Morgunblaðið - 24.10.1961, Page 23
Þriðjudagur 24. okt. 1961
MORGVTSBl 4Ð1Ð
23
Bruggarar teknir
í Rangárvallasýslu
A LAUGARDAGSKVÖLD voru 4
icigregluþjónar úr Reykjavík við
löggæzlu á dansleik austur á
Hellu í Rangárvallasýslu. Tóku
þiir eftir ungum manni, sem
drakk úr pela, og fór hann svo
laumulega með fleyginn, að hann
vakti grun lögregluþjónanna um
að það væri brugg eða smyglað
vín á íerðinni. Athuguðu þeir
xnálið, og reyndist landi í pelan-
um. Kvaðst maðurinn eiga brugg
tæki geymd á bæ einum, þar sem
hann þyrði ekki að eiga þau
heima hjá sér. Hefði hann á sín-
um tíma farið með tækin og
lögn heim tli bóndans, sem hefði
fyrr um daginn bruggað land-
ann handa sér.
Lögregluþjónarnir höfðu sam-
band við sýslumann, sem bað þá
að taka áframhaldandi rannsókn
að sér þá um nóttina. Var úr, að
tveir lögregluþjónanna fóru heim
til bóndans, sem tækin geymdi,
ásamt tveimur lögregluþjónum
frá vegaeftirlitinu, en tveir urðu
eftir við gæzlu á dansleiknum.
Þegar heim til bónda var kom-
ið, sat hann við að brugga. Hafði
hann farið að brugga fyrir sjálf-
an sig, þegar pilturinn fór á
skemmtunina. Var hann að sjóða
eigin lögn og birgðir af sykri
og geri voru við höndina. Hafði
hann soðið slatta cif landa í rúm-
lega eina flösku, en hálftunna
stóð þarna rúmlega hálffull.
Lögreglumennirnir gerðu tækin
Og bruggið upptækt. Hellt var
niður úr tunnunni, eftir að sýn-
ishorn höfðu verið tekin. Verða
þau notuð við efnagreiningu.
Sýslumaður bað lögreglustjóra-
embættið í Reykjavík að ljúka
rannsókn í málinu, en síðan tek-
ur hann það til málsmeðferðar.
— Stjórnaná'aályktun
ínarka stefnu ríklsius i atvinnuutálum, en ltins vr«ar a®
einstaklingum og samtökum landsmanna ljóst, hverju j j
getur áorkað, ef hún sameinar krafta sína til skipulegTar en
frjálsrar uppbyggingar á efnahagskerfi landsins, Því að enn,
sem fyrr er frjálst framtak, samkeppni og eignarréttur ein-
staklinganna fjörgjafi allra framfara.
3. Lögfestar verði á því Alþingi, er nú situr, umbætur í skatta-
og útsvarsmálum, sem opni atvirtnulífinu möguleika til vaxtar
og endurnýjunar, og skapi heilbrigt andrúmsloft um þessi
mál. Endurskoðun tollamála miði að því að gera allt tolla-
kerfið einfaldara og ódýrara í framkvæmd og færa niður tolla
svo sem frekast er unnt.
4. Ætíð verði gætt jafnvægis í uppbyggingu atvinnuvega um
gervallt landið, svo sem með því, að almannavaldið komi til
aðstoðar, ef að ber tímabundna og óvenjulega erfiðleika í ein-
stökum landshlutum og atvinnugreinum.
