Morgunblaðið - 07.10.1961, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 7. október 1961
Brandt ekki and-
vígur samningum
NEW YORK, 6. október — Willy
Brandt, borgarstjóri V-Berlínar,
aagði í sjónvarpsviðtali í dag, að
hann hefði ekkert á móti því, að
vesturveldin gerðu samkomulag
nm Berlín, sem fæli í sér ákveð-
in tæknileg og hagfelld sam-
Vestur-
hugsanlegri málamiðlun um Ber
lin.
Það veltur á því hve langa
framlengingu málamiðlunin
mundi hafa á því ástandi, sem
nú rikir. Við vitum, að til er
þýzkt lýðræðisríki. Og við vitum
bönd milli Vestur- og Austur- líka um annað þýzkt ríki, sem
Berlínar. j hefur stjórn, sem ekki er kosin
Hann var spurður að því, hver
viðbrögð almenning yrðu við
— Stúdentar
Framh. af bls. 8.
Þegar ég kom hingað og sá að
þið styðjið stjórn landsins í
afstöðu hennar til kjarnorku-
vopnatilrauna, varð mér ljóst,
að afstaða ykkar er sízt já-
kvæðari en þau sjónarmið,
sem ofan á eru hjá opinberum
aðilum vestra.
Prófessorarnir hvumsa.
Við þessi ummæli urðu prófes-
sorarnir og meðlimir sovézku frið
arnefndarinnar hvumsa, og
reyndu þegar að slíta fundinum.
Þeim tilraunum var mætt með
hrópum og mótmælum um 200
stúdenta, sem börðu ákaft í borð
sín. Vildu þeir að prófessoramir
leyfðu gestum að flytja sitt mál,
enda þótt þeir væru þeim ekki
sammála.
Stúdentarnir klöppuðu.
Þegar starfsmaður, einn hélt
því fram, að rýma yrði fundarsal
inn, vegna fyrirlestrahalds, stóðu
fleiri stúdentar upp og hrópuðu:
— Það er slúður/
Fundurinn hélt síðan áfram í
hálfa aðra klukkustund, og þegar
friðarsinnamir gengu út, stóðu
stúdentarnir á fætur og klöpp-
uðu.
( af almenningi — og í þessu landi
eru 20 rússnesk'ar herdeildir. —
Við gerum okkur grein fyrir að
enn um skeið verðum við að búa
við þetta fyrirkomulag, en við
sættum okkur ekki við að það
gildi um aldur og ævi, sagði
Brandt.
Síðar í dag sæmdi Ed Murrow
yfirmaður Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna. Brandt hinni svo
nefndu frelsisorðu, en þessa
orðu hafa m.a. Winston Churc-
hill og Paul Henri Spaak hlotið.
í DAG er 75 ára Ólafur V. Da-
víðsson stórkaupmaður. Hann er
til heimilis að Klapparstíg 42.
ísfirðingar dutfu úr bik-
arkeppninni án leiks
KR og Fram keppa á sunnudag
HÆTT hefur verið við að skera
úr um með knattspyrnuleik,
hvort Fram B eða ísfirðingar
færu upp í aðalkeppni bikar-
keppninnar. Samþykktu báðir
aðilar, að viðhaft yrði hlutkesti
og var svo gert. Dró dómarinn,
sem átti að dæma leikinn. Einar
Hjartarson, milli liðanna, og kom
upp hlutur Fram B. Leikur Fram
B því í 1. umf. aðalkeppninnar
gegn Akurnesingum. Fer sá leik-
Keflavík
Akureyri
— mætast i dag
í DAG klukkan 4 fer fram í
Keflavík hin árlega bæjakeppni
í knattspyrnu milli Keflvikinga
Og Afeureyringa. Er þetta í 6.
sinn sem keppnin fer fram.
Keppt er um bikar sem Aðal-
stöðin í Keflavík gaf og stendur
keppnin um hann þannig, að
vinni Akureyringar nú, vinna
þeir bikarinn til eignar. Vinnst
hann til eignar sé hann unninn 3
Sinnum í röð eða 5 sinnum alls.
Akureyri vann bæði 1959 og
1960. Keflavík hefur unnið
einu sinni og einu sinnj varð
jafntefli.
Er efeki ólíklegt að í þessum
leife munu Akureyringar hefna
ósigursins sem þeir biðu fyrir
Keflvíkingum í bikarkeppni KSÍ
tun siðustu helgi.
ur fram n. k. sunnudag á Akra-
nesi og hefst kl. 16.00.
Sá sem sigrar í þeim leik leik-
■ gegn Keflvíkingum á Mela-
velli sunnudaginn 15. október.
Hinn undanúrslitaleifeur keppn
innar fer fram á sunnudag á
Melavellinum Og leika þá Fram
A og KR. Hefst sá leikur kl. 14.00.
