Morgunblaðið - 24.10.1961, Side 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. okt. 1961
aMMaaBM
Fimm ára afmæli
I DAG eru liðin fimm ár síð-
an leiðtogar heimskommún-
ismans héldu upp á 11 ára af
maeli Sameinuðu þjóðanna
með því að senda 10.000 rúss-
neska hermenn með fjölda
skriðdreka inn í Búdapest til
að strádrepa ungverskan al-
múga, sem daginn áður hafði
safnazt saman undir forustu
stúdenta til að láta í ljós
samúð með hinni nýju pólsku
stjórn undir forsæti Góm-
úlka. Mannfjöldinn var ó-
vopnaður og varnarlaus, en
hann heimtaði aukið frelsi,
málfrelsi, trúfrelsi, skoðana-
frelsi. Honum var svarað
með skothríð hinnar al-
ræmdu öryggislögreglu, Avó-
anna. Þetta sama kvöld, 23.
október, var risalíkneskjunni
af Stalin steypt -af stalli,
Daginn eftir var rússneski
herinn kominn á vettvang, og
hin friðsama kröfuganga al-
múgans snerist upp í blóðuga
byltingu. Ungverski herinn
dreifði vopnum til almenn-
ings; rússneski leppurinn
Emö Gerö, sem kallað hafði
Rauða herinn á vettvang, fór
frá völdum, og hinn þjóð-
legi kommúnisti Imre Nagy
varð íorsætisráðherra. Ung-
verjar kröfðust þess að allir
rússneskir hermenn yrðu
kallaðir heim af ungverskri
grund.
FORSAGAN
Þessir atburðir áttu sér
langan og ófagran aðdrag-
anda. Ungverska þjóðin hafði
í tólf ár verið undir járnhæli
kommúnismans og þolað ólýs
anlegar hörmungar. Þegar
stund frelsisins virtist vera á
næsta leiti, brauzt hatrið og
frelsisþráin út í öllum sínum
óhamda krafti. En það fór
eins og svo oft áður: þjóðin
var fámenn og einangruð,
hún mátti sín lítils gegn her-
veldi risans í austri. Frelsið
drukknaði í blóði þeirra
manna sem ótrauðir fómuðu
lífi sínu i von um að heimta
það.
Það er ekki ófróðlegt að
rifja upp í þessu sambandi
ummæli Gísla Brynjúlfssonar
skálds í Norðurfara 1848—49,
þegar svipað stóð á. Þá réð-
ist rússneski herinn einnig á
ungverska alþýðu, myrti sak-
lausa menn og konur og
reyndi að svínbeygja þjóðina
undir hið rússneska ok. Sag-
an hefur óhugnanlega til-
hneigingu til að endurtaka
sig. Gísli sagði m.a. þetta
fyrir rúmum hundrað árum:
„Ungverjaland, þar sem
nú er verið að berjast um
hvort þrældómur eða frelsi
skuli framvegis ríkja á meg-
inlandi Norðurálfunnar, er
eitthvert hið fegursta land
hennar .... Þjóðin, sem bygg
ir það, er ágæt og göfug
þjóð, sem æ hefur haldið sið-
um feðra sinna og í landi
hennar hefur harðstjórn
aldrei getað gróið .... Allt
þetta var þá hverjum skyn-
sömum manni eins auðsjáan-
legt og það nú er, að Ung-
verjar eru að berjast fyrir
frelsi alls meginlandsins, fyr-
ir því hvort siðleysið eigi að
ríkja þar eða menntanin.
Það var þeim augljóst að hér
átti að berjast hinni miklu
orrustu hins sanna frelsis
móti ánauðinni, og þó hreifði
enginn legg nje lið til að
hjálpa hinni hugprúðu þjóð,
sem ein tókst í fang að halda
uppi sóma mannkynsins og
frjálsræði móti fjandmönnum
þess og undirokurum. Kúg-
aðar af stjórnum sínum
horfðu þjóðirnar aðgjörða-
lausar á, hvernig hinn rúss-
neski alvaldur sendi h'vern
herflokkinn á fætur öðrum
til að myrða veglinda og sak-
lausa menn, svo hann síðar,
þegar þeir væru undir, gæti
snúið sér að hinum .... Nú
sem stendur tala þeir mjög
um frið og reglu, en regla
þeirra er hermanna hlýðni og
þrældómur. Þeir þykjast ætla
að friða löndin, og þeir
leggja þau undir farg, sem
drepur þau, myrða hina
ágætustu, hlekkbinda hugsun
og líf, og búa þar til eyði-
mörk sem mætti vera aldin-
garður. Slíkur er hinn títt-
nefndi friður þeirra — soli-
tudinem faciunt et pacem
appeiant.“
I rauninni þyrfti engu að
breyta í þessari umsögn,
nema kannski einstaka atriði
í stílnum, svo hún væri slá-
andi lýsing á því sem gerðist
í Ungverjalandi fyrir fimm
árum og er raunar enn að
gerast alls staðar þar sem
kommúnistar láta til sín
taka.