5. Aldrei má gleyma kjörorðinu „stétt með stétt“ Vinnulöggjöf
landsins verður að endurskoða með það í huga og tryggja, að
lýðræði ráði í stéttar-félögunum ekki síður en í sjálfu þjóð-
félaginu. Lögð sé á.herzla á að bæta lífskjör þjóðarinnar á raun-
hæfan hátt með auknum framleiðsluafköstum, m. a. með betra
vinmifyrirkomulagi, ákvæðisvinnu og tryggingu fyrir fastri
vinnu, þar sem slíku verður við komið. Jafnframt verði að því
unnið að koma á fót samstarfsnefndum launþega og vinnu-
veitenda
6. Þjóðir Vestur-Evrópu, sem fslendingar hafa frá fornu fari haft
mest og bezt viðskipti við, efla nú mjög samvinnu sína í efna-
hagsmálum, og er íslandi brýn nauðsyn á að slitna ekki úr
tengslum við þá þróun. Þess vegna ber að leitast við að tryggja
aðild okkar að Efnahagsbandalagi Evrópu, án þess að undir-
gangast samningsákvæði, sem hér geta með engu móti átt við.
7. Allar þjóðir eiga mest undir því komið, að friður haldist í
heiminum og ber íslendingum þess vegna að stuðla að því
eftir föngum, að svo megi verða, m. a. með traustum vörnum
landsins í nánu .samstarfi við önnur ríki innan Atlantshafs-
bandalagsins.
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna skipi íslendingar sér ætíð,
svo sem verið hefir, í sveit þeirra sem standa vörð um mann-
helgi, frið, frelsi og sjá.lfsákvörðunarrétt einstaklinga og þjóða.
Sjálfstæðisflokkurinn ieggur áherzlu á, að sem allra flestir verði
fjárhagslega sjálfstæðir. Þessu marki verður bezt náð með því
að efla atvinnurekstur einstaklinga og félaga en forðast þjóðnýt-
fngu atvinnutækja. Jafnframt ber að keppa að því, að stöðugt
fleiri fjölskyldur eignist eigið íbúðarhúsnæði. Þá ber og að greiða
fyrir stofnun almenningshlutafélaga, svo að allur fjöldi lands-
manna verði virkur þá.tttakandi í atvinnurekstri með eignaraðild
að stórfyrirtækjum framtíðarinnar.
Með sjálfstæði einstaklinganna er lýðræði bezt tryggt og örugg-
ur cfnahagur er eitt af skilyrðum lífshamingju borgaranna. I
Bjálfstæðisstefnunni sameinast hugsjónir frelsis því framförum
og almennri hagsæld.
fslendingum fjölgar nú ört. Búum landið sem bezt i hendur
komandi kynslóða, stöndum vörð um frelsi þjóðarinnar og sjálf-
Btæði einstaklinganna, svo að æskulýðurinn geti nevtt hæfileika
Binna og þekkingar til blessunar íslandi um alla framtíð.
' samþykkti landsfundurinn
Svohljóðandi tillögu frá Gunnari
G. Schram, Höskuldi Olafssyni og
Guðmundi Guðmundssyni:
, .Landsfundur Sjólfstæðisflokks
ins 1961 tekur undir þá fordæm-
ingu á kjarnorkusprengingum
Sovétríkjanna, sem fregnir ber-
»st af hvaðanæva úr heiminum
og bendir á þá geigvænlegu geisl-
unarhættu, sem íslenzku þjóðinni
og allri heimsbyggðinni er búin,
ef Sovétríkin halda áfram kjarn-
orkusprengingum sínum og sér í
lagi sprengingum risakjarnorku-
eprengja, svo sem boðað hefir
verið siðar í þessum mánuðL
Framtiðarvelferð óg heilbrigði
þjóðarinnar er stofnað í
mikla hættu, ef sprengingar
þessar verða ekki stöðvaðar. Um
leið og landsfundur lýsir ánægju
sinni yfir því, að Island skuli
eiga aöild að flutningi tillögu um
þetta mál innan vébanda Sam-
einuðu pjóðanna, mótmælir fund-
urinn þessu vítaverða atferii
Sovétríkjanna.