Strax að þeim leik loknum
leika Valur og Þróttur í Haust-
móti 1. flokks og fer leikurinn
fram á Melavellinum.
Þessi mynd var tekin í kveðjuhófinu í Útvegsbankanum í
gær. Adolf Björnsson, form. Starfsmannafélags bankamanna
á íslandi flytur þeim Brynjólfi Jóhannessyni og Kristjáni
Jónssyni kveðju, eftir áratuga störf við bankann. Brynjólfur
er vinstra megin við Adolf á myndinni.
(Ljósm.: Ljósmyndastofan Studio, Guðm. A. Erlendsson).
Nú get ég snúið mér
ðskiptur að Thaliu
— segir Brynjólfur Jóhannesson,
leikari, ettir 40 ára bankastörf
svo er á það að líta, að það er
um að gera að hafa nóg að starfa,
því ekki má leggja árar í bát, þó
ég sé hættur aðalstarfi mínu. Eg
er orðinn 65 ára gamall, en finnst
ég samt ekki vera gamall enn, að
minnsta kosti hugsa ég efeki uin
það.
— Þetta hljóta að verða nokkur
viðbrigði fyrir þig?
— Nú get ég snúið mér óskipt
ur að Thalíu, en það eru alltaf
viðbrigði að fara úr starfi og
skilja við góða starfsfélaga eftir
svona langt samstarf. Eg er satt
að segja ekki búinn að átti mig
þessu ennþá. Ef það kamur
tími, sem maður getur slakað á,
þá getur verið að leiðindi setjist
að, en ég vona fastlega að ég hafi
nóg að starfa framvegis sem hing
að til.
— Verður ekki kveðjuhóf?
— Jú, mér og Kristjáni Jóns-
syni verður haldið kveðjuhóf í
bankanum núna á eftir. Kristján
var lengi aðalféhirðir bankans og
síðan fyrir endurskoðunardeild-
inni, en hætti störfum fyrir nokkr
um árum. Hann er orðinn 70 ára
gamall, og nú verður okkur hald
ið kveðjusamsæti saman.
— Þá ætlar blaðið ekki að tefja
þig lengur að sinni, Brynjólfur.
— NÚ GET ég snúið mér óskipt-
ur að Thaliu, segir Brynjólfur
Jóhannesson, leikari, eftir 40 ára
bankastörf.
Mbl. frétti í gær, að hinn góð-
kunni leikari Brynjólfur Jóhann
esson væri hættur störfum í Út-
vegsbankanum eftir 40 ára banka
störf. Átti blaðið af því tilefni
stutt símtal við Brynjólf.
— Hvar og hvenær hófst þú
bankastörf, Brynjólfur?
— Eg byrj aði í íslandsbanka á
ísafirði árið 1917, eftir að ég hafði
lokið verzlunarskólanámi í Kaup
mannahöfn. Þar var ég svo í tvö
ár, en var síðan fluttur í íslands-
banka í Reykjavík. Svo hvarf ég
frá því starfi í nokkur ár og gerð
ist verzlunarstjóri.
— Hvar?
— Á ísafirði.
— Þú hefur kunnað vel við þig
á ísafirði?
— Já, ég kunni vel við mig þar,
þó ég sé fæddur í Reykjaví'k. En
ég var þar ekki néma stuttan
tima, því ég fer aftur í íslands-
banka í Reykjavík árið 1924 og
[ /“ NA/5 hnuiar | / SV50hnútar Snjikoma » úíiwm V Siúrir K Þrumur W%á KuUashit Hitaski! H, Hml L * L aai
— ions
í GÆRMORGUN myndaðist
smálægð út af Norð-austur-
landi Og Olli hún norðanátt og
kalsaveðri nyrðra, en sunnan-
lands var hæg austanátt og víð
ast úrkomulaust. Lægðin yfir
frlandi var á hægri hreyfingu
NA, en lægðin fyrir S Græn-
land færðist ANA.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-mið: Austan kaldi, skýj-
að og smáskúrir.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið Og Breiðafj.mið:
NA kaldi, skýjað.
Vestfirðir, Vestfjarðamið og
norðurmið: NA stinnigskaldi,
rigning.
Norðurland, NA-land og
NA-mið: Austan og NA gola,
skýjað.
Austfirðir, SA-land Og mið-
in: Austan og NA kaldi, skúrir.
hef starfað óslitið síðan í þeirri
stofnun.
— Það teljast þá 40 ár.
— Já, 40 ár alls, það er bókað
þannig í skjölum bankans.
— Hvernig hefur þér líkað að
vera innan um alla þessa peninga.
— í einu orði sagt, ágætlega.
Eg hef unnið með ágætis fólki og
bankastjórarnir hafa yfirleitt
verið ágætismenn.
