir okk-
ur allt til þessa. Við vorum
öll fjögur við beztu heilsu og
gott að vera nú loksins á leið-
arenda. Það er yndislegt að
fá nú að sjá með eigin aug-
um marga þeirra, sem maður
þekkti áður aðeins úr bréfum,
og þær voru ekki fáar dökku
hendurnar, sem buðu okkur
velkomin, með þéttu handtaki
— og ljómandi andlitin gáfu
fyrirheit um innilega vináttu.
Kviknar á perunni
1 vikunni sem leið kom raf-
vél hingað til Konsó, og hóf-
umst við brátt handa við að
koma henni fyrir og leggja
inn leiðslur. í gær, þegar allt
var komið upp, var heldur en
ekki eftirvænting að vita,
hvort kvikna myndi á perun-
um, og viti menn: Allt var
eins og vera bar! Það var gam
an að sjá innfæddu piltana
þrjá, sem staddir voru í eld-
/ húsinu. Þeir hlógu og æptu
Og hlupu inn í öll herbergi til
þess að vita, hvort alls staðar
logaði!
Með illu skal illt út reka
Mikið var að gera við sjúkra
skýlið í gær. Tvímælalaust
hátt á annað hundrað manns
biðu fyrir utan. Langflest veik
indatilfellin voru malaría. Slík
ir sjúklingar fá sérstakar töfl-
ur Og auk þess tvær sprautur.
Elsa segir, að þeir innfæddu
geri aldrei ráð fyrir lækningu,
nema þeir fái að minnsta kosti
eina sprautu! Það er eins og
þeir haldi, að þeit þurfi að
finna til, svo að þeim batni.
Það eru nú ekki heldur nein
smávein, sem sumir gefa frá
sér, þegar stungið er. Elsa er
gríðar rösk og ákveðin við þá,
og gaman að sjá hana vinna.
Þið getið nærri, að þá verður
heldur en ekki hraði á hlutun-
um og kraftur, þegar Ingunn
er ðinnig komin.
f gær kom drengur hingað
með kiðling og vildi selja. Til-
boðið var afþakkað, nema verð
ið væri ekki meira en tveir
eþíópskir dollarar. Það vildi
sá litli ekki. Klukkustundu
síðar kom hann aftur og vildi
nú gera út um kaupin. Var
hann keyptur, aðallega vegna
barnanna. Þau sjá nú ekki sól
ina fyrir kiðlingnum. Guðlaug
ur litli ekur grasi í stóreflis
hjólbörum og er alltaf að
koma inn til þesíVað fá vatn
í dós til að gefa honum að
drekka. Og sá var nú ekki
lengi að koma sér út í morg-
un til þess að vita, hvernig
„kibba“ hefði það. Kiðlingur-
inn er svartbrúnn, ósköp sæt-
ur og góður. — —
Q
N-H
Q
8
t/2
Q
w
g
8
H líðarkaffi
verður selt í húsi KFUM og K Amtmanns-
stíg 2 B sunnudaginn 17. sept. til ágóða
fyrir sumarstarfið í Vindáshlíð. — Kaffi-
salan hefst kl. 3 e.h.
Veitingar verða líka eftir samkomu um
kvöldið.
Komið o£ drekkið síðdegis- og kvöldkaffið
hjá okkur.
Stjórnin
í Keflavík
er til leigu efri hæð hússins við Hafnargötu 80, sem
rekin hefur verið sem samkomusalur. Ýmiss annar
rekstur kemur til greina.
Upplýsingar í síma 1867, Keflavík.
AUGLVSSIMG
um innflutning bifreiða
Ráðuneytið vill hér með vekja athygli á því, að eftir-
farandi reglur hafa verið settar um innflutning bifreiða:
1. Innflutningur nýrra og ónotaðra bifreiða £r frjáls.
Hins vegar er innflutningur notaðra fólks-, sendi og
jeppabifreiða, að burðamagni minna en 3 tonn, háður
leyfum (sbr. reglugerð útgefna 15. september 1961 um
breytingu á reglugerð nr. 78, 27. maí 1960, um inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi).
2. Innflutningsleyfi fyrir notuðum bifreiðum verða hér
eftir aðeins veitt eftirtöldum aðilum:
a. Aðilum, sem flytja búferlum til landsins, enda færi
slíkir aðilar sönnur á, að þeir hafi átt viðkomandi bifreið
erlendis í eigi skemmri tíma en eitt ár.
b. Aðilum, sem kaupa bifreiðar af starfsfólki erlendra
sendiráða hér, enda mæli utanríkisráðuneytið með söl-
unni.
Landsbanki Islands og Utvegsbanki Islands munu
annast útgáfu leyfa samkvæmt grein þessari.
3. Gjöld samkvæmt 16. gr. laga nr. 4 1960 verða inn-
heimt við tollafgreiðslu. Verða gjöld þessi innheimt af
öllum bifreiðum að burðarmagni minna en 3 tonn að
undanskildum jeppabifreiðum. Gjöldin eru ákveðin
135% af fobverði eða eftir atvikum matsverði bifreiða
þyngri en 1150 kg., en 100% af bifreiðum 1150 kg. og
léttari, án tillits til þess, hvort bifreiðin er ný eða not-
uð.
Viðskiptamálaráðuneytið, 15. sept. 1961
Jónas H. Haralz,
Halldór Jónatansson.
Við viljum vekja athygli þeirra útgerðarmanna, sem hafa í huga að láta smíða fiskiskip
fyrir næstu síldarvertíð, eða skipta um vélar í eldri skipum, á því að við getum afgreitt
með mjö" stuttum afgreiðslutíma
CATERPILLAR BÁTAVELAR
REGISTEREO TRADE MARK
af stærðunum 500 og 700 hö. við 1200 sn/mín.
Nú þe^ar er í smíðum í Noregi fyrir íslenzka útgerðarmenn 200 t. fiskiskip með 700 ha.
CATERPILLAR dieselvél og Liaaen skiptiskrúfubúnaði. Ljósavél skipsins er einnig
af CATERPILLAR serð.
700 ha. vélin er aðeins 3,5 m á lengd og: 500 ha. vélin er 2,6 m á lengd. Með jietta fyrir"
ferðarlitlum vélum fáið j>ér mjög aukið lestarrými og betri hleðslueiginleika skipsins
Þetta eru kostir sem hver góður síldarskipstjóri telur ómetanlega. — Kynnið yður vél-
ina hjá hinum lands-kunna aflamanni Óskari Ingibersyni x Mb Ingiber Ólafsson GK 35
Heilciverzlunin Hekla h.f.
Hverfisgötu 103 — Sími 11275
SÍ-SLETT P0PLIN
(NO-IROM)
HIKERV!g.r/Ew«te«iBia