Skorar fundurinn á þingmenn
flokksins að beita sér fyrir því,
að Alþingi mótmæli kjarnorku-
sprengingum Sovétríkjanna, sem
geta haft ógnvænlegar afleiðing-
ar fyrir framtið alls mannkyns.“
Vel heppnað héraðsmót í Kjós
SÍÐASTLIÐIÐ Iaugardagskvöld. Ræðumenn voru þeir Bjami
héldu Sjálfstæðismenn í Kjósar- Benediktsson. forsælisráðherra,
sýslu ágætt héraðsmót að Félags og Matthías A. Mat'hiesen, alþm.
garði í Kjós. Voru þar fluttar| Fjölluðu ræður þeirra um við-
ræður, skemmtiatriði og loks horfið í þjóðmálunum og var
dansað. I mjög vel tekið af áheyrendum.
I Að ræðum loknum var flutt
Formaður Sjálfstæðisfélagsins óperettan Ráðskonuríki eftir Per
Þorsteins Ingólfssonar, Jón Guð-j golesi. Síðan var stiginn dans.
mundsson. bóndi á Reykjum, Hérðasmót þetta var fjölmennt
setti mótið og stjórnaði því. —I og þótti mjög vel heppnað.
Peningum stolið og
sumarbústaðir
brotnir upp
HAFNARFIROI. — Aðfaranótt*--
sunnudagsins var brotizt inn í
Sunrdhöllina hér og stoliö þar
3 þús. kr. í peningum og spari-
sjóðsbók, sem í voru 8 þús. kr.
Var brotinn upp gluggi baka
til. að snyrtiherbergi kvenna,
þaðan farið inn í skrifstofuher-
bergi og brotið upp borð, þar
sem hlutir þessir voru. Hefir
nokkrum sinnum áður verið
brotizt inm í Sundhöllina og pen
ingum stolið.
Þá var þessa sömu nótt brot-
izt inn í allmarga sumarbústaði
í Sléttuhlíð og við Urriðakots-
vatn. Var gengið þarna mjög illa
um. rúður, hurðir og húsgögn
meira og minna brotin og
skemmd.
Eru það eindregin tilmæli lög-
reglustjórans, Jóns Guðmunds-
sonar. að hver sá, sem gæti gef-
ið upplýsingar um mannaferðir
á þessum tveimur stöðum um-
rædda nótt, hafi samband við
hann. — G. E.
Fjöltefli fyrir
unglinga
HINN ungi og snjalli skákmeist-
ari, Jón Hájfdánarson, teflir fjöl-
tefli við drengi að Lindargötu 50,
þriðjudaginn 24. þ.m. kl. 8 e.h.
Með íjölteíli þessu hefst vetrar-
starf taflklúbba á vegum Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur og Tafl-
félags Reykjavíkur, og verða þeir
að Lindargötu 50 á hverju þriðju
dagskvöldi kl. 8 e.h. til jóla. Auk
þessa fjölteflis munu drengirnir
fá tilsögn í skák, efnt verður til
kappmóta og sýndar og skýrðar
skákir á veggtafli og mun Jón
Hálfdánarson annast þessa
kennslu.
— Landsfundurinn
Framh. af bls. 1
ins og var sami háttur á hafður
og áður, að engar tilnefningar
voru gerðar. Urslit þeirra kosn-
inga urðu þau, að Gunnar Thor-
oddsen, fjármálaráðherra, var
kjörinn, einnig með öllum þorra
atkvæða. Fundarmenn hylltu
hinn nýkjörna varaformann, en
hahn þakkaði með nokkrum orð-
um fyrir það traust, sem sér hefði
verið sýnt. Sagði hann, að þeim
Bjarna Benediktssyni væri báð-
um mikill vandi á höndum, hon-
Um að setjast í sæti Olafs Thors,
en sér að skipa hið fyrra sæti
Bjarna Benediktssonar.
„En það er ósk og von og
vilji okkar beggja, að samstarf
okkar mótist af þeim sama anda
og eindrægni, sem jafnan hefur
einkennt samstarfs Olafs og
Bjarna“, sagði fjármálaráðherra.