— Svo hefur þú haft annað
starf líka.
— Já, ég hef náttúrlega haft
aukastarf, því ég hef haldið við
Thalíu býsna lengi.
— Hvernig hefur það f arið sam
an við bankastarfið?
— Það hefur farið vel, þó að
það hafi að mörgu leyti verið erf-
itt, en mér hefur verið sýndur
skilningur af hálfu bankans, sér
staklega síðari árin.
— Hvenær lékstu fyrst?
— Eg lék fyrsta stykkið á ísa-
firði árið 1916, svo samband mitt
við Thalíu er nokkru eldra en
bankastarfið. Eg lék talsvert á
ísafirði, meðan ég var búsettur
þar, en sama árið og ég byrjaði
aftur hjá fslandsbanka í Reykja-
vík, árið 1924, byrjaði ég að leika
hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
— Og nú ertu fonmaður þess?
__Já, ég var svo vitlaus að taka
að mér formennsku Leikfélagsins
í vetur, það er anzi erilsamt, en
Róðramót á
Skerjafirði í dag
Róðramót íslands verður haldið
um helgina á Skerjafirði. Keppa
þar áhafnir frá 3 félögum, Róðra
klúbbi Æskulýðsfélags Akureyr
arkirkju, Glímufélaginu Ármanni
og Róðrafélagi Reykjavíkur.
f dag hefst keppni kl. 14:30 og
verður þá keppt á þessum vega-
lengdrun: 500 m og 1000 m karla.
Á sunnudaginn verður einnig
keppt kl. 14:30 og þá rónar véga
lengdirnar: 1000 m róður drengja
og 2000 m róður karla.
Iðimemaþing
19. ÞING Iðnnemasambands, fs-
lands verður sett í Tjarnarkaffi
í dag kl. 13.30 og er áætlað að
því ljúki á sunnudagskvöld. Þing-
ið munu sitja 45—50 fulltrúar frá
iðnnemafélögum víðs vegar af
landinu. — Helztu mál þingsins
verða: Iðnfræðslan, kjaramál
iðnnema og skipulagsmál Iðn-
nema sambandsins. Öllum iðn-
nemum er heimilit að hlýða á
umræður, meðan húsrúm leyfir.
Nasser hógvær I'
KAIRO, 6. október. — Ráð Araba
bandalagsins kemur saman eftir
2—3 daga til þess að ræða Sýr-
landsmálið, en ekki er ljóst hvort
sýrlenzka stjórnin leggur þá
fram umsókn um upptöku í
bandalagið. — Það þykir góð3
viti hversu mikillar hóg værðar
hefur gætt hjá Nasser síðustu
dagana og eru menn jafnvel farn
ir að imynda sér, að sambandið
milli Egyptalands og Sýrlands
verði tekið upp aftur — í breyttri
mynd.
Vetrarstarfsemi KFUM
KFUM og K hafa um rúmlega
60 ára skeið haldið uppi fjöl-
þættri starfsemi hér í höfuð-
borginni. Starf félaganna í ein-
stökum deildum liggur að mestu
leyti niðri yfir sumarið, því að
þá leggja þau aðal áherzlu á
starfið í sumarbúðum sínum í
Vatnaskógi og Vindáshlíð. Um
sama leyti og skólar hefja
kennslu, hefja svo félögin starf-
semi sína í bænum af fullum
krafti. Barna- og unglingadeildir
félagsins hefja starf nú um
þessa helgi. Sunnudagaskólinn
byrjar kl. 10,30 á sunnudags-
morgun og drengjadeildirnar,
vinadeild fyrir drengi 7—9 ára
og yngri deild fyrir drengi 10
—13 ára, hefja starf sitt á Amt-
mannsstíg 2B og félagsdeildinni
í Langagerði kl. 1,30 á sunnu-
dag. Yngri deild í Laugarnes-
hverfi hefur- starfseml sína 1
húsi félagsins við Kirkjuteig 33
með sveitafundum ýms kvöld
vikunnar og verða meðlimuru
hverrar sveitar send fundarboð,
Unglingadeildimar fyrir pilta og
stúlkur á aldrinum 14—17 ára
hefja einnig starfsemi sína á
virkum kvöldum þessarar viku.
Yngri deild KFUM á Amt-
mannsstíg hefur fyrsta fund
sinn nú á sunnudag kl. 3. Hún
er fyrir telpur 7—12 ára. Aðal-
deildir félaganna eru einnig að
hefja starfsemi sína um þessar
mundir á venjulegum fundar-
kvöldum, sem nánar verður aug
lýst síðar. Alm. samkomur fé-
lagsins á sunnudagskvöldum kl.
8,30 eru allt árið, svo að á
þeirri starfsemi verður engin
breyting nú, er vetrarstarfið
hefst. __ —