Ungverjaland er þannig í
sveit sett, að saga þess hefur
orðið blóðugri en flestra
landa • annarra í Evrópu.
Þjóðin hefur verið kúguð af
stærri og máttugri nágrönn-
um sínum 1 austri og vestri,
en hún hefur aldrei týnt
þeirri frelsishugsjón sem
fæddist með henni þegar
Magyarar stofnsettu ríki sitt
á 9. öld. Tyrkir unnu landið.
Austurríkismenn drottnuðu
þar. Árið 1848 hófu Ungverj-
ar uppreisn gegn þeim undir
forustu frelsishetjunnar Louis
Kossuths, en Austurríkis-
menn brutu uppreisnina á
bak aftur með hjálp Rússa,
og því hafa Ungverjar aldrei
gleymt.
Eftir skammlífa ógnar-
stjóm kommúnistans Bela
Kuns (sem Stalin lét síðar
myrða) árið 1919, komst
harðstjórinn Horthy til valda
og ríkti fram til seinni
heimsstyrjaldar. Hann var
fasisti og gekk í lið með
möndulveldunum, en sterk
lýðræðisöfl í Ungverjalandi
reyndu að draga landið út úr
styrjöldinni og leituðu hjálp-
ar Vesturveldanna. Þegar
Þjóðverjar komust að raun
um, hve ótryggir bandamenn
Ungverjar voru, hemámu
þeir landið árið 1944. Ung-
verjar bjuggust að sjálf-
sögðu við að verða að greiða
stríðsskaðabætur, en þeir
voru með öllu óviðbúnir
grimmdaræði rússnesku inn-
rásarherjanna.
Vorið 1945 sendi svissnesk-
ur sendiráðsmaður svohljóð-
andi tilkyrmingu til stjórnar
sinnar frá Búdapest: „Nauðg-
anir valda nú ósegjanlegum
þjáningum meðal ungversku
þjóðarinnar. Þær eru svo al-
mennar — á kvenfólki frá
10 ára til 70 ára aldurs —
að fáar kondr í Ungverja-
landi hafa sloppið við þær“.
Nauðganir og rán voru glæp-
ir einstaklinga í rússneska
hernum, en þeir voru látnir
óátaldir af herstjórninni.
Verksmiðjur voru rifnar og
Ungverjar fluttir nauðungar-
flutningi til Sovétríkjanna í
stórhópum samkvæmt fyrir-
skipun frá Kreml. Ungverska
þjóðin varð að láta sér það
lynda, en í hjarta hennar
brann óslökkvandi heift.
Reiði Ungverja kom fram,
að svo miklu leyti sem hægt
var, í kosningunum árið 1945.
Fyrir stríð hafði kommúnista
flokkurinn verið bannaður.
Nú komu kommúnistaleiðtog-
arnir heim úr útlegðinni
með rússneska hernum, þjálf
aðir í baráttuaðferðum heims
kommúnismans og öruggir
um sigur í kosningunum. En
að kosningunum loknum
hafði Smábændaflokkurinn
unnið 57% atkvæðanna og
245 af 409 þingsætum. Komm
únistar fengu aðeins 17%
atkvæðanna og 70 þingmenn.
Sósíaldemókratar fengu 69
þingsæti, Bændaflokkurinn
23 og Frjálslyndi flokkurinn
2 þingsæti.
En Ungverjar fengu ekki
það sem þeir vildu og kusu.
Vorosjilov marskálkur, til
skamms tíma forseti Sovét-
ríkjanna, var fulltrúi Rússa í
eftirlitsnefnd bandamanna og
hafði að heita mátti frjálsar
hendur. Hann krafðist þess
að mynduð yrði samsteypu-
stjórn allra flokka og kom
því svo fyrir, að kommúnist-
ar fengu innanríkisróðuneyt-
ið og þar með alla stjórn lög-
reglumála.
Síðan hófust kommúnistar
handa með öllum tiltækum
ráðum að brjóta Smábænda-
flokkinn á bak aftur. Þeir
neyddu flokksstjórnina til að
reka „afturhaldsöflin" úr
flokknum, fengu því til leið-
ar komið að nokkrir þing-
menn Smábændaflokksins
voru gerðir þingrækir og
bjuggu jafnvel til „samsæri"
árið 1947, sem leiddi til þess
að fjöldamargir menn úr
flokknum voru handteknir.
Loks neyddu þeir Nagy for-
sætisráðherra (ekki Imre
Nagy), sem var úr Smá-
bændaflokknum til að reka
nokkra róðherra úr stjórn-
inni. I maí-mánuði 1947 fór
Nagy forsætisráðherra í sum-
arleyfi til Sviss, en sneri
ekki aftur. Ritaði hann síðar
bók um það, hvernig komm-
únistar nóðu undirtökunum í
Ungverjalandi, og vakti hún
á sínum tíma mikla athygli.