Síðan fór fram kjör miðstjórn-
armanna og er getið um það á
öðrum stað í blaðinu.
Fundarslit
A þessum siðdegisfundi héldu
umræður áfram og tóku þá til
máls: Davíð Olafsson, Hannes
Þorsteinsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Jakobina Mathiesen,
Halldór Briem, Olafur Björnsson,
Guðjón Hansen, Guðrún Guð-
mundsdóttir, Bjarni Benedikts-
son, Ingólfur Möller, Olafur
Bjarnason, Eggert Kristjánsson,
Hermóður Guðmundsson, Axel
Tulinius, Þorkell Sigurðsson,
Bjartmar Guðmundsson, Guðni
Þorsteinsson, H. J. Hólmjárn
Sveinn Olafsson, Þorlákur Björns
son, Bernharður Bjarnason og
Arni Johnsen.
Um 6-leytið var umræðum lok-
ið og var stjórnmálaályktunin þá
afgreidd og samþykkt samhijóða.
Að því búnu ávarpaði formað-
ur Sjálfstæðisflokksins þingfull-
trúa og sleit síðan þessum merka
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Síld til Keflavíkur
KEFLAVÍK, 23. okt. — Fjórir
bátar komu til Keflavíkur í dag
með 1040 tn. síldar. Víðir II fékk
700 tn. Ingiher Ólafsson 90 tn,
Árni Þorkelsson 150 tn, og Berg-
vík 100 tn. — Byrjað er að salta
á þremur stöðvum, en eitthvað
af síldinni er fryst. Síldin er góð,
stór, jöfn o, feit. — Helgi S.
Táragas
í Berlín
Berlín, 23. ókt. (AP)
TIL átaka kom í dag milli
lögreglu Austur- og Vestur-
Berlínar. — Vörpuðu sveitir
lögreglumanna beggja vegna
„landamæranna“ táragas-
sprengjum hvorir á aðra.
Vestur-þýzka lögreglan hefur
hingað til aðeins verið búin
skammbyssum og kylfum, en
austur-þýzka lögreglan hefur
hins vegóir verið vopnuð hríð-
skotabyssum. I dag fékk vestur-
þýzka lögreglan bæði hríðskota-
byssur og táragassprengjur. Leið
ekki á löngu áður en táragas-
sprengjurnar komu í góðar þarf-
ir. I Wollankstrasse, við mörkin
á franska svæðinu reyndu komm
únistar að þagga niður í mönn-
um sem sendu tóninn yfir til
Austur-Berlínar gegnum hátal-
ara. Vörpuðu kommúnistar fimm
táragassprengjum að hátalaran-
um. Aðeins tvær sprengjanna
sprungu, en vestur-þýzka lögregl
an svaraði í sömu mynt og varp-
aði sex táragassprengjum yfir
mörkin „með góðum árangri", að
því er talsmaður lögregiunnar
segir.
— Sprengjan
Framh. af bls. 15
stóð vindur í meginstefnu af suð
vestri í gær, þ. e. nokikurn veginn
í áttina til sprengisvæðisins.
I fréttum frá Washing-
ton seint í gærkvöldi var á-
ætlað, að við sprenginguna
kynni að hafa myndazt
geislavirkt ryk, er næmi 15—
25 milljónum lesta. — Gera
mætti ráð fyrir, að mikill
hluti þessa geislaryks myndi
falla til jarðar með regni
bæði á norður- og suður-
hveli jarðar með vorinu —
en jafnvel nokkur ár gætu
liðið áður en það hefði allt
fallið til jarðar.
Þá sagði, að ef umrædd
sprengja væri um 50 mega-
lestir að stærð, gæti hún
„framleitt“ svo mikið ryk,
að það næmi um einum
þriðja alls þess helryks, sem
myndazt hefði við ALLAR
kjarnasprengingar ALLRA
kjarnorkuveldanna til þessa.
