Morgunblaðið - 07.10.1961, Side 1

Morgunblaðið - 07.10.1961, Side 1
24 siðu* húsinu Gromyko í Hvíta WASHINGTON, 6. okt. — Kenne dy, Bandaríkjaforseti og Gromyko, utanrikisráðherra Ráð stjórnarinnar, hófu viðræður sín ar í Hvíta húsinu í kvöld að við- stöddum Rusk, utanríkisráðherra, og sendiherra Rússa í Washing- ton. Orðrómur er á kreiki um það, að Bandaríkjastjórn og Ráðstjórn in hafi þegar náð saimkomulagi um eftirmann Hammarskjölds, en staðfesting hafði ekki fengizt á Jþví síðast þegar til fréttist. • Skömmu áður en Gromyko kom til Hvíta hússins til fundar- ins, barst Kenendy bréf frá Aden auer kanslara. Ekki var efni þess upplýst. — Hins vegar sagði tals onaður utanríkisráðuneytisins í Washington, að hinar óformlegu Framh. á bls. 23. Bandaríkjatier til S-Vietnam? Washington, 6. október. BANDARÍKJASTJÓRN hug leiðir nú að senda hersveitir til Suður-Vietnam vegna vax andi ágangs hinna kommún- isku herja þar — og harðn- andi árásir þeirra á stjórn- arherinn. — ★ — Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins greindi frá þessu í dag. — Sagði hann, að undanfarið hefðu verið gerðar athuganir á því með hverju móti Bandarík- in gætu stutt stjórnarherinn bezt — og væru ýmsar ráða- gerðir að komast í framkvæmd til þess að hindra að kommún- istar legðu landið undir sig. Við væntum þess ennfremur, sagði talsmaðurinn, að þær að- gerðir, sem stjóm Suður-Viet- nam og Bandaríkjanna munu framkvæma sameiginlega muni reynast árangursríkar. Hann var spurður að því, hvort stjórn Suður-Vietnam hefði beðið að- stoðar bandarískra sveita, en talsmaðurinn sagðist ekki vita það. — ★ — Stjórn Suður-Vietnam hefur áður lýst því mundi þiggja yfir, að hún með þökkum bandarísk vopn og þjálfara fyr- ir her sinn, en hingað til hefur' hún talið sig fullfæra um að hafa í tré við kommúnista. Á ráðstefnu Suð-austur Asíu- bandalagsins nýlega var ástand- ið í Suður-Vietnam tekið ræki- lega fyrir og gerðar áætlanir um vamir Suður-Vietnam þar sem gert var ráð fyrir, að banda lagið beitti her sínum, ef á þyrfti að halda. I gær for fram hatíðarsam- koma i hinu nýja samkomu- húsi Háskólans við Haga- torg í tilefni af 50 ára af- mæli Háskóla íslands. Var þar fjöldi innlendra og er- lendra gesta og var sam- koman mjög hátiðleg. Þessa mynd tók ljósm. Mbl., Ól. K. Mag., í hinum glæsilega sal samkomuhússins, er tek- ur um 1000 manns í sæti þeg ar Davíð Stefánsson skáld flutti Háskólaljóð sitt, ásamt sinfóníuhljómsveit, kór og einsöngvurum. — Nánar er sagt frá hátiðarsamkomu há skólans á bls. 10. — 33 fórust í Hamborg Bandaríkjamenn gefa H. í. 5 millj. til raunvísinda HAMBORG, 6. október — Fánar blöktu í hálfa stöng um alia Hamborg í dag í virðingarskyni 10 ! V milljón tonn ' I Rússar sprengdu * f 18. sinn TOKYO, 6. október. — Rússar sprengdu enn eina kjarnorku- eprengjuna í dag og var það lang öflugasta sprengingin siðan þeir hófu tilraunir að nýju. Áætlað er, »ð sprengikrafturinn jafngildi 10 milljónum tonna af TNT sprengiefni. Þetta var 18. spreng- áncg Rússa s rúmum mánuði og ▼ar hún gerð i miMlli hæð yfir Novaja Semlja. við þá 33, sem fórust í járnbraut arslysi í borginni í gærkveldi. — Auk þess liggja 26 í sjúkrahúsi þar af þrír milli heims og helju. Það var járnbrautarlest í inn- anbæjar samgöngukerfinu, sem ók með miklum hraða á viðgerð- arvagn. Sá vagn var hlaðinn 20 metra löngum stálplönkum og gengu þeir inn í fremstu vagna farþegalestarinnar og splundruðu þeim beinlínis, því það tók slökkviliðsmenn sex stundir að ná hinum særðu úr brakinu. Líkin voru mjög illa farin og þekiktust aðeins 21 þeirra. Merkjavörður við járnbraut- ina, sem átti að sjá til þess að ekkert þessu líkt gæti gerzt, sturlaðist er honum voru ljósar afleiðingarnar — og var lögregl- an að flytja hann í sjúkrahús til þess að tryggja að hann reyndi ekki að fyrirfara sér. S IMorðmaður gefur 2 millj. j S og Þjóðverjar tæki að keldum ) í RÆÐU sinni á afmælishá- tíð Háskóla íslands í gær skýrði rektor, próf. Ármann Snævarr, m.a. frá 5 millj. ísl. kr. gjöf til háskólans frá Bandaríkjastjórn, sem ætluð er til aðstoðar við að koma á fót raunvísindastofnun á sviði eðlisfræði, efnafræði, jarðeðlisfræði og stærðfræði í samræmi við áætlanir, sem uppi eru um slíkar vísinda- stofnanir við háskólann. — Hafði sendilierra Bandaríkj- anna, James Penfield, afhent honum bréf þar sem skýrt var frá þessari gjöf. Þakkaði rektor þessa rausnarlegu gjöf, sem hann kvað vera þá mestu, sem háskólanum hefði borizt til þessa. Mundi hún vissulega verða til að efla mjög raunvísindi við Há- skóla íslands. Þá gat hann annarrar stór- gjafar erlendis frá, frá niorsk- um íslandsvini, sem ekki vill láta nafns síns getið. Gjöf hans nemur 2 millj. ísl. kr., sem stofna skal af sjóð, er ber heitið Norðmannsgjöf. Skal verja tekjum hans til að verð- launa vísindamenn, sem fást við rannsóknir í málvísindum og sagnfræði, og til að styrkja útgáfu rita um handritafræði eða útgáfu á íslenzkum hand- ritum. Kvað rektor þessa stór- mannlegu gjöf norska íslands- vinarsins mestu gjöf sem ein- staklingur hefir gefið Háskóla fslands, og taldi öruggt að sjóð urinn yrði til mikillar styrkt- ar íslenzkum málvísindum og sagnfræði, svo og handrita- fræðum. Einnig skýrði rektor frá því að sendiherra Vestur-Þýzkalands, dr. Hirschfeld, hefði tilkynnt sér í gær, að vestur-þýzka stjórnin myndi afhenda háskólanum næstu daga frystiþurrkunartæki fyrir blóðvatn til afnota fyrir TU- raunastöðina á Keldum og kvað hér um mjög mikilsmetna gjöf að ræða. Ennfremur var verðmæt bókagjöf afhent háskólanum frá ríkisstjórn Vestur-Þýzkalands á vígsludegi háskólans 17. júni sL \ 4 r*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.