Árangurinn af þessari
framvindu heima í Ungverja-
landi varð sá, að fjölmargir
sendiherrar og aðrir starfs-
menn ungverskra sendiráða
gengu úr þjónustu lands síns
og neituðu að fara heim.
Eftir flótta Nagys varð
Dinnyes forsætsráðherra. —
Þingið, sem kosið hafði verið
1945, var rofið, eftir að það
hafði þjóðnýtt banka og
ýmsar iðngreinar og lýst því
yfir að Ungverjaland væri
lýðveldi. Ný stjórnarskrá var
gefin út, en í kosningunum í
september 1947 hlutu komm-
únistar aðeins 22% atkvæða,
þrátt fyrir ýmiss konar belli-
brögð, en stjórnarflokkarnir
höfðu 60% þingmanna á bak
við sig. Einn fimmti hluti
kjósenda var sviptur kosn-
ingarétti, og stjómarandstað-
an heft með ýmsu móti. Að
henni stóðu aðeins þrír
flokkar: Kaþólski lýðræðis-
flokkurinn, Sjálfstæðisflokk-
urinn og Róttæki flokkurinn.
Á hinu nýja þingi fékk
stjórnarsamsteypan 281 sæti,
þ.e. kommúnistar 100 sæti,
sósíaldemókratar 77, Smá-
bændaflokkurinn 68, Bænda-
flokkurinn 36. Stjórnarand-
staðan hlaut 136 sæti.
Samkvæmt friðarsamning-
unum áttu rússneskar her-
sveitir að hverfa úr landinu,
en þær voru látnar vera á-
fram til að „verja samgöngu-
leiðirnar".
Tölurnar hér að ofan sýna
glögglega hvernig kommún-
istum hafði tekizt að brjóta
Smábændaflokkinn á bak aft
ur á tveimur árum. Þingsæt-
um hans hafði fækkað úr 245
í 68. Árið 1948 var stjórnar-
andstaðan gersamlega þurrk-
uð út, og leiðtogar hennar
flúðu land. Jafnframt hófu
kommúnistar harða og misk-
unnarlausa baráttu gegn ka-
þólsku kirkjunni sem náði
hámarki í réttarhöldunum
yfir Josef Mindszenty kardí-
nála og fangelsisdómi hans
fyrir „landráð".
í maí 1949 höfðu kommún-
istar loks komið ár sinni svo
vel fyrir borð, að þeir buðu
einir fram í kosningunum og
hlutu 95% atkvæða eftir
sovézkri fyrirmynd. Þar með
var alræði þeirra komið á,
og „Litli Stalin“, Matyas Ra-
kosi, tók til óspilltra mál-
anna. Hann var sennilega
auðsveipasti þjónn Moskvu-
valdsins í leppríkjunum og
lagði efnahag Ungverjalands
algerlega í hendurnar á
Kreml-búum. Iðnvæðingunni
var komið á með svo blindu
offorsi, að þetta mikla land-
búnaðarland varð að flytja
inn korn!
Þegar Stalin féll frá árið
1953, féll „Litli Stalin" úr
valdastóli Ungverjalands. Við
tók lingerðari kommúnisti,
Imre Nagy, sem lofaði lands-
mönnum meiri neyzluvörum.
Nagy entist álíka lengi og
Malenkov í Moskvu. Þegar
Krúsjeff tók við í Kreml,
komst Rakosi aftur til valda
í Búdapest, en þegar Krúsjeff
afneitaði Stalin, varð „Litli
Stalin“ enn að víkja. Þá tók
við Emö Gerö, sá sem
kvaddi Rauða herinn á vett-
vang þegar ungverska bylt-
ingin hófsti
Hér má líka nefna dauða-
dómana yfir Lazlo Rajk og
félögum hans ■ í september
1949, því þeir áttu eflaust
sinn þátt í að undirbúa jarð-
veg byltingarinnar. Rajk
varð utanríkisráðherra Ung-
verjalands í ágúst 1948 og
var í miklum uppgangi inn-
an flokksins. Á sama tíma
skarst í odda milli Stalins og
Títós, og hófst þá ógnaröld
víða í leppríkjunum, þar sem
menn voru fangelsaðir og líf-
látnir fyrir „Títóisma". Rajk
var handtekinn ásamt all-
mörgum mönnum öðrum og
hengdur. Hafði hann þá jót-
að á sig glæpi og „villutrú'*
sem nægðu honum til lífláts.
En sjö árum síðar, eða 6.
október 1956, kom í ljós, að
breyting var á orðin, því nú
gengu 200.000 manns hjá
kistum Rajks og félaga hans
ungversku byltingarinnar
Hannes Pétursson:
BOÐBERARNIR
Þeir telia sig málsvara smælingjans
— og þeir fjötra smælingjann.
Þeir telja sig málsvara orðsins
— og þeir tortíma orðinu.
Þeir telja sig málsvara framtíðarinnar
— og bera eld að framtíðinni.
FrekjuJeg augu þeirra betla sér aðdáun.
larmn rMi—nftii’ r* ——