SiAKSTEI^AR
Þeir eru feiinnir
Moskvumálgagnið á íslandi er
feimið á sunnudaginn. Fram að
þessu hefnr því þótt mestum tíð-
indum sæta, hvað gept væri og
samþykkt á kommúnistaþinginu
i Moskvu og er það að vonum.
En á sunnudaginn verða menn
að leita með logandi ljósi tii
þess að finnr. frétt af þessu þingi.
Verða þeir gerðir
flokksrækir?
aiM
MÖSKVU 21/10 — Að sög
Reuters skýrir #’náigagn Komm
únistaffoktcs Sovétrikiannl|
Pravda, frá hvi í da? að fuV
úar á 22. flokksþinginu
•/Xtó'íXC'XívXCíí'f'ÁW&iSltVcMfe'/iéXwvX'ÍSXssíittvÍSM
Hún finnst raunar falin á næst-
öftustu síðu og er nokkrar linur
í spurnarformi. Eru það þó eng-
in smátíðindi, þegar ofsóknir
eru hafnar gegn nokkrum fyrr-
verandi ráðherrum, sendiherrum
og sjálfum fyrrverandi forsetan-
um. Segja má, að feimni Moskvu
málgagnsins bendi til bess að ein
hver taug sem fréttir þessar
snerta sé í þeim, sem það ritar,
en hitta geta menn verið vissir
um, að nú sem fyrr verða allar
slíkar tilfinningar látnar víkja,
þótt það kunni að taka nokkra
daiga þangað til dýrðaróðurinn
um ógnarstjórnina hefst að
nýju.
Enn ekkert svar
Þrátt fyrir margítrekaða fyrir-
spum um það, hvort fulltrúar
kommúnistadeildarinnar á Is-
landi, sem nú sitja þingið í
Moskvu, hafi klappað Krúsjeff
lof í lófa, er hann tilkynnti fyrir-
ætlanirnar um ógnarsprenging-
una, hefur Þjóðviljinn enn engu
svarað. Við spurningu þessa
þurfum við enn að bæta: Fögn-
nðu þeir Guðmundur Vigfússon
og Eggert Þorbjamarson þegar
kunngert var um hinar nýju
hreinsanir? Styðja kommúnistar
á íslandi yfirleitt allt það, sem
nú er aðhafzt á kommúnistaþing-
inu, eða er ennþá einhver snefill
af sjálfstæðri og heilbrigðri hugs
un til meðal þeirra? Þessarar
spumingar spyrja allir lands-
menn í dag og Moskvumálgagnið
kemst ekki hjá því að svara.
Dagur Sameinuðu
þjóðanna
I dag er dag-
ar Sameinuðu
þjóðanna, þeirr-
ar stofnunar er
vonir mannkyns
ins um frið og
frelsi em hvar
helzt við tengd-
ar. Eðlilegt er
þvi að menn
renni huganum
að því starfi,
sem innan vébanda SÞ er unnið.
Hið daglega stjómmálaþras hér-
lendis og annars staðar skyggir
oft á mikilvægi þeirra starfa,
sem á vettvangi alþjóðamála em
unnin og raunar er afskiptaleysi
o’.kar íslendinga í því efni alltof
mikið.
Því verður að vísu ekki neitað,
að Sameinuðu þjóðirnar hafa
verið vanmáttugri en menn
höfðu vonað og óskað. Oft og tíð-
um hefur lítill árangur orðið af
viðleitni samtakanna til að ráða
fram úr hinum brýnustu vanda-
málum. Sú staðreynd breytir því
þó ekki, að margt hefur vel verið
gert og án Sameinuðu þjóðanna
kynni heimsstyrjöld þegar að
hafa brotizt út. Það er þess
vegna brýn nauðsyn að frjálsir
menn um heim allan leggi sig
fram um að styrkja þessi samtök
friðar og farsældar.